Morgunblaðið - 03.02.1991, Blaðsíða 14
14 C
MOllGUNBLÁÐÍé Sl/NNljÓTAÖUR S. RÉBRÚAR Min
Enn
margt á
huldu um
ÞÓTT rúmt ár sé liðið síðan Nie-
olae Ceausescu einræðisherra var
steypt af stóli í Rúmeníu er enn
margt á huldu um það sem raun-
verulega gerðist í landinu. Nú
hafa nokkrir rúmenskir lögfræð-
ingar stofnað félag til þess að
rannsaka byltinguna til hlítar, en
fjárskortur háir starfi þess og það
hefur mikla þörf fyrir aðstoð, sem
erfitt virðist að fá.
Stofnendur félagsins, sem
kallast Félag sannleik-
ans, eru því ekki vongóð-
ir um að starf þess beri
árangur. Formaður þess,
Dan Ionescu, sagði ný-
lega að sögn Alecs Russ-
ells í The Daily
Telegraph, sem hér er
aðá! lega stuðzt við: „Enginn vill
hjálpa okkur og það þarf engum að
koma á óvart. Verkefni okkar er við-
kvæmt og ef við náum tilgangi okk-
ar mun hrikta í
máttarstoðum
þjóðfélagsins."
Yfirvöld í Rúme-
níu halda enn fast
við einfalda lýsingu
sína á byltingunni í desember 1989:
Rúmenska þjóðin vaknaði og hristi
af sér hlekki margra áratuga alræð-
is. Við tók öngþveiti og valdatöku
nýrrar stjómar Þjóðfrelsisfylkingar-
innar var fagnað. Loks voru háðir
harðir götubardagar í heila viku við
„ofstækisfulia ieynilögregluforingja"
— sem opinberlega voru kallaðir
„hryðjuverkamennirnir" — og bylt-
ingin sigraði að lokum.
Sjónvarpsbyltingin
Milljónir manna um allan heim sáu
myndir í sjónvarpi af bardögunum
sem geisuðu um jólin 1989 og hrif-
ust af „ævintýrabyltingunni". Síðan
hefur Þjóðfrelsisfylkingin flækzt í
hvert hneysklið á fætur öðru og goð-
sögnin hefur misst ljóma sinn.
Fylkingin lét í veðri vaka að hún
hefði lagt einræðisstjórn Ceausescus
að velli og vann yfírburðasigur í
kosningum i maí. En þótt hún haldi
fast við hina opinberu lýsingu á at-
burðunum í desember 1989 hefur
hún látið undir höfuð leggjast að
iáta í té áþreifanlegar upplýsingar
um það sem gerðist og það hefur
komið af stað miklum bollalegging-
um um hvort rúmenska þjóðin hafi
verið blekkt.
Um sumt er ekki deilt. Barizt var
í raun og veru og raunverulegar
hetjur komu við sögu, hvað sem gerð-
ist að tjaldabaki. Öryggissveitir
skutu allt að 100 Rúmena til bana
í Timisoara 16. og 17. desember,
þegar Ceausescu var staddur í Iran.
Einræðisherrann flúði í þyrlu frá
þaki byggingar miðstjómarinnar 22.
desember, þegar mikil ókyrrð hafði
ríkt í Búkarest í einn sólarhring.
Fjörutíu og þriggja ára alræði var
lokið og rúmlega 1.000 Rúmenar
féllu í bardögum, sem stóðu í eina
viku — en ekki 60.000 eins og hald-
■ ERLEND ■
HRINCSIÁ
eftir Gubm. Halldórhon
ið var fram í fyrstu.
Adrian Barbu er ritari félags
manna sem tóku þátt í bardögunum.
Félagið kennir sig við 21. desember,
þann dag þegar þeir buðu öryggis-
sveitum Ceausescus birginn. Hann
var handtekinn, en látinn iaus þegar
lúskrað hafði verið á honum. Hann
er sannfærður um að hann hafi ver-
ið blekktur. „Allt virtist liggja ljóst
fyrir þegar við hrópuðum „Niður með
Ceausescu". Síðan tók allt í einu ný
ríkisstjóm við og skotbardagar bloss-
uðu upp. Við höfðum ekki tíma til
að hugsa og þegar við vöknuðum
voru þeir þarna.“
Þægileg átylla?
Barbu, aðrar frelsishetjur og ýms-
ir hópar stjórnarandstæðinga telja
að byltingin hafi verið tilbúningur —
þægileg átylla, sem leiðtogar Þjóð-
frelsisfylkingarinnar hafi notað til
að hrinda í framkvæmd „hallarbylt-
ingu“, sem þeir hafi verið búnir að
skipuleggja löngu
áður.
Þeir benda á að
grunsamlega stutt-
ur tími hafi liðið
þar til leiðtogar
Þjóðfrelsisfyikingarinnar birtust í
ina“. Það segir Barbu „bera keim
af leynilegu samkomulagi, sem kost-
aði marga Rúmena iífið“.
Stjómarandstaðan hefur frá upp-
hafí hvatt til þess að sannleikurinn
verði leiddur í ljós, en Þjóðfrelsisfylk-
ingin hefur staðfastlega haldið því
fram að hún hafi „átt upptök sín í
byltingunni“. Hins vegar má heita
að bollaleggingarnar hafi verið stað-
festar í viðtali, sem birtist 23. ágúst
í Adevarul, útbreiddasta blaði Rúm-
byggingu miðstjómarinnar, eða tæp-
ur hálftími eftir að Ceausescu flúði.
Þeir benda líka á að ríkisstjómin
hafí látið undir höfuð leggjast að
láta í té tæmandi upplýsingar um
fjandmenn sína, „hryðjuverkamenn-
Hryðjuverkaárásir: andófsmaður flýr skothríðina.