Morgunblaðið - 16.03.1991, Side 28

Morgunblaðið - 16.03.1991, Side 28
iMORGUNBLAÐIÐ 'MinGIARD'AGURae. ÍMAR0 HWl «8 „Birmingham-sexmenningarnir “: Leitin að tilræðismönn- unum hafin á nýjan leik London. Reuter. BRESKA lögreglan hefur nú hafið á ný leit að þeim aðilum sem stóðu að sprengjutilræðum I borginni Birmingham árið 1974. 21 maður lét lífið og eru þetta blóðugustu hermdarverk sem framin hafa verið á Bretlandi. Þá verður einnig hafin rannsókn á því hvern- ig lögreglan hélt á málinu. Sex mönnum, sem dæmdir höfðu verið í lífstíðarfangelsi fyrir tilræðin og setið inni í rúm sextán ár, var sleppt úr haldi á fimmtudag. Chris Mullin, blaðamaður og þingmaðúr fyrir Verkamannaflokk- inn, heldur því fram að hann hafi haft uppi á þeim sem raunverulega stóðu á bak við verknaðinn. Ritaði Mullin bók fyrir nokkru þar sem hann segist hafa tekið viðtal við einn tilræðismannanna. Hann seg- Bretland: Líkur á að nefskatt- urinn verði afnuminn ist ekki getað ljóstrað upp um heim- ildarmenn sína en segir lögregluna búa yfir sömu upplýsingum og hann sjálfur. Kenneth Baker, innanríkis- ráðherra Bretlands, sagði í viðtali við breska sjónvarpið, BBC, í gær að hann vonaði að lögreglan gæti haft gagn af þeim upplýsingum sem Mullin væri að tala um. Óháður aðili hefur verið fenginn til að meta þær miskabætur sem ber að greiða sexmenningunum fyr- ir þann tíma sem þeir sátu saklaus- ir í fangelsi. Telja breskir fjölmiðlar að hver og einn þeirra geti hugsan- lega fengið allt að milljón sterlings- punda, eða rúmar hundrað milljónir íslenskra króna, í sinn hlut. Reuter Hér sést ein af síðustu myndunum sem birst hefur opinberlega af Erich Honecker, fyrrum leiðtoga Austur-Þýskalands. Myndin var tekin 18. október á síðasta ári í skógarþykkni við sovéskt hersjúkra- hús þar sem Honecker dvaldist. Ari áður sagði Honecker af sér embætti. Ekki er vitað hver er með honum á myndinni. Fyrrum leiðtogi Austur-Þýskalands kominn til Moskvu: London. Reuter. FLEST bendir til þess að íhaldsstjórn John Majors í Bretlandi muni í næstu viku leggja fram tillögu um róttæka breytingu á lögum um nefskattinn svonefnda er kom í stað eignaskatts og hefur vald- ið hörðum deilum síðustu árin. Nefskatturinn er notaður til rekst- urs sveitarfélaga og hefur verið gagnrýndur fyrir að koma of hart niður á eigna-, og tekjulitlu fólki. Margaret Thatcher, fyrir- rennari Majors í embætti, varði nefskattinn með oddi og egg og ýmsir sljórnmálaskýrendur sögðu hann eina helstu ástæðuna fyrir því að stuðningur við Thatcher dvínaði hjá almenningi. Sovétmenn útiloka að Honecker snúi aftur Major sagði á fimmtudag að skammt væri í að lagðar yrðu fram nýjar tillögur um nefskattinn. Stjómmálaskýrendur segja líklegt að komið verði til móts við 60 dygga stuðningsmenn nefskattsins í röðum íhaldsþingmanna með því að láta skattinn fara að nokkru eftir fjölskyldustærð. Meginmark- mið nefskattsins var að sjá til þess að allir greiddu eitthvert framlag til þjónustu sveitarfélaga, ekki ein- göngu þeir sem skráðir eru fyrir eignum. Oft hefur komið til mótmælaða- gerða vegna nefskattsins og átaka við lögreglu. Fyrir skömmu beið frambjóðandi íhaldsflokksins herf- ilegan ósigur fyrir frambjóðanda Fijálslyndra demókrata í auka- kosningum í kjördæmi þar sem íhaldsmenn höfðu áður tryggan meirihluta. Þingkosningar verða í síðasta lagi í júní 1992 en Major hefur í valdi sínu að ákveða kjör- Bonn, Moskvu. Reuter. HANS-Dietrich Genscher, utanríkisráðherra Þýskalands, krafðist þess í gær að Sovétmenn afhentu Þjóðveijum Erich Honecker, fyrr- um leiðtoga Austur-Þýskalands. Honecker, sem er 78 ára gamall, var fluttur með leynd frá Þýskalandi til Moskvu sl. miðvikudag. Fengu þýsk stjórnvöld upplýsingar um brottflutning Honeckers ör- skammri stundu áður en hann lagði af stað. Segja sovésk stjórnvöld að hann eigi að gangast undir læknismeðferð í Sovétríkjunum og útiloka að hann verði sendur til baka. dag fyrr ef hann telur stöðu flokks síns sterka. Sjálfur nýtur hann meiri stuðnings almennings en dæmi eru til um breskan forsæt- isráðherra í 30 ár og er það þakk- að almennri ánægju með frammi- stöðu Breta í Persaflóastríðinu. Skoðanakönnun sem birt var í gær sýnir á hinn bóginn að Verkamann- aflokkurinn hefur nú ívið meira fylgi en íhaldsflokkurinn, 39% á móti 38%. Jafnframt vilja 90% kjósenda að horfið verði að ein- hveiju eða öllu leyti aftur til gamla eignaskattsins í stað nefskattsins. Neil Kinnock, leiðtogi Verka- mannaflokksins, sagði að tilraunin með nefskattinn hefði kostað ríkið sem svarar tíu milljörðum punda (rúmlega 1.000 milljörðum ÍSK). Ef svo dýr mistök hefðu verið gerð hjá venjulegu fyrirtæki myndu hin- ir ábyrgu „vera á leið í steininn," að sögn Kinnocks. „Við getum ekki og munum ekki sætta okkur við það sem gerst hef- ur í máli Honeckers. Ríkisstjórn Þýskalands væntir þess að Honeck- er verði færður aftur til Þýskalands umsvifalaust og afhentur þýskum stjórnvöldum," sagði Genscher á þýska Sambandsþinginu. Hann sagði flutningana vera brot á al- þjóðalögum og samningum milli Þýskalands og Sovétríkjanna. í Þýskalandi á Honecker m.a. yfir höfði sér manndrápsákæru vegna þeirra sem drepnir voru við flóttatilraunir frá Austur-Þýska- landi í stjórnartíð hans. Heilsufar hans hefur hingað til komið í veg fyrir að hann verði sóttur til saka. Klaus Kinkel, dómsmálaráðherra Þýskalands, segist því miður draga í efa að hægt verði að draga Honec- ker fyrir dómstóla úr þessu. Hann fordæmdi harðlega framferði Sov- étmanna og sagði flutning Honeck- ers vera „ótrúlegt athæfí“ í trássi við alþjóðalög. „Sáttmálar milli Sov- étríkjanna og Þýskalands eru ekki sáttmálar milli bananalýðvelda," sagði dómsmálaráðherrann. Alexander Bessmertnykh, ut- anríkisráðherra Sovétríkjanna, sagði í gær að haft hefði verið sam- ráð við þýsk stjórnvöld áður en Honecker var fluttur til Sovétríkj- anna. Talið er að þýsk stjórnvöld hafi verið látin vita um einni og hálfri klukkustund áður en Honecker lagði af stað. Að sögn Dieters Vog- els, talsmanns þýsku ríkisstjórnar- innar, fékk Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, fyrst vitneskju um flutninginn á miðvikudagsmorgun, rétt áður en hann átti að halda mikilvæga ræðu í Sambandsþing- inu. Hefur hann greinilega verið með hugann við málið því í umræð- um í þinginu þennan sama morgun ávarpaði hann stjómarandstöðu- þingmann sem Hr. Honecker. Vakti þetta almenna kátínu í þinginu en engar grunsemdir. Vogel sagði embættismenn hafa fundað stíft um málið eftir að skilaboðin bámst frá Sovétmönnum en ekki haft tök á því að stöðva brottför Honeckers. Talsmaður sovéska utanríkisráð- uneytisins viðurkenndi í gær að „strangt til tekið“ hefðu Sovétmenn brotið gegn fullveldi Þýskalands með því að færa Honecker úr landi. Sagði hann það vera útilokað að Honecker yrði sendur aftur til Þýskalands. Ymsir þýskir stjórnmálamenn létu að því liggja í samtölum við .Reufers-fréttastofuna í gær að Honecker hefði verið fluttur úr landi með samþykki þýskra stjórnvalda sem væru fegin að þurfa ekki að rétta í máli hans því það gæti ýft upp sár á þjóðarlíkamanum sem nú væru að gróa. Aukin samkeppni í breskri símaþjónustu St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunbladsins. Símaþjónusta í Bretlandi verður framvegis öllum fyrirtækjum opin, sem áhuga hafa, að því er Peter Lilley viðskiptaráðherra tilkynnti í neðri málstofu þingsins í síðustu viku. Breska símafyrirtækið (BT) var gert að hlutafélagi á síðasta áratug, en vegna einokunaraðstöðu sinnar á breska símamarkaðnum hefur það verið háð sérstöku verðlagseftirliti. Símafyrirtækinu Mercury var fyrir nokkrum árum veitt heimild til að sinna símaþjónustu. Þessi fyrirtæki hafa setið ein að markaðnum fram til þessa. Nú verður öllum fyrirtækjum heimilt að bjóða símaþjónustu nema sérstakar ástæður mæli gegn því. Markmiðið með þessari breytingu er að auka samkeppni í símaþjón- ustu neytendum til hagsbóta. Vitað er, að ýmis fyrirtæki hyggj- ast reyna að ná fótfestu á þessum markaði. Fyrirtæki, sem eiga kapal- kerfi með ljósleiðurum og hafa fram til þessa dreift sjónvarpsefni fyrst og fremst, geta hæglega veitt síma- þjónustu. í þessum breytingum felst, að notendur hafa fast númer en þeir eiga að geta valið um hjá hvaða fyrirtæki þeir hringja. Lilley tilkynnti jafnframt að verð fyrir símtöl hjá Breska símafyrir- tækinu myndi lækka. Fyrirtækið hefði fallist á, að verð þess hækkaði 6,25% minna en sem svarar verð- bólgu. Ef verðbólgan heldur áfram að lækka, eins og flestir búast við, verður BT að lækka verð frá því, sem nú er. Þingmenn íhaldsflokksins fögn- uðu þessari breytingu. Talsmaður Verkamannaflokksins sagði breyt- inguna einungis þjóna erlendum kapalfyrirtækjum, sem vildu komast inn á breskan símamarkað. Neyt- endur væru engu betur settir en áður. Reuter Fötum fækkað í þremur víddum Einn vinsælasti sjónvarpsþáttur í Þýskalandi, Tutti Frutti, tók á sig nýja mynd í gær. Þátturinn gengur út á að keppendur í sjónvarpssal reyna að fá föngulegar stúlkur til að fækka fötum. í gær var þátturinn sendur út í þrívídd í fyrsta sinn en einung- is þeir sem bera þartilgerð gleraugu geta notið þáttarins í þrem- ur víddum. A minni myndinni er stjómandi þáttanna, Hugo Egon Balder, tilbúinn í slaginn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.