Morgunblaðið - 15.03.1991, Side 24

Morgunblaðið - 15.03.1991, Side 24
24 -MORGUNBLAÐIÐ EÖSTIUDÁGUR 15. MARZ 1991 Þingkosningar í Finnlandi: Græningjum og Mið- flokknum spáð sigri Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. NÝJUSTU kannanir um fylgi finnsku stjórnmálaflokkanna benda allar til þess að stjórnarflokkarnir bíði ósigur í þingkosningunum næstkomandi sunnudag. Miðflokkurinn og græningjar muni hins vegar styrkja stöðu sína verulega, en þeir eru nú í stjórnarand- stöðu. Samkvæmt skoðanakönnun sem birtist á sunnudag í Helsing- in Sanomat, sem er stærsta dagblaðið í landinu, eru núverandi stjórnarflokkar aðeins með 50% fylgi. Líklegt er talið að núverandi samsteypustjórn jafnaðarmanna, hægri manna og Sænska þjóðar- flokksins verði áfram við völd að kosningunum loknum nema hún tapi verulegu fylgi. Fréttaskýrend- ur velta nú vöngum yfir því hvaða smáflokkur gæti bjargað þessari stjórnarsamsteypu ef fylgi flokk- anna þriggja fer undir helming at- kvæða. Mjög vafasamt þykir til að mynda að græningjar taki þátt í ríkisstjórn sem mun að öllum líkind- um stefna að því að reisa nýtt kjarn- orkuver. Staðan þykir sérstaklega erfíð einmitt vegna þess að báðum þeim flokkum, sem nú eru taldir sigur- stranglegastir, semur mjög illa við núverandi ríkisstjóm. Hins vegar getur stjómarandstaðan ekki ein myndað ríkisstjórn því smáflokk- arnir em mjög ólíkir hvað varðar hugsjónir og vinnubrögð. vinstrimenn saman meirihluta í eina skiptið í sögu Finnlands en núna höfða þeir ekki nema til þriðjungs kjósenda. Kommúnistaflokkur Finnlands hefur margklofnað á síð- ustu árum en vinstri menn og kommúnistar gera nú tilraun til að bjóða fram saman í flokki sem nefn- ist Vinstra bandalagið. Bandalag- inu er spáð um 10 prósenta fylgi, en fyrirrennarar þess hlutu samtals rúmlega 13 prósenta fylgi í kosn- ingunum árið 1987. íbúi í Kúveit-borg gengur fram hjá verslun er seldi dýr og vönduð svissnesk úr. íraskir hermenn brut- ------------ ust inn í verslunina og stálu þar öllu steini léttara. Fátt manna fagnaði al-Sabah fursta við komuna til Kúveits Minnkandi fylgi smáflokka Spenna minnkar í samskiptum Kúveita og Palestínumanna í landinu Kúveit-borg, New York. Reuter. FURSTINN af Kúveit, Sheikh Jaber al-Ahmed al-Sabah, kom í gær til heimalands síns frá Saudi-Arabíu, réttum tveim vikum eftir að herir bandamanna frelsuðu ríki hans úr klóm íraka. Furstanum tókst að flýja land er Saddam Hussein lagði Kúveit undir sig 2. ágúst sl. Fáir voru á götum úti í Kúveit-borg er vél furstans lenti en fáeinir klöppuðu í hópi manna á flugvellinum sem er í útjaðri borgarinnar. Hermenn, gráir fyrir járnum, gættu öryggis þjóðhöfðingjans en óánægja er sögð ríkja meðal landsmanna er telji að stjórnvöld bregðist allt of seint við til að bæta úr sárustu neyðinni eftir ógnarstjórn íraka. Einnig er kraf- ist lýðræðisumbóta. Þrátt fyrir að aldrei hafi verið jafn margir flokkar í framboði í fínnskum þingkosningum virðist stefna í það að fylgi smáflokka minnki nema græningja. Samtals voru þrír stærstu flokkarnir með rúmlega 64 prósenta fylgi í síðustu þingkosningum en samkvæmt skoð- anakönnun Helsingin Sanomat er fylgi þeirra samtals rúmlega 67 prósent nú. Þeir stærstu eru Jafnað- armannaflokkurinn sem hlaut 24,1% fylgi 1987 (23,5% í könnun Helsingin Sanomat), hægri flokkur- inn með 23,1% (21,3%) ogMiðflokk- urinn 17,6% (23,0%). Fylgi vinstriflokka fer stöðugt minnkandi. Jafnaðarmenn halda að vísu velli sem stærsti flokkur lands- ins en hann getur ekki lengur leitað hjálpar til vinstri eins og um langt skeið á árunum eftir stríð. Komm- únistar og vinstrisósíalistar hafa misst þá þýðingu sem þeir höfðu áður í fínnskum stjórnmálum. í þingkosningum árið 1966 fengu Sendiherra Kúveita hjá Samein- uðu þjóðunum, Mohammad Abulhas- an, segir að írakar hafí með þjófnaði og skemmdarverkum valdið landinu tjóni sem nemi 70 - 100 milljörðum Bandaríkjadollara eða sem svarar 4.000 -^5.800 milljörðum ÍSK. írakar rændu m.a. gullbirgðum ríkisins. Abulhasan sagði að 33.000 Kúveitar hefðu verið fluttir nauðugir til íraks eða fangelsaðir og aðeins 1.200 feng- ið fararleyfi heim enn þá. Sendiher- rann sagði íraksstjóm bera ýmsu við til að þurfa ekki að taka við hermönn- um sínum, sem eru í haldi banda- manna. Óttist stjórnvöld í Bagdad að mennimir skýri frá því hve ósigurinn hafí verið hraksmánarleg- ur og jafnframt að mennimir gangi í lið með uppreisnarmönnum. Yfírvöld segja að framvegis verði séð til þess að Kúveitar séu ávallt í meirihluta í landinu en fyrir innrásina var þar rösklega hálf önnur milljón útlendinga við ýmis störfpsjálfir eru Kúveitar aðeins rúm 600.000. Er- lendir sendimenn segja að spenna milli Palestínumanna í landinu og Kúveita hafi stórminnkað. Flestir Palestínumenn studdu málstað íraka og Palestínumenn í Kúveit, sem eru nú um 200.000, voru sumir sakaðir um stuðning við íraska innrásarliðið. Vatnsskortur er í Kúveit því að Kommúnistastjórn Serbíu lætur undan síga: Námsmenn hætta mót- mælaaðgerðum í Belgrad Belgrad. Reuter. NÁMSMENN í Belgrad bundu í fyrrinótt enda á götumótmæli sín, sem staðið höfðu í fimm daga, eftir að kommmúnistastjórn Serbíu, stærsta lýðveldis Júgóslavíu, hafði gengið að öllum kröfum þeirra. Námsmennirnir fögnuðu sigri er þeir fóru úr miðborg Belgrad þar sem þeir höfðu hafst við í fímm sólarhringa. Gengið hafði verið að öllum kröfunum sem þeir lögðu fram í upphafí mótmælanna. Því sem næst öllum stjómarandstæð- ingum, sem voru handteknir í hörð- um átökum mótmælenda og lög- reglu um helgina, hafði verið sleppt úr fangelsi, fímm af ráðamönnum ríkisfjölmiðla vísað úr starfí, og Radmilo Bogdanovic, innanríkisráð- herra lýðveldisins, boðist til að segja af sér. Námsmennimir kenndu Bogdanovic um átökin um helgina sem kostuðu tvo menn lífíð, auk þess sem 80 manns særðust. Margir af leiðtogum stjómarand- stæðinga höfðu hvatt námsmennina til að hætta mótmælunum svo að yfírvöld notuðu þau ekki sem átyllu til að beija niður allt andóf gegn kommúnistum með vopnavaldi. Vuk Draskovic, leiðtogi serbneskra þjóð- emissinna, hafði þó sagt að allri ríkisstjóm Serbíu bæri að fara frá. Hann krafðist nýrra kosninga fyrir árslok. Aðeins tvö júgóslavnesk lýðveldi af sex, Serbía og Svartíjallaland, eru enn undir stjórn kommúnista eftir fijálsar kosningar í þeim öllum í fyrra. Mótmælin urðu til þess að veikja til muna stöðu Slobodans Milosevjcs.-forseta Serbíu, og slaka á tökum hans á fjölmiðlum lýðveld- isins. Blaðamenn dagblaðsins Politika, málgagns serbneska kommúnista- flokksins, kröfðust þess í gær að ritsjóri blaðsins segði afsérog sjón- varpið í Belgrad fjallaði í fyrsta skipti ítarlega og hlutlaust um mótmælaaðgerðirnar. Áður hafði sjónvarpið aðeins gagnrýnt mót- mælendurna eða sniðgengið þá. Milosevic forseti lét þó engan bilbug á sér fínna. Að sögn óháða dagblaðsins Borba í Serbíu sagði hann þingmönnum, að þeir ættu að koma aftur á lögum og reglu í lýð- veldinu. „Það ætti að vera svar -okkar til þeirra sem fagna „hmni“ Serbiu. Þeir héldu að Serbía myndi springa eins og sápukúla," sagði hann. „Hættum að leysa pólitísk vandamál utan þingsins. Ég krefst þess að starfsemi skóla, háskóla og verksmiðja verði komið í eðlilegt horf að nýju,“ bætti hann við. Leiðtogar stjómarandstæðinga í lýðveldinu óttast enn að hernum verði beitt til að kveða niður andóf gegn stjóm Serbíu þótt hún hafi látið undan síga í þetta skipti. hreinsibúnaður til að vinna ferskvatn úr sjó er ónýtur, rafveitur og síma- þjónusta eru í molum og aðeins brýn- ustu matvælum er dreift öðru hveiju. Eldar loga enn í um helmingi 900 olíulinda ríkisins sem írakar kveiktu í og svartir reykjarbólstramir byrgja sólarsýn svo að um hádegi er oft dimmt sem um hánótt. Byijað er að flytja tækjabúnað til að slökkva eld- ana frá Bandaríkjunum til landsins en talið að líða muni nokkrir dagar þar til hægt verður að hefjast handa. Olíumálaráðherra Kúveits segir skaðann „ægilegan" og telur að tek- ið geti tvö ár að slökkva alla eldana. Stjórnvöld hafa beðið Frakka um 300.000 skurðlæknagrisjur til að reyna að spoma við öndunarsjúk- dómum. Fámennur mótmælafundur var haldinn í Kúveit-borg á miðviku- dag gegn meintri óstjórn yfirvalda við endurreisnina. Einkum var um að ræða menntafólk; prófesora, lækna, og listamenn er héldu á spjöldum þar sem krafist var brauðs, vatns, rafmagns og lækn- isþjónustu. Hind al-Bahar, læknir við sjúkrahús Kúveit-háskóla, sagði blaðamönnum að banda- menn hefðu komið „til að stuðla að lýðræði, þeir komu ekki hingað vegna furstafjölskyldunnar“. Al- Sabah fjölskyldan hefur verið ein- ráð í landinu og aðeins gert var- færnislegar tilraunir til lýðræðis- umbóta sem hafa síðan verið afn- umdar er gagnrýni á ættina þótti of djörf. Krömdust undir burðarbita Fjórtán manns krömdust til bana í bflum sínum er 40 tonna burðar- biti úr járnbrautarbrú féll niður á götu í Hiroshima í Japan í gær. ... og við bjóðum þig velkominn að kynnast því nýjasta tró Habitat. Meðal annars mikið úrval af sófum, stólum, matarborðum, rúmum, hillum, lömpum, glösum, skólum o.fl. o.fl. Verið velkomin!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.