Morgunblaðið - 03.02.1991, Síða 25
MÖRtnjtfB'IiAÐlÐ MINNINGAR sunnudagur 3.
FEBRUAR 1991
C 25
Vilberg Sigurjóns-
son - Minning
Fæddur 13. apríl 1931
Dáinn 27. janúar 1991
Vilberg Sigurjónsson útvarps-
virkjameistari var fæddur í
Reykjavík 13. apríl 1931, sonur hjón-
anna Siguijóns Skúlasonar vélvirkja
og Málfríðar Ásmundsdóttur. Hann
ólst upp í vesturbænum, á Reykjavík-
urvegi 33 í Skeijafirði.
Ungur að árum lærði Vilberg út-
varpsvirkjun hjá Viðgerðarstofu út-
varpsins. Hann hóf þar nám árið
1948 og vann síðan að útvarpsvirkj-
un á vegum Viðgerðarstofu útvarps-
ins til ársins 1955, er hann stofnaði
ásamt skólabróður sínum, Þorsteini
Þorvaldssyni, fyrirtækið Radíóstofu
Vilbergs og Þorsteins. Ráku þeir það
fyrirtæki saman, þar til fyrir fáum
árum, er þeir seldu fyrirtækið. Það
var ávallt gott samkomulag með
rekstur fyrirtækisins hjá þeim félög-
um og má segja að þeir hafi stutt
og stuðst hvor við annan í vinskap
sínum og samvinnu og verið óaðskilj-
anlegir í rekstri fyrirtækisins.
Vilberg kvæntist Sólveigu Ellerts-
dóttur 15. mars 1958. Foreldrar Sól-
veigar eru þau Ellert Á. Magnússon
prentari og kona hans Anna Ársæls-
dóttir. Vilberg og Sólveig byggðu sér
heimili við Fífuhvammsveg í Kópa-
vogi og bjuggu þar allan sinn bú-
skap. Börn Vilbergs og Sólveigar
eru: Málfríður, gift Þráni Hjálmars-
syni. Þau búa á Kletti í Geiradal í
Reykhólasveit. Þau eignuðust þijá
drengi og eina dóttur. Þau misstu
ungan son sinn, Veigar, fyrir fáein-
um árum.
Anna hjúkrunarfræðingur, gift
Þórarni Ingólfssyni lækni á Siglu-
firði. Þau eiga 2 börn. Sigrún banka-
fulltrúi, hún á eina dóttur. Ásrún
fóstrunemi, í sambúð með Viktori
Viktorssyni flugmanni. Þau eiga einn
dreng. Siguijón læknanemi, í sambúð
með Elísabetu M. Sigfúsdóttur kenn-
aranema.
Þau voru hamingjusöm og sam-
stillt hjón, Sólveig og Vilberg. Sól-
veig lést af illkynja sjúkdómi í janúar
1979.
Það reyndi mikið á Sólveigu og
Vilberg í langvarandi veikindum
hennar. Sólveig fór í marga upp-
skurði og Vilberg annaðist mikið
börnin og heimilið ásamt vinnu sinni,
sem var ekki alltaf auðvelt. Bömin
voru þá ung að árum. Siguijón var
11 ára og elsta barnið Málfríður 21
árs, er móðir þeirra lést.
Kynni okkar Vilbergs hófust, er
hann og félagi hans Þorsteinn gerð-
ust meðlimir í Siglingaklúbbnum
Oðni í Kópavogi. Við störfuðum þar
saman í mörg ánægjuleg ár. Lax-
veiði var eitt af mörgum áhugamál-
um Vilbergs. Hann ásamt öðrum
hafði í mörg ár Álftá á Mýrum á
leigu. Vilberg byggði sér veiðikofa
við Álftárbakka. Við veiðifélagar
hans eigum góðar minningar frá
skemmtilegum veiðidögum við ána
og ekki síst ánægjustunda í „Álftár
Hilton“, en það kölluðum við félagar
hans veiðihúsið. Þar fóru fram stór-
kostlegar veislur, sem húsráðandi
stóð fyrir. Gegnum mörg ár fórum
við áriega saman í veiðiferðir.
Vilberg kvæntist seinni konu sinni,
Sigríði Gunnlaugsdóttur flugfreyju,
góðri vinkonu minni frá Siglufirði.
Við Sigríður þekktumst frá því við
vorum unglingar á Siglufirði, er ég
var þar á sumrin. Hún er dóttir vina-
fólks foreldra. minna. Sigríður er
dóttir Gunnlaugs Friðleifssonar er
nú er látinn og konu hans Guðrúnar
Friðjónsdóttur.
Sigríður átti fyrir 2 börn, þau ír
Gunnlaugsdóttur er nemur hótel-
fræði í Sviss, gift Sigurði Grétars-
syni knattspyrnumanni, og Stefán
Má Óskarsson málaranema.
Eftir að Vilberg og Sigríður fóru
að búa saman fórum við veiðifélag-
arnir að fara á Álftárbakka í veiði-
túra með maka okkar og fjölskyldur,
okkur öllum til mikillar ánægju.
Einnig leigðum við Vilberg saman
litla veiðiá, Geiradalsá í Reykhóla-
sveit, í fáein ár. Nutum við félags-
skapar þar saman, um leið og hann
heimsótti fjölskyldu Málfríðar dóttur
sinnar á Klétti í Geiradal.
Vilberg og .Sigríður. áttu .góð ár
saman, þótt þau væru ekki mörg.
Þau sómdu fallega hvort öðru og
tóku þátt í sameiginlegum áhuga-
málum. Þau nutu samveru við úti-
veru, laxveiði, ferðalög erlendis og
uppbyggingu heimilis og fagurs um-
hverfís síns og sinna.
Við Vilberg vorum nánir vinir. Ég
sakna góðs vinar. Ég veit að þessir
síðustu mánuðir voru erfíðir fyrir
hann og fjölskylduna. Ég bið Guð
að varðveita Sigríði, börnin og fjöl-
skylduna alla.
Ingimar K. Sveinbjörnsson
Kveðja frá veiðifélögum
Vinur okkar og veiðifélagi, Vil-
berg Siguijónsson, hefur kvatt
þennan heim eftir langt og erfitt
veikindastríð. Við viljum minnast
hans með fáeinum orðum án þess
þó að rekja ættir hans og æviferil.
Villi, eins og hann var kallaður
í okkar hópi, var fæddur laxveiði-
maður, og margar beztu laxveiðiár
landsins gjörþekkti hann og vissi
nákvæmlega hvar og á hvaða
stundu von var til að biti á.
í mörg ár hefur það verið fastur
punktur í tilveru okkar að vera
nokkra daga seinni part sumars í
veiðihúsi Villa við Álftá á Mýrum.
Voru það ávallt einstaklega
ánægjulegar stundir, því fátt jafn-
ast á víð að vera við gjöfula lax-
veiðiá í fallegu umhverfi í góðum
félagsskap. Þessi síðsumarkvöld við
Álftá voru okkur sem endurnæring,
er máði burt streitu og amstur
brauðstritsins, og mörg heims-
vandamálin voru leyst þar af hrein-
ustu snilid. Kölluðum við veiðihúsið
okkar á milli „Mýrar-Hilton“. En
þó ekki væri rafmagn eða önnur
nútímaþægindi í „Mýrar-Hilton“,
var Villi meistari í að galdra á grill-
inu hina ljúffengustu rétti.
Ekki var síður höfðinglegt heim
að sækja þau hjón Vilberg og hans
elskulegu konu Sigríði Gunnlaugs-
dóttur í Kvistaland. Og ekki stóð á
þeim að opna hús sitt við glæsileg-
ar móttökur, þegar erlendir veiðifé-
lagar komu í heimsókn til að
skreppa í á með okkur.
Við kveðjum vin okkar með sár-
um söknuði og óskum honum góðr-
ar heimkomu. Konu hans, börnum,
tengdabörnum, barnabörnum og
öðrum ættingjum vottum við okkar
dýpstu samúð.
Hervald, Guðjón, Soren, Pascal.
Þegar sólin hefur sitt hænufeta-
brölt upp á himininn léttir til í hug-
um veiðimanna. Minningar síðasta
sumars víkja fyrir væntingum þess
næsta og það er farið að hyggja
að hvar á að drepa niður færi. Þetta
BLOM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
hMmmdil
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 689070.
gat verið annasamur tími hjá Villa.
Sem oddviti hópa gamalla Álftár-
veiðimanna sá hann til þess að þeim
væri Ijóst hvenær umsóknarfrestur
rynni út, hver verðhækkun veiði-
leyfa væri milli ára og sá svo um
að koma umsóknunum í hendur
bændanna við Álftá. Þetta hlutverk
var honum jafnsjálfsagt og draga
andann og víst er að veiðimenn jafnt
sem bændur voru ánægðir með
þennan meðalgöngumann sinn.
Ekki lét hann þar staðar numið.
Minnsta lúxushótelið á Mýrunum,
Mýra-Hilton, sumarhús hans á Álft-
árbökkum, stóð okkur opið til af-
nota um veiðitímann og er ekki vit-
að til þess að nokkur maður hafi
nokkurn tíma borgað krónu fyrir
gistingu á þeim bæ. Þar höfum við
átt fleiri ánægjustundir en almennt
tíðkast utan eigin heimilis enda
engu logið þó svo sé sagt að það
hafi oft verið okkar annað heimili
um sumartímann, þó að það eina
sem við höfum lagt því til sé nær-
vera okkar.
Vilberg var stór á velli og stór í
lund, stór maður í öllum skilningi
þess orðs. Þeim sem ekki þekktu
hann gat furidist ytra byrðið
smástríðið og jafnvel eilítið hrjúft
á stundum en það þurfti ekki langa
viðkynningu til að kenna demantinn
þó ekki væri hann fullslípaður. Bar-
áttu sína við þann sjúkdóm sem
hann kynntist því miður allt of vel
um ævina háði hann af æðruleysi
sem stundum nálgaðist kaldhæðni.
Hans er sárt saknað í okkar hópi,
nú þegar hann hefur lagt í ótíma-
bæra för á hinar æðri veiðilendur.
Aðstandendum sendum við sam-
úðarkveðjur og vonum að minningin
um góðan mann veiti þeim stuðning
á erfiðum tímum.
F.h. veiðimanna við Álftá,
Sigurður E. Rósarsson
Mig langar að senda stjúpföður
mínum, sem kom inn í líf mitt þeg-
ar ég var aðeins 10 ára gamall,
Blómastofa
Friöfinns
Suöuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar,
Skreytingar við öll tllefni.
Gjafavörur.
t
Faðir okkar,
KJARTAINI ÓLAFSSON
frá Haukatungu,
andaðist á sjúkrahúsi Akraness 31. janúar.
•njJooaonarKt ligioii
Páll Kjartansson,
Jóhann Kjartansson.
bi>lirn laaim. r
kveðju á skilnaðarstundu og þakka
honum fyrir hve vel hann reyndist
mér.
Hann kenndi mér svo ótrúlega
margt og í ljós kom að við áttum
svo mörg sameiginleg áhugamál.
Hann sýndi mér stórborgir erlendis,
fræddi mig um það helsta sem ung-
um manni er hollt að vita, en dýr-
mætustu stundirnar voru þær sem
við áttum saman við litlu ána vest-
ur á Mýrum.
Hann var óvenjuglöggur á nátt-
úruna og þar kviknaði veiðibakter-
ían og fyrsti laxinn dreginn á land,
það voru dýrðardagar. Eg á honum
svo mikið að þakka og þakka guði
fyrir hve vel hann reyndist okkur
móður minni og systur.
Nú er komið að ferðalokum og
veri hann guði falinn._
Stefán Már Oskarsson
Sunnudaginn 27. janúar sl. and-
aðist vinur okkar og félagi, Vilberg
Siguijónsson, eftir langa baráttu
við erfiðan sjúkdóm.
Vilberg og félagi hans, Þorsteinn
Þorvaldsson, urðu snemma þekktir
fyrir rekstur fyrirtækisins Vilberg
& Þorsteinn, sem lengst af var við
Laugaveg. Þótti gott að leita til
þeirra, því viðskiptavinir fundu
fljótt, að þar voru til húsa kunnáttu-
menn á sviði útvarpsvirkjunar og
heiðarlegir kaupmenn.
Vilberg heitinn gekk snemma í
Félag raftækjasala og var strax
kosinn til stjórnarstarfa í félaginu.
í tuttugu ár gegndi hann ýmsum
störfum fýrir félagið bæði í og utan
stjórnar.
Árið 1969 var settur á fót Stofn-
lánasjóður raftækjasala, og strax
árið 1971 varð Vilberg varaformað-
ur hans, en tók við formennsku
1973, og gegndi því embætti til
dauðadags.
Þessi langa formannstíð Vilbergs
Siguijónssonar sýnir ef til vill betur
en nokkuð annað það mikla traust,
sem hann ávann sér hjá félögum
sínum. Við það traust bættust per-
sónutöfrar, sem heilluðu félagana
til samstarfs við hann. Minnumst
við margra skemmtilegra funda,-
undir stjórn Vilbergs, en í minning-
unni ber hæst hátíðafundina, sem
Vilberg stóð fyrir á merkisafmælum
sjóðsins.
Nú, að leiðarlokum, viljum við
þakka okkar góða félaga fýrir vel
og skemmtilega unnið störf í þágu
samtaka okkar.
Við vottum eiginkonu hans, börn-
um og öðrum vandamönnum dýpstu
samúð. Minningin um góðan dreng
mun lengi lifa með okkur.
Stjórnir Félags raftækjasala og
Stofnlánasjóðs raftækjasala.
t
Bróðir minn,
INGI BJÖRN ÍVARSSON
frá Djúpavogi,
Furugerði 1,
Reykjavík,
andaðist á Borgarspítalanum 1. febrúar.
Jónlína ívarsdóttir,
vinir og vandamenn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HELGA ILLUGADÓTTIR
frá Laugalandi, Reykhólasveit,
síðast til heimilis
á Hverfisgötu 58a, Reykjavík,
sem andaðist 26. janúar verður jarðsett þriðjudaginn 5. febrúar
kl. 13.30 frá nýju Fossvogskapellunni.
Guðbjörg Jónsdóttir,
Guðný Jónsdóttir,
Guðmundur Theodórsson,
Guðlaugur Theodórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Sigurbjartur Sigurðsson,
Stefán Gislason,
t
Bálför föður okkar og bróður,
AÐALSTEINS KJARTANSSONAR,
Vesturgötu 53,
verður gerð frá Fossvogskapellu mánudaginn 4. febrúar kl. 15.00.
Þeir, sem vildu minnast hans, vinsamlega látið Krabbameinsfélag-
ið njóta þess.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigrún Aðalsteinsdóttir,
Hafsteinn Númason,
Lúðvík Kjartansson.
t
Eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir,
HERBORG HÚSGARÐ,
Bakkaseli 21,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju mánudaginn 4. febrúar
kl. 13.30.
Jens Tómasson,
Sverrir Jensson,
Unnur Jensdóttir, Birgir Jóakimsson,
Eiríkur Jensson.
SXXCF
t
Þökkum hjartanlega öllum þeim fjöl-
mörgu sem auðsýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns mins, föður okkar, tengda-
föður og afa,
EGGERTS GUNNARSSONAR,
Sóleyjargötu 12,
Vestmannaeyjum.
Hlýja ykkari, stuðningur og hjálp er
ómetanleg. Guð blessi ykkur öll.
Jóna Guðrún Ólafsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
i'TiiTWffiiTrTr
mm^-mmmmmm^