Morgunblaðið - 03.02.1991, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 1991
C 17-
þetta, það var jú allt eins og það
átti að vera á þeim bæ. En á fullorð-
insárunum rifjaðist þetta upp.
Hallgrímur var grandvar og góður
maður, féll aldrei verk úr hendi og
svo var hann sterkur að hann bar
oft heybagga á bakinu upp bratt
túnið heim í hlöðu ef hestur var
ekki nálægur í augnablikinu. Þetta
fannst okkur krökkunum sjón að
sjá. Skemmtilegur var hann á sinn
hægláta hátt og börn sem fullorðn-
ir sóttust eftir því að vera náiægt
honum. Hann lést 77 ára, ölium
harmdauði en þá voru þau Soffía
fyrir nokkru flutt út í Urði til Ein-
ars og Guðlaugar.
Á Urðum hefur Soffía búið við
einstaklega gott atlæti sonar síns
tengdadóttur og þriggja barna-
barna. Allt var gert til að henni liði
sem best. Varla hefur þó verið erf-
itt að gera henni til hæfis, því eng-
an veit ég sem bað um eins lítið
fyrir sjálfan sig. Aðrir komu alltaf
fyrst. Ellin lagðist ekki þungt á
Soffíu. Alltaf var hún jafn létt í
spori með góða sjón, minnug með
afbrigðum og skýr allt til síðustu
stundar. Hún sat á rúminu sínu !
spann og prjónaði alveg fram á !
síðustu ár. Soffía var gæfumann-
eskja, átti yndislegt ævikvöld eins
og hún átti svo sannarlega skilið,
umvafin ástúð og umhyggju barna
sinna og tengdabarna og ófáar
heimsóknir ömmu- og langömmu-
barnanna sem bjuggu á þremur
næstu bæjum en mikili samgangur
er á milli bæjanna. Ekki gerði hún
víðreist um ævina, fór lítið út fyrir
sveitina sína. Fólk var ekki að ferð-
ast í þá daga nema nauðsyn bæri
til og á seinni árum þegar bílar
komu á alla bæi var áhuginn ekki
mikill henni leið best í dalnum hjá
sínu fólki.
Það er gott að koma í Urði til
þessa góða fólks og einstakt að sjá
hvernig amman var miðpunkturinn.
Hennar er nú sárt saknað af fjöl-
skyldunni, ættingjum og vinum en
mikill gestagangur er á Urðum og
mjög margir sem komu til að hitta
Soffíu, sín vegna ekki síður en
hennar.
Aldrei get ég fullþakkað Fíu og
Halla öll yndislegu sumrin og allt
sem þau voru mér og mínu fólki
frá fyrstu tíð. Innilegustu samúðar-
kveðjur sendi ég íjölskyldunni á
Urðum, Klaufabrekkum, Klaufa-
brekknakoti og Hóli.
Þórunn Bergþórsdóttir
Pennavinir
Austur-þýsk ijölskylda, 3ja
manna, vill skrifast á við íslenska,
helst á þýsku vegna lítillar ensku-
kunnáttu. Búa á eynni Rúgen og
áhugamálin eru tónlist, hjólreiða-
ferðir, bókmenntir o.fl. Eiginmaður-
inn, 28 ára, er tónlistarkennari og
eiginkonan (25 ára) ritari mála-
færslumanns. Þau eiga 4ra ára
dóttur:
Familie Wolfgang Zimmerl-
ing,
Störtebecker Strasse 26,
Bergen,
2330 D.D.R.
Frá Ghana skrifar 25 ára stúlka
með áhuga á ljósmyndun, ferðalög-
um, kvikmyndum, tónlist og íþrótt-
um:
Benice Ferguson,
P.O. Box 86,
Cape Coast,
Ghana,
West Africa.
Átján ára tékknesk stúlka með
áhuga á tónlist, tungumálum,
ferðalögum og póstkortasöfnun:
Dana Kamlerova,
Hrabisin 222,
78804 Czechoslovakia.
Japanska 35 ára konu, mennta-
skólakennari, langar að eignast
íslenska pennavini. Hefur m.a.
áhuga á hannyrðum:
Keiko Shioya,
737 Hita, Kannami-cho,
Tagata-gun, Shizuoka-ken,
Japan 419-01.
VIITU LÆKKA
SKATTANA ÞÍNA?
Bein skattalækkun, traustir innláns-
reikningar og góð ávöxtun gera
sparisjóðina að eftirsóknarverðum
kosti.
sjóðum og þar má finna upplýsingar
sem nýtast vel og auka raungildi
sparifjárins.
Komdu í sparisjóðina, fáðu þér bækling
og þau eyðublöð sem þú þarft til að
fylla út skattframtalið.
SPARISJÓÐIRNIR
- fyrir þig og þína
Bæklingurinn Lægri skattar og aukið
sparifé, liggur frammi í öllum spari-
JtftetgMitftlafcUk
Metsölublað á hverjum degi!
AUK k623d21-46