Morgunblaðið - 15.03.1991, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1991
23
Kynning'ardagiir
Stýrimannaskólans
í Reykjavík 1991
ÁRLEGUR kynningardagur Stýrimannaskólans i Reykjavík hefst
föstudaginn 15. mars nk. kl. 14.00 með svonefndu flotgallasundi sem
verður við Faxagarð í austurhluta gömlu hafnarinnar. í flotgalla-
sundi er keppt um hver er fljótastur að klæða sig í þennan öryggis-
búning og er markmiðið að vekja athygli allra sjómanna á mikil-
vægi búningsins fyrir öryggi allra starfandi sjómanna.
Eins og sl. ár eru áformaðar
ýmsar uppákomur við höfnina, t.d.
kemur þyrla Landhelgisgæslunnar
á svæðið, ef aðstæður leyfa. Enn-
fremur verða þar ýmsir frammá-
menn, alþingismenn o.fl. og má
búast við að þeim verði hent í sjó-
inn í flotgalla eins og sl. ár þegar
nemendur drifu sjávarútvegsráð-
herra, formann skólanefndar og
skólameistara Stýrimannaskólans í
sundið.
Aðalkynning Stýrimannaskólans
hefst síðan laugardaginn 16. mars
kl. 13.00 með ávarpi skólameistara
Stýrimannaskólans á sal Sjómanna-
skólans. Þar flytur einnig formaður
Nemendafélags Stýrimannaskólans
ávarp og setur kynningardaginn.
Nemendur og kennarar sýna síðan
gestum tæki og kennslugögn Stýri-
mannaskólans. Þar má nefna rat-
sjártæki, lórantæki, dýptarmæla og
hið nýja kennsJutæki Stýrimanna-
skólans, siglingasamlíkingu NMS-
90, sem vr tekin í notkun á vorönn
á sl. ár.
Auk þess sýna fjöimörg fyrirtæki
og stofnanir, sem eru tengdar sjáv-
arútveginum, siglinga- og öryggis-
tæki og kynna starfsemi sína. Bók-
asafn Sjómannaskólans, sem er
sameign Stýrimannaskólans og
Hveragerði:
Rætt um sam-
einingu á Ar-
borgarsvæðinu
LIONSKLÚBBUR Hveragerðis
heldur almennan opinn fund,
sunnudaginn 17. mars nk. kl.
14.00 í Hótel Örk, Hveragerði.
Fundarefni verður: Er sameining
sveitarfélaga á Árborgarsvæðinu
æskileg? Hvaða áhrif hefur samein-
ingin?.
Frummælendur verða: Brynleifur
Steingrímsson, læknir, sem talar
um kosti sameiningar og Hallgrím-
ur Guðmundsson, bæjarstjóri, sem
talar um ókosti sameiningar. Að
loknum framsöguerindum verður
stjórnmálaflokkum, sem eiga sæti
á Alþingi og vitað er að bjóða sig
fram í Suðurlandskjördæmi, gefinn
kostur á 5 mínútna ræðutíma til
að kynna sjónarmið sitt.
Lionsklúbb Hveragerðis finnst
áhugavert að standa fyrir fundi um
þetta mál, sem oft er rætt manna
á meðal, en lítið hefur verið kynnt
fyrir hinum almenna borgara. Á
fundinum gefst fólki kostur á að
hlýða á rök með og á móti samein-
ingu sveitarfélaga á Árborgarsvæð-
inu. Einnig gefst mönnum tækifæri
til að láta skoðanir sínar í ljós. Öll-
um sveitarstjórnarmönnum á svæð-
inu hefur verið boðið að taka þátt
í fundinum og vonast Lionsklúbbur-
inn eftir fjölmenni og fjörugum
umræðum.
Á undan fundinum og í kaffihléi
mun Lionsklúbbur Hveragerðis
kynna starf sitt og Lionshreyfing-
una, en á þessu ári eru 40 ár liðin
síðan Lionshreyfíngin skaut rótum
á íslandi.
(Fréttatilkynning)
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Vélskólans, sérsafn um sigiingar
og sjómennsku, vélar og tæki í skip-
um, verður opið og bækur safnsins
og tímarit í safninu, sem er á 4.
hæð Sjómannaskólans (rishæð),
liggja frammi og eru til sýnis.
Kvenfélagið Hrönn verður með
kaffiveitingar í matsal Sjómanna-
skólans frá kl. 13.30.
Auk kynningar á tækjum skólans
og fyrirtækja tengdra sjávarútvegi
verður ýmislegt fleira á boðstólum.
Jón Páll Sigmarsson kraftajöt-
unn og sterkasti maður heims kem-
ur á svæðið og mun reyna krafta
sína við nemendur Stýrimannaskól-
ans.
Lok kynningardagsins eru áætl-
uð kl. 18.00. Nemendur Stýrimann-
askólans sjá alfarið um kynningu
skólans og allan undirbúning fyrir
daginn. Þetta er 100. skólaár frá
stofnun Stýrimannaskólans árið
1891 og er kjörorð dagsins: Sigling-
ar og sjósókn er nauðsyn — Stýri-
mannaskóli 100 ára.
Árið 1991 er sérstakt afmælisár
Stýrimannaskólans og verður aldar-
afmælisins minnst með margvísleg-
um hætti, t.d. útgáfu á Sögu Stýri-
mannaskólans í 100 ár og sérstök-
um hátíðarfundi í október, þegar
eru liðin rétt 100 síðan Stýrimanna-
skólinn í Reykjavík var stofnaður.
Það er von nemendaráðs og skól-
astjórnar Stýrimannaskólans að
sem flestir sjái sér fært að koma
og kynna sér starfsemi skólans, en
í tilefni 100 ára afmælisins hafa
nemendur vandað sérstaklega til
dagskrárinnar.
(Fréttatilkynning)
Morgunblaðið/KGA
Svavar Gestsson, menntamálaráðherra, ásamt Ragnheiði Tryggvadóttur og Erlendi Kristjánssyni,
sem hafa séð um undirbúning M-hátíðarinnar fyrir hönd menntamálaráðuneytisins.
M-hátíð á Suðurlandi
HIN árlega M-hátíð verður á Suðurlandi að þessu sinni. Hátíðin
verður formlega sett laugardaginn 16. mars á Selfossi. Hún stend-
ur í allt sumar og lýkur í haust.
Hátíðin verður haldin víðs vegar
um Suðurland og koma öll byggð-
arlög í kjördæminu við sögu. Það
er menntamálaráðuneytið, í sam-
vinnu við sveitarfélög og héraðs-
nefndir á svæðinu, sem stendur
að hátíðinni sem var fyrst haldin
á Akureyri árið 1986. Síðan þá
hefur M-hátíð verið árlegur við-
burður og í fyrra var hún haldin
á Vesturlandi.
Tilgangur þessara hátáíða er
m.a. að varpa ljósi á margs konar
menningarstarfsemi í fjórðungn-
um og vera hvatning til athafna í
þeim efnum. Sveitarfélögin munu
ennfremur nota þetta tækifæri til
að skiptast.á menningardagskrám
sem þau hafa undirbúið sérstak-
lega fyrir hátíðina.
M-hátíð Suðurlands hefst í Fjöl-
brautarskólanum á Selfossi laug-
ardaginn 16. mars kl. 13.30. Dag-
skráin verður íjölbreytt og verður
„nokkurs konar þverskurður af því
sem boðið verður uppá á hátíðinni
í sumar,“ eins og Svavar Gestsson,
menntamálaráðherra orðaði það.
Svavar flytur ræðu við setningu
M-hátíðar, sem hann kallar „And-
inn sigrar vanda“ og séra Heimir
Steinsson, þjóðgarðsvörður á Þing-
völlum flytir erindi um forna sunn-
lenska skóla og festu íslenskrar
tungu. Loftur Þorsteinsson, for-
maður SASS ávarpar gesti. Lúðra-
sveit Þorlákshafnar leikur undir
stjórn Roberts Darling, flutt verður
frumsamið ljóð eftir Tinnu Lind
Gunnarsdóttur, nemanda í Grunn-
skólanum á Kirkjubæjarklaustri,
Loftur Erlingsson syngur, Kolbrún
Grétarsdóttir leikur á flautu, Ey-
vindur Erlendsson les úr ljóðum
Sigurðar Einarssonar í Holti. Mik-
ið verður sungið og má þar t.d.
nefna Karlakór Rangæinga, kór
Fjölbrautarskólans og Elínu Ósk
Óskarsdóttur óperusöngkonu.
Uppákomur sem þegar er búið
að ákveða að verði á hátíðinni
skipta hundruðum og enn á ýmis-
legt eftir að bætast við. Hátíðar-
dagskrár verða í Hveragerði, Ves-
mannaeyjum, Villingaholts-,
Hraungerðis- og Gaulveijabæjar-
hreppi, Kirkjubæjarklaustri, upp-
sveitum Árnessýslu, Hvolsvelli,
Þorlákshöfn, Stokkseyri, Eyrar-
bakka, Hellu og í Vík i Mýrdal
verður hátíð í haust.
Sýning verður á Listasafni Ár-
nessýslu á þjóðsögumyndum Ás-
gríms Jónssonar á vegum Lista-
safns íslands. Sýningin hefst 23.
mars og um leið tíu ára afmæl-
issýning Myndlistarfélags Árnes-
sýslu. í Árnesi verður opnuð sýning
á verkum Jóhanns Briem þann 28.
mars.
'
Hrollvekjandi gott úrval!
1 Pað er (sköld staðreynd að
§ allir vilja eiga traust og
| örugg kæli- og frystitæki.
s En þau þurfa líka að vera
1 falleg, hljóðlát og spar-
neytin. Þess vegna eiga
Electrolux og Ignis erindi til
allra sem gera kröfur.
Úrvalið í kælideildunum
okkar er nánast hrollvekj-
andi og verðið eins og það
hafi legið í frysti í eitt ár.
Veldu Electrolux eða Ignis.
Við ábyrgjumst að þau
endast og endast.
Heimasmiðj
Kringlunni ■ Slmi 68 54 40
HUSASMIÐJAN
Skútuvogi 16 • Simi 68 77 10