Morgunblaðið - 16.03.1991, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARÐAGUR Í6. MARZ 1991'
10
Stórkostlegiir
Rigoletto
___________Tónlist______________
Jón Ásgeirsson
_ Sýningar á Rigoletto hófust að nýju
í íslensku óperunni eftir nokkurra vikna
hlé og var fyrsta sýningin í gærkvöldi
"(föstudagskvöld). Sólrún Bragadóttir
söng hlutverk Gildu og mun hún aðeins
syngja á tveimur sýningum að þessu
sinni. Seinni sýningin verður í kvöld,
laugardag.
Aðrir gestasöngvarar í gærkvöldi og
sem verða á næstu sýningum eru spánski
söngvarinn Emesto Grisales, sem fer
með hlutverk hertogans, og tékkneski
söngvarinn Ívan Kúsnjer í hlutverki
Rigoletto. Stjómandi sýningarinnar var
Garðar Cortes.
Sýningin í heild var góð og með sama
svip og frumsýningin. Söngur Grisales
í hlutverki hertogans var mjög góður,
sérstaklega í Questa’ o quella svo og í E
il sol dell’anima og La donna é mobile.
Rigoletto var sunginn af ívan Kúsnjer
sem söng þetta stórbrotna hlutverk af
mikilli íþrótt. Sérstaklega var hann góð-
ur í öðrum þætti, eftir rán Gildu er hann
lætur fyrst sem ekkert sé en getur ekki
um síðir dulið tilfinningar sínar og biður
hirðmennina að hjálpa sér. Dúett hans
við Gildu og hefndarþorstinn sem þá kom
fram hjá honum var stórkostlega út-
færður.
) Sigurvegari kvöldsins, Sólrún Braga-
dóttir, siglir hraðbyri í það að verða stór-
söngkona. Söngur hennar í Caro nome
og einnig í öðrum þætti á móti „föður
sínum“ og þegar hún lýsir ást sinni á
hinum svikula hertoga var stórkostleg-
ur. Lokasöngur þeirra tók til hjartans.
Tómas Tómasson söng Sparafucile en
hann er í söngnámi og lofar frammi-
staða hans góðu. Hraðinn í uppfærsl-
unni var ágætur, kórinn fínn og aðrir
þeir sem hafa staðið að þessari sýningu
frá byijun voru ekki síðri en á frumsýn-
ingunni.
Morgunblaðið/KGA
Frá sýningunni á Rigoletto í gærkvöldi. Aheyrendur hylla einsöngvarana sem eru f.v.: Ivan
Kusnjer (Rigoletto), Sólrún Bragadóttir (Gilda) og Ernesto Grisales (Hertoginn).
Þórir Olafsson var
kjörinn rektor KHI
ÞÓRIR Ólafsson prófessor við
Kennaraháskóla Islands var í
gær kjörinn næsti rektor skól-
ans og tekur hann við starfinu
1. ágúst.
Fyrri umferð rektorskjörsins fór
fram í lok febrúar og síðari umferð-
in í gær. Þá var kosið á milli tveggja
efstu úr fyrri umferð, Þóris og
Önnu Kristjánsdóttur dósents. Þórir
hlaut 67,8% atkvæða og Anna
30,3%. Auðir seðlar og ógildir voru
1,9%. Kjörsókn var 53,4%.
Þórir var lektor við KHÍ 1973/74
en réðst aftur til skólans árið 1976
sem prófessor. Hann er 55 ára gam-
all. Eiginkona hans er Ingunn Val-
týsdóttir og eiga þau fjögur böm.
911Kfl 01 07fl LÁRUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjóri
L I IvJV/'tlO/ V KRISTINTJSIGURJÓNSSON,HRL.löggilturfasteignasali
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Glæsilegt tvíbýlishús
í Skógarhverfi. Efri hæð um 185 fm 6 herb. íbúð. Neðri hæð um 85
fm 2ja herb. samþ. séríb. Rúmg. bílskúr. Gott vinnupláss. Frábært
útsýni. Teikning og nánari uppl. aðeins á skrifstofunni.
Tvíbýlishús í byggingu
í vinsælu hverfi í Mosfellsbæ, nánar tiltekið tvær 5 herb. sérhæðir,
122 fm hvor, með 30 fm bílskúr. Afh. kaupanda eftir samkomul. Eigna-
skipti möguleg. Teikn. á skrifst.
Á vinsælum stað við Barðavog
einbýlishús ein hæð 164,8 fm nettó. Bílskúr 23,3 fm nettó. Vel byggt
og vel með farið. 5 svefnherb., tvær stofur, sólverönd. Ræktuð lóð -
skrúðgarður. Skipti möguleg. á góðri 3ja-4ra herb. íb. m. bilskúr.
Á góðu verði - laus strax
í tvíbýlishúsi á vinsælum stað í Vogunum 3ja herb., kjallaraíb., lítið
niöurgr. Rúmg. herb. Góð sameign. Trjágarður. Verð aðeins 4,8 millj.
Sér inng. - sérþvottah. - bílskúr
Stór og góð 6 herb. íb. 131,8 fm nettó. í lyftuhúsi við Asparfell. 4
rúmg. svefnherb., tvennar svalir. Bað og gestasnyrt. Mikið útsýni.
Verð aðeins 8,5 millj.
4ra herb íbúðir - hagkvæm skipti
M.a. við Hrafnhóla, Melabraut, Vesturberg og Hraunbæ. Vinsamleg-
ast leitið nánari upplýsinga.
Suðuríbúð m. bílskúr
2ja herb. íb. á 2. hæð um 60 fm við Stelkshóla. Rúmg. svalir, Danfoss-
kerfi. Góð sameign. Góður bílskúr m. upphitun.
Skammt frá Sundlaugunum
3ja herb. ágæt íb. á jarðh./kj. Sér inng., sér hiti. Töluvert endurn.
Laus eftir 10-15 mánuði
Vegna heimkomu til landsins óskast góð 3ja herb. íb. í Fossvogi,
Háaleiti, Vesturbæ, nágrenni. Rétt eign borguð út.
o,.,» ALMENNA
Fjöldifjársterkra kaupenda. c « CT c | r U A C * I 1U
Almenna fasteignasala sf. rA 5 I tlllllAjflLfln
var stofnuð 12. júlí 1944. LAUGAyEG| 18 SfMAR 21150-21370
fiftmdMináD
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
Fimmta hljóðskiptaröð
sterkra sagna er nauðalík 4. röð
(sjá þátt 577) en mér finnst hún
samt einhvern veginn skemmti-
legri. Þær skilur reyndar ekki
að hljóðum fyrr en í síðustu
kennimynd; í hinni fjórðu voru
sérhljóðin e-a-á-u (o), en nú eru
þau e-a-á-e, svo sem í lesa (las,
lásum, lesinn). Aðrar reglulegar
sagnir eftir 5. röð eru drepa,
gefa, geta, leka, meta og reka.
E.t.v. ætti ég fremur að segja
að meta hafi verið regluleg
eftir fímmtu: meta-mat-
mátum-metið. Ég held þó að
við viljum hafa hana svona, þótt
einhveijir kunni að segja við
„möttum“ í stað mátum. Eink-
um kann ég þó illa við, þegar
„strákurinn Matti“ er kominn
inn í aðra kennimynd.
Nú kunnu sagnir eftir 5. röð
að enda á ja í nafnhætti. Það
j, sem þarna fór á undan a, olli
hljóðvarpi og breytti e í i. Þá
kemur tilbrigðið biðja-bað-
báðum-beðið svo og sitja. Og
sagan er ekki öll sögð. Nú gat
g farið á undan þessu joði og
grannt sérhljóð þar á undan, og
þá tvöfaldaðist joðið til viðbótar
hljóðvarpinu, en breyttist í h í
2. kennimynd. Það h hélst ekki,
og um leið og það hvarf, fékk
a-ið, sem á undan var, þá upp-
bót fyrir að missa félagsskapinn,
að lengjast og síðar meir breyt-
ast í tvíhljóð. Þá koma út af-
brigðin liggja-lá-lágum-legið
og þiggja-þá-þágum-þegið.
Við hugsum okkur að þetta hafi
gerst einhvern veginn svona:
*legjan>ligja>liggja; *lag
>Iah>lá. Fer nú að skiljast
hvers vegna við skrifum hann
lá(g-laust), en þeir lágu (með
g-i). Margir hafa hins vegar
ekki viljað una því að beygja
þiggja með þessu lagi og segja,
hann þáði, þeir þáðu. Það endar
í ógöngum í viðtengingarhætti
þátíðar, sem skv. því ætti að
vera „þæði“, en er svo ljótt að
ég held flestir segi: hann þægi
þetta, ef hann ætti þess kost.
Hitt er svona ámóta og að segja:
ég „slæði“ þig, ef ég „sjæði“ þig
með kærustunni minni. Meira
um sjá bráðum. Og ekki þekki
ég fólk sem segir: hann „láði“ í
rúminu, og við „láðum“ reyndar
öll.
Éta er óregluleg eftir 5. röð.
Hún gekk eta-at-átum-etit, en
nú segja menn: éta-át-átum-
étið. Hvers vegna hafa þessar
lengingar eða tvíhljóðsmyndanir
orðið? Ég kann enga skýringu á
því, nema þá að hið síðara talið
þætti „matarmeira“ en hið fyrra.
(Reyndar fékk ég uppástungu
um beyginguna „éta-mat-át-
um-étið“, og er sú að vísu at-
hyglisverð).
Fregna (=frétta; spyija) var
líka óregluleg eftir 5., mikið
höfð í fornum kveðskap. Hún
beygðist þá fregna-frá-
frágum-fregið, og nútíðin var
(ek) fregn.
Sjá er mjög óregluleg eftir
5. (sá-sáum-séð). Hefur þar
mikið gengið á sem of langt
yrði hér allt að telja. Ég læt
nægja í bili að geta þess að sjá
var áður séa, enda var boðháttur
sagnarinnar sé í fornum sögum.
Það kallast samdráttur, þegar
séa>sjá og er sér-íslensk breyt-
ing.
Þá var vega lítið eitt sérleg
eftir þessari röð: vega-vá-
vágum-vegið, en hún hefur nú
álpast yfir í 6. röð, eða þannig.
Kemur að því síðar.
Og svo er að lokum sögnin
að vera sem er sérstæð um
margt. Ef farið er ógurlega
langt aftur í tímann, má fínna
beyginguna vesa-vas-várum-
verit. Misræmið á milli s og r
í kennimyndunum byggist á
ævagömlum áherslulögmálum,
sem Daninn Karl Adolf Verner
(1846-1896) uppgötvaði og
sýndi fram á. Nú leiddist mönn-
um að hafa s í sumum kenni-
myndum og r í öðrum, og eftir
samræmingarþörf sinni breyttu
menn þessu svo að hafa r í
kennimyndunum öllum. Þetta
nefnum við áhrifsbreytingu
(analógíu). En í þriðju kenni-
mynd lét v-hljóðið til sín taka,
olli varamynduðu hljóðvarpi og
breytti á í ó: váru>vóru. Marg-
ir hafa svo haldið áfram og
breytt vóru í voru, en það er
meira á blaði en í munni.
★
Þess má geta, að það er mik-
ill siður að mynda lýsingarorð
með i-hljóðvarpi af 3. km. sagna
eftir 5. röð, og eru þau mörg
581. þáttur
hver falleg og einkar nýtileg.
Af mátum kemur mætur, Iás-
um, læs, drápum, dræpur, svo
sem réttdræpur; rákum ræk-
ur, t.d. héraðsrækur; af lágum
lægur, svo sem botnlægur,
þágum þægur, t.d. lítilþægur;
af átum, ætur, frágum, fræg-
ur (af honum ganga fregnir),
vágum, vægur, sbr. mikilvæg-
ur; og af várum vær. Værum
þykir víst gott að vera, þar sem
hann er.
★
Unglingur utan kvað:
Kom dópisti Jón hingað dröggaður,
svo dapur og spældur og böggaður,
bitinn og blankur
og blúsaður, krankur
og barinn og marinn og löggaður.
★
Fyrr er fram komið hér í
þættinum hversu vísur og sögur
gangast og greinast í munnlegri
geymd. Þetta getur svo sem líka
gerst, þótt málið sé prentað og
heimildir góðar. Og margt skol-
ast á langri leið. Kerling sem
ekki vildi trúa öllu í Biblíunni,
mælti: „Skreytt hefur verið á
skemmri leið en frá Jerúsalem
og hingað, þegar logið er á milli
búrs og baðstofu.“ Það er víða
þvottur brotinn, eins og Þorvaldi
Þorsteinssyni af íslandi varð að
orði, þegar hann leit á góðviðris-
degi út um háhýsisglugg á því
blauta Hollandi. En Halldór Vig-
fússon í Reykjavík skrifar mér
svo, og takið eftir fallegri mið-
mynd hjá honum rétt á undan
vísunni:
„Um leið og ég þakka vel
gerða og skemmtilega þætti í
Mogga vil ég gera athugasemd
við vísunefnu í 579. þætti (2.
marz 1991). Mér hefur lærst hún
svona:
Það var maður í vagninum
með veikan páfagauk og Ijótan,
sem eitthvað gekk að í glyrnunum,
og gaman hefði verið að skjóta ’ann.
Meðvinsemd."
★
Nikulás norðan sendir:
Já, feimin var Leirvallar-Lauga,
ég lýg hvorki um það né spauga.
Hún háttaði í myrkri
með háttprýði styrkri
vegna hins alsjáandi auga.