Morgunblaðið - 16.03.1991, Page 18

Morgunblaðið - 16.03.1991, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARZ 1991 Þjóðarátak gegn hjartasjúkdómum eftirSigurð Helgason Ég hef nýlega heimsótt „amerísku hjartasamtökin“, en höfuðstöðvar þeirra eru í Dalias í Texas. Það er viðurkennd staðreynd að Bandaríkj- amenn standa fremstir allra þjóða í farsælum árangri í hjartaiækning- um. Aðrar þjóðir leita til þeirra um ieiðir til úrbóta og eru þeir mjög fúsir að miðla öðrum af þekkingu sinni. —, Athyglisvert er að þar í landi eru lagðar fram fyrir þjóðina blákaldar staðreyndir um hjartasjúkdóma. Jafnframt er lögð áhersla á það að standi þjóðin saman í sameiginlegu átaki gegn sjúkdómnum, er hægt að vinna stórkostlega sigra. Markmiðin Nauðsynlegt er að byggja starf- semina á skýrum stefnumálum. „Markmið amerísku hjartasam- takanna er að minnka fötlun eða dauða er orsakast af kransæðastíflu eða hjartaslagi.“ Til þess að ná árangri þurfa sam- tökin að taka þátt í þessum verkefn- um með fullum krafti: Efla rann- sóknir og afla tekna með margvís- legum ijáröflunarleiðum. Athyglis- vert er að enda þótt árangur í tekju- öflun sé orðinn frábær og stenst engan samanburð við önnur lönd, þá setja þau sér það markmið að auka tekjur um 7% milli ára og hef- ur tekist með góðum árangri. Alkunna er að þrjár meginskýr- ingar eru á því að kransæðastífla myndast í æðum og auknum hjarta- áföllum, þ.e. 1) hátt magn kólester- óls í blóði, 2) hár blóðþrýstingur og 3) reykingar. Sigurður Helgason „Það er aftur ljóst að alltof litlum fjármunum er varið til rannsókna og forvarnarstarfa, en til þess að ná veruleg- um árangri þarf sam- still þjóðarátak.“ Of mikið magn af kólesteróli er mjög algengt vandamál Öllum er nú ljóst, að samband er milli fæðisöflunar og kólesteróls. Feitt kjöt, mjólk og eggjarauða inni- halda mikið magn af kólesteróli. Hjartasamtökin bandarísku hafa því gengið fram fyrir skjöldu þar í landi að vara fólk við óhóflegri neyslu á mettaðri fitu. Komi í Ijós að viðkom- andi hafi of hátt kólesterólinnihald í blóði, þá er árangursríkasta ráðið að gjörbreyta um mataræði. Rann- sóknir eru gerðar með blóðprufum, sem tekur einhvern tíma að fá end- anlega niðurstöðu úr. Komið hafa fram ný tæki, sem gera slíkar rann- sóknir mjög aðgengilegar og er hægt að fá mælingar á nokki-um mínútum. Ný árangursrík lyf við hækkuðu kóíesteróli hafa komið á markaðinn, sem stórauka bjartsýni manna á því að hægt sé að ráða við þennan sjúkdóm í framtíðinni. Hár blóðþrýstingur mjög algengt vandamál - einkum hjá eldra fólki Með hækkuðum blóðþrýstingi eykst áreynsla hjartans við að dæla blóðinu, sem einnig eykur líkur á kransæðastíflu og hjartaslagi. Æðar líða fyrir háþrýstinginn og teygja minnkar. Mjög auðvelt er að mæla blóðþrýstinginn og ættu allir að láta fylgjast vel með sínum bóðþrýstingi og leita strax til sérfræðings, ef vart er við óeðlilega hækkun hans. Orsakir of hás blóðþrýstings liggja ekki alltaf ljósar fyrir, en nauðsyn- legt er að forðast salt. Mjög góð lyf eru gegn of háum blóðþrýstingi sem hafa gefist mjög vel. Her eru það læknar og sérfræðingar sem að sjálf- sögðu myndu ráða ferðinni um allar lækningar. Skaðsemi reykinga viðurkennd staðreynd Komið hefur í ljós að reykingar eru enn hættulegri, ef þeir tveir áhættuþættir hér fyrir framan eru einnig fyrir hendi. Árangur byggist á samstöðu Það er ljóst að amerísku hjarta- samtökin höfða beint til þjóðarinnar. Þau leggja spilin á borðið og draga ekki úr vandamálunum og benda á þá staðreynd að aðeins með öflugri samstöðu þjóðarinnar er hægt að ná árangri og sýnir reynslan að það hefur tekist og allar þjóðir heims hafa leitað til þeirra um leiðir til farsæls árangurs. Ég mun fljótlega birta aðra grein þar sem ég mun rekja mikla mögu- leika okkar íslendinga að ná langt í hjartalækningum og þá miklu þýð- ingu sem það gæti haft fyrir þjóð okkar. Við höfum á að skipa úrvals iæknum, frábæru hjúkrunarfólki, efnilegum vísindamönnum og ráðum yfir mikilli tækniþekkingu, sem allt mun stuðla að stórkostlegum ár- angri. Hér má heldur ekki gleyma að hér á landi hafa risið mjög öflug landssamtök hjartasjúklinga sem hafa sýnt frábæran árangur í marg- víslegri fjársöfnunum til heilbrigis- mála. Það er aftur ljóst að alltof litlum ijármunum er varið til rannsókna og forvarnarstarfa, en til þess að ná verulegum árangri þarf samstill þjóðarátak, en við höfum einmitt oft sýnt hversu við erum megnug í þess- um efnum og fengið verðskuldaða viðurkenningu fyrir. Höfundur er viðskipta- og lögfræðingur. Þróun Ríkisútvarpsins - Síðan grein: Á að láta útvarpið í fríði? eftir Siglaug Brynleifsson Haraldur Ólafsson dósent ritar grein í DV þann 7. janúar sl. og þakkar fyrir sig sem fyrrum starfs- maður Ríkisútvarpsins. Hann víkur að því að útvarpið og efnið sem þar var/er flutt hafí verið „málsvörn íslensku þjóðarinnar, yfirlýsing um að við vildum vera menningarþjóð með sjálfstæða tungu og sjálfstæð viðhorf..." Hér örlar á þessum réttlætingarsón, sem ýmsir íslend- ingar iðka og hafa iðkað. Þessi end- alausi samanburður við aðrar þjóðir og síðan er tíundað hversvegna Is- lendingar geti talist hlutgengir með- al annarra þjóða. Það er því líkast að réttlæta þurfi að íslendingar dragi andann. „Að vilja vera menn- ingarþjóð ...“ er svo sjálfsagt að það er óþarfi að tönnlast á þeirri staðreynd. Við erum menningar- þjóð, á meðan landsmenn tala óbjag- að mál og hugsa á íslensku. Og það hefur þjóðin verið í þúsund ár. Svo koma skriffinnar og fjasa um að það sé mikill vandi að vera íslend- ingur, se_m hljómar fremur undar- lega. H.Ó. ber fram þá kröfu að ríkisvald, þingmenn og ráðherrar þ.e. hið opinbera „láti Ríkisútvarpið í friði,“ þ.e. „forðist að vekja upp tortryggni gagnvart fréttaflutningi þess og starfsemi allri..Ríkisút- varpið er hluti hins opinbera, stofn- að af ríkisvaldinu og settar vissar reglur af þeim aðila og löngum hef- ur meginkrafan til þessa fjölmiðils verið hlutleysiskrafan og að stofn- unin gangi ekki erinda vissra pólití- skra afla eða stefna. í öllum réttar- farsríkjum er þetta meginkrafan til " / opinberra stofnana, þ.e. stofnana ríkisgeirans. Því fer því fjarri að opinberir aðilar megi alls ekki gera athugasemdir eða „rannsaka" frét- taflutning opinberrar stofnunar, ef viðkomandi telur sig hafa gild rök fyrir því að meginreglur um frétta- flutning og annað efni séu brotnar. Ríkisstofnanir eru að vissu leyti pólitískar stofnanir, þótt þeim sé ætlað að vera „sjálfstæðar" stofnan- ir innan ríkisgeirans. Pólitískar skoðanir og hugmyndafræði hlýtur alltaf að móta að einhveiju leyti þá einstaklinga sem sinna störfum við stofnunina. „Ef ríkisvaldið fer að „rannsaka“ fréttaflutning fjölmiðla, þá er skammt í það fyrirbæri sem ekki verður kallað annað en óbein ritskoðun." (H.Ó.) Óbein ritskoðun / Fréttaflutningur Ríkisútvarpsins á erlendum fréttum berst frá frétta- stofum og fréttariturum og frétta- stofa útvarpsins velur þær fréttir til útvarps, sem taldar eru þýðingar- mestar hveiju sinni. Óbein ritskoðun fréttaskeytanna fer því fram á frétt- astofu. Síðan koma til aðilar sem annast svonefndar fréttaskýringar. Þær skýringar geta verið meira og minna hlutdrægar og fer það eftir pólitískum skoðunum viðkomandi. Sú óbeina ritskoðun sem H.Ó. fjallar um hefst því í rauninni á fréttastof- unni. Þar eru fréttir valdar til út- varps og þær eru fjarri því að vera heilagar kýr sem eru hafnar yfir alla gagnrýni eða aðfinnslur. Bein ritskoðun í réttri merkingu orðsins er ekki iðkuð af ríkisvaldinu um fréttaflutning útvarpsins. Það er enginn rítskoðari ríkisvaldsins starf- Siglaugur Brynleifsson „Ríkisútvarpið er hluti hins opinbera, stofnað af ríkisvaldinu og sett- ar vissar reglur af þeim aðila og löngum hefur meginkrafan til þessa fjölmiðils verið hlut- leysiskrafan og að stofnunin gangi ekki erinda vissra pólitískra afla eða stefna.“ andi á fréttastofunni. Aftur á móti hefur gagmýni heyrst um frétta- flutning fréttastofu hljóðvarps Rík- isútvarpsins og einkum fréttaskýr- ingar sömu stofnunar. Mengun frét- taflutnings hljóðvarpsins af vissum pólitískum skoðunum og hugmynda- fræði var mjög áberandi í frétta- flutningi af byltingum í Austur-Evr- ópu haust og vetur 1989. Stundum virtist sem þessar byltingar væru einhverskonar feimnismál á frétta- stofu hljóðvarpsins, áherslur á þýð- ingu frétta erlendis frá á þeim tíma voru oft undarlegar, líkast sem reynt væri að draga sem mest úr þýðingu atburða, sem voru inntak alls fréttaflutnings innan vestrænna ríkja. Fréttaskýringar voru í sama dúr. Litaðar fréttir Sameining Þýskalands var helsta frétt sumarsins 1990 og aðdragandi þeirra atburða. Fréttaritarar Ríkis- útvarpsins í Þýskalandi virtust vera mjög andsnúnir Helmut Kohl kansl- ara, þegar hann hvatti sem mest til sameiningar þýsku ríkjanna. Lýs- ingar á viðbrögðum kanslarans við ýmis tækifæri voru honum heldur neikvæðar og ekki má gleyma frétt- unum af handtöku launmorðingja- hóps í Austur-Berlín, sem hafði ver- ið gerður út af stjórnendum fyrrver- andi alþýðulýðveldis. Þá var talað um „flóttafólkið" sem virtist hafa séð að sér og minnti helst á fyrir- brigðið „umbótasinnaða kommún- ista“. Það hvarflaði að mörgum hvort fréttamaður væri blaðafulltrúi rauðu herdeildanna. Svo hófst innrás íraka undir for- ustu Saddams Husseins í Kúveit 2. ágúst sl. og viðbrögð ríkisstjórna í Evrópu og Bandaríkjunum við þeim atburðum. í fréttum og fréttaskýr- ingum vestrænna ijölmiðla kvað við svipaðan tón hvað varðar mat á ógnarstjórn Saddams Husseins í eigin ríki. Einhvern fyrstu dagana eftir innrásina var flutt fréttaskýr- ing um atburðina í íslenska hljóð- varpinu og úr þeirri samantekt er minnisstæð ein setning, sem hljóð- aði svo „Saddam Hussein er maður alþýðunnar“. Tilburðir til þess að ágæta þennan dýrðarmann hjöðn- uðu þegar á leið, en áherslur í frétta- flutningi hljóðvarpsins voru þess eðlis að svo virtist sem tunguna klæjaði eftir því að geta stutt Sadd- am í stríðinu við eigin þjóð og allan heiminn. Frétt sem höfð var eftir vísindamönnum um afleiðingar væntanlegs bruna olíulinda í Kúveit voru endurteknar þrisvar eða fjórum sinnum. Samkvæmt kenningum til- vitnaðra vísindamanna átti sá bruni að menga allan lofthjúp jarðar. Endurtekningarnar hættu eftir að viðtal var haft í sjónvarpi við íslen- skan veðurfræðing, sem hrakti þessa Grýlu á hógværan hátt með einföldum staðreyndum. Það er leiðinlegt til þess að vita að fréttastofa hljóðvarpsins skuli vera höll undir allskonar pólitískt illþýði, eins og hún var byltingaárið 1989 og virðist eiga erfitt með að vera ekki í sambandi við Saddam Hussein og stuðningslið hans. Þessir tilburðir til að halla réttu máli og leggja stund á hálfsannleika eru sannarlega ekki til þess fallnir að „útvarpið sé látið í friði“. Eins og kunnugt er geta vel menntaðir starfskraftar fjölmiðlastofnana veitt góða fréttaþjónustu, en lítt mennt- aðir starfskraftar geta einnig ein- hæft fréttaþjónustuna við pólitíska hugmyndafræði, sem virðist vera orðin að einhverskonar sterkju í heilabúinu. Höfundur er rithöfundur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.