Morgunblaðið - 03.01.1991, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.01.1991, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1991 Fátt mun reynast þjóðinni meiri auður en hreint og fagurt land Áramótaávarp Steingríms Her- mannssonar forsætisráðherra Góðir íslendingar, í ávarpi mínu við síðustu áramót kvað ég forspáan mann sjá ljóma yfir íslandi seinni hluta þessa árs. Að þessu hentu ýmsir gaman og vildu vita hver spámaðurinn væri. Spámaðurinn var í raun þjóðin sjálf, fólkið i landinu. Fólkið var augljós- lega orðið uppgefið á .Hrunadansi verðbólgunnar. Það vildi stöðugleika og öryggi í stað óvissunnar. Nú mátti það takast, því grunnurinn hafði verið lagður. Og enn reyndist það rétt, sem skáldið sagði: „Vilji er allt sem þarf.“ Með framsýnum samningum um kaup og kjör, með stöðugleika að markmiði reisti fólkið „í verki viljans merki“. Til þess að ná því, sem að var stefnt, varð margt að bæta, og í því skyni varð ekki hjá því komist að fórna ýmsu um sinn. Atvinnuvegina varð að styrkja, þótt á kostnað kaupmáttar væri, enda verður aldrei velferð reist á rústum atvinnulífs. Það er stundum svo að jafnvel miklir hagsmunir verða að víkja fyrir öðrum, sem enn stærri eru. Stöðugleiki er orðinn þessari þjóð lífsnauðsyn. Aðeins í stöðugleika verður þjóðarbúið heil- brigt, þjóðin sterk og lífskjörin góð. Fyrsti áfanginn hefur náðst. Því er nú ljómi yfir landinu. Nú eru tímar mikilla breytinga, ekki aðeins hér á landi, heldur um heim allan. Að vísu er það ekki í fyrsta sinn. í heimssögunni eru tímamótin mörg. Að sumu leyti eru þau lík, en þó í mikilvægum atriðum ólík, einkum þau sem við lifum nú. Allt frá því að þjóðir urðu til, hefur ein lagt undir sig aðra og stór- veldi myndast. En stórveldin hafa ætíð sundrast um síðir. Sagan geymir ótal dæmi um slíkt. Og enn endurtekur sagan sig. A þessum síðustu tímamótum er þó grundvall- armunur. Áður voru það ætíð hin hörðu vopnin sem réðu. Þau skópu stór- veldin og sundruðu þeim svo. Nú er að auðurinn og fjármagnið, sem leggja undir sig löndin. Nú eru það efnahagsveldin sem myndast. Og þegar hagvöxturinn bregst, sundr- ast þau einnig. Hvötin hefur hins vegar oftast verið að safna auði og drottna, eða ná orku og hráefni fyrir framleiðsl- una, sem stöðugt þarf meira. Og svo er enn. Við íslendingar höfum verið í útjaðri slíkra sviptinga. Lengi þótti eftir litlu að leita á þessari harðbýlu eyju. Það er ekki fyrr en hin feng- sælu fiskimið finnast á 15. öld, að erlendar þjóðir girnast landsins auð. En síðan má segja, að hvert þorsk- astríðið reki annað. Þau voru áður á milli erlendra þjóða, sem vildu sitja ein að íslandsmiðum. Aðeins þau síðustu háðum við sjálfir, og það er fyrst eftir að við íslendingar erum orðnir fullvalda og sjálfstæð þjóð. Þá fyrst eru það lífshagsmun- ir þjóðarinnar sjálfrar sem lagðir eru á vogarskálarnar, og þó er það ekki fyrr en árið 1974 sem ísland- smið verða okkar eigin, En því er ég að rekja þessa sögu nú? Vegna þess að hún má ekki gleymast. Eins og sagan sýnir munu erlendar þjóðir eða efnahagssam- steypur aldrei láta stjómast af hags- munum hinnar örsmáu íslensku þjóðar, ef þær mega ráða landsins auði. Minnumst þess jafnframt að alþjóðleg fyrirtæki, sem velta árlega margföldum þjóðartekjum okkar íslendinga, eiga hægt með að eign- ast það sem þau girnast, ef landa- mærin eru ekki vel varin. Við íslendingar fögnum þeim tímamótum sem nú em í Evrópu. Við viljum taka þátt í þeim breyting- um sem em að gerast. Við viljum stuðla að því að gjöreyðingarvopn- um verði eytt, og við taki samstarf og samvinna, sem hafí manninn sjálfan, velferð hans og réttindi að leiðarljósi. Stórkostlegt var að mega sem fulltrúi þessarar litlu, óvopnuðu þjóðar skrifa undir griðasáttmála Evrópulandanna og heita því að leysa engar deilur með ófriði. Sjálfsagt er jafnframt fyrir okkur Islendinga að taka þátt í samningum um víðtæka efnahagssamvinnu í Evrópu. Við eigum stórra hagsmuna að gæta. En minnumst þess að mik- ilvægast er þó að ráða ætíð sem mestu af eigin málum sjálfír. Það eru í raun okkar stærstu hagsmunir. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra En þótt bjart sé yfír ýmsu á þess- um síðustu tímamótum, eru þó einn- ig stórar blikur á lofti. Aldrei hefur gjáin verið svo djúp á milli þjóða norður- og suðurhvels jarðar. Aidrei hafa svo margir farist úr hungri og örbirgð, aldrei fyrr hafa tugþúsundir bama látist á degi hveijum. Hlutur okkar íslendinga er afar lítill í þeirri aðstoð sem auðugu þjóð- imar hafa heitið. Það er að vísu góðra gjalda vert að framlag okkar til bamahjálpar Sameinuðu þjóð- anna var meira en þrefaldað við afgreiðslu fjárlaga nú fyrir jólin og þróunaraðstoðin aukin nokkuð. Einnig er það ánægjulegt, að marg- ir láta töluvert af hendi rakna í frjálsri söfnun hjálparstofnana. Engu að síður er það staðreynd, að okkar hlutur er magur. Úr því þarf að bæta. Við höfum af mörgu að miðla, meðal annars dýrmætri þekk- ingu, sem getur orðið vanþróuðum þjóðum mikils virði á leiðinni til sjálfsbjargar. Þegar griðasáttmálinn var undir- ritaður í París í nóvember síðastliðn- um, stóðu hersveitir gráar fyrir vopnum, tilbúnar til stríðs við Persa- flóa. Átök þar með nútíma ógnar- vopnum geta haft meiri og víðtæk- ari afleiðingar en nokkurn grunar. Ég tek undir með þeim íslendingum, sem skora á þjóðir heims að leita allra leiða til að koma í veg fyrir hemaðarátök. En klukkan gengur hratt og tíminn virðist illa nýttur. Við skulum vona, að úr því rætist strax á nýju ári. Stærst er þó að öllum líkindum sú blikan, sem boðar eyðingu um- hverfísins, ef hugsunarlaust er sótt fram á braut efnishyggjunnar. Á þeirri vegferð hefur ekki verið að því gáð, að græða sárin. Þvert á móti, í sárin hefur iðulega salti ver- ið stráð. Um það er ekki lengur deilt, að eiturefnin eyða hinu vemdandi ósónlagi himinhvolfsins og eitra andrúmsloftið svo, að gróðurinn gulnar og eyðist, og í sjóinn safnast úrgangsefni svo að sýkist og deyr hin lifandi auðlind hans. Þeir em hins vegar ótrúlega margir, sem telja ekki sannað, að út á ystu nöf sé komið, og því megi enn knýja af krafti Gróttakvörn efnishyggj- unnar, til bættra lífskjara, eins og það er gjarnan orðað. Þeim fjölgar þó sem telja að ekki verði lengur frestað að greiða toll- inn. Sá tollur verður hár, á því er enginn vafi, jafnvel svo, að hagvöxt- ur kann að verða lítill á næstu ámm eða áratugum. Sérstaklega er hætt við að svo fari, ef kappið verður ekki beislað og forsjá látin ráða mannsins gerðum. Þannig eru þau tímamót sem við lífum nú. Á þau fellur bæði ljómi og skuggi. Gatan um þau verður ekki bein og breið heldur, að öllum líkindum, vandratað einstigi. Við íslendingar stöndum að ýmsu leyti vel að vígi. Við búum við tiltölulega hreint umhverfi. Það sem hefur spillst get- um við bætt. Uppblásnu börðin get- um við grætt og víða klætt landið skógi á ný. Á þessu er, sem betur fer, vaxandi skilningur og vilji, sem ég efa ekki, að muni skila miklu í verki á næstu árum. Sjálfsagt er einnig að ljarlægja allt það, sem spillir umhverfínu, og ganga þannig frá öllum úrgangi, að ekki valdi tjóni. Ekki verður held- urhjá því komist að setja atvinnulíf- inu, og okkur sjálfum sem einstakl- ingum, ströngustu kröfur um meng- unarvarnir og góða umgengni. Vissulega er þetta mikið átak, en ekki nema smámunir þó hjá því, sem aðrar þjóðir eiga við að stríða. Og verkið er hafíð. Á umhverfismálum er nú skipulega tekið, enda verður að skipa þeim í öndvegi. Fátt mun reynast þjóðinni meiri auður en hreint pg fagurt land. Við Islendingar erum einnig svo iánsamir að hér á landi sveltur eng- inn þótt kjörin séu misjöfn. Við framleiðum sjálfír um það bil helm- ing af okkar fæðu og reyndar langt- um stærri hluta af því, sem nauð- synlegast er. Ég efa að nokkur þjóð njóti hollari og betri afurða síns lands og sjávar en við Islendingar. Á tiltölulega fáum árum hefur tekist að koma á fót velferðarkerfi, sem veitir ungum menntun, þeim lið sem minni máttar eru, og aðhlynn- ingu öldruðum og sjúkum. Ég hygg að allt sé þetta með því besta, sem þekkist. Undan því er að vísu kvart- að, að velferðarkerfið sé dýrt. Það gera einkum þeir, sem eru svo láns- amir að hafa þurft lítið á því að halda. Vissulega verður að hagræða og spara og láta það njóta forgangs sem nauðsynlegast er. Ég vil þó treysta því, að aldrei verði menntun og þjónusta við þá, sem sjúkir eru eða eiga á brattann að sækja, látin ráðast af efnum og aðstæðum ein- staklingsins. Þegar ég ferðast um friðsælar byggðir þessa lands, eða geng um fjölfamar götur, verður mér oft til þess hugsað hve mikils virði það er, að hér á landi berumst við ekki á banaspjótum eða stundum hryðju- verk. I Austurstræti taka menn mig tali, þakka sumt en lasta annað, en skilja ætíð sem vinir. Fáar þjóðir geta státað af slíku. Það er margt sem þessari þjóð hefur gott hlotnast eða hún sjálf skapað, margt sem verður að varð- veita. Enginn má þó skilja orð mín svo að enga sjái ég erfiðleikana. Þeir eru margir, meðal annars ýmsir sem virðast fylgja nútíma þjóðfélagi. Lífskjarakapphlaupið hefur til dæmis ' veikt fjölskylduna svo að heill bamanna gleymist æði oft. Lyklabörnin svonefndu eða þau veg- lausu eru smánarblettur á velferðar- þjóðfélagi. Úr þessu má eflaust bæta með dag heimilum og heils- dagsskólum, en slíkt kemur aldrei í stað fjölskyldunnar. Það er orðið brýnt að setja mann- gildið ofar auðgildinu, fagurt og gott mannlíf ofar efnishyggjunni. Sönn og góð lífskjör em sjaldan falin í söfnun eigna og auðæfa. Miklu fremur fylgja þau góðu lífí fjölskyldunnar sem nýtur þess sam- an, sem lífíð og landið hefur fagurt að bjóða. Góð lífskjör speglast ekki síst í hamingju og velferð bamanna. Þeir unglingar sem þannig njóta fjölskyldunnar í sínu uppeldi láta sjaldan freistast. Til þess að það megi takast sem við setjum okkur, er nauðsynlegt að atvinnulífið sé öflugt. Á fram- leiðslunni hvílir flest það, sem við viljum gera. Ef stöðugleiki ríkir em kostirnir margir. Sjórinn og landið er auð- ugt. Orkulindirnar eru mikils virði og ber að nýta þær af skynsemi. Þó hygg ég að fátt muni reynast þjóðinni meiri uppspretta velmegun- Vinningstölur laugardaginn 29. des. 1990 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN vVINNINGSHAFA 1. 5af 5 6 4.940.532 O 4. 4af5^,p 25 106.859 3. 4af 5 752 6.128 4. 3af 5 26.052 412 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 47.656.347 kr. ||H /L'U-UL'/j UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 ar, en sú þekking sem fólkið aflar sér, ekki síst æskan. Því verður að kappkosta að skapa atgervismönn- um aðstöðu til starfa og efla þann þekkingarbrunn sem þá fæðir, vísindin. Umhverfið, kyrrðin, hreint loft og vatn getur einnig skapað mikla atvinnu og tekjur. Það mun draga að ijöldann sem hollustu leitar. Vandinn verður að velja og gera það vel sem við kjósum. Ef til vill þykir þér, hlustandi góður, að ég dragi upp fagra mynd af framtíð hinnar íslensku þjóðar. Rétt er að framtíðin mun verða önnur, ef kylfa er látin ráða kasti. Hver hún yrði vitum við að sjálf- sögðu ekki, því réði kylfan. Þótt við ráðum, sem betur fer, ekki veðrum og vindum eða hita- stigi sjávar, er flest annað af mann- anna gerðum. Því getum við stjórn- að og eigum að gera af hagsýni og visku. Það er ekki síst nauðsynlegt nú, þegar landið opnast og sam- skipti við erlendar þjóðir fara vax- andi. Þá mun leiksviðið stækka og umsvif og frelsi einstaklingsins auk- ast. Það getur bæði orðið til góðs og ills. Það er undir okkar eigin verkum komið. Þá er mikilvægt að við stöndum traustum fótum á traustum grunni á heimaslóðum. Barlómur og uppgjöf eru ekki ís- lendingsins eðli. Það sæmir okkur betur að bretta upp ermar og taka til hendi. Með samtakamætti þjóðar- innar mun Grettistakinu verða lyft og framtíðin verða björt. Að vísu er því gjaman mótmælt, ef nefnt er að hafa beri stjórn á ýmsum þáttum efnahagsmála. Rétt er að þess ber að gæta að einstakl- ingarnir njóti frelsis til heilbrigðra athafna. Ekkert þjóðfélag er sterk- ara en einstaklingarnir sem það byggja. Hinsvegar er það skylda stjórnvalda að skapa aðstöðuna og setja leikreglurnar þannig, að sem flestir fái notið sín og þjóðfélagið allt uppskerunnar, að einhveiju leyti. Góðir íslendingar. Mér hefur orðið tíðrætt um atriði sem mikilvæg eru í okkar lífí og starfi en þó ekki það sem gerir okk- ur að þjóð. Eigin saga, eigin menn- ing og tunga og eigið land, skipa okkur til sætis með fullvalda og sjálfstæðum þjóðum. Án þess vær- um við í raun ekki til. Þegar landið opnaðist fyrir er- lendum fjölmiðlum var ég í hópi þeirra sem óttuðust áhrifín á menn- ingu okkar og tungu. Það geri ég ekki lengur. Mér er ljóst að æskan metur arfínn engu minna en við sem eldri erum. Hann er í góðum hönd- um og mun varðveitast ef vel er að æskunni búið. Einn fagran dag í haust átti ég leið upp undir hæstu björg fjalls eins norðanlands. Ég settist þar í veglegt klettasæti og sat góða stund. Svo langt sá ég sem fjöllin leyfðu og fyrir neðan lá dalurinn fagur og friðsæll. Um hann rann áin í bugðum til sjávar. Allt var þetta eins og Jónas Hallgrímsson lýsir þegar hann hyllir íslandsvininn Pál Gaimard: „Þú stóðst á tindi Heklu hám og horfðir yfir landið fríða þar sem um grænar grundir líða skínandi ár að ægi blám.“ Og við öll sem þess njótum, hljót- um að svara játandi spurningu skáldsins: „Þótti þér ekki ísland þá yfirbragðs-mikið til að sjá?“ En þar sem ég sat og horfði yfír þennan fagra dal, gat ég ekki var- ist þeirri hugsun að margur þreytt- ur, erlendur athafnamaðurinn myndi vilja eignast slíkan griðastað. Ekki skortir þá auð né efni, væri dalurinn falur. Það má aldrei verða. Minnumst þess sem skáldkonan Hulda segir í Þjóðhátíðarljóði sínu: „Hver dagur líti dáð á ný. Hver draumur rætist verkum í, svo verði Islands ástkær byggð ei öðrum þjóðum háð.“ Rétt er það, að framtíðin mun ráðast af okkar eigin verkum. Góðir íslendingar. Ég þakka ykkur gott og árang- ursríkt samstarf á liðnu ári. Megi nýja árið verða okkur farsælt. Guð varðveiti og blessi hina íslensku þjóð. -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.