Morgunblaðið - 03.01.1991, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.01.1991, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1991 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1991 27 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík HaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Fögnuður og uggur Morgundagurinn á rætur í gærdeginum. Framtíð einstaklinga og þjóða verður að drýgstum hluta reist á sam- ansafnaðri reynslu þeirra og þekkingu. Þessvegna er mikil- vægt að horfa um öxl þegar grunnur er lagður að komandi tíð. Það gera og flestir á ára- mótum, bæði háir og lágir. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, horfir yfir far- inn veg í nýjársávarpi til þjóð- arinnar og kemst svo að orði: „Þegar horft er héðan af yztu nesjum til heimsbyggðar- innar á nýliðnum misserum, má í senn finna mörg fagnað- arefni og margt sem vekur ugg. Við höfum orðið vitni að meiri atburðum en nokkurn óraði fyrir, séð hraðari og óvæntari þróun en nokkru sinni fyrr. í þeirri þróun hefur það verið gleðilegast að stórbætt sambúð stórvelda hefur bundið enda á það kalda stríð sem rak þjóðir í austri og vestri áfram í háskalegu og rándýru vígbún- aðarkapphlaupi. Við höfum séð merkileg skref stigin til af- vopnunar, Þýzkaland samein- ast og lýðræði fara í landvinn- inga um austanverða Ev-r- ópu.“ Forsetinn undirstrikar mikil- vægi menningar og þekkingar í þessari jákvæðu þróun: „Okkur íslendingum sem gjarna viljum trúa á mátt orðs- ins, mátt skáldskaparins, hlýt- ur að vera það sérstakt ánægjuefni, að þar eystra hafa skáld og rithöfundar gegnt merku forystuhlutverki í sókn þjóða sinna til lýðréttinda. Einn þeirra, Václav Havel forseti Tékkóslóvakíu, heimsótti ís- land á liðnu ári til að vera við- staddur frumsýningu á einu eigin verka. Sá góði gestur minnti okkur á breytileika heimsins eins og hann er geð- þekkastur: maður sem verið hefur pólitískur fangi fyrir að segja upphátt það sem ekk' mátti segja - af því að það gat vakið fólk til umhugsunar - er nú orðinn leiðtogi þjóðar sinnar og samnefnari. Um leið hefur Havel minnt á annað: á siðferðiskröfur í stjórnmálum, á nauðsyn þess að láta mennsk viðhorf umburðaríyndis, ósér- plægni og kærleika njóta sín í opinberu lífi svo það verði ekki lagt undir „tæknifræðinga valdsins" sem hann kallar svo.“ En gleði fólks yfir þeirri já- kvæðu þróun, sem forsetinn víkur að, er blandin kvíða. Gömul og ný vandamál vekja ugg. Þar rís þrennt hæst. í fyrsta lagi efnahagslegar þrengingar, einkum í svoköll- uðum þriðja heimi, sem koma meðal annars fram í vannær- ingu, sjúkdómum og ótíma: bærum dauða milljóna fólks. í annan stað ófriðarhættan við Persaflóa, sem er bein afleiðing innrásar Iraka í Kúvæt. í þriðja lagi óvissan um framvindu mála í Sovétríkjunum. Það er og bæði fögnuður og uggur í huga landsmanna þeg- ar skyggnzt er um heimavett- vang. Þar hefur sitt hvað geng- ið í haginn: hátt sjávarvöruverð og þjóðarsátt með friði á vinnu- markaði og festu í launa-, verð- lags- og gengismálum. Annað hefur farið á verri veg. Þar ber hæst hrikalegan ríkissjóðshálla með tilheyrandi innlendri og erlendri skuldasöfnun, fleiri gjaldþrot einstaklinga og fyrir- tækja og meira atvinnuleysi en verið hefur hér á landi síðustu tvo áratugi, ónógur hagvöxtur og minnkandi almennur kaup- máttur. Ýmis stór vandamál bíða og óleyst, svo sem aðlögun íslenzks atvinnulífs að efna- hagslegu umhverfi í veröldinni í náinni framtíð, frekari aðlög- un veiða og vinnslu að þoli nytjafiska og frekari aðlögun búvöruframleiðslu að innlend- um markaði. Það er nauðsynlegt að horfa um öxl og virkja samansafnaða reynslu og þekkingu þjóðarinn- ar, þegar grunnur er lagður að framtíð hennar. Það er ekki síður mikilvægt, að halda vöku sinni á sviði nýrrar þekkingar og tækni. Forseti Islands árétt- aði í áramótaræðu sinni þau orð Vilhjálms Lúðvíkssonar á ársfundi Vísindasjóðs og Rann- sóknarráðs, „að mikilvægustu möguleikar í farsælum alhiða efnahags- og þjóðfélagsfram- förum fælust í skynsamlegri nýtingu þekkingar, færni og hugvits, - þess mannauðs sem þjóðin býr yfir“. „Það er viðfangsefni okkar,“ sagði forsetinn, „að skapa þær forsendur að auðlindir manns- hugans fái notið sín, að mennt- uð og upplýst æska geti trúað á framtíð sína í þessu landi og langi til þess framar öllu öðru að leggja þjóð sinni lið og tryggja sjálfstæði hennar í samfélagi þjóðanna“. „Frelsið er dýrmæt- ara en brauðið Nýársávarp frú Vigdísar Finnbogadóttur forseta íslands ekki átti segja — af því að það gat Góðan dag, góðir áheyrendur. Ég óska landsmönnum öllum gleðilegs nýárs og þakka samfylgd samtíðarmanna á liðnum árum. Hún hefur verið mér vinarík, holl pg verðmæt og ég hygg að allir íslendingar geti hugsað á sama veg til samtíðarmanna, hver fyrir sig. Þannig er samstaða þjóðar okkar og það er lán okkar. A áramótum er okkur einatt efst í huga að minnast þeirra sem eiga í erfiðleikum og raunum, sem hafa misst þá sem þeim stóðu næst, og votta þeim einlægan samhug okk- ar. Mikill missir verður aldrei með neinum orðum bættur, en gott er að eiga í fórum sínum speki erlends skálds löngu liðinna tíma, sem kvað á þessa leið: Þegar hugurinn leitar til kærra förunauta okkar, sem gáfu heiminum líf með nærveru sinni, þá skulum við ekki segja: Þeir eru farnir. Segjum heldur með þakklæti: Þeir voru hér. Við hver áramót reynum við jafn- an að horfa til tveggja átta í senn. Um leið og við gerum upp við liðinn tíma, freistum við þess að skyggn- ast inn í framtíðina. Hvort tveggja er erfitt en um leið dýrmætt. Þegar horft er héðan af ystu nesjum til heimsbyggðarinnar á nýliðnum misserum, má í senn finna mörg fagnaðarefni og margt sem vekur ugg. Við höfum orðið vitni að meiri atburðum en nokkum óraði fyrir, séð hraðari 'og óvæntari þróun en nokkru sinni fyrr. í þeirri þróun hefur það verið gleðilegast að stór- bætt sambúð stórvelda hefur bund- ið enda á það kalda stríð sem rak þjóðir í austri og vestri áfram í háskalegu og rándýru vígbúnaðar- kapphlaupi. Við höfum séð merkileg skref stigin tii afvopnunar, Þýska- land sameinast og lýðræði fara í landvinninga um austanverða Evr- ópu. Okkur íslendingum sein gjarn- an viljum trúa á mátt orðsins, mátt skáldskaparins, hlýtur að vera það sérstakt ánægjuefni, að þar eystra hafa skáld og rithöfundar gegnt merku forystuhlutverki í sókn þjóða sinna til lýðréttinda. Einn þeirra, Václav Havel, forseti Tékkóslóv- akíu, heimsótti ísland á liðnu ári til að vera viðstaddur frumsýningu á einu verka sinna. Sá góði gestur minnti okkur á breytileika heimsins eins og hann er geðþekkastur: Maður sem verið hefur pólitískur fangi fyrir að segja upphátt það sem vakið fólk til umhugsunar — er nú orðinn leiðtogi þjóðar sinnar og samnefnari. Um leið hefur Havel minnt á annað: Á siðferðiskröfur í stjórnmálum, á nauðsyn þess að láta mennsk viðhorf umburðarlynd- is, ósérplægni og kærleika njóta sín í opinberu lífi svo það verði ekki lagt undir „tæknifræðinga valds- ins“, sem hann kallar svo. En þessi jákvæða þróun er líka blandin kvíða, eins og við vitum öll. Ný vandkvæði skjóta upp kolii. Tengjast sum efnahagslegum þrengingum, önnur erfíðri sambúð þjóða innan sömu landamæra, enn önnur eru tengd því að átök aust- urs og vesturs slógu menn blindu sem meðal annars ýtti undir stór- háskalegan vígbúnað í þriðja heim- inum svonefnda, eins og nú síðast kemur fram við Persaflóa. Að mörgu leyti sjást þannig í heimsatburðunum erfiðleikar mannlegra samskipta og við getum margt lært um hversu viðkvæm þau eru og hversu hverfult jafnan er öryggið. Sú alþjóðlega þróun sem ljóslega stendur næst okkur íslendingum er aukin samvinna Evrópuríkja, hugsanlegur póltiískur samruni þeirra. Það gefur augaleið að við hljótum að fylgjast með þessari þróun, bregðast við henni, taka þátt í henni með okkar hætti. Það vita allir að samningaviðræður um hagsmuni og stöðu Islands eru og verða erfítt verk og hver niðurstaða afdrifarík. Við vonum að við getum leyst úr því dæmi af skynsemi og framsýni. Það er að sjálfsögðu ekki í mínum verkahring að mæla með einni aðferð, einni lausn eða ann- arri. En það hlýtur að vekja nokk- urn ugg, hve þokukenndar hug- myndir stór hluti landsmanna virð- ist hafa, ekki aðeins um valkosti okkar, heldur blátt áfram um núver- andi stöðu okkar gagnvart EFTA og Evrópubandalagi. Hér er um þau stórmál að ræða sem heimta að bestu kostir lýðræðislegrar umræðu séu nýttir, og það gerist ekki nema almenningur viti sem gleggst hvað um er að ræða. Og á þessu sviði hlýtur að gilda hið sama og í allri samvinnu einstaklinga og þjóða: Því aðeins er hún fijó og gjöful að allir haldi sinni reisn og sínum sjálf- stæða vilja. Samvinna má aldrei byggjast á kúgun og hún felst ekki heldur í að vilji manna sé keyptur. Hér ætti gróin menningarþjóð að geta verið bjartsýn. Sjálfstæði hennar, hið tvíþætta sem annars vegar er efnahagslegt og hins veg- ar menningarlegt, ætti sannarlega að vera tryggt ef farið er með gát. Mörg eru dæmin, úr okkar eigin sögu og annarra, sem minna okkur á nauðsyn þess að stíga varlega til jarðar þegar ákvarðanir eru teknar um framtíð þjóðar. Það eru og göm- ul sannindi að enginn skilur hvað frelsið er sem hefur gleymt því, hvað það merkir að vera ófijáls. Danir og Frakkar til að mynda skildu það ekki fyrr en þeir voru hernumdir í síðari heimsstyijöld- inni. Litháar, sem urðu sjálfstæð þjóð um leið og íslendingar fengu fullveldi, hafa verið að minna okkur einmitt á. þetta með því að leita fulltingis íslenskra stjórnvalda í nýrri sjálfstæðisbaráttu sinni. „Frelsið er dýrmætara en brauðið," sagði forseti þeirra, Landsbergis, þegar hann kom hingað til íslands í haust. Enginn má skiija þessi dæmi sem svo að hér sé verið að láta að því liggja að einhveijir séu þeir sem bíði eftir því að hrifsa af okkur frels- ið með afarkostum og ofbeldi. Að vísu hygg ég að við séum búin að gleyma því hvað ófrelsi er. En það er jafnvíst, að margir eiga erfitt með að átta sig á því, að ofbeldi er þegar til lengdar lætur ekki eins hættulegt sjálfstæðisvilja þjóðar og uppgjafahneigð. Ekkert er eins ömurlegt og að smáþjóð gefist smám saman upp við að vera hún sjálf, ráða sínu lífi, lifa í þessu landi í sátt við sjálfa sig og leggja þar með sitt af mörkum til að gera heiminn ögn betri en hann er. Og sannarlega eigum við að geta lifað í sátt við sjálf okkur og landið. Ekki aðeins vegna þess að við búum við náttúruauðlindir sem ekki verða metnar til fjár, undursamlegar auð- lindir eins og fallvötn, hreint vatn og tært loft. Heldur jafnvel enn frekar vegna þess að við eigum hinar óþijótandi auðlindir manns- hugans. Sigurður skáld Pálsson lýs- ir hluta af þessum auðlindum í nýju ljóði og heitir „Einu konungar Is- lands“: En fuglar vísa okkur veginn um gróinn svörð og rústir bæja þar sem konungar sátu við skriftir; konungar ljóðs og sögu „ í litlum bæjum með víðáttur í höfði. u Það eru einmitt slíkar víðáttur sem geta orðið íslenskri þjóð að óþijótandi auðlind um alla framtíð, víðátturnar í höfðinu, frelsi hugsun- arinnar, hugvitsins og þekkingar- innar, samfara menningarlegri skáldsýn. Á stórmerkum ársfundi Vísindasjóðs og Rannsóknarráðs ríkisins nýverið komst Vilhjálmur Lúðvíksson meðal annars svo að orði: „Rannsóknarráð er nú reyndar orðið þeirrar skoðunar að mikilvæg- ustu.möguleikar í farsælum alhliða efnahags- og þjóðfélagsframförum felist í skynsamlegri nýtingu þekk- ingar, færni og hugvits, — þess mannauðs sem þjóðin býr yfir ... Ríkustu þjóðirnar eru alls ekki endi- lega þær sem mestar eiga náttúru- auðlindirnar. Mannlegir hæfíleikar, þekking, færni og hugvit eru auð- lind í sjálfu sér sem leysist úr læð- ingi ef rétt skilyrði og hvatning eru fyrir hendi.“ Það er þá viðfangsefni okkar að skapa þær forsendur að auðlindir mannshugans fái notið sín, að menntuð og upplýst æska geti trúað á framtíð sína í þessu landi og langi til þess framar öllu öðru að leggja þjóð sinni lið og tryggja henni sjálf- stæði í samfélagi þjóðanna. Það gerist ef við ræktum með okkur þekkingu, færni og hugvit á borð við hvaða stórþjóð sem er. Þá getum við nýtt okkur það einstaka land og kosti þess sem við eigum og þá getur íslensk þjóð lagt sitt af mörk- um til hagsældar og fegurra mannlífs i heiminum. Þess vegna megum við ekki missa æskublóma okkar úr landi af því að í boði séu gull og grænir skógar annars stað- ar. Fámenn eyþjóð á að skilja það, — og skilur, — öðrum þjóðum bet- ur, að hún má engan mann missa. Nú eru þeir tímar að háværustu umræðurnar snúast um efnahags- mál. Enginn undrast að þau mál fari hátt, því víst hafa allar þjóðir áhyggjur af afkomu sinni og vilja tryggja hana sem best. En í þess- ari geysimiklu umræðu um efnahag og fjármál ættu menn ekki að láta sér sjást yfír þau verðmæti, sem ekki verða á augabragði metin til fiska og í aska látin. Ef menn sjást ekki fyrir í augnablikskapphlaupi eftir gæðum, gleyma þeir í skamm- sýni sinni að treysta hinar nauðsyn- legustu undirstöður að farsælu lífi um alla framtíð. Öll eigum við okkur draumsýnir. Mín draumsýn er tengd því að við lifum í landi sem verði með sanni Vigdís Finnbogadóttir forseti þekkt fyrir lifandi menningu, fyrir þekkingu og fyrir heilbrigt líf. Ég vil að þegar menn hugsi til þessa lands þá sjái þeir fyrir sér hreint land og óspillt, hreint loft, heilnæm- an mat, mannlíf sem stendur á gömlum merg og veit um leið öll þau tíðindi sem skipta máli á hveij- um tíma. Við eigum reyndar tölu- vert af þessari mynd úti í heimi, eins og ég hef svo margoft orðið vör við á ferðum mínum. Það er ekki nema satt, að meðal upplýstra manna ríkir töluverð aðdáun á ís- lendingum, fámennri sjálfstæðri þjóð sem ein þjóða í Evrópu hefur varðveitt fornt tungumál, sterk þjóð og stolt sem hafnar því að apa eft- ir orð úr ólíkum tungumálum heldur keppist við í nútímanum að þýða hugtök yfir nýjar uppfínningar og þekkingu með nýyrðum sem fallr að þessari makalausu tungu, svo þjóðin geti haldið áfram að tala hana óbrenglaða og hugsa á henni með eigin orðum. Þeirri vegsemd fylgir að sjálfsögðu vandi: Sá vandi að standa sem best undir henni og öll þurfum við að taka á okkur þá ábyrgð. En ekki til þess að rembast við að koma til móts við óskhyggju erlendra vina okkar, þótt ágætir séu, heldur fyrst og fremst vegna okkar sjálfra, sjálfsvirðingar okkar og vilja til að lifa í þessu landi. Og það var einmitt fararnestið sem okkur var fengið í byijun þessarar aldar þegar hilla tók undir frelsi okkar og sjálfstæði: Sé ég i anda knör og vagna knúða, krafti, sem vanst úr fossa þinna skrúða, stritandi vjelar, starfsmenn glaða og prúða, stjórnfijálsa þjóð, með verslun eigin búða. Þannig kvað Hannes Hafstein um draumsýn sína fyrir Island í Aldamótaljóðinu góða. Ekki er sú öld sem þá var ný enn liðin, en samt hafa ótrúlega margar óskir og spár þessa hugsjónamanns og eldhuga sinnar kynslóðar ræst. Hvatning hans er einnig: Starfið er margt, en eitt er bræðra bandið, boðorðið, hvar sem þjer í fylking standið, hvemig sem stríðið þá og þá er blandið, það er að elska, byggja og treysta á landið. Svo gild sem þessi hvatning kann að hafa verið um síðustu aldamót þá er hún ekki síður brýn núna og má vera okkur hinn gleðilegi boð- skapur á nýbyijuðu ári. Því ef við berum gæfu til að treysta á auðlind- ir mennskunnar, treysta á samfélag okkar og land, treysta sjálfum okk- ur til að axla alla ábyrgð, þá mun okkur líka farnast vel. Á þessari stundu eru mér ofar- lega í huga þakkir til landsmanna fyrir þann góða hug sem mér var sýndur þegar ég átti stórafmæli. Sá hugur kom fram með mörgum hætti og ekki síst í gerð bókarinnar Yrkju og þeim viðtökum sem hún fékk. En þar lá að baki sú hug- mynd, að efna í gjöf sem yrði að sjóði sem gengi til íslenskrar æsku og hún verði honum til ræktunar landsins. Eins og ég hef stundum minnst á áður er það sannfæring mín að ekkert sé vænlegra í upp- eldi en að kenna börnum að rækta, því ræktun á einu sviði leiðir til ræktunar á öðrum, stuðlar að því að menn læra að hlúa að, byggja upp, auk þess sem í slíku uppeldi eflist það trúnaðarsamband við landið sem við megum síst án vera. Þegar við ræðum ræktun lands og lýðs, þá erum við að tala um verkefni sem aldrei verður leyst; enginn fær sig lausan úr þeim bar- daga, segir á vísum stað. Við höfum sem betur fer vaknað til umhugsun- ar um að í mörgu sé ojíkur áfátt í þeim efnum, að víða kreppi að. Og það er aðdáunarvert þegar menn stilla saman kraftana til stórra átaka — til að vernda tunguna, til að hlúa að börnum, til að vinna á vondum sjúkdómi, svo nýleg dæmi séu nefnd. Fátt er okkur hollara gleðiefni en að geta sýnt að þjóðin standi saman þegar á þarf að halda, geri jafnvel betur en vonir stóðu til. Hér er verið að tala um verkefni sem aldrei þijóta. Og ekkert í þeim efnum er svo lítið að ekki sé gagn að. Mér var í sumar ieið falið af grönnum okkar og íslendingum að vera í forsæti í Umhverfisári Norð- urlanda, en það er átak, eitt af mörgum þörfum, sem aldrei má setja punkt aftan við, eins þótt því ljúki formlega um tiítekin mánaða- mót á þessu nýja ári. Um þessar mundir er unnið kappsamlega að því á öllum Norðurlöndum að finna leiðir til að virkja sem flesta til markmiðs sem okkur öll dreymir um að ná fyrr eða síðar — og kemst þótt hægt fari. Umhverfisár Norð- urlanda er ekki herferð til að safna peningum til að láta eitthvað spretta heldur er lögð rík áhersla á að fólk geri sitt besta til að fjar- lægja óhreinindi og mengandi þætti í sínu nánasta umhverfí, vinnustað, bæ, borg, landi, strönd, hafi. Þetta er stundum orðað á þá leið, að menn hugsi hnattrænt og geri það sem þarf í sinni heimabyggð, hvort sem um er að ræða orkusparnað, mengunarvarnir, ræktun eða annan þrifnað. Hve margir eru það ekki sem skilja sæmilega vel þann vanda sem fylgir sambúð okkar við náttúr- una og auðlindirnar, en eins og gefast upp fyrir fram við að breyta þeim skilningi í athöfn og hugsa sem svo: Hvað má ég? — Eg breyti engu hvort eð er. En það er nauð- syn og möguleiki að reka af sér þennan draug dáðleysis. Hér er spurt um sjálfstraust og þá þjóðar- hlýju og umhyggju sem segir okk- ur, að þegar um fólk er að ræða, þá viljum við engan mann missa: Það sama á að gilda um landið og kosti þess. Blaðamaður í Belgíu spurði mig ekki alls fyrir löngu: Hvernig finnst yður að sitja á valdastóli? Hláleg spurning ef til vill, en endurspeglar þá útbreiddu áráttu samtímans að hugsa í valdakenningum, spyija fyrst og síðast hver hefur völd og láta sem fátt annað skipti máli. Spurningin kemur líka að gömlum og nýjum vangaveltum um völd eða öllu heldur valdaleysi forseta ís- lands og þá hvort hann á að seilast til valds sem mest hann má. En þá má halda áfram að spyija: Hver er sá sem vill leggja sig undir vald, vill lúta valdi? Hið dýrmæta lýðræði er svo margt; það er að taka tillit til hugsana annarra, setja sig í annarra spor, komast að samkomu- lagi um tillitssemi. Það er ekki harð- stjórn meirihlutans, hve lögleg sem hún kann að vera að forminu til. í góðu lýðræði felst upplýsing svo að allir geta tekið afstöðu sem hver og einn tekur réttmæta: í því felst virðing fyrir siðuðum sambýlishátt- um, virðing fyrir rödd og rétti ann- arra undir því góða gamla kjörorði: Orð skulu standa. Lýðræðið er líka í því fólgið að upplýsa þegnana sem best um alla kosti og hugsanlegar afleiðingar þeirra, um hvar ólán kunni að leynast og um það hvað reynst getur affarasælast þegar til langra tíma er litið. Sá sem slíku lýðræði vill þjóna getur að minnsta kosti reynt sitt besta til að vekja fólk til umhugsunar um ýmisleg mikilvæg málefni, án þess að negla þau við stundarhagsmuni valda- streitu. Góðir íslendingar. Á þessum nýársdegi er á ný gengið til Bessastaðastofu. Nú um áramótin lýkur fyrsta áfanga í við- reisn hennar, en hún hefur ekki verið í notkun i hálft annað ár. Þjóð- in hefur reist sér góðan húsakost undanfarið og nú er komið að því að hlúa að gömlu húsunum frá fyrri öld og öldum. Það er mikið gleði- efni að verða vitni að þeirri hugar- farsbreytingu sem orðið hefur um allt land er varðar virðingu fyrir gömlum húsum og þeirri sögu sem í þeim er. fólgin. í öllum landshlutum hefur af miklum myndarskap verið gert við margvíslega dýrgrini. kirki- ur, stofur, skemmur, bókhlöðu, verslunarhús og aðrar vistarverur og þeim forðað frá glötun. Hvar- vetna eru þessar byggingar héraðs- stolt til sóma fyrir samfélög úti á landi. Á sama hátt hefur Bessa- staðastofu nú verið gert til góða og Bessastaðastofa er gersemi okk- ar allra. Hér á þjóðin sameiginlegar minningar sínar, hér er tákn hinnar sameiginlegu menningar okkar og eignar, hluti af öllu því marg- slungna sem gerir okkur að einni sjálfstæðri þjóð. Gleðilegt nýtt ár. Megi farsæld og guðsblessun fylgja Islandi og þjóðinni allri á árinu sem nú fer i hönd og um alla framtíð. „Ríkisvaldið elur á sundr- ungu á milli sveitarfélagau - segir Sveinn Andri Sveinsson, ný- kjörinn formaður Samtaka sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu SVEINN Andri Sveinsson, lög- fræðingur og borgarfulltrúi, var nýlega kjörinn formaður Sam- taka sveitarfélaga á höfuðborg- arsvæðinu. Samtökin eru lands- hlutasamtök sveitarfélaga og eiga aðild að þeim Reykjavík, Garðabær, Bessastaðahreppur, Mosfellsbær, Kjalarneshreppur og Kjósarhreppur. Hlutverk samtakanna er að gæta sameig- inlegra hagsmuna sveitarfelag- anna bæði gagnvart ríkisvaldi og öðrum sveitarfélögurii og samtökum þeirra auk þess að vinna að ýmsum sameiginlegum verkefnum sín á milli og með öðrum. Sveinn Andri, sem er 27 ára gamall, er yngsti formaður Samtaka sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu frá upphafi. „Samtakamáttur sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu er mjög mikils virði og hafa samtökin m.a. beitt sér gegn hugmyndum sem komið hafa fram hjá ríkisvaldinu um skerðingu á tekjustofnum sveitarfé- laga af aðstöðugjöldum auk þess sem frumvarpsdrög félagsmálaráð- herra um breytingar á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins mætti harðri andstöðu á síðasta aðalfundi samtakanna en í frumvarpsdrögun- um var gert ráð fyrir að sveitarfé- lögin nánast fjármögnuðu alla þjón- ustu stofnunarinnar," sagði Sveinn Andri í samtali við Morgunblaðið. Samtökin eru umsagnaraðili um flest frumvörp og þingsálýktunart- illögur er varða málefni sveitarfé- laga. „Segja má að flest þau mál sem komið hafa til umfjöllunar samtak- anna hafi verið lögð fram í nafni valddreifingar en hafí í raun ekki Sveinn Andri Sveinsson. falið annað í sér en að báknið hafi aukist og miðstýring eflst á kostnað sveitarfélaga. Einnig hef ég orðið var við þá undarlegu áráttu að þeg- ar stjórnvöld hafa viljað dreifa stjórnsýslunni út um byggðir lands- ins hafa þau jafnframt viljað dreifa henni á höfuðborgarsvæðið þó hún sé þar til staðar fyrir. Dæmi um þetta má nefna frumvarp um Hús- næðisstofnun ríkisins, þar sem búa átti til sérstaka umdæmisskrifstofu sem þjóna ætti bæði Reykjavík og Reykjaneskjördæmi en á sama tíma átti ekki að leggja niður aðalskrif- stofu Húsnæðisstofnunar," sagði Sveinn Andri. Um þessar mundir er verið að vinna að ýmsum sameiginlegum verkefnum fyrir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu. Byggðasam- lag hefur verið stofnað um almenn- ingsvagnasamgöngur í sveitarfé- lögunum sem aðild eiga að samtök- unum ef frá er talin Reykjavík. Gert er ráð fyrir að slíkt kerfi og almenningsvagnakerfi Reykjavíkur verði samræmt. Samvinna er auk þess á milli sveitarfélaga um skipu- lag byggðar og umferðar á svæð- inu. Hvað það varðar hefur m.a. verið rætt um hvernig beina eigi aukinni umferð sem verður um höf- uðborgarsvæðið í kjölfar uppkomu álvers á Keilisnesi. Girðingar utan um höfuðborgarsvæðið og reiðleiðir eru meðal mála sem samtökin láta til sín taka auk þess sem innan þeirra er starfandi Atvinnumála- nefnd og Ferðamálasamtök höfuð- borgarsvæðisins. Samtökin tilnefna jafnframt fulltrúa í fræðsluráð Reykjanesumdæmis. Mörg brýn verkefni eru framund- an hjá samtökunum, að sögn Sveins Andra. „Mál sem ég hef mikinn áhuga á að beita mér fyrir er jöfn- un atkvæðisréttar. Aðalfundur samtakanna ályktaði um það mál á síðasta fundi og fól stjórninni að fylgja því eftir. Við munum i þvi skyni ræða við þingmenn allra flokka í Reykjanes- og Reykjavíkur- umdæmi og leita svara við því hvaða stefnu þeirra flokkar hafa í jafn sjálfsögðu mannréttindamáli sem jöfnun atkvæðisréttar er. Þau rök sem ýmsir stjórnmálamenn nota gegn þessu, þ.e. að það sé hluti af byggðarstefnu að halda núverandi kjördæmaskipan og því misvægi sem nú ríkir, eru fráleit að mínu mati.“ Sveinn Andri taldi þetta mál tengjast því að sporna bæri gegn málflutningi margra stjórnmála- manna sem staðnir hefðu verið að því að etja saman byggðum lands- ins. „Stjórnmálamenn hafa margir hveijir alið á sundrungu á milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggð- ar. Sú þróun sem hefur átt sér stað og stefnir í að muni eiga sér stað áfram, að fólk flytjist unnvörpum frá hinni dreifðu byggð landsins til höfuðborgarsvæðisins er mikið þjóðfélagslegt vandamál, bæði fyrir þau sveitarfélög sem missa fólk frá sér og ekki síður fyrir höfuðborgar- svæðið sem taka þarf við öllu fólk- inu. íslenskir stjórnmálamenn hafa margir hveijir, þó einkum fram- sóknarmenn hvar í flokki sem þeir átanda, gjarnan þvegið hendur sínar af þessari þróun með þvi að „kenna“ höfuðborgsvæðinu um allt sem mið- ur fer og hafa jafnframt alið á þessu sjónarmiði meðal fólks á lands- byggðinni og þannig beint sjónum þeirra frá kjarna málsins, en hann , er sá að íslenskir stjórnmálamenn hafa sjálfír stuðlað að þessari þróun með þvi að vilja sífellt ráðskast með atvinnurekstur og einstaklinga. Þeir hafa stuðlað að offjárfestingu í landbúnaði og sjávarútvegi og staðið í vegi þess að eðlilegt atvinn- ulíf hafi fengið að þróast. Það er sorglegt að horfa upp á það hvern- ig framsóknarmenn hafa gert heilu byggðarlögin úti í landi algjörlega háð stofnunum og sjóðum í Reykjavík sem þeir sjálfir stjórna í stað þess að stuðla að hagræðingu og nýsköpun. Það er eitt af brýn- ustu verkefnum samtakanna að veijast þessari tilraun stjórnmála- manna að ala á sundrungu höfuð- borgarsvæðisins og landsbyggðar- innar með auknum samskiptum og upplýsingaflæði um málefni höfuð- borgarsvæðisins og í raun um það sem miður fer'í stjórnun landsins," sagði Sveinn Andri að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.