Morgunblaðið - 03.01.1991, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANUAR 1991
Minning:
Lára Guðjónsdóttir
Fædd 6. desember 1897
Dáin 25. desember 1990
í dýrð heilagrar jólanætur kvaddi
93 ára gömul sæmdarkona, Lára
Guðjónsdóttir, þennan heim á
Hrafnistu í Hafnarfirði. Var það
táknrænt, að sú góða og látlausa
kona, sem fagurlega hafði skilað
sínu hlutverki hér á jörðu, skyldi
mega fagna vistaskiptunum við
upphaf fæðingarhátíðar frelsarans.
Dauðinn hlýtur að hafa verið henni
ávinningur eins og svo mörgum
~ öðrum aldurhnignum og veikburða,
sem þrá hvíldina í trausti á fyrir-
heit Drottins.
Ég kynntist Láru fyrir um tíu
árum, þegar hún bjó í skjóli einka-
dóttur sinnar í Köldukinn 24. Síðar
var hún um tíma í sama herbergi
og systir mín á Hrafnistu. Bar þá
fundum okkar saman nær daglega
og síðustu árin og mánuðina, sem
hún lifði, gaf ég mér stundum tíma
til að heimsækja hana.
Alltaf var gott að blanda geði
við Láru, í nærveru hennar leið
manni vel. Auðlegð hennar var öðru
fremur hjartahlýja og fórnfús kær-
leikur. Þess nutu þeir, sem henni
kynntust. Fyrir öll okkar ágætu
samskipti er ég þakklátur. Vil ég
því mega minnast hér góðrar vin-
konu minnar og fjarskyldrar
frænku, en útför hennar fer fram
í dag kl. 15 frá Hafnarljarðarkirkju.
Lára fæddist 6. desember 1897
á Asi á Þelamörk í Hörgárdal. Hún
var komin af traustu eyfirsku
bændafólki, sem átti ættir að rekja
til merkra embættismanna. For-
eldrar hennar voru hjónin Guðjón
Einar Manassesson, bóndi og Rósa
Kristjánsdóttir, sem var af Hvassa-
fellsætt. Af tólf börnum þeirra er
nú eitt á lífi, Rósa, sem býr á Hrafn-
istu í Reykjavík, með manni sínum,
Guðmundi Jónssyni sjómanni. Með-
al ættmenna Láru voru skáldin Jón-
as Hallgrímsson og Jóhann Sigur-
jónsson frá Laxamýri.
A barnsaldri var Lára tekin í
fóstur á heimilinu í Lönguhlíð í
Hörgárdal, og var strax látin hjálpa
þar til við ýmis störf. Eftir að hún
síðar hafði í nokkur ár verið í vist
hjá Karli Nikulássyni, konsúl á
Akureyri, hélt hún um 1920 til
Noregs og var stofustúlka á heimili
í Bergen um sex ára skeið. Mun
ferðin til útlanda aðallega hafa ver-
ið farin til að kynnast öðru en eigin
landi og þjóð.
Lára giftíst aldrei. Hún eignaðist
eitt barn, Kömmu, sem fæddist í
Kaupmannahöfn 1931. Vann Lára
þar um tíma á mæðraheimili. En
dvölin í Danmörku varð ekki löng,
því að 1933 fluttist hún heim til
Islands með dóttur sína.
'Eftir það var hún um sex ára
!
tímabil ráðskona_ hjá séra Eiríki
Brynjólfssyni á Útskálum í Garði
og síðar við ráðskonustörf á Akra-
nesi. 1943-54 bjó hún í Reykjavík
og starfaði þá lengst af hjá Frið-
steini Jónssyni, veitingamanni, sem
matráðskona.
Ekki rofnaði náið samband þeirra
mæðgnanna eftir að Kamma giftist
1953 og stofnaði heimili í Hafnar-
firði. Þangað fluttist Lára 1954.
Studdi hún dyggilega dóttur sína
og tengdason við að koma upp veg-
legu húsi við Köldukinn. Og þar
átti hún síðan sinn samastað í sér-
íbúð allt til 1984, er hún sakir ald-
urs og heilsubrests fluttist á Hrafn-
istu.
Lengi naut Lára þeirra hamingju
að búa við góða heilsu. Hún var
rólynd að eðlisfari, hafði trausta
skaphöfn og þótti að sögn kunn-
ugra mjög dugleg við störf sín, var
samviskusöm og skyldurækin. Hún
lagði rækt við að lifa einföldu og
heilbrigðu lífi.
Eftir að Lára fluttist til Hafnar-
fjarðar var hún um tíma við störf
á Stúdentagörðunum í Reykjavík
eða þangað til hun varð fyrir vinnu-
slysi, sem leiddi til varanlegrar ör-
orku. Eftir það treysti hún sér ekki
Iengur til starfa utan heimilis.
Lára var mjög þakklát fyrir þá
góðu umönnun, sem hún naut-á
Hrafnistu, eins og kom fram hjá
henni fyrir nokkrum vikum, er ég
heimsótti hana. Þá sagði hún: „Það
eru allir hér svo góðir við mig.“
En alltaf var þó velferð dóttur-
innar og barna hennar efst í huga.
Og einlæg var umhyggjan sem
Kamma sýndi móður sinni. Börnun-
um var það mikið lán að fá á mótun-
arárum bernskunnar stöðugt notið
návistar og ástríkis ömmu sinnar,
sem því miður allt of mörg börn í
dag fara á mis við.
Megi afkomendum þeirrar gæða-
konu, sem hér er kvödd, farnast vel
í framtíðinni með bjarta minning-
una um hana að leiðarljósi, minnug
alls hins fagra og góða, sem hún
vildi kenna þeim. Guð blessi minn-
ingu hennar.
Árni Gunnlaugsson
Allt frá því fyrsta barnabarnið
kom í heiminn, árið 1953, var Lára
amma stór hluti af tilveru okkar
barnanna í Köldukinn 24. Frá þeim
degi var það hennar æðsta ósk, að
geta leitt okkur á lífsins vegi.
Á æskuheimili okkar var hlutum
þannig hagað, að fjölskyldan bjó í
þriggja hæða húsi og bjó amma á
rishæðinni. Þar áttum við systkinin
öruggt skjól og sum okkar raunar
fast athvarf, allt frá því við tókum
fyrstu sporin og henni var trúað
fyrir að hlú að þessum litlu öngum.
Hjá ömmu lærðum við okkar
fyrstu vísur og bænirnar var farið
með á hvetju kvöldi. Oft komu þá
líka sögur frá æskuárunum, en hún
var í hjásetunni við Grástein, eða
við önnur störf í Lönguhlíð í Hörg-
árdal. Einnig sagði hún okkur frá
því er hún sextán ára gömul var
þjónustustúlka hjá Karli Nikulás-
syni konsúl á Akureyri og var m.a.
send á jólum með pakka til séra
Matthíasar á Sigurhæðum.
Allar þessar sögur birtast enn
ljóslifandi I hugskotinu og eftir að
við komumst til vits og ára, kunnum
við æ betur að meta að hafa fengið
að kynnast, forfeðrunum á þennan
máta.
Amma hafði miklar mætur á
verkum Jónasar frænda síns Hall-
grímssonar og Davíðs Stefánssonar
og fengum við snemma að kynnast
þeim hjá henni, svo og stórsöngvur-
um eins og Stefáni íslandi og Jussi
Björling. Lærðum við að meta list
þessara manna að verðleikum og
hefur það reynst ómetanlegt vegar-
nesti.
Margir urðu göngutúrarnir út
fyrir bæinn, þar sem hægt var að
komast í nána snertingu við dýrin
og náttúrunnar. Þegar börnin
stækkuðu urðu göngutúrarnir
lengri og fram á níræðisaldur ömmu
áttum við fullt í fangi með að fylgja
henni eftir, því hún var svo létt í
spori.
Oft var erfitt fyrir lítinn mann
að vakna einn í sínu rúmi, með
dynjandi hjartslátt um miðja nótt.
Var þá gott að geta trítlað inn í
herbergi til ömmu og skríða undir
sængina hennar. Sumar nætur voru
komnir þangað tveir, þrír ungar,
sem hjúfruðu sig að ömmu. Varð
svefnherbergi ömmu því næturstað-
ur okkar sumra fram undir ferm-
ingu.
Allt þar til við fluttum frá for-
eldrahúsum bar amma okkur á örm-
um sér og var ekki í rónni á kvöld-
in fyrr en allir voru komnir í hús.
Beið manns þá oft kaffisopi eða
heitt kakó og kræsingar fyrir svefn-
inn. Umhyggjan var slík, að aldrei
gleymist. Stöndum við barnabörnin
í ævarandi þakkarskuld við ömmu,
sem gaf okkur svo mikið, því henn-
ar fyrsta og síðasta hugsun var
ætíð sú, að okkur mætti líða sem
best og við gætum óhrædd tekist á
við lífið, hvert sem hlutverk okkar
yrði þar. í bænum okkar munum
við minnast ömmu og reyna að
miðla til okkar barna einhverju af
þeirri gæsku, sem hún umfaðmaði
okkur með.
Atli, Rósa Lára, Hulda
Guðbjörg, Svala og Guðlaug
Berglind.
Núna er hún elsku amma mín
farin frá mér.
Hún amma sem var mér alltaf
svo góð og mér hefur alltaf þótt
svo vænt um. Síðustu daga hef ég
hugsað svo mikið til hennar, og rifj-
að upp allar góðu samverustundirn-
ar okkar sem við áttum saman. Hún
átti stóran þátt í uppeldinu mínu
þar sem hún bjó alveg með mér og
fjölskyldunni minni, hún gaf mér
meira að segja nafnið mitt, Berg-
lind.
Ég man eftir góðu lyktinni í hús-
inu þegar hún var að baka það sem
ég íjékk með mér í skólann, bestu
brauð, soðbrauð og flatkökur sem
ég hef nokkurn tímann smakkað,
ég man hvað mér fannst gott að
vera hjá henni og leika mér meðan
hún sat og pijónaði sokka á okkur
systkinin eða gerði við fötin okkar.
Hún var alltaf til staðar þegar ég
þarfnaðist. hennar, tilbúin með op-
inn faðminn til að hugga þetta litla
barn. Ég minnist mest allrar þolin-
mæðinnar sem hún sýndi mér allt-
af, því ég var alls ekki þægasta
barn í heimi, ég vakti hana stundum
upp um miðjar nætur þegar ég gat
ekki sofið, þá reyndi hún alltaf að
gera eitthvað fyrir mig, hún smurði
brauð, gaf mér að drekka og gerði
stundum heilu salötin til að gleðja
mig og láta mér líða vel, ég man
enn í dag hvað mér leið vel á eftir
og ég sofnaði vel.
Hún amma mín var mjög trúuð
og það var hún sem kenndi mér
Faðir vorið, þessa bæn sem ég nota
enn í dag og það var hún sem sagði
mér að þegar við dæjum, þá biði
okkar annað líf, betra líf hjá Guði
og því trúi ég enn og veit að hún
er hjá honum núna hamingjusöm
og kannski hittumst við aftur í
næsta lífi þegar ég kem til hennar.
En á meðan á ég ávallt eftir að
sakna hennar mikið því hún var
mér svo kær. Ég gæti riljað upp
svo margt gott sem okkur fór á
milli og ég mun ávallt geyma minn-
inguna um hana í hjartanu mínu,
hún mun ávallt vera partur af lífi
mínu.
Núna er ég sjálf svo lánsöm að
vera móðir, amma hefur þar kennt
mér margt, ég man eftir öllu því
sem amma gerði til að gleðja mig,
veita mér vellíðan og ást og ég
geri það sama fyrir son minn, t.d.
setti hún alltaf nærfötin mín á ofn
meðan ég var í baði svo að ég
gæti farið í þau hlý eftir baðið og
síðan beint undir sæng, ég minnist
þess enn hvað mér fannst þetta
ofsalega gott og hvað mér leið vel.
Núna nýtur sonur minn þess sem
amma gaf mér.
Ég elska ömmu heitt og mun
alltaf gera.
Hennar ástkæra Berglind
t
Föðurbróðir minn,
JÓHANNES BOGASON,
Frá Brúarfossi,
lést í sjúkrahúsi Akraness 1. janúar sl.
Bogi Helgason.
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
SIGRÍÐUR ÁSGEIRSDÓTTIR TAYLOR,
andaðist á heimili sínu í Englandi 18. desember.
Arnold R. Taylor og börn.
t BIRNA STEINGRÍMSDÓTTIR,
Drápuhlíð 2,
er látin. Aðstandendur.
Ókeypis gæðafilma « Móttaka um land allt » Gaeðaþjónusta
i" T 1
> K~U S !
Reykjavík:
Neskjör, Ægissíöu 123
Söluturninn, Hringbraut 119b
Bókaversl. ísafoldar,
Austurstr. 10
Gleraugnadeildin, Austurstr. 20
Steinar, Austurstræti
Steinar, Laugavegi
Sportval, Laugavegi 118
Steinar, Rauöarárstíg 16
Vesturröst, Laugaveqi 178
Donald, Hrísateigi 19
Allrabest, Stigahlíö 45
Álnabúðin, Suöurveri
Frístund, Kringlan Kringlunni
Hugbora bókaversl., Grímsbæ
Luklcu Laki, Langholtsvegi 126
Steinar, Mjóddinni
Innrömmun og hannyrðir,
Leirubakka 36
Söluturninn, Seljabraut 52
Veisluhöllin, Eddufelli 6
5traumnes, Vesturberg 76
Blómabúö Michaelsen,
Hólagarði,
Skalli, Hraunbæ
Bitahöllin, Stórhöfða
Rökrás, Bíldshöföa 18
Seltjarnarnes:
Hugsel, Eiöistorgi
Kópavogur:
Tónborg, Hamraborg 7
Söluturninn, Engihjalla
Garðabær:
Sælgætis og Videóhöllin
Garöatorgi
Spesían, lönbúö 4
Hafnarfjörður:
Skalli, Reykjavíkurvegi
Söluturmnn, Miövangi
Steinar, Strandgötu Versl. Þ. Pórðarsonar Ishnakkar, Bæjarhrauni 12 Hofsós: Söluskálinn, Sleitustööum
Mosfellssveit: Dalvík:
Álnabúðin, Byggðarholti 53 Versl. Dröfn, Hafnarbraut 24
Akranes: Akureyri:
Bókaskemman, Radíó-naust, Glerárgötu 26
Stekkjarholti 8-10 Húsavík:
Borgarnes: Shell-stöðin
ísbjörninn, Borgarbraut 1 Raufarhöfn:
Hellissandur: Esso-skálinn
Virkiö, Hafnargötu 11 Egilsstaðir:
Ólafsvik: Versl. Eyco, Tjarnarbraut 19
Grillskálinn, ÓLafsbraut Stykkishólmur: Neskaupstaður: Nesbær, Melagötu 2b
Versl. Húsiö, Aðalgötu 22 Búðardalur: Söluskáli Olís Bíldudalur: Veitingarst. Vegamót, Tjarnarbr. Bolungarvík: Versj. B. Eiríkssonar, HaTnargötu 1 Höfn i Hornafirði: Hvammur, Ránarslóö 2 Hvolsvöilur: Hlíðarendi, Austuivegi 1 Hella: Videoleigan Flúðir: Ferðamiöstöðin
Hvammstangi: Selfoss:
Vöruhúsið Versl. ösp, Eyarvegi 1
Blönduós: Eyrarbakki:
Esso-skálinn, Ásinn, Eyrargötu 49
Norðurlandsvegi Þorlákshöfn:
Skagaströnd: Videoleiga Söluskálans Veitingarst., Duggan
Hveragerði:
Shell-skálinn, Austurmörk 22
Grindavík:
Braut sf., Víkurbraut 31
Keflavík:
Frístund, Hólmgarði
Frístund, Hringbraut.
Garður:
Ársól
Njarðvík:
Frístund, Holtsgötu
Vogar, Vatns-
leysuströnd:
Söluskáli Esso
S
einrtig.j
ípo
stkrofu
Þú færð hana
ÓKEYPIS
Gæðafilma frá Konica fylgir hverri
framkallaðri filmu.
f V n2þÍÓrtUSttl
Ga^firrú'i11
keypis gæðafilma • Móttaka um land allt • Gæðaþjónusta • Ókeypis gæðafilma • Móttaka um land allt • Gæðaþjónusta • Ókeypis gæðafilma