Morgunblaðið - 03.01.1991, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1991
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1991
27
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Árvakur, Reykjavík
HaraldurSveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Fögnuður og uggur
Morgundagurinn á rætur í
gærdeginum. Framtíð
einstaklinga og þjóða verður
að drýgstum hluta reist á sam-
ansafnaðri reynslu þeirra og
þekkingu. Þessvegna er mikil-
vægt að horfa um öxl þegar
grunnur er lagður að komandi
tíð. Það gera og flestir á ára-
mótum, bæði háir og lágir.
Forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, horfir yfir far-
inn veg í nýjársávarpi til þjóð-
arinnar og kemst svo að orði:
„Þegar horft er héðan af
yztu nesjum til heimsbyggðar-
innar á nýliðnum misserum,
má í senn finna mörg fagnað-
arefni og margt sem vekur
ugg. Við höfum orðið vitni að
meiri atburðum en nokkurn
óraði fyrir, séð hraðari og
óvæntari þróun en nokkru sinni
fyrr. í þeirri þróun hefur það
verið gleðilegast að stórbætt
sambúð stórvelda hefur bundið
enda á það kalda stríð sem rak
þjóðir í austri og vestri áfram
í háskalegu og rándýru vígbún-
aðarkapphlaupi. Við höfum séð
merkileg skref stigin til af-
vopnunar, Þýzkaland samein-
ast og lýðræði fara í landvinn-
inga um austanverða Ev-r-
ópu.“
Forsetinn undirstrikar mikil-
vægi menningar og þekkingar
í þessari jákvæðu þróun:
„Okkur íslendingum sem
gjarna viljum trúa á mátt orðs-
ins, mátt skáldskaparins, hlýt-
ur að vera það sérstakt
ánægjuefni, að þar eystra hafa
skáld og rithöfundar gegnt
merku forystuhlutverki í sókn
þjóða sinna til lýðréttinda. Einn
þeirra, Václav Havel forseti
Tékkóslóvakíu, heimsótti ís-
land á liðnu ári til að vera við-
staddur frumsýningu á einu
eigin verka. Sá góði gestur
minnti okkur á breytileika
heimsins eins og hann er geð-
þekkastur: maður sem verið
hefur pólitískur fangi fyrir að
segja upphátt það sem ekk'
mátti segja - af því að það
gat vakið fólk til umhugsunar
- er nú orðinn leiðtogi þjóðar
sinnar og samnefnari. Um leið
hefur Havel minnt á annað: á
siðferðiskröfur í stjórnmálum,
á nauðsyn þess að láta mennsk
viðhorf umburðaríyndis, ósér-
plægni og kærleika njóta sín í
opinberu lífi svo það verði ekki
lagt undir „tæknifræðinga
valdsins" sem hann kallar svo.“
En gleði fólks yfir þeirri já-
kvæðu þróun, sem forsetinn
víkur að, er blandin kvíða.
Gömul og ný vandamál vekja
ugg. Þar rís þrennt hæst. í
fyrsta lagi efnahagslegar
þrengingar, einkum í svoköll-
uðum þriðja heimi, sem koma
meðal annars fram í vannær-
ingu, sjúkdómum og ótíma:
bærum dauða milljóna fólks. í
annan stað ófriðarhættan við
Persaflóa, sem er bein afleiðing
innrásar Iraka í Kúvæt. í þriðja
lagi óvissan um framvindu
mála í Sovétríkjunum.
Það er og bæði fögnuður og
uggur í huga landsmanna þeg-
ar skyggnzt er um heimavett-
vang. Þar hefur sitt hvað geng-
ið í haginn: hátt sjávarvöruverð
og þjóðarsátt með friði á vinnu-
markaði og festu í launa-, verð-
lags- og gengismálum. Annað
hefur farið á verri veg. Þar ber
hæst hrikalegan ríkissjóðshálla
með tilheyrandi innlendri og
erlendri skuldasöfnun, fleiri
gjaldþrot einstaklinga og fyrir-
tækja og meira atvinnuleysi en
verið hefur hér á landi síðustu
tvo áratugi, ónógur hagvöxtur
og minnkandi almennur kaup-
máttur. Ýmis stór vandamál
bíða og óleyst, svo sem aðlögun
íslenzks atvinnulífs að efna-
hagslegu umhverfi í veröldinni
í náinni framtíð, frekari aðlög-
un veiða og vinnslu að þoli
nytjafiska og frekari aðlögun
búvöruframleiðslu að innlend-
um markaði.
Það er nauðsynlegt að horfa
um öxl og virkja samansafnaða
reynslu og þekkingu þjóðarinn-
ar, þegar grunnur er lagður
að framtíð hennar. Það er ekki
síður mikilvægt, að halda vöku
sinni á sviði nýrrar þekkingar
og tækni. Forseti Islands árétt-
aði í áramótaræðu sinni þau
orð Vilhjálms Lúðvíkssonar á
ársfundi Vísindasjóðs og Rann-
sóknarráðs, „að mikilvægustu
möguleikar í farsælum alhiða
efnahags- og þjóðfélagsfram-
förum fælust í skynsamlegri
nýtingu þekkingar, færni og
hugvits, - þess mannauðs sem
þjóðin býr yfir“.
„Það er viðfangsefni okkar,“
sagði forsetinn, „að skapa þær
forsendur að auðlindir manns-
hugans fái notið sín, að mennt-
uð og upplýst æska geti trúað
á framtíð sína í þessu landi og
langi til þess framar öllu öðru
að leggja þjóð sinni lið og
tryggja sjálfstæði hennar í
samfélagi þjóðanna“.
„Frelsið er dýrmæt-
ara en brauðið
Nýársávarp frú Vigdísar Finnbogadóttur forseta íslands
ekki átti segja — af því að það gat
Góðan dag, góðir áheyrendur.
Ég óska landsmönnum öllum
gleðilegs nýárs og þakka samfylgd
samtíðarmanna á liðnum árum.
Hún hefur verið mér vinarík, holl
pg verðmæt og ég hygg að allir
íslendingar geti hugsað á sama veg
til samtíðarmanna, hver fyrir sig.
Þannig er samstaða þjóðar okkar
og það er lán okkar.
A áramótum er okkur einatt efst
í huga að minnast þeirra sem eiga
í erfiðleikum og raunum, sem hafa
misst þá sem þeim stóðu næst, og
votta þeim einlægan samhug okk-
ar. Mikill missir verður aldrei með
neinum orðum bættur, en gott er
að eiga í fórum sínum speki erlends
skálds löngu liðinna tíma, sem kvað
á þessa leið: Þegar hugurinn leitar
til kærra förunauta okkar, sem
gáfu heiminum líf með nærveru
sinni, þá skulum við ekki segja:
Þeir eru farnir. Segjum heldur með
þakklæti: Þeir voru hér.
Við hver áramót reynum við jafn-
an að horfa til tveggja átta í senn.
Um leið og við gerum upp við liðinn
tíma, freistum við þess að skyggn-
ast inn í framtíðina. Hvort tveggja
er erfitt en um leið dýrmætt. Þegar
horft er héðan af ystu nesjum til
heimsbyggðarinnar á nýliðnum
misserum, má í senn finna mörg
fagnaðarefni og margt sem vekur
ugg. Við höfum orðið vitni að meiri
atburðum en nokkum óraði fyrir,
séð hraðari 'og óvæntari þróun en
nokkru sinni fyrr. í þeirri þróun
hefur það verið gleðilegast að stór-
bætt sambúð stórvelda hefur bund-
ið enda á það kalda stríð sem rak
þjóðir í austri og vestri áfram í
háskalegu og rándýru vígbúnaðar-
kapphlaupi. Við höfum séð merkileg
skref stigin tii afvopnunar, Þýska-
land sameinast og lýðræði fara í
landvinninga um austanverða Evr-
ópu. Okkur íslendingum sein gjarn-
an viljum trúa á mátt orðsins, mátt
skáldskaparins, hlýtur að vera það
sérstakt ánægjuefni, að þar eystra
hafa skáld og rithöfundar gegnt
merku forystuhlutverki í sókn þjóða
sinna til lýðréttinda. Einn þeirra,
Václav Havel, forseti Tékkóslóv-
akíu, heimsótti ísland á liðnu ári
til að vera viðstaddur frumsýningu
á einu verka sinna. Sá góði gestur
minnti okkur á breytileika heimsins
eins og hann er geðþekkastur:
Maður sem verið hefur pólitískur
fangi fyrir að segja upphátt það sem
vakið fólk til umhugsunar — er nú
orðinn leiðtogi þjóðar sinnar og
samnefnari. Um leið hefur Havel
minnt á annað: Á siðferðiskröfur í
stjórnmálum, á nauðsyn þess að
láta mennsk viðhorf umburðarlynd-
is, ósérplægni og kærleika njóta sín
í opinberu lífi svo það verði ekki
lagt undir „tæknifræðinga valds-
ins“, sem hann kallar svo.
En þessi jákvæða þróun er líka
blandin kvíða, eins og við vitum
öll. Ný vandkvæði skjóta upp kolii.
Tengjast sum efnahagslegum
þrengingum, önnur erfíðri sambúð
þjóða innan sömu landamæra, enn
önnur eru tengd því að átök aust-
urs og vesturs slógu menn blindu
sem meðal annars ýtti undir stór-
háskalegan vígbúnað í þriðja heim-
inum svonefnda, eins og nú síðast
kemur fram við Persaflóa.
Að mörgu leyti sjást þannig í
heimsatburðunum erfiðleikar
mannlegra samskipta og við getum
margt lært um hversu viðkvæm þau
eru og hversu hverfult jafnan er
öryggið.
Sú alþjóðlega þróun sem ljóslega
stendur næst okkur íslendingum
er aukin samvinna Evrópuríkja,
hugsanlegur póltiískur samruni
þeirra. Það gefur augaleið að við
hljótum að fylgjast með þessari
þróun, bregðast við henni, taka
þátt í henni með okkar hætti. Það
vita allir að samningaviðræður um
hagsmuni og stöðu Islands eru og
verða erfítt verk og hver niðurstaða
afdrifarík. Við vonum að við getum
leyst úr því dæmi af skynsemi og
framsýni. Það er að sjálfsögðu ekki
í mínum verkahring að mæla með
einni aðferð, einni lausn eða ann-
arri. En það hlýtur að vekja nokk-
urn ugg, hve þokukenndar hug-
myndir stór hluti landsmanna virð-
ist hafa, ekki aðeins um valkosti
okkar, heldur blátt áfram um núver-
andi stöðu okkar gagnvart EFTA
og Evrópubandalagi. Hér er um þau
stórmál að ræða sem heimta að
bestu kostir lýðræðislegrar umræðu
séu nýttir, og það gerist ekki nema
almenningur viti sem gleggst hvað
um er að ræða. Og á þessu sviði
hlýtur að gilda hið sama og í allri
samvinnu einstaklinga og þjóða: Því
aðeins er hún fijó og gjöful að allir
haldi sinni reisn og sínum sjálf-
stæða vilja. Samvinna má aldrei
byggjast á kúgun og hún felst ekki
heldur í að vilji manna sé keyptur.
Hér ætti gróin menningarþjóð að
geta verið bjartsýn. Sjálfstæði
hennar, hið tvíþætta sem annars
vegar er efnahagslegt og hins veg-
ar menningarlegt, ætti sannarlega
að vera tryggt ef farið er með gát.
Mörg eru dæmin, úr okkar eigin
sögu og annarra, sem minna okkur
á nauðsyn þess að stíga varlega til
jarðar þegar ákvarðanir eru teknar
um framtíð þjóðar. Það eru og göm-
ul sannindi að enginn skilur hvað
frelsið er sem hefur gleymt því,
hvað það merkir að vera ófijáls.
Danir og Frakkar til að mynda
skildu það ekki fyrr en þeir voru
hernumdir í síðari heimsstyijöld-
inni. Litháar, sem urðu sjálfstæð
þjóð um leið og íslendingar fengu
fullveldi, hafa verið að minna okkur
einmitt á. þetta með því að leita
fulltingis íslenskra stjórnvalda í
nýrri sjálfstæðisbaráttu sinni.
„Frelsið er dýrmætara en brauðið,"
sagði forseti þeirra, Landsbergis,
þegar hann kom hingað til íslands
í haust.
Enginn má skiija þessi dæmi sem
svo að hér sé verið að láta að því
liggja að einhveijir séu þeir sem
bíði eftir því að hrifsa af okkur frels-
ið með afarkostum og ofbeldi. Að
vísu hygg ég að við séum búin að
gleyma því hvað ófrelsi er. En það
er jafnvíst, að margir eiga erfitt
með að átta sig á því, að ofbeldi
er þegar til lengdar lætur ekki eins
hættulegt sjálfstæðisvilja þjóðar og
uppgjafahneigð. Ekkert er eins
ömurlegt og að smáþjóð gefist
smám saman upp við að vera hún
sjálf, ráða sínu lífi, lifa í þessu landi
í sátt við sjálfa sig og leggja þar
með sitt af mörkum til að gera
heiminn ögn betri en hann er.
Og sannarlega eigum við að geta
lifað í sátt við sjálf okkur og landið.
Ekki aðeins vegna þess að við búum
við náttúruauðlindir sem ekki verða
metnar til fjár, undursamlegar auð-
lindir eins og fallvötn, hreint vatn
og tært loft. Heldur jafnvel enn
frekar vegna þess að við eigum
hinar óþijótandi auðlindir manns-
hugans. Sigurður skáld Pálsson lýs-
ir hluta af þessum auðlindum í nýju
ljóði og heitir „Einu konungar Is-
lands“:
En fuglar vísa okkur veginn um gróinn svörð
og rústir bæja þar sem konungar sátu
við skriftir; konungar ljóðs og sögu
„ í litlum bæjum með víðáttur í höfði.
u
Það eru einmitt slíkar víðáttur
sem geta orðið íslenskri þjóð að
óþijótandi auðlind um alla framtíð,
víðátturnar í höfðinu, frelsi hugsun-
arinnar, hugvitsins og þekkingar-
innar, samfara menningarlegri
skáldsýn. Á stórmerkum ársfundi
Vísindasjóðs og Rannsóknarráðs
ríkisins nýverið komst Vilhjálmur
Lúðvíksson meðal annars svo að
orði:
„Rannsóknarráð er nú reyndar
orðið þeirrar skoðunar að mikilvæg-
ustu.möguleikar í farsælum alhliða
efnahags- og þjóðfélagsframförum
felist í skynsamlegri nýtingu þekk-
ingar, færni og hugvits, — þess
mannauðs sem þjóðin býr yfir ...
Ríkustu þjóðirnar eru alls ekki endi-
lega þær sem mestar eiga náttúru-
auðlindirnar. Mannlegir hæfíleikar,
þekking, færni og hugvit eru auð-
lind í sjálfu sér sem leysist úr læð-
ingi ef rétt skilyrði og hvatning eru
fyrir hendi.“
Það er þá viðfangsefni okkar að
skapa þær forsendur að auðlindir
mannshugans fái notið sín, að
menntuð og upplýst æska geti trúað
á framtíð sína í þessu landi og langi
til þess framar öllu öðru að leggja
þjóð sinni lið og tryggja henni sjálf-
stæði í samfélagi þjóðanna. Það
gerist ef við ræktum með okkur
þekkingu, færni og hugvit á borð
við hvaða stórþjóð sem er. Þá getum
við nýtt okkur það einstaka land
og kosti þess sem við eigum og þá
getur íslensk þjóð lagt sitt af mörk-
um til hagsældar og fegurra
mannlífs i heiminum. Þess vegna
megum við ekki missa æskublóma
okkar úr landi af því að í boði séu
gull og grænir skógar annars stað-
ar. Fámenn eyþjóð á að skilja það,
— og skilur, — öðrum þjóðum bet-
ur, að hún má engan mann missa.
Nú eru þeir tímar að háværustu
umræðurnar snúast um efnahags-
mál. Enginn undrast að þau mál
fari hátt, því víst hafa allar þjóðir
áhyggjur af afkomu sinni og vilja
tryggja hana sem best. En í þess-
ari geysimiklu umræðu um efnahag
og fjármál ættu menn ekki að láta
sér sjást yfír þau verðmæti, sem
ekki verða á augabragði metin til
fiska og í aska látin. Ef menn sjást
ekki fyrir í augnablikskapphlaupi
eftir gæðum, gleyma þeir í skamm-
sýni sinni að treysta hinar nauðsyn-
legustu undirstöður að farsælu lífi
um alla framtíð.
Öll eigum við okkur draumsýnir.
Mín draumsýn er tengd því að við
lifum í landi sem verði með sanni
Vigdís Finnbogadóttir forseti
þekkt fyrir lifandi menningu, fyrir
þekkingu og fyrir heilbrigt líf. Ég
vil að þegar menn hugsi til þessa
lands þá sjái þeir fyrir sér hreint
land og óspillt, hreint loft, heilnæm-
an mat, mannlíf sem stendur á
gömlum merg og veit um leið öll
þau tíðindi sem skipta máli á hveij-
um tíma. Við eigum reyndar tölu-
vert af þessari mynd úti í heimi,
eins og ég hef svo margoft orðið
vör við á ferðum mínum. Það er
ekki nema satt, að meðal upplýstra
manna ríkir töluverð aðdáun á ís-
lendingum, fámennri sjálfstæðri
þjóð sem ein þjóða í Evrópu hefur
varðveitt fornt tungumál, sterk þjóð
og stolt sem hafnar því að apa eft-
ir orð úr ólíkum tungumálum heldur
keppist við í nútímanum að þýða
hugtök yfir nýjar uppfínningar og
þekkingu með nýyrðum sem fallr
að þessari makalausu tungu, svo
þjóðin geti haldið áfram að tala
hana óbrenglaða og hugsa á henni
með eigin orðum. Þeirri vegsemd
fylgir að sjálfsögðu vandi: Sá vandi
að standa sem best undir henni og
öll þurfum við að taka á okkur þá
ábyrgð. En ekki til þess að rembast
við að koma til móts við óskhyggju
erlendra vina okkar, þótt ágætir
séu, heldur fyrst og fremst vegna
okkar sjálfra, sjálfsvirðingar okkar
og vilja til að lifa í þessu landi. Og
það var einmitt fararnestið sem
okkur var fengið í byijun þessarar
aldar þegar hilla tók undir frelsi
okkar og sjálfstæði:
Sé ég i anda knör og vagna knúða,
krafti, sem vanst úr fossa þinna skrúða,
stritandi vjelar, starfsmenn glaða og prúða,
stjórnfijálsa þjóð, með verslun eigin búða.
Þannig kvað Hannes Hafstein
um draumsýn sína fyrir Island í
Aldamótaljóðinu góða. Ekki er sú
öld sem þá var ný enn liðin, en
samt hafa ótrúlega margar óskir
og spár þessa hugsjónamanns og
eldhuga sinnar kynslóðar ræst.
Hvatning hans er einnig:
Starfið er margt, en eitt er bræðra bandið,
boðorðið, hvar sem þjer í fylking standið,
hvemig sem stríðið þá og þá er blandið,
það er að elska, byggja og treysta á landið.
Svo gild sem þessi hvatning kann
að hafa verið um síðustu aldamót
þá er hún ekki síður brýn núna og
má vera okkur hinn gleðilegi boð-
skapur á nýbyijuðu ári. Því ef við
berum gæfu til að treysta á auðlind-
ir mennskunnar, treysta á samfélag
okkar og land, treysta sjálfum okk-
ur til að axla alla ábyrgð, þá mun
okkur líka farnast vel.
Á þessari stundu eru mér ofar-
lega í huga þakkir til landsmanna
fyrir þann góða hug sem mér var
sýndur þegar ég átti stórafmæli.
Sá hugur kom fram með mörgum
hætti og ekki síst í gerð bókarinnar
Yrkju og þeim viðtökum sem hún
fékk. En þar lá að baki sú hug-
mynd, að efna í gjöf sem yrði að
sjóði sem gengi til íslenskrar æsku
og hún verði honum til ræktunar
landsins. Eins og ég hef stundum
minnst á áður er það sannfæring
mín að ekkert sé vænlegra í upp-
eldi en að kenna börnum að rækta,
því ræktun á einu sviði leiðir til
ræktunar á öðrum, stuðlar að því
að menn læra að hlúa að, byggja
upp, auk þess sem í slíku uppeldi
eflist það trúnaðarsamband við
landið sem við megum síst án vera.
Þegar við ræðum ræktun lands
og lýðs, þá erum við að tala um
verkefni sem aldrei verður leyst;
enginn fær sig lausan úr þeim bar-
daga, segir á vísum stað. Við höfum
sem betur fer vaknað til umhugsun-
ar um að í mörgu sé ojíkur áfátt í
þeim efnum, að víða kreppi að. Og
það er aðdáunarvert þegar menn
stilla saman kraftana til stórra
átaka — til að vernda tunguna, til
að hlúa að börnum, til að vinna á
vondum sjúkdómi, svo nýleg dæmi
séu nefnd. Fátt er okkur hollara
gleðiefni en að geta sýnt að þjóðin
standi saman þegar á þarf að halda,
geri jafnvel betur en vonir stóðu til.
Hér er verið að tala um verkefni
sem aldrei þijóta. Og ekkert í þeim
efnum er svo lítið að ekki sé gagn
að. Mér var í sumar ieið falið af
grönnum okkar og íslendingum að
vera í forsæti í Umhverfisári Norð-
urlanda, en það er átak, eitt af
mörgum þörfum, sem aldrei má
setja punkt aftan við, eins þótt því
ljúki formlega um tiítekin mánaða-
mót á þessu nýja ári. Um þessar
mundir er unnið kappsamlega að
því á öllum Norðurlöndum að finna
leiðir til að virkja sem flesta til
markmiðs sem okkur öll dreymir
um að ná fyrr eða síðar — og kemst
þótt hægt fari. Umhverfisár Norð-
urlanda er ekki herferð til að safna
peningum til að láta eitthvað
spretta heldur er lögð rík áhersla á
að fólk geri sitt besta til að fjar-
lægja óhreinindi og mengandi þætti
í sínu nánasta umhverfí, vinnustað,
bæ, borg, landi, strönd, hafi. Þetta
er stundum orðað á þá leið, að
menn hugsi hnattrænt og geri það
sem þarf í sinni heimabyggð, hvort
sem um er að ræða orkusparnað,
mengunarvarnir, ræktun eða annan
þrifnað. Hve margir eru það ekki
sem skilja sæmilega vel þann vanda
sem fylgir sambúð okkar við náttúr-
una og auðlindirnar, en eins og
gefast upp fyrir fram við að breyta
þeim skilningi í athöfn og hugsa
sem svo: Hvað má ég? — Eg breyti
engu hvort eð er. En það er nauð-
syn og möguleiki að reka af sér
þennan draug dáðleysis. Hér er
spurt um sjálfstraust og þá þjóðar-
hlýju og umhyggju sem segir okk-
ur, að þegar um fólk er að ræða,
þá viljum við engan mann missa:
Það sama á að gilda um landið og
kosti þess.
Blaðamaður í Belgíu spurði mig
ekki alls fyrir löngu: Hvernig finnst
yður að sitja á valdastóli? Hláleg
spurning ef til vill, en endurspeglar
þá útbreiddu áráttu samtímans að
hugsa í valdakenningum, spyija
fyrst og síðast hver hefur völd og
láta sem fátt annað skipti máli.
Spurningin kemur líka að gömlum
og nýjum vangaveltum um völd eða
öllu heldur valdaleysi forseta ís-
lands og þá hvort hann á að seilast
til valds sem mest hann má. En þá
má halda áfram að spyija: Hver er
sá sem vill leggja sig undir vald,
vill lúta valdi? Hið dýrmæta lýðræði
er svo margt; það er að taka tillit
til hugsana annarra, setja sig í
annarra spor, komast að samkomu-
lagi um tillitssemi. Það er ekki harð-
stjórn meirihlutans, hve lögleg sem
hún kann að vera að forminu til. í
góðu lýðræði felst upplýsing svo
að allir geta tekið afstöðu sem hver
og einn tekur réttmæta: í því felst
virðing fyrir siðuðum sambýlishátt-
um, virðing fyrir rödd og rétti ann-
arra undir því góða gamla kjörorði:
Orð skulu standa. Lýðræðið er líka
í því fólgið að upplýsa þegnana sem
best um alla kosti og hugsanlegar
afleiðingar þeirra, um hvar ólán
kunni að leynast og um það hvað
reynst getur affarasælast þegar til
langra tíma er litið. Sá sem slíku
lýðræði vill þjóna getur að minnsta
kosti reynt sitt besta til að vekja
fólk til umhugsunar um ýmisleg
mikilvæg málefni, án þess að negla
þau við stundarhagsmuni valda-
streitu.
Góðir íslendingar.
Á þessum nýársdegi er á ný
gengið til Bessastaðastofu. Nú um
áramótin lýkur fyrsta áfanga í við-
reisn hennar, en hún hefur ekki
verið í notkun i hálft annað ár. Þjóð-
in hefur reist sér góðan húsakost
undanfarið og nú er komið að því
að hlúa að gömlu húsunum frá fyrri
öld og öldum. Það er mikið gleði-
efni að verða vitni að þeirri hugar-
farsbreytingu sem orðið hefur um
allt land er varðar virðingu fyrir
gömlum húsum og þeirri sögu sem
í þeim er. fólgin. í öllum landshlutum
hefur af miklum myndarskap verið
gert við margvíslega dýrgrini. kirki-
ur, stofur, skemmur, bókhlöðu,
verslunarhús og aðrar vistarverur
og þeim forðað frá glötun. Hvar-
vetna eru þessar byggingar héraðs-
stolt til sóma fyrir samfélög úti á
landi. Á sama hátt hefur Bessa-
staðastofu nú verið gert til góða
og Bessastaðastofa er gersemi okk-
ar allra. Hér á þjóðin sameiginlegar
minningar sínar, hér er tákn hinnar
sameiginlegu menningar okkar og
eignar, hluti af öllu því marg-
slungna sem gerir okkur að einni
sjálfstæðri þjóð.
Gleðilegt nýtt ár. Megi farsæld
og guðsblessun fylgja Islandi og
þjóðinni allri á árinu sem nú fer i
hönd og um alla framtíð.
„Ríkisvaldið elur á sundr-
ungu á milli sveitarfélagau
- segir Sveinn Andri Sveinsson, ný-
kjörinn formaður Samtaka sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu
SVEINN Andri Sveinsson, lög-
fræðingur og borgarfulltrúi, var
nýlega kjörinn formaður Sam-
taka sveitarfélaga á höfuðborg-
arsvæðinu. Samtökin eru lands-
hlutasamtök sveitarfélaga og
eiga aðild að þeim Reykjavík,
Garðabær, Bessastaðahreppur,
Mosfellsbær, Kjalarneshreppur
og Kjósarhreppur. Hlutverk
samtakanna er að gæta sameig-
inlegra hagsmuna sveitarfelag-
anna bæði gagnvart ríkisvaldi
og öðrum sveitarfélögurii og
samtökum þeirra auk þess að
vinna að ýmsum sameiginlegum
verkefnum sín á milli og með
öðrum. Sveinn Andri, sem er 27
ára gamall, er yngsti formaður
Samtaka sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu frá upphafi.
„Samtakamáttur sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu er mjög mikils
virði og hafa samtökin m.a. beitt
sér gegn hugmyndum sem komið
hafa fram hjá ríkisvaldinu um
skerðingu á tekjustofnum sveitarfé-
laga af aðstöðugjöldum auk þess
sem frumvarpsdrög félagsmálaráð-
herra um breytingar á lögum um
Húsnæðisstofnun ríkisins mætti
harðri andstöðu á síðasta aðalfundi
samtakanna en í frumvarpsdrögun-
um var gert ráð fyrir að sveitarfé-
lögin nánast fjármögnuðu alla þjón-
ustu stofnunarinnar," sagði Sveinn
Andri í samtali við Morgunblaðið.
Samtökin eru umsagnaraðili um
flest frumvörp og þingsálýktunart-
illögur er varða málefni sveitarfé-
laga.
„Segja má að flest þau mál sem
komið hafa til umfjöllunar samtak-
anna hafi verið lögð fram í nafni
valddreifingar en hafí í raun ekki
Sveinn Andri Sveinsson.
falið annað í sér en að báknið hafi
aukist og miðstýring eflst á kostnað
sveitarfélaga. Einnig hef ég orðið
var við þá undarlegu áráttu að þeg-
ar stjórnvöld hafa viljað dreifa
stjórnsýslunni út um byggðir lands-
ins hafa þau jafnframt viljað dreifa
henni á höfuðborgarsvæðið þó hún
sé þar til staðar fyrir. Dæmi um
þetta má nefna frumvarp um Hús-
næðisstofnun ríkisins, þar sem búa
átti til sérstaka umdæmisskrifstofu
sem þjóna ætti bæði Reykjavík og
Reykjaneskjördæmi en á sama tíma
átti ekki að leggja niður aðalskrif-
stofu Húsnæðisstofnunar," sagði
Sveinn Andri.
Um þessar mundir er verið að
vinna að ýmsum sameiginlegum
verkefnum fyrir sveitarfélögin á
höfuðborgarsvæðinu. Byggðasam-
lag hefur verið stofnað um almenn-
ingsvagnasamgöngur í sveitarfé-
lögunum sem aðild eiga að samtök-
unum ef frá er talin Reykjavík.
Gert er ráð fyrir að slíkt kerfi og
almenningsvagnakerfi Reykjavíkur
verði samræmt. Samvinna er auk
þess á milli sveitarfélaga um skipu-
lag byggðar og umferðar á svæð-
inu. Hvað það varðar hefur m.a.
verið rætt um hvernig beina eigi
aukinni umferð sem verður um höf-
uðborgarsvæðið í kjölfar uppkomu
álvers á Keilisnesi. Girðingar utan
um höfuðborgarsvæðið og reiðleiðir
eru meðal mála sem samtökin láta
til sín taka auk þess sem innan
þeirra er starfandi Atvinnumála-
nefnd og Ferðamálasamtök höfuð-
borgarsvæðisins. Samtökin tilnefna
jafnframt fulltrúa í fræðsluráð
Reykjanesumdæmis.
Mörg brýn verkefni eru framund-
an hjá samtökunum, að sögn Sveins
Andra. „Mál sem ég hef mikinn
áhuga á að beita mér fyrir er jöfn-
un atkvæðisréttar. Aðalfundur
samtakanna ályktaði um það mál á
síðasta fundi og fól stjórninni að
fylgja því eftir. Við munum i þvi
skyni ræða við þingmenn allra
flokka í Reykjanes- og Reykjavíkur-
umdæmi og leita svara við því hvaða
stefnu þeirra flokkar hafa í jafn
sjálfsögðu mannréttindamáli sem
jöfnun atkvæðisréttar er. Þau rök
sem ýmsir stjórnmálamenn nota
gegn þessu, þ.e. að það sé hluti af
byggðarstefnu að halda núverandi
kjördæmaskipan og því misvægi
sem nú ríkir, eru fráleit að mínu
mati.“
Sveinn Andri taldi þetta mál
tengjast því að sporna bæri gegn
málflutningi margra stjórnmála-
manna sem staðnir hefðu verið að
því að etja saman byggðum lands-
ins.
„Stjórnmálamenn hafa margir
hveijir alið á sundrungu á milli
höfuðborgarsvæðis og landsbyggð-
ar. Sú þróun sem hefur átt sér stað
og stefnir í að muni eiga sér stað
áfram, að fólk flytjist unnvörpum
frá hinni dreifðu byggð landsins til
höfuðborgarsvæðisins er mikið
þjóðfélagslegt vandamál, bæði fyrir
þau sveitarfélög sem missa fólk frá
sér og ekki síður fyrir höfuðborgar-
svæðið sem taka þarf við öllu fólk-
inu. íslenskir stjórnmálamenn hafa
margir hveijir, þó einkum fram-
sóknarmenn hvar í flokki sem þeir
átanda, gjarnan þvegið hendur sínar
af þessari þróun með þvi að „kenna“
höfuðborgsvæðinu um allt sem mið-
ur fer og hafa jafnframt alið á þessu
sjónarmiði meðal fólks á lands-
byggðinni og þannig beint sjónum
þeirra frá kjarna málsins, en hann ,
er sá að íslenskir stjórnmálamenn
hafa sjálfír stuðlað að þessari þróun
með þvi að vilja sífellt ráðskast með
atvinnurekstur og einstaklinga.
Þeir hafa stuðlað að offjárfestingu
í landbúnaði og sjávarútvegi og
staðið í vegi þess að eðlilegt atvinn-
ulíf hafi fengið að þróast. Það er
sorglegt að horfa upp á það hvern-
ig framsóknarmenn hafa gert heilu
byggðarlögin úti í landi algjörlega
háð stofnunum og sjóðum í
Reykjavík sem þeir sjálfir stjórna í
stað þess að stuðla að hagræðingu
og nýsköpun. Það er eitt af brýn-
ustu verkefnum samtakanna að
veijast þessari tilraun stjórnmála-
manna að ala á sundrungu höfuð-
borgarsvæðisins og landsbyggðar-
innar með auknum samskiptum og
upplýsingaflæði um málefni höfuð-
borgarsvæðisins og í raun um það
sem miður fer'í stjórnun landsins,"
sagði Sveinn Andri að lokum.