Morgunblaðið - 03.02.1991, Page 6

Morgunblaðið - 03.02.1991, Page 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUÐAGUR 3. FEBRÚAR 1991 Þora Guójohnsen ballettdansmær í DANSHEIMINUM RÍKIR END Svo kom að því að við áttum að æfa fyrir Ólympíuleika. Þá ákvað ég að hætta. Ég sagði að ég vildi fara í ballett. Þegar ég var að æfa með ÍR heima á Islandi í fimleikun- um kenndi mér ballettkennari nokkra tíma. Sá kennari lét vita að hann teldi mig hafa hæfileika í ballettnám, en það var ekkert gert með það þá. Nú greip ég þetta hálmstrá og ákvað að fara í ballett til að losna við að taka þátt í Ólymp- íuleikunum. Ég var í ballett í hálft ár í Belgíu, í skóla sem heitir Bal- lett Van Flanderen. Kennararnir þar voru mjög góðir. Þegar heim kom fór ég í ballett- skóla Eddu Scheving. Þar var ég í hálft ár. Þá ákvað ég að taka próf upp í Listdansskóla Þjóðleikhússins og sagði Eddu það. Þegar til kom fór framhjá mér hvenær prófín voru og missti ég því af þeim. En Edda bað þá skólastjórann, Ingibjörgu Björnsdóttur að prófa mig í tíma og hún gerði það. Niðurstaðan var sú að ég fékk inngöngu í Listdans- skóla Þjóðleikhússins. Þá fór mjög skemmtilegur tími í hönd. Félagslíf- ið hjá okkur stelpunum í skólanum var mjög líflegt. Við hittumst heima hver hjá annarri, sömdum litla dansa og hlógum saman. Jafnframt lauk ég námi í grunnskóla, fór í Menntaskólann í Hamrahlíð og seinna í Fjölbrautaskólann í Breið- holti. En hugur minn var mjög bundinn dansinum svo minna varð úr bóklegu námi en efni stóðu til. Ég sat um að komast úr tímum á eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur Mannkynið hefur lengi alið með sér þann draum að geta flogið á léttum vængjum upp fyrir amstur hins hversdags- lega lífs. Endur fyrir löngu setti ungur piltur í íslenskri sveit á sig heimasmíðaða vængi til að reyna að uppp- fylla þennan draum. En hann var tvö hundruð árum á und- an sinni samtíð svo vængir hans voru teknir og brenndir og honum sjálfum stranglega bannað að vera að slíku fikti. Listdansinn er enn ein tilraun mannanna til þess að létta af sér okinu og líða um líkt og fugl í háloftum. En það kostar mikla vinnu og sjálfsafneitun að ná hinum svifgjörnu hreyf- ingum sem minna á vængja- tak fugla og nálgast þannig hinn ævaforna draum mann- kynsins að fljúga. Ballett er ung listgrein á Islandi en þó höfum við þegar átt listdans- ara sem náð hafa langt úti í hinum stóra heimi. Og við eigum núna marga unga dansara sem lofa góðu er þeir líða um sviðið, léttir og fjaðurmagnaðir. í þeim hópi er Þóra Guðjohnsen sem fyrir einu og hálfu ári hóf störf sem listdansari í Darmstadt í Þýskalandi. Hún dansar stórt hlutverk í Draumi á Jóns- < messunótt, sem íslenski dans- flokkurinn sýnir um þessar mundir. Þóra Guðjohnsen óra fæddist á Húsavík 3. ágúst árið 1967, dóttir hjónanna Eiðs Guðjohnsens og og Arnrúnar S. Sigfúsdótt- ur. „Við fluttum suður þegar ég var þriggja ára,“ segir Þóra. „Eg var þó lengi vel fyrir norðan á sumrin. Fólkið hennar mömmu býr margt þar enn, hins vegar er enginn Guðjohnsen eftir fyrir norðan." Þóra er yngst fjög- urra systkina. „Það var systir mín sem fyrst kvað uppúr með það að ég ætti að fara í ballett," segir Þóra. „En það varð ekkert úr því þá. Ég var hins vegar sett í fím- leika átta ára gömul. Mér fannst mjög gaman í fímleikum, sérstak- lega þó að æfa mig. En það fór að versna í því þegar kom að keppni. Ég átti frá upphafi mjög erfitt með að keppa í fimleikum. Kvöldið fyrir mína fyrstu keppni, þá var ég á níunda ári, lá ég lengi .grátandi. Pabbi og mamma reyndu að telja í mig kjark og sögðu að ég hefði gott af að taka þátt í keppninni. Ég herti upp hugann og fór í keppn- ina, en það var mér erfið reynsla. Ég stóð mig þó ágætlega, en það geri ég venjulega þegar útí keppni er komið. Mér fínnst erfítt að keppa við aðra þó ég geti vel keppt við sjálfa mig, sett mér markmið og stefnt að því. Þóra og fjölskylda hennar hafa búið í Breiðholti í Reykjavík frá því þau fluttust suður um 1970. „Ég held að við ættum bágt með að flytja úr Breiðholtinu, þetta eru okkar heimahagar _hér fyrir sunn- an,“ segir Þóra. „Ég var í Breið- holtsskóla þegar ég var í barna- skóla, en fór í Ölduselsskóla þegar ég var þrettán ára. Þegar ég var yngri var dálítill strákur í mér. Þó ég væri ekki ein af þeim sem alltaf var verið að senda til skólastjóra átti ég oft í tuski við strákana, stundum tókum við stelpumar jafn- vel einhvem þeirra fyrir. En það var nú allt i lagi, þeir gátu varið sig. Öllu verra var að við tókum einu sinni stelpu fyrir og hún grét undan okkur. Þá fékk ég í fyrsta skipti sektarkennd sem sat í mér. Ég sá eftir því að hafa tekið þátt í slíku. En ég lærði mikið á þeim mistökum. Mér skildist að það væri ekki fallegt að taka fyrir þá sem eru minnimáttar. Mér hefur oft orð- ið hugsað til þessa síðar í lífinu, þegar ég hef orðið vitni að álíka atburðum í heimi hinna fullorðnu. Það er mikil samkeppni í ballett- heiminum og ekki alltaf vel farið með fólk þar. Þegar ég var ellefu ára flutti ég til Belgíu ásamt fjölskyldu minni. Við fylgdum eftir bróður mínum, Arnóri, sem þá gerði samning við fótboltafélag í Belgíu. Við bjuggum í þorpi sem heitir Lokeren. Pabbi fékk vinnu sem byggingaverkamað- ur en mamma var heima og hugs- aði um okkur öll. í Belgíu hélt ég áfram í fimleikum og fór í skóla sem nunnur ráku. Þar var talsvert annar andi en í Breiðholtsskóla. Krakkamir í Belgíu hefðu aldrei vogað sér að gera það sem þykir sjálfsagt heima á íslandi. Þau eru miklu agaðri en böm era hér. Ef böm þar hlýða ekki eru þau send til skólastjóra eða snúið út í horn, sett í skammarkrókinn með öðram orðum. Enginn kærir sig um að lenda í slíku. Ég hætti þarna öllum ólátum og gerðist mikið stillingar- ljós. I Belgíu endurtók sig sama sagan og heima á íslandi hvað fím- leikana snerti. Ég hafði mjög gam- an af æfingunum, gat vel sætt mig við sýningar en þoldi illa keppni. æfingar. Það endaði með þvf að ég hætti framhaldsskólanámi áður en ég lauk stúdentsprófi. Mig langar til að ljúka því seinna, en ekki núna. Ef ég færi út í það, tæki það á annað ár og þá gæti ég alveg eins hætt strax að dansa, ég kæmist úr allri þjálfun. Skiptin á milli fímleikanna og ballettsins gengu frémur auðveld- lega fyrir sig hjá mér. í fimleikun- um hefur maður þessa víðáttu sem er nauðsynleg fyrir hlaup og stökk, en í ballettinum er allt miklu skorð- aðra. Mér gekk vel að læra sporin og var farin að stíga þau; áður en ég vissi hvað þau hétu. Eg er svo lánsöm að geta talist fremur músík- ölsk þó ég hafi ekki lært neitt í tónlist. Það skiptir miklu máli fyrir ballettdansara að vera músíkalskur. Það er sérkennilegt að sjá hvemig það fólk dansar sem ekki er næmt fyrir tónlist. Það hreyfir sig ekki eftir hljóðfallinu í sama mæli og hinir gera og innlifunin er ekki eins mikil. Það kemur ekkert innan frá /

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.