Morgunblaðið - 03.02.1991, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.02.1991, Blaðsíða 18
18 C MORGUNBLAÐIÐ FJÖLMIÐLARsUNNUDAGURS? FEBRÚAR 19911 Tímaritið Bergmál hætt að koma út: Hugað að annarri útgáfu TIMARITIÐ Bergmál er hætt að koma út en alls komu 7 tölu- blöð þess út áður en það lagði ivpp laupana. Bergmál er þriðja dagskrártímaritið sem hættir á skömmum tíma, en að vísu er ekki alveg útséð um örlög þess því verið er að huga að annari útgáfu á samskonar blaði m.a. af þeim sem viðriðnir voru Bergmál. > Agúst Þór Ámason var ritstjóri og ábyrgðarmaður Bergmáls þijú síðustu tölublöðin. Hann segir að til að halda út blaði sem þessu þurfí annað hvort stóra ritstjóm eða fólk sem geti unnið mjög hratt við marga þætti vinnslunnar en hvoragu hafi verið til að dreifa í þessu tilfelli. „Það sem einnig háði þessari útgáfu var skortur á nægi- legri undirbúningsvinnu í upphafi og ekki nægilegt fjármagn," segir Ágúst. Sem fyrr segir er þetta þriðja dagskrártímaritið sem hættir á skömmum tíma. Að sögn kunn- ugra liggja ástæður þess hve illa þeim gengur ekki hvað síst í að auglýsingamarkaðurinn á þessum vettvangi er þröngur. Sjónvarps- vísir Stöðvar 2 ber höfuð og herð- ar yfir önnur rit á þessum vett- vangi og fær því flestar auglýs- ingamar. Nýr ritstjóri tek- ur við á Le Monde LOKIÐ ER ársgamaUi deilu um val á nýjum aðalritstjóra óháða blaðsins Le Monde, eins virtastá dagblaðs Frakklands. Frétta- menn blaðsins hafa valið til starfans Jacques Lesourne, 62 ára , gamlan hagfræðiprófessor og rithöfund, sem rak ráðgjafafyrir- tæki um tíma. Blaðamenn Le Monde eiga þriðjung hlutabréfa í útg áfu fyrirtæki blaðsins og allir fyrri aðalritstjórar hafa verið blaðamenn. Alls höfðu 275 starfsmenn rétt til að taka þátt í kosningu um nýjan aðalritstjóra og Lesoume hlaut 67,8% at- kvæða. Lesoume tekur við af André Fontaine, sem vill draga sig í hlé til þess að semja bók. í síðasta mánuði féll Daniel Ver- net, framkvæmdastjóri blaðsins, í kosningu um nýjan aðalritstjóra á hluthafafundi, þótt hann nyti stuðnings Fontaines. Le Monde er frægt fyrir að leggja mikið kapp á að veija sjálfstæði sitt og fyrirfram var talið óhugsandi að næsti aðalrit- stjóri yrði ekki úr röðum blaða- Jacques Lesourne manna. Hins vegar er fyrirsjáan- legt að mikið tap verði á útgáfu Le Monde á þessu ári, þar sem dregið hefur veralega úr auglýs- ingum og ný prentsmiðja og nýjar aðalstöðvar eru í byggingu. Hvert stefnum við? NÝLEG breyting á ákvæðum um þýðing- askyldu í reglugerð um útvarp sýnir svo ekki verður um villst að i ljósvakamálum eru Islendingar og islensk stjórnvöld sem stefnulaust rekald. Igrunduð • fjölmiðla- stefna sem miðar að því að viðhalda /s- lensku útvarpi og sjónvarpi á tímum al- þjóðlegra gervitunglastöðva er ekki til. Svo virðist að þegar eitthvað nógu spenn- andi er á boðstólum hjá erlendum gervi- tunglastöðvum þá sé í lagi að breyta reglum sem settar voru fyrir örfáum árum. Engar grundvallarbreytingar hafa orðið á sjónvarpstækni á undanf- örnum árum. I nokkur ár hefur enginn sem til hefur þekkt efast um að útsend- ingum gervitungla ætti eftir að rigna yfir íslendinga. Enginn hefur heldur efast um þann vanda sem okkur er á höndum varðandi þær reglur sem eiga að gilda um móttöku og dreifingu þess- ara útsendinga þar sem öllum er það ljóst að óþýddar hafa þær skaðleg áhrif á íslenska tungu. Svo kemur Persaflóastríð og þá eru nýjar reglur hristar fram úr erminni á einni nóttu. Korktappinn flýtur nú í aðra átt. Bætir það málvitund íslensku þjóðarinnar að endur- segja hálftíma þætti á ensku í örfáum orðum? Að sjálfsögðu var það aldrei spuming um hvort, heldur einungis hvenær frelsi yrði aukið varðandi dreifingu á efni gervi- tunglastöðva hér á landi og sjálf- sagt ætti maður að fagná orðnum breytingum. En skugga ber á. Þessu frelsi fylgir vandi, - vandi sem hingað til hefur verið ástæða þess að þessi mál hafa verið bund- in lögum, — vandi sem hin nýja reglugerð eykur frekar en leysir. Málið var „sett í nefnd“. Vinnubrögð af þessu tagi era því miður ekkert nýnæmi hér á landi. Þetta heitir að framkvæma fyrst og hugsa svo. Umrædd regl- ugerðarbreyting er stefnumark- andi. Þegar menntamálaráðherra tók sína ákvörðun, vegna þess að hann, og að hans mati einnig ís- lenska þjóðin, vildi fýlgjast með stríðsæði á tækniöld í beinni út- sendingu, opnaði hann í leiðinni m.a. farveg fyrir al-ameríska umfjöllun í „íslensku" sjónvarpi um næstu for- _________________ Fjölmiðlastefna íslenskra stjórnvalda virðist ráðast af því hversu áhug’averðar dagskrár erlendra gervitunglastöðva eru setakosningar í Bandaríkjunum, al-engilsaxn- eska umfjöllun um þróun mála í Eystrasalt- slöndunum, en í þeim málum hafa íslendingar þegar mikla sérstöðu, og einnig opnaði hann fyrir al- útlenska umræðu um dýrðarríki framtíðar, sem íslendingar geta e.t.v. gerst aðilar að, — sameinaða Evrópu. Það má svo sem segja að ekk- ert sé að því að íslendingar hafi ótakmarkaðan aðgang að al- útlenskri umræðu um Evrópumál- in. Gott og vel en hvers vegna þurfti Persaflóastríð til þess að opna þennan möguleika? Það ætti að vera óþarfi að minna á það að baráttan fyrir ís- lenskri tungu í sjónvarpi er varn- arbarátta. Þeir þættir sem knýja áfram þróun sjónvarpsmála, þ.e. tækniframfarir og aukin hag- kvæmni, hafa hingað til ekki stuðlað að vexti og viðgangi þjóð- legrar menningar og íslenskrar tungu. Þvert á móti hafa þeir aukið framboð af erlendu ódýra sjónvarpsefni sem á tímum sam- keppni gerir stöðu innlendrar dag- skrárgerðar verri en ella. Þessi vamarbarátta hefur verið háð í orði en ekki á borði. Frumforsenda baráttu af þessu tagi er að sjálf- sögðu stefnu- BAKSVIÐ eftir Ásgeir Fridgeirssott mörkun, en eins og dæmin sanna þá er hún mjög óljós þar sem hún sveigir eftir því hversu áhugaverðar dagskrár erlendu stöðvanna eru. Með öðram orðum þá hafa íslensk stjómvöld varla hafið raunveralegan undirbúning þessarár baráttu. Vert er að gefa ýmsu öðra gaum nú þegar óþarfí er að þýða erlendar sjónvarpsfréttir og frétt- askýringar og nóg er að end- ursegja heilu þættina í örfáum orðum. í fyrsta lagi má spyija af hveiju er verið að endursegja á einni mínútu eða svo hálftíma þátt. Reikna menn með því að einhver sem ekki skilur ensku sitji allan tímann fyrir framan og bíði eftir því að heyra um hvað málið snýst. Halda menn e.t.v. að þessar örfáu málsgreinar endrum og sinnum styrki málvitund landans? I öðru lagi má spyija hvort það sé vilji manna að um málefni eins og sameiningu Evrópu sé fjallað á al-útlenskum forsendum. Víst er að tveggja mínútna fréttaskot í íslensku fréttunum vegur lítið á móti stanslausum Evrófréttum frá morgni til kvölds þar sem forsend- ur, viðhorf og hugsanir era af allt öðram toga en okkar en eins og allir vita þá er menningarleg og efnahagsleg sérstaða okkar innan Evrópu mjög mikil. Menntamálaráðherra segir út- varpslög meingölluð. Ekki skánar ástandið við að fjölga stórgölluð- um klásúlum í reglugerð um sama efni. Helsti gallinn er í raun sá að stjómvöld hafa ekki borið gæfu til að laða fram víðtæka samstöðu um fjölmiðlastefnu, — frumstig varnarbaráttunnar. Það er von þess sem þetta ritar að ráðherra menntamála í nútíð og nánustu framtíð vinni að því, frek- ar en að eyða kröftum sínum í „lagfæringar" eins og þær er al- þjóð varð vitni að á dögunum. Hugleiðingar ífjölmidlastríðsveislu Fölmiðlaveisla á íslandi heldur áfram og fréttaþyrst þjóð er með eða á móti. Síðastliðinn sunnudag var í þessari pistlaröð fjallað um þá fréttabyltingu sem helltist yfír íslenska þjóð er Stöð 2 hóf útsendingar á heims- fréttum CNN til áskrifenda sinna. Síðan sá pistill birtist hefur byltingin haldið áfram og gamla góða ríkissjónvarp- ið bætt um betur með frétta- útsendingum SKY. ísienskir sjónvarpsáhorfendur geta nú upplifað heimsmálin í bein- um útsendingum þar með talin stríðsátök sem eru jú ástæðan fyrir því að þessar útsendingar hófust hér og nú. Þótt haft sé eftir frétta- stjóra Ríkissjónvarpsins að öky-útsendingamar séu ekki varanlegt ástand þar sem hlutverk fréttastofa hér sé annað og meira en að vera endurvarpsstöð fyrir erlend- ar sjónvarpsstöðvar kemur þessi bylting áreiðanlega til með að hafa sín áhrif í sam- bandi við fréttaflutning á íslandi. Þegar ísland verður orðið hluti í EB sætta menn sig ekki vð neinn púkaskap úti í horni og vilja vera með á öllum sviðum og þar með talið á íjölmiðlasviði. Og allt þetta kemur auðvitað til með að auka kröfur fréttaþyrstra íslendinga um aukinn frétta- flutning íslenskra fréttastofa því ef það gerist ekki sam- fara hinu er dæmið búið spil. Það er ekki nóg að heyra álit mætra manna úti í heimi á heimsmálunum, við verð- um að setja dæmin inn í íslenskt samfélag og rýna í þau út frá íslenskum aðstæð- um á íslensku máli. Þannig ætti þetta jú allt saman að geta gengið upp. Og áfram má hugleiða málin út frá • íslenska tungumálanáminu sem okkur er jafnan svo kært. Áhyggjur manna af málfari yngri kynslóðarinnar aukast áreiðanlega við þess- ar auknu útsendingar á enskri tungu þegar það er þegar orðið staðreynd að hluti íslenskra barna og unglinga notar enska röðun orða í íslenskum setningum eða grípur til enskunnar þeg- ar ekki veit betur. Annað sem ekki hefur verið fjallað mikið um í umræðum um þessi mál er hvaða áhrif allar þessar fréttaútsendingar geta komið til með að hafa á það hversu mikið við horf- um á fréttimar. í fyrstu skyldi maður ætla að flesti.r komi til með að horfa meira á fréttir en áður og svo er líka áreiðanlega í byijun, en samkvæmt formúlunni um að velja og hafna getur þetta allt eíns haft í för með sér að hluti áhorfenda komi til með að horfa minna á fréttir þegar svo mikið er í boði. Að því meira sem framboðið er þeim mun grimmara valið þótt að sjálfsögðu verði til sá hópur sem mun bæta fréttaútsendingum ofan á þær sem fyrir eru. Og þá er það upphaf þessara nýjustu fjölmiðlabyltingar á íslandi sem hefur jú leitt af sér allan fréttaflutninginn. Stríðsátök við Persaflóa Sjónvarpsáhorfendur á ís- landi fá stríðið heim í stofu og íslendingar sem fyrr með og á móti. í því sambandi hefur stríðsótti barna og unglinga verið til umfjöllun- ar. Fólk hefur haft á orði að of mikið sé borið á borð í fjölmiðlunum, að stríðsfréttaflutningurinn sé kominn út í öfgar og að myndir sem birtar eru komi illa við bömin. Það má að sjálfsögðu ræða fram og til baka um hvernig stríðsfrétt- irnar eru bomar á borð en hvar eru þessar ágætu radd- ir þegar um er að ræða horf- un á ofbeldismyndir meðal íslenskra barna sem búa jú mörg hver við þær aðstæður í íslensku þjóðfélagi að vera mikið ein heima eftir að skóla lýkur þannig að foreldrar hafa ekki ætíð yfírlit yfír það sem þau eru að gera með félögunum. Ein af spuming- unum sem rannsóknir og athuganir á áhrifum ofbeldis af sjónvarpsskjánum á börn byggjast á er hvort böm venjist ofbeldi með því að horfa á mikið ofbeldi í kvik- myndum og verði þar með sljórri gagnvart því. Ekki verður farið í saumana á þeirri spurningu í þetta sinn en svo mikið er víst að hluti íslenskra barna og unglinga virðist fylgjast með stríðsfréttunum sem váera þær hluti úr striðsspennu- mynd eða stríðstölvuleik (sem foreldrar kunna fæstir á). Það er hrópað upp þegar flaugar bandamanna hitta á mjög nákvæman hátt skot- mark sitt í írak: Yá, rosalega var þetta flott hjá þeim, þettu eru alveg meiri háttar flaugar. Guðrún Birgisdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.