Morgunblaðið - 28.12.1990, Side 45

Morgunblaðið - 28.12.1990, Side 45
MOKGl.KttLAftlff >PðfetlJ6A,<.;ii'R/ £B.’ DESEMBBRI HftffO ■"1-1)7 45 i VELVAKANDI SVARAR I SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS ANDLEG FÆÐA Til Velvakanda. Eins og maðurinn hefur þörf fyr- ir það að nærast, svo hefur hann einnig þörf fyrir andlega fæðu. í þessu sambandi hef ég mikið leitt hugann að boðorðunum í bibl- íunni. Því er nefnilega þannig farið, að með því að fara eftir þeirri guð- legu leiðsögn, sem þar er að finna, hlífir maðurinn sér við stórvægileg- um áfollum sem annars gætu lagt bæði líkamlegt og andlegt líf hans í rúst. Sú hin guðlega leiðsögn sem maðurinn á í biblíunni, er þar hon- um til góða. I biblíunni gefst mann- inum kostur á því að læra hvað sé vilji Guðs, hið góða, fagra og full- komna. Þar finnur hann ráðlegging- ar hinum til heilla og veit hvert hann á að snúa sér þegar hann stendur frammi fyrir erfiðum ákvörðunum. Trúað fólk þekkir þetta mæta vel. En það hefur líka rekið sig illilega á ef það hefur sök- um mannlegs breyskleika, sem við öll erum ofurseld, tekið eigin ákvarðanir sem btjóta í bága við lög Guðs. Þó svo allt virðist leika í lyndi, einhvern tíma, þá kemur að því að brotalömin gefur sig, og maðurinn sér að hann hefur gert mistök og situr eftir særður, og þarf oft að líða miklar þjáningar af gjörðum sínum. Vegna þess að þær voru ekki Guði velþóknanlegar, og ekki heldur guðsbarninu, manninum sjálfum. Eins og mannlegur faðir vill börnum sínum allt það besta, eins leiðbeinir Guð manninum í gegnum orð sitt og anda, að velja hið góða, fagra og fullkomna. Við getum nefnilega hlíft okkur við miklum andlegum þjáningum, ef við förum að lögum og boðum Guðs, þar sem mest allt mannanna bölið stafar af broti á boðorðum Guðs. Þurfum við ekki annað en að líta á hið nýja boðorð sem Kristur Jesús gaf okkur mönnunum og er á þessa leið: Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. Þegar við skoðum þessi faliegu orð frelsarans, þá sjáum við í hjarta okkar hversu breysk og mannleg við erum, og hljótum að beija okkur á bijóst og segja: Drott- inn, miskunna mér. Tii eru bæði veraldleg Iög og guðslög. Eins og maðurinn þarf að taka út refsingu bijóti hann gegn landslögum, eins þarf hann að líða þjáningar ef hann fer ekki að lögum Guðs. I báðum tilfellum refsar hann sjálfum sér með rangri breytni sinni. Hann kallar sjálfur yfir sig dóm og oft þjáningarfulla afplánun. Okkur er því hollt að hlusta á sam- visku okkar, og lesa biblíuna til að sjá hvað sé vilji Guðs, hið góða, fagra og fullkomna, og lifa í gleði í sátt við Guð og menn. Einar Ingvi Magnússon Fórnum ekki fullveldinu Til Velvakanda. Fyrir nokkrum tugum ára var drukkinn heiðursmaður aldraður, leiddur milli tveggja varða laganna frá Hótel Borg til lögregluvarð- stöðvarinnar, sem þá var í Pósthús- stræti. Hinum virta borgara fannst sér gi-óflega misboðið, og er farið var með hann yfir 'Austurstrætið kallaði hann svo undir tók í húsun- um: „Er enginn íslendingur hér?“ Þessi fleygu orð komu mér í huga þegar ég las um fund, sem boðað var til á vegum utanríkisráð- uneytisins og varð tilefni til blaða- skrifa vegna óhóflegs kostnaðar. Þessi fundur mun hafa verið skipu- lagður til þess að reyna að telja landsmönnum trú um að við getum ekki lengur lifað sem fullvalda og sjálfstæð þjóð og því beri okkur að afhenda fullveldið í áföngum til Brussei, hleypa erlendum fiskiflota í landhelgina og taumlausum flutn- ingi hingað á fólki og fjármunum, sem vitanlega yrðu notaðir til þess að kaupa upp auðlindir landsins. Og það er eitt ráðuneytanna sem boðar þessa stefnu í sjálfstæðismál- um okkar. Já, öðruvísi mér áður brá. En hvar voru íslendingarnir, voru þeir ekki á þessum fundi? Er nema von að spurt, sé. Fóstuijörðin virðist ekki eiga marga málsvara þessa dagana, þótt virðingarverðar greinar hafi verið birtar, m.a. eftir Hannes Jónsson fyrrv. sendiherra og stórgott viðtal við Sigmund Guðbjarnason rektor Háskóla ís- lands. En betur má ef duga skal, þegar tekið er tillit til að ríkið virð- ist fara fyrir öðrum í að aflienda fullveldið til þjóða meginlandsins. Islendingur Hver á þessa læðu? Þessi læða er búin að eigna sér heimili í húsi einu í Garðabæ síðan í sumar. Líklega er búið að taka hana úr sambandi. Hún er ómerkt, með frekar loðið skott og mjög þrifin. Vinsamlegast hringið í síma 657618. IixiisssoaaKsssoŒ , OPIÐ LAUGARDAG TIL KL. 12.00 S C\) 1 OPIÐ GAMLARSDAG TIL KL. 12.00 fw>«w>ss«»OÆs<jawiíasö5as(>í^i!^ | ' | ssoíB . 1 VEGNA HLUTABREFAKAUPA Hlutabréfasjóðurinn hf. hefur starfað síðastliðin fjögur ár. Hlutabréfasjóðurinn hf. ver hlutafé sínu til fjárfestinga í hlutabréfum og skuldabréfum traustra atvinnufyrirtækja. Spyrjist fyrir um hlutabréf í Hlutabréfasjóðnum hf., elsta og öflugasta hlutabréfasjóði landsins, þar sem hluthafar eru hátt á fjórtánda hundrað og eignir tæpur hálfur milljarður. Kaup einstaklinga á hlutabréfum í sjóðnum eru frádráttarbær frá skattskyldum tekjum upp að vissu marki. Áhættudreifing á einum stað. Hlutabréfasjóðurinn hf. Skólavörðustíg 12,101 Reykjavík, sími 21677. SKATTAIÆKKIJN J I BRÉFA- BINDIN frá Múlalundi... ... þar eru gögnin á góðum stað. Múlalundur SlMI: 62 84 50 Launaforrit sem hentar fyrir alla alménna launaútreikninga. Það þarf aðeins að slá inn lágmarks- upplýsingar, LAUN sér um allt annað. LAUN, sem er einnig þekkt sem Rafreiknislaun er i notkun í 500 fyrirtækjum og mun vera mest notaða launaforritið á íslandi. Athugiö aö LAUN sér um allt sem snýr aö staögreiöslu skatta. LAUN fæst í næstu tölvuverslun. Einar J. Skúlason hf. Grensásvegi 10, 108 Reykjavlk. Slmi (91) 686933 51. leikvika - 22. des. 1990 Röðin : 112-111-21X-211 HVERVANN? 2.643.006- kr. 12 réttir: O röö kom fram og fær hún : O-kr. 11 réttir: 41 raöir komu fram og fær hver: 10.478-kr. 10 réttir: 561 raöir komu fram og fær hver: 765 - kr. Fjórfaldur pottur - næst! Vinningstölur iaugardaginn 22. des. 1990 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 0 14.280.553 o Z. 4af5^jgj| 2 692.363 3. 4af5 267 8.946 4. 3af 5 10.573 527 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 23.625.832 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.