Morgunblaðið - 10.03.1991, Side 39

Morgunblaðið - 10.03.1991, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM ájí^UDÁGÍjR 10. MARZ 1991 Sð íafa verið helstu áhugamálin. Hann lefur ritstýrt leikskrá enska liðsins >ewe Alexandra, sem nú leikur í 5. deild, í 40 ár og er heiðursfélagi )ess, en hann hefur verið stuðnings- naður liðsins síðan á sjö ára afmæli sínu, þegar honum var boðið á völl- nn í tilefni dagsins. Hann er þessa dagana í fjórðu leimsókninni til íslands, _en kom lingað fyrst árið 1973. „Ég hafði illtaf mikinn áhuga á að heimsækja andið, en vildi fyrst kynnast fólki, >vo ég þyrfti ekki að koma sem venj- jlegur ferðamaður og búa á hóteli. bað er allt annað að vera innan um ’jölskyldu á venjulegu heimili. Ég sá iuglýsingu frá Pálma Ingvarssyni í ínsku fótboltablaði, þar sem hann ískaði eftir pennavini, við skrif- Jðumst á, kynntumst og höfum hald- ð sambandi í nær tvo áratugi." Harold, sem býr í Crewe, á fjölda )óka og rita um Istand en hefur auk ?ess eytt dtjúgum tíma á bókasafni láskóla í Liverpool, þar sem hann hefur drukkið í sig fróðleik um landið. Hann á nær öll íslensk frímerki, „en mig vantar enn nokkur skild- ingamerki. Ég hef oft dottið niður á góð söfn, en gæti þess að eyða ekki um efni fram. Hins vegar slæ ég til, þeg- ar ég sé frímerki, sem mig vantar og ég sé fram á að geta fjár- mag- nað Morgunblaðið/Árni Sæberg Harold Finch í Aðal- stræti á dögunum. það á skömmum tíma, þó það kosti mikið. Ann- ars er það oft svo að menn vita ekki verðgildið og þá er hægt að gera góð kaup. Ég borgaði til dæmis um 30 krónur fyr- ir merki, sem er metið á yfir sjö þúsund krónur.“ Knattspyrnutímabilið í Englandi er eitt hið lengsta í Evrópu, byijar í ágúst og lýkur í maí. Harold sér alla leiki Crewe Alexandra og skrifar leikskrá vegna heimaleikjanna hálfsmánaðar- lega. „Fyrir 40 árum kvartaði ég vegna leikskrárinnar - sagði að hún væri ekki nógu góð. Ég var spurður hvort ég gæti gert betur, svarið var já og málið hefur verið á minni könnu síðan. Og svo er ég að skrifa sögu félagsins, þannig að það er nóg að gera í fótboltanum.“ En hann hefur nægan tíma fyrir bæði áhugamálin. „Það eru 365 dagar í árinu og með góðu skipulagi nýtist tíminn vel. Frímerki og fótbolti fara líka svo vel sam- an. I fótboltanum hittir maður fjölda manns og þekkt nöfn tengjast Crewe. Til að mynda var Peter Robinson, framkvæmdastjóri Liverpool, áður við stjórnina hjá Crewe Alex- andra, Bruce Grobbelaar steig sín fyrstu spor í ensku knattspyrnunni hjá félaginu og Gor- don Wallace, sem gerði tvö mörk í fyrsta Evrópuleik Liverpool — gegn KR á Laugardals- velli árið 1964 —• lauk ferlinum hjá okkur. Frímerki og knattspyrna hafa sína kosti. Knattspyrnan er mjög gefandi, en kynnin verða nánari í tengslum við frímerkin og umbunin er þar meiri.“ Magga Itoper, ÓIi Miolla veislustjóri og Guðný Reaburn stjórna Norfolkdeild Isienska Þjóðkórsins. SB Lj ósmyndarinn vann happadrættið - aftur! Þorrablót Islensk-Ameríska félagsins í Norfolk var haldið fyrir skemmstu með miklum tilþrifum. 175 manns létu sjá sig, bæði Mörlandar og erlendir gestir. Meðalþeirra sem blótuðu var Tóm- as Tómasson , hinn nýi sendiherra Islands í Bandaríkjunum og sambýliskona hans Hjördís Gunnarsdóttir og Arni sonur þeirra. Sesselía Siggeirsdóttir Seifert, forseti félagsins, hafði veg og vanda af því að sjóða sviðin og hangikjötið og útbúa rófustöppuna, en samhent sveit félagskvenna sá að öðru leyti um skreytingar, en annar matur, svo sem hákarl, hrútspungar og fleira lystaukandi kom tilbúið frá Kjötbúðinni Borg. Að vanda hámuðu landsmenn rétt- ina í sig, en erlendis gestir ráku tunguna og rétt nörtuðu til að byija með. Flestir kýldu á vömbina áður en yfír lauk. Eins og áður áður, var efnt til happadrættis í tilefni blótsins og var aðalvinningurinn flugmiði til íslands, báðar leiðir. Flugleiðir lögðu vinninginn til. Sú sem hreppti hnossið var ljósmyndarinn Ransy Morr, sem tók meðfylgjandi mynd- ir, en til gamans má geta þess, að hún vann sömu verðlaun í sams- svarandi happadrætti á þorrablóti félagsins í fyrra. Búast má við að Ransy Morr verði einnig meðal gesta á þorrablóti næsta árs. Ann- ar farseðill var í vinnig, gefinn af veislustjóranum óla Miolla, sem starfar hjá Trans World Airlines. Farmiðinn gildir á hvaða fiugleið TWA sem er. Þann vinnig hreppti enginn annar en eiginmaður Ransy Morr ljósmyndara! Morgunblaðið/Ransy Morr Meðal gesta á blótinu voru Tómas Tómasson sendiherra, Arni Tómasson, Hjördís Gunarsdóttir sambýliskona Tómasar og Sess- elía Siggeirsdóttir Seifert forseti félagsins. TILVALDAR TÆKIFÆRISGJAFIR - til dæmis til ferminga HÁLSMEN 06 EYRNALOKKAR MEÐ ORKUSTEINUM ★ lapis Lazuli ★ Amethyst ★ Rose Quartz ★ Malochite ★ Amozonite ★ Sugilite ★ Leopard Jaspis ★ Amber ★ Onyx ★ Carnelian ★ Blue Lace Agate ★ African Turquoise SILFURKROSSAR MEÐ KRISTÖLLUM SILFURHÁLSMEN FALLEGAR STYTTUR, M.A. VENUS FRÁ WILLENDORF. VANDAÐAR ÍSLENSKAR 0G ERLENDAR BÆKUR UM UPPBYGGJANDI 0G FRÓÐLEGT EFNI. TAR0T SPIL 0G ÖNNUR SPÁSPIL ÁSAMT BÓKUM MEÐ LEIÐBEININGUM í FALLEGUM GJAFAKÖSSUM. STJURNUKORT - Persðnulýsing - Framtíðarkort 12 mán og 3 ár. - Samskiptakort. Erum umboðsaðilar fyrir kort Gunnlaugs Guðmundssonar. MONDIAL ARMBANDIÐ SEM REYNST HEFUR FRÁBÆRLEGA VEL Armbandið hefur áhrif á orkuflæði líkamans og eykur vellíðan notandans. Fæst í þremur útlitsgerðum og fimm stærðum. Verð: Silfurhúðað kr. 2.990,- Silfurhúðað með gullhúðuðum kúlum kr. 2.990,- Húðað með 18k gullhúð kr. 3.990,- SEGULARMBÖNDIN KOMIN AFTUR 23k gylling og sex segulpunktar, þrjár stærðir. Verð kr. 2.390,- 23k gylling og þrír segulpunktar, fimm stærðir. Verð kr. 2.590,- Umsagnir erlendra lækna: Dr. Buryl Payna, höfundur The Body Magnetic & Getting Started in Magnetic Healing telur segularmbandið m.a: -Efla blóðflæðið sem leiði til meira súrefnisstreymis. -Draga úr uppsöfnun á kalsini í gigtarliðariiótum. Dr. Kyoichi Nakagawa, segir í grein sinni „Magnetic Field Deficiency Syndrome and Magnetic Treatment" i japönskum læknatíðindum frá góðum árangri í meöhöndlun á eftirfarnadi. -Stirðleika í öxlum, aftan á hálsi og öðrum bakverkjum. -Viðvarandi höfuðverk og þynglsum i höfði, svo og svima. FALLEGT SKART SEM fi/ETIR PERSÚMULEG ÞJÓNUSTA OG FAGLEG RÁBGJÖF. VERSLUN ÍANDA NÝRRAR eftir Sigurð G. Tómasson Refur Karlrembuskrýtlur hafa ekki átt upp á pallborðið á seinustu árum. Það er kannski helst að karlmenn segi svoleiðis sögur í sínum hópi. Svo er auðvitað von á einni og einni í blöðum og tímaritum sem enn halda uppi merkinu. Einn kunningi minn les til að mynda ævinlega opnuna í sjómannablaðinu Víkingi, þótt hann verði að fara með blaðið eins og mannsmorð á heimilinu. Hann er reyndar þeirrar skoðunar að karlar segi nið- urlægjandi sögur um konur, sem eins konar sjálfsvörn. „Þetta er nauðvörn hins kúgaða,“ segir hann og vitn- ar gjarnan í pólitíska brand- ara frá Austur-Evrópu sem dæmi um hliðstæðu. Hann var kampakátur um daginn þessi kunningi minn þar sem ég hitti hann í laugun- um, en karlasturtan þar er einn af fáum griðastöðum þar sem karlar geta óáreittir þjónað lund sinni. „Ég var farinn að halda,“ sagði hann, „að öll daungun væri horfin úr okkur. Maður getur ekki einu sinni lesið virt erlend tímarit án þess að liggja undir grun um að vera óþverri. En svo heyrði ég ungan mann segja skrýtlu sem vakti með mér vonir um að ekki væri öll nótt úti enn.“ Mér fannst honum vera sérkennilega mikið niðri fyrir. Hann horfði undirfurðulega á mig og sagði, í hálfum hljóðum: „Þú manst líklega eftir því, þegar maður kom í skólann á mánudegi og var niðurlút- ur eftir ævintýri helgarinnar og félagarnir fóru að tala um hauspoka.“ Ég jánkaði því en var ekkert að ergja hann með athugasemdum um ósmekklegt gort stráka á gelgjuskeiði. „Núna skipta ungir menn þessu í þijú stig. Það fyrsta er gamli fiauspok- inn. Annað stigið er kallað tveir hauspokar. Þá setur karlinn á sig hauspoka líka. Þriðja stigið, og það þykir mér benda til þess að strák- ar nú á dögum haldi fullri kynferðislegri reisn, er kall- að refur. Það er svona: Karl- maður vaknar á ókunnum stað og við hliðina á honum, ofan á handleggnum, sefur kona, sem hann vill alls ekki muna eftir að hafa hitt. Það er til alls vinnandi að vekja hana ekki. Þá er það sem hann bregður á ráð dýrsins sem ratað hefur í gildru: í kaldri örvæntingu nagar hann af sér handlegg- inn og læðist út. Þetta stig er kallað refur.“ Hér lauk sögunni en siðan þarna um daginn í laugunum hef ég verið á út- kikki eftir fötluðum manni með poka. Hann er trúlega með Landverndarmerkinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.