Morgunblaðið - 03.01.1991, Side 37

Morgunblaðið - 03.01.1991, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1991 37 SóIveigÁsa Júlíus dóttír - Minning Fædd 6. desember 1938 Dáin 26. desember 1990 Þó í okkar ferðafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (Björn Jónsson frá Gröf.) Við erum sorglega oft minnt á hvað lífið er stutt. Það þyrmdi yfir okkur þegar við fréttum á annan dag jóla að vinkona okkar, Sólveig, væri látin, þegar flestir sitja og gleðjast í faðmi fjölskyldunnar á þessari mestu hátíð ársins. Minningarnar hlaðast upp. Okk- ar kynni hófust veturinn 1956-57 þegar við komum hver af sínu landshorninu á Húsmæðraskólann að Varmalandi í Borgarfirði. Frá þessum vetri höfum við haldið kunningsskap og aldrei fallið skuggi á okkar vináttu né styggð- aryrði öll þessi ár. Við höfum ver- ið svo lánsamar að geta leitað hver til annarrar ef eitthvað bjátaði á og töluðum við alltaf saman í*full- um trúnaði sem hefur verið ómet- anlegt. Sólveig var sérstaklega heil- steypt manneskja. Hún var alltaf tilbúin að hjálpa þegar þess var þörf. Alltaf hefur verið jafn nota- legt að heimsækja þau hjónin, Sól- veigu og Steinar, hvort sem var á Bugðulæk eða í sumarbústaðinn austur í Hraunborgum. Þau voru höfðingjar heim að sækja og mætti okkur alltaf hlýja og trygglyndi. Hennar trygga fas var með ein- dæmum og öll framkoma hennar bar vott um æðruleysi allt til hinstu stundar. Við erum þakklátar fyrir að hafa átt vináttu Sólveigar og hafa orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast henni. Við biðjum Guð að geyma hana og styrkja Steinar og synina í þeirra miklu sorg og vottum þeim og öðrum aðstandendum samúð okkar. Sá einn sem reynir skynjar best og skilur, hve skin frá vinarhug er gott að finna. I hjarta þér bjó fegurð ást og ylur, sem innstu lífsins rætur saman tvinna en kærleikurinn er það Ijós á leið sem lýsir skærast mannsins æviskeið. (Ág. Böðvarsson.) Ása og Únna Við spyijum ávallt er góðir vinir eru burt kallaðir langt um aldur fram, hvers vegna? Við leitum svara, en kunnum engin svör, okk- ur finnst það ekki réttlátt og viljum mótmæla en skynjum um leið að Hinn hæsti himins og jarðar gefur okkur ljósið og birtuna og sefar sorgina. Elskuleg mágkona mín, Sólveig Ása Júlíusdóttir, lést á Borg- arspítalanum 25. desember sl. eftir erfiða sjúkdómslegu. Ása eins og við kölluðum hana var fædd að Vífilsnesi, Hróars- tungu, N-Múlasýslu, dóttir hjón- anna Jónínu Ásmundsdóttur og Júlíusar Jónassonar sem bæði eru látin, hún var næstelst fjögurra systkina en þau eru Sigríður, Þor- bjöi-g og Frímann. Um fermingaraldur fluttist hún með foreldrum sínum til Reykjavíkur og átján ára kynntist hún bróður mínum, Steinari Freys- syni. Sólveig og Steinar eignuðust tvo syni, Ásgeir Einar, f. 19. apríl 1958, og Jón Frey, f. 7. maí 1967. Ása var einstök kona sem ekki fór hátt með skoðanir sínar. Hún var hæglát og trygg, kom það best fram í því hvað hún annaðist tengdaforeldra sína af mikilli um- hyggju og alúð. Ása bjó manni sínum og sonum fallegt og hlýlegt heimili á Bugðu- læk 2, sem öllum fannst gott að koma til. Eftir að þau keyptu sum- arbústaðinn var tekið til hendinni þar við að gróðursetja og fegra umhverfið. Þegar góður vinur er kvaddur er margs að minnast. Minningarn- ar streyma fram sem óstöðvandi elfa og við spyijum enn, hvers vegna? Það er svo ótalmargt sem kemur í hugann og maður spyr sjálfan sig hvernig get ég fullþakk- að samfylgdina, þakkað fyrir allt það sem Ása gaf af sjálfri sér. Elsku Steinar, Ásgeir og Jón, ég bið góðan Guð að styðja ýkkur og styrkja. Björg Námskeið TIL 30 TONNA RÉTTINDA hefst miðvikudaginn 9. janúar. Kennsla ferfram á mánudags- og miðvikudags- kvöldum kl. 7-11. Próf ílokfebrúar. Kennslaskv. námsskrá samþykktri af menntamála- ráðuneytinu. Verð kr. 16.000,- Námskeið TIL HAFSIGLINGA (Yachtmaster offshore) hefstfimmtudaginn lO.janúar. Kennsla fer fram á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum kl. 7-11. Próf ílokfebrúar. Kennsla skv. kröfum ISSA. Verðkr. 16.000.- BÓKANIR á skútusiglinganámskeið sumarsins hefjast 15.janúar. Öll kennslugögn fáanleg í skólanum. Upplýsingar og innritun í símum 68 98 85 og 3 10 92 alla daga og öll kvöld. Hjónaafsláttur 10% SICUNCASKOLINN - medlimur i Alþjóðasambandi siglingaskóla, ISSA. Minning: Matthías E. Jónsson Við, sem erum á efri árum, verð- um oft að þola það að sjá vini og vandamenn hverfa af sjónarsvið- inu. Stundum verður okkur að orði: Mikið er gott að hann eða hún þarf ekki að líða meira af þessa heims kvalræði — nóg var nú kom- ið af slíku — eða þá að við segjum eða hugsum: Hvernig má það vera að hann sé dáinn — hann sem var svo hraustlegur og frískur, hress og glaður? Og stundum á allt þetta við. Þannig var það með vin okkar og félaga Matthías E. Jónsson, Miðvangi 41, Hafnarfirði. Þó að kynni okkar væru ekki löng, aðeins örfá ár við söngiðkan og félagslíf í Félági eldri borgara í Reykjavík og nágrennni, urðu okkur félögum hans ljósir mannkostir hans. Matthías var fríður maður, afar sviphreinn, hægur og prúður, með- almaður á hæð og bar sig vel, án minnsta fyrirgangs eða yfirlætis. Hann var ágætur söngmaður — einn okkar besti tenór — og mun hafa sungið einsöngs- og sólóhlut- verk á yngri árum í sinni heima- byggð, Bolungarvík.. Hann var stundvís og hafði sterka félagslega samkennd í okkár áhugaverða fé- lagsstarfi — var það sem segja má úrvals félagi. Við þökkurn vináttu hans og samstarf. Söngfélagar í kór FEB Wterkurog kl hagkvæmur auglýsingamiðill! JlfofjguiiMttfrife Enska er okkar mál NÁMSKEIDIN HEFJAST 14. JANUAR INNRITUN STENDUR YFIR JACQUIFC ENSKUKENNARI HELEN EVERETT ENSKUKENNARI ♦ ♦ FYRIR NYTT NYTT FULLORÐNA 7 vikna enskunámskeið 12 vikna samræðuhópar 12 vikna enskar bókmenntir 12 vikna rituð enska 12 vikna viðskiptaenska 12 vikna Bretland; saga, menning og ferðalög FYRIR BÖRN 12 vikna morgunnámskeið fyrir byrjendur 12 vikna laugardagsnámskeið 12 vikna „Pub“ námskeið EINKATÍMAR HÆGT ER AÐ FÁ EINKATÍMA EFTIR VALI FYRIRTÆKI Við komum á staðinn og bjóðum upp á sérhæfða enskukennslu fyrir starfsmenn ykkar ENGINN BÝÐUR MEIRA ÚRVAL ALMENNRA OG SÉRHÆFÐRA ENSKUNÁMSKEIÐA. 12 vikna leikskóli 3ja-5 ára 12 vikna forskóli 6-8 ára 12 vikna enskunámskeið 8-12 ára 12 vikna unglinganámskeið 13-15 ára T.O.E.F.L. Ensku Skólinn 7 vikna undirbúningsnámskeið fyrir prófið TÚNGATA 5, 101 REYKJAVÍK HRINGDU Í SÍMA 25330/25900 OG KANNAÐU MÁLID.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.