Morgunblaðið - 03.01.1991, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 03.01.1991, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8/JANÚAR 1991 33- Agnes Ingvars- dóttir — Minning' Fædd 2. maí 1951 Dáin 24. desember 1990 Nokkur orð um konu, sem kvaddi svo alltof fljótt en skildi eftir svo ómetanieg-a dýrmætár minningar og lærdóm handa okkur sem eftir erum. Minningar um óbilandi kjark, bjart- sýni og trú á lífið. Agnes Ingvarsdóttir kvaddi þetta líf á fæðingarhátíð frelsarans, eftir hetjulega baráttu, því manneskja eins og Agnes átti vini og ástvini, sem elskuðu hana og dáðu. Agnes eignaðist tryggan vin og lífsförunaut síðustu æviár sín, í júlí 1986. Það er Jan Rooyackers, sem nú kveður sína dýrmætu Agnesi, eftir stutt en yndisleg kynni. í ágúst 1988 byijaði Agnes að fínna alvarlega fyrir þeim sjúkdómi sem ógnaði Hfí hennar. Hún var skorin upp og -sett í viðeig- andi lyfjameðferð, í sama mánuði. I skugga þessa sjúkdóms gerðist sá gleðilegi atburður að Fjóla, systur- dóttir Agnesar og uppeldissystir að nokkru, fæddi litla dóttur og fékk Agnes þar með nöfnu. Agnes var búin að ná sér nægilega um jólin sama ár, til að halda á þeirri litlu undir skírn og er ekki ofmælt að hún hafi ljómað af gleði þá, enda var hún mjög hrifin af frænku sinni og öðru smáfólki í fjölskyldunni. Agnes eignaðist þó engin börn sjálf. Skömmu eftir jól lagði Agnes af stað til Hollands til að dvelja þar með Jan og fjölskyldu hans um tíma. Á leið- inni veiktist hún enn alvarlega og nú af slæmum nýrnasjúkdómi, sem nærri leiddi hana til dauða strax þá. Það var kvíðin frænka, sem hraðaði sér til að vera með Agnesi sinni í baráttunni og telja í hana kjark. Þar á ég við Fjólu, sem hikaði ekki við að gera allar ráðstafanir til að kom- ast til Agnesar, þegar mikið lá við. Er ekki að efa það að umhyggja og ástúð Fjólu og Jans og samfelld nærvera þeirra, hjálpaði henni til lífsins aftur. Svo veik var Agnes á þessum tíma að hún gat ekki talað né tjáð sig nema með veikum merkj- um og hljóðum. Vorið kom í Holl- andi og Agnes gekk út í vorið ákveð- in í að gefast ekki upp. Nú var hún háð hjálpartæki til að hreinsa blóðið á sex tíma fresti og vita þeir er til þekkja að slíkt er mikið þolinmæðis- og n'ákvæmnisverk. Ég sá það sjálf en heyrði hana aldrei kvarta. Agnes kom aftur heim til íslands og ekki leið á löngu að hún sýndi hve sterk hún var og jákvæð. Halda átti „konukvöld" með tískusýningu fyrir „stórar stelpur" og þar sem Agnes notaði myndarleg númer sló hún til, er hún var beðin að vera með í að sýna föt ásamt hópi af hressum stór- um stelpum. Ég gleymi aldrei þess- ari skemmtilegu kvöldstund og hvað hún Agnes gekk teinrétt og fín, þrátt fyrir þreytu og nýyfírstaðna baráttu við veikindi sín. Aftur lá leiðin til Hollands, þar leið hcnni- vel og átti góða daga í sól og sumri með Jan og fjölskyldu hans. Ætíð er ég spurði frétta af henni var svarið að hún léti vel af sér og væri bjartsýn, Agnes hugsaði þannig. Agnes kom heim til íslands í síðasta sinn í nóvember sl. Þá var þrekið farið að bila mikið enda lifrin orðin óeðlilega stór og útlitið farið að dökkna verulega. Þá hittist svo á að halda átti tískusýningu í sama dúr og síðast með „stórum stelpum" og Agnes var beðin að vera endilega með, sem hún og gerði þó erfitt væri. Að sjálfsögðu bar hún sig eins og drottning og lét engan bilbug á sér finna, það var ekki til í henni að gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Þegar flestir samlandar Agnesar héldu jólin hátíðleg, lokaði hún aug- unum til að hvílast í síðasta sinn, laus frá þjáningum og vonbrigðum. Bróðir Agnesar dó aðeins 39 ára og nú einnig hún. Það er öldruðum föður þungbær raun og bið ég Guð að styrkja hann og blessa í þessari erfíðu reynslu. Jan sendi ég innileg- ar samúðarkveðjur og veit að hann á yndislegar minningar og getur glaðst vegna þeirrar hamingju og elsku sem hann gaf Agnesi, meðan hún iifði síðustu árin sín. Fjóla mín, Guð gaf þér litla Agn- esi, þegar frænka þín var að veikj- ast. Það er trú mín að hún hafi ýmislegt annað frá frænku sinni, svo sem sterkan vilja og dugnað. Þú átt eftir að brosa að minningunum sem þú rifjar upp, er þú sérð tilburðina í litlu Agnesi næstu árin. Ég votta öllum öðrum aðstandendum og vin- um Agnesar, mína innilegustu sam- úð og bið Guð að blessa ykkur. Að lokum þetta: í 4. kafla 13. og 14. versi Þessalóníkubréfs Páls post- ula, getur að lesa þennan huggun- arríka boðskap, sem og víðar á síðum Biblíunnar: „Ékki viljum vér, bræð- ur, iáta yður vera ókunnugt um þá, sem sofnaðir eru, til þess að þér séuð ekki hryggir eins og hinir sem ekki hafa von. Því að ef vér trúum því að Jesús sé dáinn og upprisinn, þá mun Guð fyrir Jesú leiða ásamt honum fram þá, sem sofnaðir eru.“ Það verður gott að sjá Agnesi aftur glaða og heilbrigða þegar Kristur kemur aftur í mætti og mik- illi dýrð, eins og skrifað stendur. Þórdís Malmquist AUGLYSINGAR TILBOÐ - ÚTBOÐ m Útboð Kópavogskaupstaður óskar eftir tiiboðum í gatnagerð og lagnavinnu í Digraneshlíðum í Kópavogi. Helstu magntölur eru: Húsagötur 1400m. Safngötur 806 m. Skolp-og regnvatnslagnir 6641 m. Verkinu skal skila fullbúnu í tveimur áföngum, gatnagerð 15. júní 1991 og holræsi og stigar utan gatna 11. ágúst 1991. Útboðsgögn verða afhent á tæknideild Kópa: vogs, Fannborg 2, gegn 15.000 kr. skila- tryggingu, frá og með miðvikudeginum 2. janúar 1991. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudag- inn 15. janúar 1991 kl. 11.00 f.h. Bæjarstjórinn í Kópavogi. KENNSLA KJÖLBRAITTASKÚUNN BREIÐHOLTI Frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti Upphaf skólastarfs á vorönn 1991 Kvöldskóli Laugard. 5. jan. innritun kl. 10.30-13.30. Mánud. 7. jan. innritun kl. 16.30-19.30. Dagskóli Mánud. 7. jan.: Kl. 9.00-9.30. Töfluafhending nýnema. Kl. 9.30-12.00. Töfluafhending eldri nem- enda. Kl. 9.30. Nýnemakynning. Kl. 13.00. Kennarafundur. Dagskóli og kvöldskóli Þriðjud. 8. jan. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrám. FJÖLBRAUTASKÓLINN VIÐ ÁRMÚLA ARMUL* 12 • 108 REYKJAVIK SIMI 84022 Frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla Stundatöflur nemenda verða tilbúnar þriðju- daginn 8. janúar og verða afhentar þann dag frá kl. 10.00 til 13.00. Fundur með nýjum nemendum verður sama dag kl. 13.00. Kennsla hefst miðvikudaginn 9. janúar. Skólameistari. Námskeið í náttúruvernd Námskeið í náttúruvernd verður haldið í Reykjavík og á Akureyr.i eða Egilsstöðum í vetur. Tilgangur námskeiðsins er að gefa fólki inn- sýn í náttúruvérnd á íslandi, þjálfa það til að hafa eftirlit með friðlýstum svæðum og fræða fólk um náttúru landsins. Þátttakendur skulu vera orðnir 20 ára og hafa staðgóða framhaldsmenntun og gott vald á einhverju eftirtalinna tungumála: Ensku, þýsku, frönsku, ítölsku eða einhverju Norðurlandamáli. Námskeið í náttúruvernd er skilyrði fyrir ráðningu í landvörslustörf á vegum Náttúruverndarráðs en tryggir fólki þó ekki slík störf. Námskeiðið tekur ellefu daga. í Reykjavík verður það haldið dagana 8.-10. febrúar og 8.-10. mars en á Akureyri/Egilsstöðum 22.-24. febrúar og 22.-24. mars. Verklegur þáttur námskeiðsins (5 dagar) verður seint í apríl eða byrjun maí í Skaftafelli og Mývatns- sveit. Nánari tímasetning verður ákveðin síðar. Lágmarksfjöldi þátttakenda í námskeiðinu á Akureyri eða Egilsstöðum er 15 manns. Umsóknir um þátttöku óskast sendar skrif- stofu Náttúruverndarráðs, Hverfisgötu 26, 101 Reykjavík, og skulu greina frá nafni, heimilisfangi, menntun, aldri, störfum, áhugamálum og öðru sem máli skiptir. Þeir, sem sækja um námskeiðið á Akur- eyri/Egilsstöðum, eru vinsamlegast beðnir að taka fram á hvorum staðnum þeir óska að það verði haldið. Umsóknir skulu berast fyrir 15. janúar. Námskeiðsgjald er kr. 25.000. Skólameistari. Náttúruverndarráð. FLUGMÁLASTJÓRN Flugmálastjórn Bóklegt námskeið fyrir verðandi flugkennara hefst á Reykjavíkurflugvelli laugardaginn 19. janúar kl. 16.00 ef næg þátttaka fæst. Rétt til þátttöku eiga þeir sem hafa a.m.k. 150 klst. flugtíma og hafa lokið bóklegu námi fyrir atvinnufiugmannsskírteini og blindflugs- réttindi. Innritun fer fram hjá Flugmálastjórn/loft- ferðaeftirliti, flugturninum á Reykjavíkurflug- velli og þar fást frekari upplýsingar. Flugmálastjórn. FÉLAGSSTARF • óO ••• SAMBAND UNGRA SJÁLFSTÆDISMANNA SUS stjórnar- menn, takið eftir Stjórnarfundi SUS, sem áætlaö var að halda 12. janúar, hefur verið frestað. Fundarboö með nýjum fundartíma verða send síðar. Framkvæmdastjórn SUS. FÉLAGSLÍF §Hjálpræðis- herinn ) Kirkjustræti 2 í kvöld kl. 20.00: Norrænn jóla- fagnaður. Skólastjóri og nem- endurfrá Lýðháskólanum í Jelöya taka þátt í hátíðinni. Föstudag kl. 20.00: Jólafagnað- ur heimilasambands og hjálp- arflokks. Skipholti SOb Samkoma i kvöld kl. 20.30. Allir innilega velkomnir. SAFNARAR Safnarar Á fyrstu gleraugu Sigurðar mál- ara. íslensk smiði á umgjörð og spöngum. Á einnig gleraugna- húsið. Sá hlýtur sem hæst býð- ur. Sendið tilboð til auglýsinga- deildar Mbl. merkt: „Gleraugu - 9331".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.