Morgunblaðið - 03.01.1991, Síða 1
64 SIÐUR B
1. tbl. 79. árg. ______FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1991________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þrengt að Barre Sómalíuforseta:
Uppreisnarmenn
hafna viðræðum
Nairóbí. Reuter.
SOMALSKIR uppreisnarmenn höfnuðu í gær friðarviðræðum við full-
trúa s'tjórnar Siads Barre forseta sem stjórnað hefur Sómaliu í 21 ár.
Sögðu þeir það ófrávíkjanlegt skilyrði af sinni hálfu að forsetinn færi
frá völdum og kæmi sér úr landi áður en þeir settust niður til við-
ræðna um framtíð landsins. Starfsmenn flóttamannahjálpar Sameinuðu
þjóðanna yfirgáfu landið í gær og sögðu við komuna til nágranna-
ríkisins Kenýu að gífurlegir, linnulausir skotbardagar hefðu átt sér
stað undanfarna daga i höfuðborginni Mogadishu og rotnandi lík lægju
hvarvetna á götunum.
„Við semjum ekki frið við Siad
Barre,“ sagði Abdul Kadir, talsmaður
samtaka uppreisnarmanna í skrif-
stofum þeirra í Rómaborg. „Það
verður barist uns Barre fer úr landi
og við hvetjum ríki heims til að
þrýsta á hann að láta sig hverfa,"
sagði Kadir.
Sómalíustjórn hafnaði í gær tillög-
um og áætlunum ítala um brottflutn-
ing erlendra þegna frá landinu og í
yfirlýsingu sómalska sendiráðsins í
Rómaborg sagði að engin átök ættu
sér stað; sama kyrrð ríkti í Mogad-
Lettland;
Útgáfumið-
stöð hertekin
ishu og sérhverri evrópskri höfuð-
borg. Fólk sem komist hefur úr landi
hefur hins vegar skýrt frá hörðum
bardögum undanfarna fimm daga.
Frönsk freigáta siglir nú til Sóm-
alíu til þess að flytja útlendinga úr
landi ef þörf verður talin en a.m.k.
350 ítalskir borgarar dveljast þar í
landi og 120 aðrir Vesturlandabúar.
Uppreisnarmenn tóku til vopna
gegn Barre í ágúst sl. og ráða nú
stórum hluta landsins. Bardagar hóf-
ust í Mogadishu 29. desember og
sögðust uppreisnarmenn í gær hafa
umkringt neðanjarðarbyrgi sem
Barre hefðist við í og ætti hann enga
undankomuleið. Fulltrúar SÞ sem
komust úr landi í gær og aðrir heim-
ildarmenn sögðu mjög óljóst hvor
fylkingin hefði yfirhöndina í Mogad-
ishu, en þó virtist sem stjórnarherlið
réði enn alþjóðaflugvellinum og út-
varpinu.
Reuter
Albanskir flóttamenn fagna frelsinu
Alþanskir flóttamenn fagna því að vera sloppnir
undan oki kommúnismans. Myndin var tekin í skóla
í bænum Tsamadas í norðurhluta Grikklands en
þangað brutust um þijú þúsund albanskir karlar,
konur og börn um áramótin. Kleif fólkið fjöll og
firnindi á flóttanum og lagði á sig ómælt erfiði við
að komast á brott. Um fimm þúsund Albanir hafa
flúið til Grikklands með þessum hætti frá í desemb-
er sl. Flóttamennirnir tilheyrðu flestir gríska minni-
hlutanum í landinu.
Sjá ennfremur „Þúsundir Albana flýja
land ...“ á bls. 24.
Reynt til þrautar að finna stjórnmálalega lausn á Persaflóadeilunni:
Bush varar viö undariláts-
semi gagnvart Iraksstjóm
Atlantshafsbandalagið ákveður að styrkja varnir Tyrkja með 40 herþotum
Brussel, Washington, Bagdad, Nicosiu. Reuter.
MARLIN Fitzwater, talsmaður George Bush Bandaríkjaforseta, sagði
í gær að Irakar hefðu í engu svarað tillögum Bandaríkjastjórnar um
fundardag fyrir viðræður James Bakers utanríkisráðherra og Saddams
Husseins Iraksforseta í Bagdad. írakar virtust einnig staðráðnir í að
halda Kúveit. Jacques Poos, utanríkisráðherra Lúxemborgar er verður
forysturíki Evrópubandalagsins (EB) fyrri helming ársins, sagðist hins
vegar viss um að Saddam myndi hörfa áður en til átaka kæmi. Atlants-
hafsbandalagið hefur ákveðið að senda 40 herþotur, þ.á m. 18 frá
Þýskalandi, til styrktar vörnum Tyrklands vegna ástandsins.
Moskvu. Reuter.
HERMENN vopnaðir Kal-
ashnikov-rifflum umkringdu í gær
útgáfumiðstöð nokkurra blaða og
tímarita sem eru til húsa í sömu
byggingunni í Riga, höfuðborg
Lettlands. Starfsmenn efndu þeg-
ar í stað til mótmælaverkfalls.
Um tuttugu „svarthúfur" sem eru
hermenn á vegum innanríkisráðu-
neytisins lokuðu inngangi miðstöðv-
arinnar og umkringdu það síðan.
Þeir skipuðu lögreglu sem var innan
dyra að yfirgefa liúsið. Talsmaður
innanríkisráðuneytisins í Moskvu
sagði að þetta hefði ekki verið gert
samkvæmt skipunum frá Kreml.
Edúard Shevardnadze, sem sagði
nýlega af sér embætti utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, segir í viðtali
við vikuritið Moskvufréttir að hann
geti ekki sætt sig við að beitt verði
ofbeldi til að koma á lögum og reglu
í landinu. „Svo gæti farið að atburð-
irnir í Bakú og Tbilisi endurtækju
sig,“ sagði Shevardnadze og vísaði
þar til drápa Sovéthersveita á
óbreyttum borgurum.
Bush sagðist í sjónvarpsviðtali sem
ætlunin var að birta í gærkvöldi vona
að stríð við Iraka stæði ekki lengi
en bætti við: „Það verður aldrei of
dýru verði keypt að hrekja Saddam
frá Kúveit... Það er augljóst að ef
við stöðvum ekki þessa árásarstefnu,
ef Sameinuðu þjóðirnar og okkur
öllum mistekst ætl-
unarverkið munum
við þurfa að gjalda
það enn hærra
verði síðar.“ Að
kvöldi nýársdags
ræddi forsetinn
stöðu mála við
Persaflóa á fundi
með helstu ráðgjöf-
um sínum, þ.á m.
James Baker ut-
anríkisráðherra,
Dick Cheney varnarmálaráðherra,
Brent Scowcroft öryggismálaráð-
gjafa og Colin Powell, forseta banda-
ríska herráðsins. Mögulegt er að
Baker heimsæki á næstu dögum
bandamenn Vestui’veldanna í araba-
löndum til að samræma pólitískar
og hernaðarlegar aðgerðir.
írakar vilja að Baker komi til við-
ræðna í Bagdad 12. janúar en það
álíta Bandaríkjamenn að sé of seint.
15. janúar rennur út frestur sem SÞ
hafa sett írökum til að yfirgefa Kú-
veit og mega aðildarríkin hefja hern-
að gegn þeim hlíti þeir ekki sam-
þykktum SÞ fyrir þann tíma.
„Það stefnir ekki í styrjöld því að
ég hef það á tilfinningunni að Sadd-
am muni á síðustu stundu draga her
sinn á brott frá Kúveit,“ sagði Jaequ-
es Poos, utanríkisráðherra Lúxem-
borgar, í gær. „Öflugasti og nýtísku-
legasti herafli í heimi stendur and-
spænis her sem að vísu er fjölmenn-
ur en frá ríki úr Þriðja heiminum.
Ef Saddam Hussein kannar stöðuna
mun hann sjá að hann hlýtur að tapa
og þá lætur hann undan," sagði
Poos. Talið er mögulegt að á skyndi-
fundi utanríkisráðherra aðildarríkja
EB á morgun um Persaflóadeiluna
muni þeir heimila Poos að hefja
samningaviðræður við stjórnvöld í
Bagdad. Belgískir ráðamenn hafa
gefið í skyn að þeir séu ósammála
afstöðu Bandaríkjastjórnar í deilunni
um tímasetningu viðræðna við íraka;
öllu skipti að hefja viðræður jafnvel
þótt það verði ekki fyrr en á síðustu
stundu. Ýmsir stjórnmálaskýrendur
segja þó að ráðherrar EB muni á
morgun fyrst og fremst leggja
áherslu á samstöðu með Bandaríkja-
mönnum.
Jacques Santer, forsætisráðherra
Lúxemborgar, sagði í útvarpsviðtali
að ef Saddam drægi her sinn á brott
yrði mögulegt að ræða önnur deilu-
mál. Hins vegar kæmi ekki til mála
að tengja saman lausn á Kúveit-deil-
unni og ágreining um málefni Pal-
estínumanna.
Sjá ennfremur „Atlantshafs-
bandalagið sendir herþotur ..
á bls. 24.
Með plaströr í brjóstinu í 11 ár
Ósló. Frá Helge Sorensen, fréttaritara Morgunblaðsins.
NORSK kona gekk með tíu sentimetra langt plaströr í brjóstinu í
heil ellefu ár áður en læknar áttuðu sig á hvað að henni nmaði.
Rörið hafði orðið eftir þegar konan gekkst undir aðgerð vegna
krabbameins. Þetta er aðeins eitt af fjölmörgum dæmum urn að
sjúklingar hafi orðið að þola ónauðsynleg óþægindi og þjáningar
vegna mistaka á norskum spítölum að því er fram kemur í skýrslu
sem Tryggingastofnun sjúklinga gaf út fyrir skömmu.
í skýrslu stofnunarinnar kemur
fram að þess séu uggvænlega mörg
dæmi að hlutir gleymist inni í sjúkl-
ingum. Af 413 kærum sem stofn-
uninni bárust fyrstu tvö árin sem
hún starfaði voru ellefu vegna
slíkrar gleymsku. Það þykir mjög
hátt hlutfall þegar tölumar eru
bornar saman við sambærilegar
tölur frá Svíþjóð. Þarna er einkum
um að ræða vatttappa (til að stöðva
blæðingar), kompressur og plast-
rör.
Maður sem gekkst undir aðgerð
á blöðruhálskirtli Jenti í svipaðri
hremmingu. Um tíu mánuðum eftir
aðgerðina dró hann 12 sentimetra
langa gúmmíslöngu út úr þvagrás-
inni. Læknirinn sem annaðist að-
gerðina hafði aðeins fjarlægt lítinn
hluta slöngunnar.
Forseti norsku læknasamtak-
anna, Jon Haffner, vísar því á bug
að norskir læknar geri sig oftar
seka um handvömm en starfsfélag-
ar þeirra í öðrum löndum.