Morgunblaðið - 03.02.1991, Page 16
16 C
MOKGUNBLAÐIÐ MIIMNIIMGAR SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 1991
Minning:
EIIMIMIBIL
r
SAHMN
SPÖRUM
BENSfel
STRÆTISVAGNAR REYKJAVÍKUR
Soffía Jóhannes-
dóttir, Urðum
Fædd 23. júlí 1891
Dáin 23. janúar 1991
Að morgni 23. janúar sl., lést á
heimili sínu, Urðum í Svarfaðardal,
Soffía Jóhannesdóttir. Hana vant-
aði nákvæmlega sex mánuði í
hundrað árin. Hún hafði legið í
nokkra daga á sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri en þrátt fyrir ágæta hjúkrun
og umönnun þráði hún það eitt að
komast aftur heim í dalinn kæra,
líklega hefur hún fundið að komið
var að endalokunum. Hún hafði það
af að útskrifast heim, það varð
aðeins ein nótt. Hún hefur nú verið
lögð til hinstu hvfldar í kirkjugarð-
inum rétt fyrir ofan Urðabæinn, þar
sem hún hefur átt heima undanfar-
in 45 ár, við hlið síns kæra eigin-
manns sem lést árið 1966. Sjálfri
fannst henni árin vera orðin nokkuð
mörg og fyrir örfáum árum var hún
viss um að hún færi að fara. Eitt
sinn ssgði hún þegar hún heyrði lát
ungs manns sem hafði verið í sveit
hjá henni: „Ja, og hér sit ég, er
þetta nokkurt vit!“
Soffía var hreinræktaður Svarf-
dælingur fædd í Göngustaðakoti
23. júlí 1891, sjötta bam af níu,
dóttir hjónanna Jónínu Jónsdóttur
frá Göngustöðum og Jóhannesar
Sigurðssonar frá Auðnum í sömu
sveit. Mikill ættbogi er kominn af
þeim hjónum. Giftust börn þeirra
öll innan héraðs. Elst var Þuríður,
þá Jón, Sigríður, Snjólaug, Anna,
Soffía, Ferdína Solveig, Sigurður
og Steinunn. Þau voru öll á níræðis-
aldri þegar þau dóu nema Steinunn
rúmlega sjötug og svo Soffía á
hundraðasta aldursári.
Barn að aldri dvaidist Soffía hjá
frændfólki sínu á Auðnum en fór
svo aftur til foreldra sinna sem
höfðu flutt í Hæringsstaði 1903 en
stutt er á milli allra þessara bæja.
Árið 1915 giftist hún Hallgrími
Einarssyni frá Koti. Það var mikið
gæfuspor fyrir þau bæði. Ungu
hjónin bjuggu fyrst á Þorsteinsstöð-
um eða í ellefu ár og eignuðust
þrjú börn sem öll eru á lífi og búa
í dalnum svo að segja hlið við hlið.
Hafa þau erft mannkosti foreldra
sinna og fetað í fótsor þeirra. Elst
er Lilja, gift Karli Karlssyni, þau
búa i Klaufabrekknakoti, þá Jónína,
gift Hreini Jónssyni, þau búa á
Klaufabrekkum, og Einar, kvæntur
Guðlaugu Guðnadóttur, búa á Urð-
um. Á öllum bæjunum eru bama-
böm Soffíu og Hallgríms tekin við
búskapnum að einhveiju leyti og
þar búa því þrír ættliðir.
Árið 1926 fluttu þau sig um set
eða út í Klaufabrekknakot og
bjuggu þar í 20 ár. Þetta var þá
lítil jörð með litlum torfbæ ósköp
WS
ýwSÍfob1-06 \
BOKALAGERINN
SKJALDBORGARHÚSINU
ÁRMÚLA 23
SÍMI3 15 99 & 6724 00
notalegum og skemmtilegum,
fannst þeim sem voru þama á sumr-
in að minnsta kosti og ekki að
marka öðruvísi hús. Búið var lítið
en þeim búnaðist vel, vom hagsýn
og fóru vel með búfé og alla hluti.
Hvemig hægt var að komast af
með 3-4 kýr og 50-60 ær er nú
óskiljanlegt. En börnin voru dugleg
og fjölskyldan samhent og alltaf
virtist nóg af öllu. Fyrir sumardval-
arbam var þetta paradís, þarna var
allt til alls sem þurfti til að vera
ánægður. Fallegt landslag, há
snarbrött og tignarleg fjöllin allt
um kring, stutt á milli bæja, skyld-
fólk á hveijum bæ og fólkið á bæn-
um svo ósköp gott. í minningunni
er alltaf sólskin.
Soffía var sérstök geðpiýðis-
kona, lítil og grönn, talaði lágt og
lét aldrei á sér bera, tranaði sér
ekki fram. Hún var sívinnandi virt-
ist alltaf í góðu skapi. Aldrei nokk-
urn tímann heyrði ég hana kvarta.
Hún virtist aldrei þurfa neitt sjálf
og ævinlega hafði hún tíma fyrir
þau börn sem hún leyfði að vera
sumarlangt þótt plássið væri ekki
mikið. Kvaddi þau jafnvel með tár-
um að hausti. Það er mikið lán að
hafa fengið að kynnast þessari
konu.
Hjónaband þeirra Hallgríms var
einstakt. Þau vora eins og ein
manneskja. Þau virtist ekki þurfa
að tala saman um dagleg störf, litu
bara hvort á annað og brostu og
allt gekk eins og af sjálfu sér. Á
þeim tíma hugsaði maður ekki um
Birting af-
mælis- o g
minning-
argreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki era
tekin til birtingar framort ljóð
um hinn látna. Leyfílegt er að
birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt
skáld, og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, að minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar eru
birtar afmælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.