Morgunblaðið - 03.01.1991, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1991
Útsalan
hefst í dag
Tvíbreið efni frá
kr. 200-500 pr. metra.
Dömu- og herrabúðin,
Laugavegi 55
STYRKTARFÉLAG
LAMAÐRA 06 FATLAORA
HÁALEITISBRAUT 11-13,
108 REYKJAVÍK
Dregið var í símahappdrætti Styrktarfélags lamaðra
og fatlaðra þann 24. desember sl. og komu vinningar
á eftirtalin númer:
1. vinningur: Bifreið Ford Explorer á nr. 91-32071
2. vinningur: Bifreið Saab 9000 CDI á nr. 91-688417
3. -11. vinningur: Bifreiðar Ford Fiesta C1000 á
nr. 91-680493
nr. 91-626666
nr. 91-670221
nr. 91-685777
nr. 91-612484
nr. 91-50801
nr. 93-66725
nr. 97-88827
nr. 98-75104
Þökkum veittan stuðning. Gleðilegt ár.
Kasparov sigraði
með minnsta mun
___________Skák_______________
Margeir Pétursson
HEIMSMEISTARINN í skák,
Gary Kasparov, sigraði áskor-
andann Anatoly Karpov, í einvíg-
inu um heimsmeistaratitilinn
sem lauk í Lyon í'Frakklandi á
gamlárskvöld. Kasparov hlaut
tólf og hálfan vinning gegn ell-
efu og hálfum vinningi Karpovs.
Það var raunar strax ljóst eftir
22 skákir að Kasparov myndi
verja titilinn, því hann hafði þá
þegar hlotið tólf vinninga. Mikil
þreytumerki voru síðan á loka-
skákunum tveimur. Karpov vann
næstsiðustu skákina í aðeins 29
leikjum, en eftir vel heppnaða
byijun í þeirri síðustu urðu hon-
um á mörg mistök og staða hans
var töpuð þegar Kasparov bauð
honum jafntefli til að tryggja
sigurinn.
Kasparov hlýtur þar með 1,7
milljón bandaríkjadala í verð-
laun, en Karpov rúmlega eina
milljón dala. Að auki vann heims-
meistarinn nýjan og stórglæsi-
legan gull- og bronzbikar hlaðinn
demöntum, sem metinn er á eina
milljón dala. Hefði einvíginu lok-
ið með jafntefli, 12-12, hefði
Kasparov. haldið titlinum, en
væntanlega hefði farið fram
bráðabani um það hvor fengi
bikarinn.
„Eg er ekki ánægður með út-
komuna úr einvíginu. Eg bauð
jafntefli í síðustu skákinni í gjör-
unninni stöðu, vegna þess að mig
langaði ekki til að tefla meira“,
sagði Kasparov að einvíginu
loknu í samtali við skákskýranda
Reuter-fréttastofunnar. „Yfir-
burðir mínir í Lyon voru meiri
en nam einum vinningi, — ég
held að tveggja vinninga bil hefði
verið sanngjarnt, því Karpov
tefldi mjög vel,“ bætti heims-
meistarinn siðan við.
Kasparov taldi langlíklegast
að mótherji hans í næsta einvígi,
árið 1993, yrði Karpov. Þeir hafa
nú teflt samtals 144 skákir í fimm
einvígjum sínum um heimsmeist-
aratitilinn.
Einvígið var einstakt að því
leyti að engin skák vannst með
svörtu, en sjö skákir á hvítt.
Karpov uppskar nokkrum sinn-
um vænlegar stöður á svart með
nákvæmri varnartaflmennsku
sinni, en náði aldrei að nýta sér
þær til sigurs.
Það virðist svo sem mikið
spennufall hafi orðið eftir að
Kasparov náði 12 vinningum. Ég
sé ekki aðra skýringu á slakri
taflmennsku meistaranna í lokin.
Þótt þetta séu tveir fremstu
skákmenn heims sýna skákirnar
tvær að þeir eru mjög mannleg-
ir. í þeim eru ekki aðeins valdar
rangar áætlanir heldur sjást
einnig grófir afieikir.
23. einvígisskákin
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Gary Kasparov
Kóngsindversk vörn
I. d4 - Rf6 2. c4 - g6 3. Rc3 -
Bg7 4. e4 - d6 5. f3 - 0-0 6.
Be3 - e5 7. d5 - Rh5 8. Dd2 -
Dh4+!?
Þetta er upphafið á drottningar-
fóm Bronstein, en hann svaraði 9.
g3 með 9. — Rxg3 10. Df2 — Rxfl
II. Dxh4 — Rxe3 og er enn ekki
fyllilega ljóst hvort svartur eigi að
komast upp með þetta. Kasparov
guggnar hins vegar á því að fórna
og hefur þá eytt tveimur leikjum í
drottningu sína sem getur ekki ver-
ið rökrétt. í 21. skákinni iék hann
hér 8. — f5, sem er miklu eðlilegra.
9. g3 - De7 10. 0-0-0 - f5 11.
exf5! - gxf5 12. Rh3 - Ra6 13.
Hgl - Rf6 14. Rf2 - Kh8 15.
Be2 - Bd7 16. Bg5 - Rc5 17. g4
Eftir töluverðan undirbúning
lætur Karpov til skarar skríða á
kóngsvængnum þar sem hann hefur
hættuleg færi, án þess að svartur
hafi mótvægi á miðborði eða drottn-
ingarvæng.
17. — e4 18. fxe4 — fxe4 19. Be3
— Ra4 20. g5!
Nú verður hvítur að taka á sig
tvípeð á c-línunni og það er Karpov
venjulega meinilla við. Slíkt gerir
hann ekki nema hann sé að vinna
lið, eða tryggja sér mikla stöðuyfir-
burði annars staðar á borðinu. Sú
er einmitt raunin hér. Riddarinn á
f6 hrökklast nú aftur á bak og á
litla möguleika á að komast í spilið
aftur. Ef hann hefði hins vegar
komist til e5 væri svartur á grænni
grein. Mun lakara var 20. Rxa4? —
Bxa4 21. g5 - Rd7! 22. b3? - De5
20. — Rxc3 21. bxc3 — Rg8 22.
Rg4
Áætlun hvíts er einföld. Hann
ætlar að vaða upp með h-peð sitt
DJMSSKÓLIAUÐAR HHKJILDS
Innritun 3.-6. janúar ’91 kl. 13.-19. Sfmar 39600 og 686893
Gledilegt nýtt ár!
KENNSLA HEFST MÁNUDAGINN 7. JANÚAR ’91
NÝTT - NÝTT
„Street-Dance“
10 tíma námskeið í þessum meiri-
háttarfrjálslega dansi.
Nýir gestakennarar væntanlegir.
Börn, unglingar og pör:
Byrjendur og framhald:
Kennum allt það nýjasta í suðuramerískum
dönsum og standard dönsum, einnig
gömlu dansana, Rock’n roll og tjútt! 4ra
mán. námskeið sem lýkur með lokadans-
leik. Brons, silfur og gull.
Merkjapróf fyrir þá sem vilja.
Ath. nemendur, sem voru fyrir jól!
Vinsamlegast endurnýið skírteinin
sunnudaginn 6. jan. í Skeifunni 11B kl.
13.-18.
Rock’n roll
10tímar-
Byrjendur og framhald
Kennslustaðir:
Skeifan 11B, 2. hæð.
Skeifan 17,3. hæð.
KR-heimilið v/Frostaskjól.
Gerðuberg, Breiðholti.
Garðalundur, Garðabæ.
Nýir barnadansar
Yngst 3ja-5 ára. 4ra mánaða námskeið.
Grímudansleikur í lokin.
Ath.: Lærðir kennarar annast dans-
kennsluna ásamt danskennaranemum
sér til aðstoðar.
DANSS
F.Í.D. Tryggir betri kennslu