Morgunblaðið - 03.01.1991, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANUAR 1991
Utanríkisþj ónustan;
Fyrsta ís-
lenska kon-
an skipuð
sendiherra
SIGRÍÐUR
Snævarr hefur
verið skipuð
sendiherra og
tekur við emb-
ætti sendi-
herra íslands í
Stokkhólmi
frá 1. febrúar.
Sigríður er
fyrst íslenskra
kvenna til að
verða skipuð sendiherra.
Sigríður Snævarr sagði við
Morgunblaðið, að hún hlakkaði til
að starfa í Svíþjóð en hún hefði
dvalið þar á unglingsárum og
Norðurlandasamvinna væri sér
nánast í blóð borin. í Svíþjóð væri
nú einn stærsti byggðakjarni ís-
lendinga og því væri sendiherra-
starfið þar vafalaust mjög mikil-
vægt og lifandi.
Undir sendiherra íslands í
Stokkhólmi heyrir einnig Finn-
land, Albanía, Júgóslavía og
Saudi-Arabía.
Sigríður Snævarr hóf störf í
utanríkisþjónustunni 1978, og
vann þá um skeið í sendiráði ís-
lands í Moskvu. Hún kom aftur
til íslands þar sem hún sá um
málefni Evrópuráðsins og var
síðan blaðafulltrúi utanríkisráðu-
neytisins. Árið 1987 tók hún við
starfi sendifulltrúa í Bonn og hef-
ur gegnt þvi síðan.
Sigríður er gift Kjartani Gunn-
arssyni framkvæmdastjóra Sjálf-
stæðisflokksins.
Sigriður Snævarr.
Féll 100 metra fram af Burstarfelli í Vopnafirði:
Má teljast heppinn að vera lifandi
- segir Olafur Gauti Sig’urðsson, en eftir fallið gekk hann í um klukkustund eftir aðstoð
Sólargeisli á spássitúr í Eyjum
Hægt og sígandi fer sól nú hækkandi og hinir löngu skuggar mesta skammdegisins hörfa fyrir blússandi sólargeislum á milli hryðja. Myndina
tók Sigurgeir Jónasson ljósmyndari Morgunblaðsins í Vestmannaeyjum af Eyjabyggð baðaðri í sól, en það er eins og sólargeislarnir hafi rétt
skotist inn í bæinn milli ijallanna.
Utanríkisráðuneytið tilkynnti
einnig um áramótin, að Gunnar
Pálsson hefði verið skipaður sendi-
herra og falið fyrirsvar í afvopnun-
armálum frá 1. janúar. Þá hefur
Gunnar Gunnarsson verið skipað-
ur sendifulltrúi og starfar hann í
alþjóðaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins frá 1. janúar.
Að öðru leyti vildu forráðamenn
Heklu hf. segja eftirfarandi um
þessar breytingar:
Um áramótin 1990—1991 verða
nokkrar breytingar á yfirstjórn
Heklu hf., sem gerðar eru í því
skyni að efla fyrirtækið og auð-
velda frekari vöxt þess og við-
gang. Frá stofnun 1933 hefur
Hekla hf. verið hreint fjölskyldu-
fyrirtæki, fyrst í eigu Sigfúsar
Bjarnasonar og konu hans, en
síðan fjögurra bama þeirra. Nú
mun Davíð Ólafsson, fyrrverandi
alþingismaður og Seðlabanka-
stjóri, hins vegar taka sæti í stjóm
„ÞETTA verða mér eflaust
mjög eftirminnileg áramót, ég
má teljast hegpinn að vera lif-
andi,“ sagði Olafur Gauti Sig-
urðsson, 17 ára piltur frá Aðal-
bóli í Hrafnkelsdal, en hann
féll að kveldi gamlársdags um
100 metra niður af Burstarfelli
í Vopnafirði. Ólafur Gauti ligg-
félagsins. Davíð er þjóðkunnur
fyrir farsæl störf að efnahags- og
atvinnumálum og hefur ætíð verið
fremstur í flokki þeirra, sem mælt
hafa fyrir verslunarfrelsi og einka-
framtaki. Eigendur og stjórnendur
Heklu hf. eru sannfærð um það,
að mikill fengur sé að því, er
maður með reynslu háns og yfir-
sýn kemur til liðs við fyrirtækið.
Jafnframt mun Ingimundur
Sigfússon láta af starfí forstjóra,
en gerast stjómarformaður í fullu
starfi. Sigfús Sigfússon, núverandi
framkvæmdastjóri, mun taka við
starfí forstjóra, en Sverrir Sigfús-
ur á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri og var hann nokkuð
sprækur í gær þegar Morgun-
blaðsmenn heimsóttu hann á
FSA og ræddu við hann um
þessa óveiyulegu lífsreynslu.
Ólafur Gauti sagði að hann
ásamt fleiri piltum hefðu lagt upp
son, sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri bifreiðadeildar,
verður framkvæmdastjóri Heklu
hf. Stjóm Heklu munu því skipa
Ingimundur Sigfússon, formaður,
Davíð Ólafsson og Margrét Sigfús-
dóttir, en í varastjórn sitja Sigfús
Sigfússon og Sverrir Sigfússon.
Þá hefur verið gengið frá sér-
stakri stefnuyfírlýsingu fyrirtæk-
isins, og verður hún kynnt fljótlega
eftir áramót. Það er von stjóm-
enda og eigenda Heklu hf., að þær
breytingar, sem nú eru að verða
á stjóm fyrirtækisins, nái því
markmiði sínu að treysta fyrirtæk-
ið enn í sessi, svo að það geti hér
eftir sem hingað til boðið neytend-
um góða og ódýra vöm og þjón-
ustu, veitt því úrvalsfólki, sem hjá
fyrirtækinu starfar, nauðsynlegan
bakhjarl og stundað enn sem fyrr
ánægjuleg viðskipti til hina út-
lendu framleiðendur, sem Hekla
hf. er umboðsaðili fyrir. Hekla hf.
átti velgengni að fagna árið 1990,
og stjómendur fyrirtækisins vona,
að næsta ár verði viðskiptavinum
þess hérlendis sem erlendis og
starfsfólki öllu farsælt.
frá Skjöldólfsstöðum í Jökuldal
áleiðis til Vopnafjarðar á gamlárs-
kvöld. Voru þeir á tveimur bílum
og komu að. Burstarfelli síðla
kvölds. Þar var ákveðið að skjóta
upp flugeldum. Ólafur Gauti kom
þeim fyrir fremst á fellinu, en hin-
ir piltamir voru nokkru íjær.
„Eg var að stinga flugeldunum
niður er snjóhengja gaf sig skyndi-
lega og allt fór af stað. Það var
ekki nokkur leið að ná taki á ein-
hverju, þetta gerðist svo hratt,
maður gat ekkert gert, ég féll
bara niður. Auðvitað hugsaði ég
að þetta væri mitt síðasta, þama
í fallinu," sagði hann, en fyrst
féll hann um 20-30 metra niður á
syllu og þaðan strax áfram níður
um 60-70 metra. „Ég lenti í snjó-
skafli, fékk mikið högg og varð
hálfvankaður á eftir, en ég man
eftir öllu sem gerðist."
Tvö rifbein brotnuðu, hægri öxl
og úlnliður bólgnuðu nokkuð og
Ólaf Gauta kennir til í baki og
mjöðmum vegna bólgu, en að öðru
leyti slapp hann ómeiddur. Eftir
Morgunblaðið/Rúnar Þðr
Ólafur Gauti Sigurðsson.
fallið gekk hann í um klukkutíma
og sagðist hafa hugsað sér að
ganga heim að Burstarfelli. „Ég
sá ekki til félaga minna og þeir
ekki til mín, þannig að ég brölti á
fætur og af stað. Ég ætlaði að
ganga niður að Burstarfelli, en
þegar ég hafði verið á ferðinni í
um klukkustund heyri ég að strák-
arnir hóa í mig og sá líka ljós á
lögreglu- og sjúkrabílunum koma
til móts við mig. Þeir náðu mér
og ég fékk lánaða úlpu því mér
var orðið býsna kalt,“ sagði Ólafur
Gauti og viðurkenndi einnig að
hann hefði kvalist mjög.
„Svona eftir á þá hugsa ég auð-
vitað um hversu heppinn ég var,
þetta er ótrúlega heppni og ég er
afar þakklátur fyrir hve vel þetta
fór. Þetta verða mér eftirminnileg
áramót, maður gleymir þessu ekki
í bráð,“ sagði hann og bætti við
að hann ætlaði að fara við tæki-
færi og líta á aðstæður. „Ætli ég
kíki ekki á þetta, en ég býst við
að það verði neðanfrá.“
Hekla hf.:
Breytingar á yfírstjóm
*
Davíð Olafsson tekur sæti í stjórn fyrirtækisins
Um þessi áramót verður sú breyting á yfirstjóm Heklu hf., að
Ingimundur Sigfússon, sem verið hefur forstjóri fyrirtækisins sl.
23 ár, verður stjórnarformaður í fullu starfi en Sigfús Sigfússon
tekur við starfi forsljóra fyrirtækisins og Sverrir Sigfússon við
starfi framkvæmdastjóra. Jafnframt mun Davíð Ólafsson, fyrrver-
andi alþingismaður og Seðlabankastjóri, taka sæti í sljóm Heklu
hf. og verður sljórn félagsins skipuð þremur fulltrúum en auk
þeirra Ingimundar og Davíðs á Margrét Sigfúsdóttir sæti i sljórn-
inni. Varamenn í stjórn verða þeir Sigfús Sigfússon og Sverrir
Sigfússon. í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Ingimundur
Sigfússon, að með aðild Davíðs Ólafssonar að sljórn fyrirtækisins
vildu forráðamenn þess aðlaga rekstur Heklu hf. að breyttum
aðstæðum og nýjum tímum.