Morgunblaðið - 15.03.1991, Síða 52
svo vel
sétryggt
SlQVADiíuALMENNAR
Bjargaði bróður sínum frá
köfnun með snarræði:
ég ætti að gera
22 MANAÐA gamall drengur var hætt kominn
á heimili sínu í Garðabæ um kvöldmatarleytið
í gærkvöldi. Hnetur stóðu í honum og hann
var hættur að anda, en tæplega 10 ára gömul
systir hans brá skjótt við, beitti réttum aðferð-
um og náði að slá hneturnar lausar. Þegar sá
stutti var farinn að anda á ný, bað hún nær 9
ára gamlan bróður sinn að halda áfram að slá
á bak litla stráksins á meðan hún hringdi eftir
frekari aðstoð, en móðir þeirra hafði rétt
brugðið sér frá. Læknisrannsóku leiddi í ljós
að barninu varð ekki meint af.
Birna Mjöll þakkaði kennslu móðurinnar árang-
urinn. „Þegar Trausti bróðir var yngri festist króna
í_hálsinum á honum. Mamma hefur oft sagt mér
hvað hún gerði til að losa peninginn og ég gerði
alveg eins. Ég er fegin að mamma kenndi mér
hvað ætti að gera, því kannski hefði Óskar Björn
ekki verið lifandi núna.
Ég sá hann liggja á ganginum fyrir framan eld-
húsið. Óskar Björn hafði fengið hnetur og ég sá
að hann var allur blár í framan. Ég tók hann
upp, hélt honum á ská og byijaði að slá á bakið.
Fyrst komu blóðkögglar út úr honum og svo þijár
hnetur og þá fór hann að orga og anda.“
Stúlkan mundi ekki símanúmer hjá sjúkraliði,
en hringdi í vinafólk og skömmu síðar komu lög-
regla, læknir og sjúkralið á staðinn. „Mér líður
miklu betur núna og lögreglan gaf mér límmiða
með neyðarnúmerum. Maður verður að vera við-
búinn og ég vil að foreldrar segi börnunum sínum
hvernig á að fara að þessu, því þá verður allt betra.“
Fegin að mamma
kenndi mér hvað
Morgunblaðið/KGA
Oskar Björn var hinn hressasti undir miðnætti í gærkvöldi með Trausta bróður sínum
og Birnu Mjöll systur sinni.
Flugmenn boða verkfall í
-sólarliring hjá Flugleiðum
Flugleiðir segja kjarahugmyndir flugmanna þýða 80% launahækkun
FÉLAG íslenskra atvinnuflugmanna hefur boðað verkfall 29. mars, á
föstudeginum langa. Samningadeilu atvinnuflugmanna og Flugleiða,
var fyrir nokkru vísað til Ríkissáttasemjara og á miðvikudag var
haldinn árangurslaus sáttafundur á milli aðila og hefur annar fundur
ekki verið boðaður, að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar, ríkissáttasemj-
ara. Geir Garðarsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna
og formaður samninganefndar þeirra, segir að flugmenn fallist ekki
á að Vinnuveitendasambandið sé viðsemjandi þeirra heldur vilji semja
beint við Flugleiðir.
hefðu talið, að engin árangur
myndi nást af frekari viðræðum.
Var málinu því vísað til Vinnuveit-
endasambandsins sem hefur aftur
vísað málinu til sáttasemjara í
samráði við Flugleiðir.
Að sögn Einars Sigurðssonar
blaðafulltrúa Flugleiða mun félag-
ið kanna möguleika á að koma
farþegum til ákvörðunarstaða eft-
ir öðrum leiðum í verkfalli
flugmanna.
Víglundur Þorsteinsson á ársþingi FÍI:
ísafjarðardjúp:
Loðna á
leið suður
með Vest-
fjörðum
Kvenloðna uppi-
staðan í aflanum
Isafirði.
TOGARAR á sunnanverðum
Vestfjarðamiðum hafa orðið var-
ir við umtalsverða loðnu, sem
ekki er komin að hrygningu.
Binda sjómenn vonir við að þarna
sé á ferðinni svokölluð vestan-
ganga og ef svo er, er hún ekki
inni í mælingum Hafrannsókna-
stofnunar.
Loðnuskipið Grindvíkingur sem
var á veiðum í ísaijarðardjúpi í gær
lagði af stað til Grindavíkur síðdeg-
is og að beiðni Hafrannsóknastofn-
unar ætlaði Willard Ólason skip-
stjóri að kanna gönguna nánar.
Fáir bátar eru nú eftir á.loðnu-
veiðum og hafa þeir verið að veiðum
í ísafjarðardjúpi síðustu dagana.
Þetta mun í fyrsta sinn sem stór
loðnuskip veiða í Djúpinu, en' þar
virðist vera umtalsvert magn af
loðnu.
Willard sagði í samtali við Morg-
unblaðið að þetta væri allt önnur
loðna en þeir hefðu verið að veiða
fram að þessu og stútfull af hrogn-
um. Harpa sprengdi nótina síðdeg-
is, en þessir bátar sátu einir að
kellíngunum í Djúpinu í gær, eins
og Willard orðaði það, og átti við
kvenloðnuna sem virðist vera uppi-
staðan í aflanum. Hann sagði að í
þessu væru rosaleg verðmæti, en
Grindvíkingur skilur hrognin frá
loðnunni og frystir. í gærkvöldi
voru komin 85 tonn af hrognum í
lest.
Ekki virðist vera mikið um bol-
fisk með loðnunni, þó hefur heyrst
af einum bát sem þurfti að hleypa
niður vegna bolfisks í nótinni. Will-
ard sagðist aðeins hafa fengið um
tíu stykki í fyrradag og hefðu það
verið dæmigerðir heimamenn, litlir
og grannir.
Úlfar.
í frétt frá Flugleiðum segir að
nýkjörin stjórn FÍA hafi kynnt for-
ráðamönnum Flugleiða hugmynd-
um kjarabætur sem samanlagt
yrðu að ígildi meira en 80% launa-
Bensínsala
jókst um 6,4%
í febrúar
BENSÍNSALA á landinu öllu
varð 6,4% meiri í febrúar síð-
astliðnum en sama mánuð í
fyrra.
í febrúar 1990 seldust á
•iandinu öllu 11.534.000 lítrar
bensíns. I síðastliðnum febrúar-
mánuði urðu þeir 12.270.000.
Ekki hafa fengist óyggjandi
skýringar á þessari aukningu,
en hjá einu oiíufélaganna var
veður og færð talið valda mestu,
einnig að ekki hafi orðið sú verð-
hækkun sem búist var við vegna
“stríðsins við Persaflóa.
i . \
Tímabært að afnema einok
un í íslenskum orkuiðnaði
EINKAVÆÐING íslensks orkuiðnaðar er vænleg leið til þess að
efla samkeppni og örva þannig uppbyggingu íslensks orkuiðnaðar
og úrvinnslugreina hans. Þetta kom fram í ræðu Víglundar Þor-
steinssonar, fráfarandi formanns Félags íslenskra iðnrekanda, á 57.
ársþingi FÍI í gær, þar sem hann sagði tímabært að afnema einokun
ríkis og sveitarfélaga og huga að flutningi valds og ábyrgðar í þess-
um efnum þannig að unnt væri að setja viðskiptalegt inat í fyrirrúm.
hækkunar. Sé fjarstæðukennt að
íhuga samninga á þeim nótum.
Geir sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þetta væri fjarri lagi.
„Við höfum sett fram hugmyndir
til að skapa viðræðugrundvöll en
stjórn Flugleiða hefur farið fram
á að við skilum aukinni vinnu og
við viljum eðlilega fá greitt fyrir
það,“ sagði Geir.
Atvinnuflugmenn hafa verið
með lausa samninga frá 31. mars
á síðasta ári og hefur ekki tekist
að gera kjarasamning þrátt fyrir
að árangur hafi náðst á ýmsum
sviðum, að sögn Geirs. Sagði hann
að samninganefnd flugmanna
hefði setið 37 samningafundi á
síðasta ári.
1 janúar var kjörin ný stjórn í
Félagi íslenskra atvinnuflug-
manna, sem kynnti forsvarsmönn-
um Flugleiða nýjar hugmyndir í
launa- og kjaramálum. Að mati
Þórarins V. Þórarinssonar, fram-
kvæmdastjóra VSI, voru þær hug-
myndir algerlega úr takt við kjara-
þróun undanfarinna ára og sagði
hann að stjórnendur Flugleiða
Víglundur sagði í ræðu sinni eng-
an vafa leika á því að Islendingar
réðu yfir mikium orkulindum og
væru aðeins skammt á veg komnir
með nýtingu þeirra. Hins vegar
væri jafnljóst að þessar orkulindir
teldust því aðeins hluti af þjóðarauð
íslendinga að þær yrðu nýttar til
orkuframleiðslu á samkeppnishæfu
verði í alþjóðlegum samanburði. Þar
væri jafnt átt við orkuverðið sjálft
sem og önnur starfskjör atvinnufyr-
irtækja í landinu, hvort heidur þau
væru í eigu innlendra eða erlendra
aðila. Víglundur sagði að of hægt
miðaði í nýtingu orkulinda íslend-
inga til atvinnuuppbyggingar.
Að mati Víglundar eiga íslend-
ingar þegar fimm orkufyrirtæki
sem kjörin eru til einkavæðingar;
Landsvirkjun, Hitaveitu Reykjavík-
ur, Rafmagnsveitu Reykjavíkur,
Orkubú Suðurnesja og Orkubú
Vestfjarða. Önnur , prkufyrijtæki,
ætti síðan að undirbúa til slíkrar
einkavæðingar, s.s. Rafmagnsveit-
ur ríkisins sem vel mætti skipta upp
að fyrirmyndinni frá Orkubúum
Suðurnesja og Vestfjarða.
Félag íslenskra iðnrekenda hefur
átt samstarf við Landsvirkjun, Ork-
ustofnun, Hitaveitu Reykjavíkur,
Orkubú Suðurnesja, Markaðsskrif-
stofu iðnaðarráðuneytisins og Iðn-
tæknistofnun um hagnýtingu há-
hitasvæða hér á landi. Víglundur
sagði í ræðu sinni að orkulindir ís-
lendinga fælust ekki eingöngu í
vatnsföllum. Háhitasvæði landins
væru stærstu og vannýttustu orku-
lindir lslendinga og því væri brýnt
að taka upp viðskiptalegt frum-
kvæði í stjórnun þessara mála.
Sjá náuur á iuiðppiiu.,