Morgunblaðið - 03.01.1991, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1991
Fátt mun reynast þjóðinni meiri
auður en hreint og fagurt land
Áramótaávarp Steingríms Her-
mannssonar forsætisráðherra
Góðir íslendingar,
í ávarpi mínu við síðustu áramót
kvað ég forspáan mann sjá ljóma
yfir íslandi seinni hluta þessa árs.
Að þessu hentu ýmsir gaman og
vildu vita hver spámaðurinn væri.
Spámaðurinn var í raun þjóðin sjálf,
fólkið i landinu. Fólkið var augljós-
lega orðið uppgefið á .Hrunadansi
verðbólgunnar. Það vildi stöðugleika
og öryggi í stað óvissunnar. Nú
mátti það takast, því grunnurinn
hafði verið lagður. Og enn reyndist
það rétt, sem skáldið sagði:
„Vilji er allt sem þarf.“
Með framsýnum samningum um
kaup og kjör, með stöðugleika að
markmiði reisti fólkið
„í verki viljans merki“.
Til þess að ná því, sem að var
stefnt, varð margt að bæta, og í
því skyni varð ekki hjá því komist
að fórna ýmsu um sinn.
Atvinnuvegina varð að styrkja,
þótt á kostnað kaupmáttar væri,
enda verður aldrei velferð reist á
rústum atvinnulífs. Það er stundum
svo að jafnvel miklir hagsmunir
verða að víkja fyrir öðrum, sem enn
stærri eru. Stöðugleiki er orðinn
þessari þjóð lífsnauðsyn. Aðeins í
stöðugleika verður þjóðarbúið heil-
brigt, þjóðin sterk og lífskjörin góð.
Fyrsti áfanginn hefur náðst. Því er
nú ljómi yfir landinu.
Nú eru tímar mikilla breytinga,
ekki aðeins hér á landi, heldur um
heim allan. Að vísu er það ekki í
fyrsta sinn. í heimssögunni eru
tímamótin mörg. Að sumu leyti eru
þau lík, en þó í mikilvægum atriðum
ólík, einkum þau sem við lifum nú.
Allt frá því að þjóðir urðu til,
hefur ein lagt undir sig aðra og stór-
veldi myndast. En stórveldin hafa
ætíð sundrast um síðir. Sagan
geymir ótal dæmi um slíkt. Og enn
endurtekur sagan sig. A þessum
síðustu tímamótum er þó grundvall-
armunur.
Áður voru það ætíð hin hörðu
vopnin sem réðu. Þau skópu stór-
veldin og sundruðu þeim svo. Nú
er að auðurinn og fjármagnið, sem
leggja undir sig löndin. Nú eru það
efnahagsveldin sem myndast. Og
þegar hagvöxturinn bregst, sundr-
ast þau einnig.
Hvötin hefur hins vegar oftast
verið að safna auði og drottna, eða
ná orku og hráefni fyrir framleiðsl-
una, sem stöðugt þarf meira. Og
svo er enn.
Við íslendingar höfum verið í
útjaðri slíkra sviptinga. Lengi þótti
eftir litlu að leita á þessari harðbýlu
eyju. Það er ekki fyrr en hin feng-
sælu fiskimið finnast á 15. öld, að
erlendar þjóðir girnast landsins auð.
En síðan má segja, að hvert þorsk-
astríðið reki annað. Þau voru áður
á milli erlendra þjóða, sem vildu
sitja ein að íslandsmiðum. Aðeins
þau síðustu háðum við sjálfir, og
það er fyrst eftir að við íslendingar
erum orðnir fullvalda og sjálfstæð
þjóð. Þá fyrst eru það lífshagsmun-
ir þjóðarinnar sjálfrar sem lagðir
eru á vogarskálarnar, og þó er það
ekki fyrr en árið 1974 sem ísland-
smið verða okkar eigin,
En því er ég að rekja þessa sögu
nú? Vegna þess að hún má ekki
gleymast. Eins og sagan sýnir munu
erlendar þjóðir eða efnahagssam-
steypur aldrei láta stjómast af hags-
munum hinnar örsmáu íslensku
þjóðar, ef þær mega ráða landsins
auði. Minnumst þess jafnframt að
alþjóðleg fyrirtæki, sem velta árlega
margföldum þjóðartekjum okkar
íslendinga, eiga hægt með að eign-
ast það sem þau girnast, ef landa-
mærin eru ekki vel varin.
Við íslendingar fögnum þeim
tímamótum sem nú em í Evrópu.
Við viljum taka þátt í þeim breyting-
um sem em að gerast. Við viljum
stuðla að því að gjöreyðingarvopn-
um verði eytt, og við taki samstarf
og samvinna, sem hafí manninn
sjálfan, velferð hans og réttindi að
leiðarljósi. Stórkostlegt var að mega
sem fulltrúi þessarar litlu, óvopnuðu
þjóðar skrifa undir griðasáttmála
Evrópulandanna og heita því að
leysa engar deilur með ófriði.
Sjálfsagt er jafnframt fyrir okkur
Islendinga að taka þátt í samningum
um víðtæka efnahagssamvinnu í
Evrópu. Við eigum stórra hagsmuna
að gæta. En minnumst þess að mik-
ilvægast er þó að ráða ætíð sem
mestu af eigin málum sjálfír. Það
eru í raun okkar stærstu hagsmunir.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra
En þótt bjart sé yfír ýmsu á þess-
um síðustu tímamótum, eru þó einn-
ig stórar blikur á lofti.
Aldrei hefur gjáin verið svo djúp
á milli þjóða norður- og suðurhvels
jarðar. Aidrei hafa svo margir farist
úr hungri og örbirgð, aldrei fyrr
hafa tugþúsundir bama látist á degi
hveijum.
Hlutur okkar íslendinga er afar
lítill í þeirri aðstoð sem auðugu þjóð-
imar hafa heitið. Það er að vísu
góðra gjalda vert að framlag okkar
til bamahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna var meira en þrefaldað við
afgreiðslu fjárlaga nú fyrir jólin og
þróunaraðstoðin aukin nokkuð.
Einnig er það ánægjulegt, að marg-
ir láta töluvert af hendi rakna í
frjálsri söfnun hjálparstofnana.
Engu að síður er það staðreynd, að
okkar hlutur er magur. Úr því þarf
að bæta. Við höfum af mörgu að
miðla, meðal annars dýrmætri þekk-
ingu, sem getur orðið vanþróuðum
þjóðum mikils virði á leiðinni til
sjálfsbjargar.
Þegar griðasáttmálinn var undir-
ritaður í París í nóvember síðastliðn-
um, stóðu hersveitir gráar fyrir
vopnum, tilbúnar til stríðs við Persa-
flóa. Átök þar með nútíma ógnar-
vopnum geta haft meiri og víðtæk-
ari afleiðingar en nokkurn grunar.
Ég tek undir með þeim íslendingum,
sem skora á þjóðir heims að leita
allra leiða til að koma í veg fyrir
hemaðarátök. En klukkan gengur
hratt og tíminn virðist illa nýttur.
Við skulum vona, að úr því rætist
strax á nýju ári.
Stærst er þó að öllum líkindum
sú blikan, sem boðar eyðingu um-
hverfísins, ef hugsunarlaust er sótt
fram á braut efnishyggjunnar. Á
þeirri vegferð hefur ekki verið að
því gáð, að græða sárin. Þvert á
móti, í sárin hefur iðulega salti ver-
ið stráð.
Um það er ekki lengur deilt, að
eiturefnin eyða hinu vemdandi
ósónlagi himinhvolfsins og eitra
andrúmsloftið svo, að gróðurinn
gulnar og eyðist, og í sjóinn safnast
úrgangsefni svo að sýkist og deyr
hin lifandi auðlind hans. Þeir em
hins vegar ótrúlega margir, sem
telja ekki sannað, að út á ystu nöf
sé komið, og því megi enn knýja
af krafti Gróttakvörn efnishyggj-
unnar, til bættra lífskjara, eins og
það er gjarnan orðað.
Þeim fjölgar þó sem telja að ekki
verði lengur frestað að greiða toll-
inn.
Sá tollur verður hár, á því er
enginn vafi, jafnvel svo, að hagvöxt-
ur kann að verða lítill á næstu ámm
eða áratugum. Sérstaklega er hætt
við að svo fari, ef kappið verður
ekki beislað og forsjá látin ráða
mannsins gerðum.
Þannig eru þau tímamót sem við
lífum nú. Á þau fellur bæði ljómi
og skuggi. Gatan um þau verður
ekki bein og breið heldur, að öllum
líkindum, vandratað einstigi.
Við íslendingar stöndum að ýmsu
leyti vel að vígi.
Við búum við tiltölulega hreint
umhverfi. Það sem hefur spillst get-
um við bætt. Uppblásnu börðin get-
um við grætt og víða klætt landið
skógi á ný. Á þessu er, sem betur
fer, vaxandi skilningur og vilji, sem
ég efa ekki, að muni skila miklu í
verki á næstu árum.
Sjálfsagt er einnig að ljarlægja
allt það, sem spillir umhverfínu, og
ganga þannig frá öllum úrgangi,
að ekki valdi tjóni. Ekki verður held-
urhjá því komist að setja atvinnulíf-
inu, og okkur sjálfum sem einstakl-
ingum, ströngustu kröfur um meng-
unarvarnir og góða umgengni.
Vissulega er þetta mikið átak, en
ekki nema smámunir þó hjá því, sem
aðrar þjóðir eiga við að stríða. Og
verkið er hafíð. Á umhverfismálum
er nú skipulega tekið, enda verður
að skipa þeim í öndvegi. Fátt mun
reynast þjóðinni meiri auður en
hreint pg fagurt land.
Við Islendingar erum einnig svo
iánsamir að hér á landi sveltur eng-
inn þótt kjörin séu misjöfn. Við
framleiðum sjálfír um það bil helm-
ing af okkar fæðu og reyndar langt-
um stærri hluta af því, sem nauð-
synlegast er. Ég efa að nokkur þjóð
njóti hollari og betri afurða síns
lands og sjávar en við Islendingar.
Á tiltölulega fáum árum hefur
tekist að koma á fót velferðarkerfi,
sem veitir ungum menntun, þeim lið
sem minni máttar eru, og aðhlynn-
ingu öldruðum og sjúkum. Ég hygg
að allt sé þetta með því besta, sem
þekkist. Undan því er að vísu kvart-
að, að velferðarkerfið sé dýrt. Það
gera einkum þeir, sem eru svo láns-
amir að hafa þurft lítið á því að
halda. Vissulega verður að hagræða
og spara og láta það njóta forgangs
sem nauðsynlegast er. Ég vil þó
treysta því, að aldrei verði menntun
og þjónusta við þá, sem sjúkir eru
eða eiga á brattann að sækja, látin
ráðast af efnum og aðstæðum ein-
staklingsins.
Þegar ég ferðast um friðsælar
byggðir þessa lands, eða geng um
fjölfamar götur, verður mér oft til
þess hugsað hve mikils virði það er,
að hér á landi berumst við ekki á
banaspjótum eða stundum hryðju-
verk. I Austurstræti taka menn mig
tali, þakka sumt en lasta annað, en
skilja ætíð sem vinir. Fáar þjóðir
geta státað af slíku.
Það er margt sem þessari þjóð
hefur gott hlotnast eða hún sjálf
skapað, margt sem verður að varð-
veita.
Enginn má þó skilja orð mín svo
að enga sjái ég erfiðleikana. Þeir
eru margir, meðal annars ýmsir sem
virðast fylgja nútíma þjóðfélagi.
Lífskjarakapphlaupið hefur til
dæmis ' veikt fjölskylduna svo að
heill bamanna gleymist æði oft.
Lyklabörnin svonefndu eða þau veg-
lausu eru smánarblettur á velferðar-
þjóðfélagi. Úr þessu má eflaust
bæta með dag heimilum og heils-
dagsskólum, en slíkt kemur aldrei
í stað fjölskyldunnar.
Það er orðið brýnt að setja mann-
gildið ofar auðgildinu, fagurt og
gott mannlíf ofar efnishyggjunni.
Sönn og góð lífskjör em sjaldan
falin í söfnun eigna og auðæfa.
Miklu fremur fylgja þau góðu lífí
fjölskyldunnar sem nýtur þess sam-
an, sem lífíð og landið hefur fagurt
að bjóða. Góð lífskjör speglast ekki
síst í hamingju og velferð bamanna.
Þeir unglingar sem þannig njóta
fjölskyldunnar í sínu uppeldi láta
sjaldan freistast.
Til þess að það megi takast sem
við setjum okkur, er nauðsynlegt
að atvinnulífið sé öflugt. Á fram-
leiðslunni hvílir flest það, sem við
viljum gera.
Ef stöðugleiki ríkir em kostirnir
margir. Sjórinn og landið er auð-
ugt. Orkulindirnar eru mikils virði
og ber að nýta þær af skynsemi.
Þó hygg ég að fátt muni reynast
þjóðinni meiri uppspretta velmegun-
Vinningstölur laugardaginn
29. des. 1990
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN vVINNINGSHAFA
1. 5af 5 6 4.940.532
O 4. 4af5^,p 25 106.859
3. 4af 5 752 6.128
4. 3af 5 26.052 412
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
47.656.347 kr.
||H /L'U-UL'/j
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
ar, en sú þekking sem fólkið aflar
sér, ekki síst æskan. Því verður að
kappkosta að skapa atgervismönn-
um aðstöðu til starfa og efla þann
þekkingarbrunn sem þá fæðir,
vísindin.
Umhverfið, kyrrðin, hreint loft
og vatn getur einnig skapað mikla
atvinnu og tekjur. Það mun draga
að ijöldann sem hollustu leitar.
Vandinn verður að velja og gera það
vel sem við kjósum.
Ef til vill þykir þér, hlustandi
góður, að ég dragi upp fagra mynd
af framtíð hinnar íslensku þjóðar.
Rétt er að framtíðin mun verða
önnur, ef kylfa er látin ráða kasti.
Hver hún yrði vitum við að sjálf-
sögðu ekki, því réði kylfan.
Þótt við ráðum, sem betur fer,
ekki veðrum og vindum eða hita-
stigi sjávar, er flest annað af mann-
anna gerðum. Því getum við stjórn-
að og eigum að gera af hagsýni og
visku. Það er ekki síst nauðsynlegt
nú, þegar landið opnast og sam-
skipti við erlendar þjóðir fara vax-
andi. Þá mun leiksviðið stækka og
umsvif og frelsi einstaklingsins auk-
ast. Það getur bæði orðið til góðs
og ills. Það er undir okkar eigin
verkum komið. Þá er mikilvægt að
við stöndum traustum fótum á
traustum grunni á heimaslóðum.
Barlómur og uppgjöf eru ekki ís-
lendingsins eðli. Það sæmir okkur
betur að bretta upp ermar og taka
til hendi. Með samtakamætti þjóðar-
innar mun Grettistakinu verða lyft
og framtíðin verða björt.
Að vísu er því gjaman mótmælt,
ef nefnt er að hafa beri stjórn á
ýmsum þáttum efnahagsmála. Rétt
er að þess ber að gæta að einstakl-
ingarnir njóti frelsis til heilbrigðra
athafna. Ekkert þjóðfélag er sterk-
ara en einstaklingarnir sem það
byggja. Hinsvegar er það skylda
stjórnvalda að skapa aðstöðuna og
setja leikreglurnar þannig, að sem
flestir fái notið sín og þjóðfélagið
allt uppskerunnar, að einhveiju
leyti.
Góðir íslendingar.
Mér hefur orðið tíðrætt um atriði
sem mikilvæg eru í okkar lífí og
starfi en þó ekki það sem gerir okk-
ur að þjóð. Eigin saga, eigin menn-
ing og tunga og eigið land, skipa
okkur til sætis með fullvalda og
sjálfstæðum þjóðum. Án þess vær-
um við í raun ekki til.
Þegar landið opnaðist fyrir er-
lendum fjölmiðlum var ég í hópi
þeirra sem óttuðust áhrifín á menn-
ingu okkar og tungu. Það geri ég
ekki lengur. Mér er ljóst að æskan
metur arfínn engu minna en við sem
eldri erum. Hann er í góðum hönd-
um og mun varðveitast ef vel er að
æskunni búið.
Einn fagran dag í haust átti ég
leið upp undir hæstu björg fjalls
eins norðanlands. Ég settist þar í
veglegt klettasæti og sat góða
stund. Svo langt sá ég sem fjöllin
leyfðu og fyrir neðan lá dalurinn
fagur og friðsæll. Um hann rann
áin í bugðum til sjávar. Allt var
þetta eins og Jónas Hallgrímsson
lýsir þegar hann hyllir íslandsvininn
Pál Gaimard:
„Þú stóðst á tindi Heklu hám
og horfðir yfir landið fríða
þar sem um grænar grundir líða
skínandi ár að ægi blám.“
Og við öll sem þess njótum, hljót-
um að svara játandi spurningu
skáldsins:
„Þótti þér ekki ísland þá
yfirbragðs-mikið til að sjá?“
En þar sem ég sat og horfði yfír
þennan fagra dal, gat ég ekki var-
ist þeirri hugsun að margur þreytt-
ur, erlendur athafnamaðurinn
myndi vilja eignast slíkan griðastað.
Ekki skortir þá auð né efni, væri
dalurinn falur. Það má aldrei verða.
Minnumst þess sem skáldkonan
Hulda segir í Þjóðhátíðarljóði sínu:
„Hver dagur líti dáð á ný.
Hver draumur rætist verkum í,
svo verði Islands ástkær byggð
ei öðrum þjóðum háð.“
Rétt er það, að framtíðin mun
ráðast af okkar eigin verkum.
Góðir íslendingar.
Ég þakka ykkur gott og árang-
ursríkt samstarf á liðnu ári. Megi
nýja árið verða okkur farsælt.
Guð varðveiti og blessi hina
íslensku þjóð. -