Morgunblaðið - 28.12.1990, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990
„Borð lyrirtvo. ftlat íyrir -ft'mm"
Ast er...
10-21
... að halda góðu sam-
bandi.
Með
morgunkaffinu
HVER GETUR HJÁLPAÐ?
Til Velvakanda.
Hvers konar þjóðfélag er þetta
orðið? Ég bara spyr. Þannig er mál
með vexti að ég er einstæð móðir
með þrjú ung börn og hef ekki
mikla möguleika á því að vinna
úti. Enda hef ég ekkert sérstakan
áhuga á því, ég vil frekar vera
heima með börnin. Hvernig stendur
á því að félagsmálakerfíð hleypur
ekki undir bagga hjá fólki sem
þarf á því að halda?
í mínu tilfelli er það þannig að
elsta barn mitt, sem er fimm ára,
hefur þurft að ganga í gegnum
langa og stranga læknismeðferð
vegna lífshættulegs sjúkdóms. Og
gat ég ekki vegna þess unnið úti
og þurfti því að hætta að vinna,
eins og gefur að skilja.
En á meðan söfnuðust upp skuld-
ir sem að stórum hluta til orsökuðu
skilnað og er ég nú með ógreiddar
skuldir sem eru upp á tæpa millj-
ón. Og er meiri hlutinn lögfræði-
kostnaður.
Hvernig í veröldinni á að fara
að þessu? Ekki fæ ég lán enda
engin borgunarmanneskja. Og hver
vill skrifa uppá þegar ekki er stað-
HEILRÆÐI
Um áramótin er að jafnaði kveikt í miklu af margs konar flugeld-
um, stjörnuljósum og blysum. Slíkt getur verið stórhættulegt, ef
ekki er rétt að staðið og margir hafa slasast alvarlega þess vegna.
Kynnið ykkur því vel allar leiðbeiningar um meðferð og notkun
þessara skrautljósa. Farið í einu og öllu samkvæmt þeim ráðum,
sem þar eru gefin. Höldum gleðileg áramót með slysalausum
dögum.
ið í skilum? Því sem einstæð móðir
með þijú börn fæ ég frá trygging-
unum kr. 40.485, sem er meðlag
og mæðralaun. Nú, ég fæ einnig
kr. 8.386 í barnaörorkubætur og
samtals gerir þetta kr. 48.781.
Ekki eru það miídir peningar þegar
maður borgar 35.000 í húsaleigu
og á eftir að kaupa í matinn sem
allir íslendingar vita að er alveg
fáránlega dýrt. Og ég tala nú ekki
um að reka bíl.
Og ég verð að segja það að þeg-
ar ég leita eftir niðurfellingu hjá
lögfræðingum, þá er ekki um mik-
inn skilning að ræða þar. Þeir vilja
bara fá sína okurvexti. Meira að
segja er gengið svo langt að taka
af manni bíldrusluna sem er einsk-
is virði en kemur manni þó á milli
staða. Hvernig er þetta hægt og
hver getur hjálpað? Ég bara spyr.
Björk
---------------
Merk bók
Til Velvakanda.
Það er af skyldugri virðingu og
þökk sem ég vil víkja nokkrum
orðum að Velvakanda nú er jól
ganga í garð.
Fyrir skemmstu barst mér í
hendur bókin Mér leggst alltaf eitt-
hvað til, er Jónína Mikaelsdóttir
hefur ritað um ævi og störf Ses-
selju Sigmundsdóttur á Sólheimum.
Virðingin fellst í aðdáun á því
brautryðjendaverki sem Sesselja
vann fyrir fatlaða í landinu.
Þökkina á þessi merki brautryðj-
andi einnig, ásamt henni, sem af
einstakri alúð og list hefur unnið
úr dreifðum heimildum um líf og
starf Sesselju.
Það var því við hæfi að bók þessi
markaði lok merkisatburða á 60
ára afmælisári starfs á Sólheimum
í Grímsnesi.
Enda er með henni í heiðri höfð
þau orð er Þórarinn Björnsson skól-
ameistari við Menntaskólann á
Akureyri lét eitt sinn falla og eru
á þá leið, að af því að við íslending-
ar erum svo fáir, skipti það enn
meira máli en ella að hver einstakl-
ingur dugi.
Styrktarsjóði Sólheima ber þökk
fyrir að stuðla að útkomu þessarar
bókar.
Gylfi Jónsson safnaðar-
prestur, Grensáskirkju.
Víkverji skrífar
ótt margir hafi átt um sárt að
binda vegna hörmulegra slysa
rétt fyrir jól, voru hátíðarnar stór-
slysalausar. Samkvæmt heimildum
Víkveija var kirkjusókn góð og var
hún slík t.d. í Bústaðakirkju á að-
fangadagskvöld, að alls staðar var
setið og staðið, í fordyri kirkjunnar
og safnaðarheimili.
XXX
Síðustu fréttir frá Sovétríkjunum
gefa ekki góðar vonir um
áframhald perestroiku þar í landi.
Afsögn Edúards Shevardnadze ut-
anríkisráðherra á fimmtudag fyrir
jól og síðan afsögn fjármálaráð-
herra Rússlands um jólin, sem einn-
ig hefur verið mikill talsmaður auk-
ins frjálslyndis eru daprir atburðir.
Kerfiskarlarnir gömlu virðast
komnir á kreik að nýju og forsætis-
ráðherrann liggur veikur eftir
hjartaáfall. KGB lætur meir á sér
bera en áður og foringi öryggislög-
reglunnar, Vladimír Kríútskov, flyt-
ur nú ræður, sem þykja minna á
ræður frá tímum Brezhnevs.
Allt er þetta heldur válegt og
kerfiskarlarnir væna nú Vesturlönd
um að selja JSovétríkjunum
skemmdan varning og að þau vinni
að því að tærna gjaldeyrissjóði Sov-
étríkjanna. A sama tíma og Vestur-
lönd senda gjafir og styrki til lands-
ins og veita beztu viðskiptakjör,
vinna þessi öfl að því að auka á
tortryggni í garð lýðsræðisríkjanna,
svona rétt eins og verið sé að und-
irbúa stefnubreytingu, afturhvarf
til fyrri tíma.
En þótt þessi válegu tíðindi ber-
ist nú að austan, er eitt víst, að
eftir þessa fijálsræðisbylgju, verður
eigi aftur snúið til fyrri tíma í fyrr-
um leppríkjum Sovétríkjanna. Þar
hafa víða farið fram lýðræðislegar
kosningar og nú situr erkióvinur
kommúnismans í Póllandi, Lech
Walesa, á forsetastóli. Hann sem
aðrir forystumenn þessara nýfijálsu
þjóða eiga nú mikið og erfitt verk
fyrir höndum, uppbyggingu efna-
hagslífsins. Sovétríkin ætla hins
vegar að því er virðist að halda
áfram á vonleysisbraut kommún-
ismans, enn um sinn. Það virðist
verða sorgarsaga þessara annars
jákvæðu breytinga.
xxx
Starfsmenn Hitaveitu Reykjavík-
ur hafa unnið hörðum höndum
við að koma upphitunarmálum í
húsum í samt lag og samkvæmt
fréttum virðist sem það sé að tak-
ast. Fátt er eins óskemmtilegt en
sitja í köldum húsakynnum og það
þá ekki sízt á jólum, þegar menn
vilja hafa það sem notalegast. En
það virðist ekki aðeins vera mann-
fólkið, sem orðið hefur fyrir barðinu
á vandræðum Hitaveitunnar. Fugl-
arnir á Tjörninni hafa ekki farið
varhluta af erfiðleikunum, nú er
engin vök á Tjörninni við Iðnaðar-
mannafélagshúsið svo sem endra-
nær, þegar heitt vatn streymir í
Tjörnina.