Morgunblaðið - 16.03.1991, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARZ 1991
27
Frumvörp um umhverfismál:
Villtir refir verði frið-
aðir á tilteknum stöðum
VERÐI frumvarp ramtnalaga um verndun villtra landspendýra, sem
Júlíus Sólnes umhverfisráðherra lagði fram á rikisstjórnarfundi á
mánudag, að lögum, kemur refurinn til með að njóta verndunar að
vissu leyti og verða friðaður á tilteknum svæðum. í gildandi lögum
frá síðustu öld ber að útrýma ref.
Auk frumvarpsins um verndun að gagnger endurskoðun hefði verið
villtra landspendýra lagði Júlíus
fram nýtt frumvarp um almenn
dýraverndunarlög, frumvarp um
byggingar- og skipulagslög og lét
einnig fylgja með lög um umhverfis-
vemd og umhverfisverndarstofnun,
sem kynnt vom í ríkisstjórn í síð-
ustu viku. Hann sagðist gera ráð
fyrir að fmmvörpin yrðu ekki af-
greidd fyrr en á næsta þingi.
Júlíus sagði við Morgunblaðið
látin fara fram á frumvarpi um
byggingar- og skipulagslög, sem
var í gangi í fyrravetur, og það
lagað verulega.
Hann sagði að í rammalögunum
um verndun villtra landspendýra
væri í fyrsta sinn tekið í heild á
öllum spendýmm á landi, frá nag-
dýmm upp í hreindýr. Hann benti
á nýmæli hvað refinn varðaði.
Samkvæmt lögum frá síðustu öld
Ráðstefna haldin
um íslenska tónlist
SAMTÖK höfunda, flytjenda og mundssonar héraðsdómslögmanns.
hljómplötuframleiðenda munu Á milli erinda mun verða flutt
nk. sunnudag, 17. mars, kl. 14.00 íslensk tónlist með íslenskum tón-
halda ráðstefnu í húsakynnum listarmönnum.
FÍH í Rauðagerði 27,^ Reykjavík,
undir yfirskriftinni: íslensk tón-
list í vaskinn.
Á fundinum halda Svavar Gests-
son menntamálaráðherra og Ólafur
Ragnar Grímsson fjármálaráðherra
erindi. Ennfremur mun Jakob
Magnússon ávarpa fundinn.
Panelumræður verða að loknum
framangreindum erindum með
þátttöku menntamálaráðherra og
fjármálaráðherra auk Eiríks Tóm-
assonar framkvæmdastjóra STEFs,
Steinars B. ísleifssonar fram-
kvæmdastjóra Steina hf. og for-
manns Sanbands hljómplötufram-
leiðenda, Magnúsar Kjartanssonar
formanns Félags tónskálda og
textahöfunda og Gunnars Guð-
bæri að útrýma ref, en samkvæmt
frumvarpinu, sem væri í anda
skýrslu Sameinuðu þjóðanna um
umhverfismál, nyti hann „vernd-
unar“ og yrði friðaður á vissum
landsvæðum eins og Hornströnd-
um. „Það er engin ástæða til að
útrýma ref og frekar þarf að
ijjölga honum á vissum landsvséð-
um þó ekki væri nema til að halda
svartfugli niðri,“ sagði ráðherra.
Frumhugtakið væri að vernda
skuli alla dýrastofna, en innan
þeirra marka, sem náttúran setur.
í frumvarpinu eru skýrar regl-
ur um veiðar, sett lagaákvæði um
hvaða tæki eru heimiluð til veiða
og hvernig megi standa að veiðum
á villtum dýrum. Fylgt er ákvæð-
um Bernarsamningsins, samningi
Evrópuráðsins um verndun villtra
dýra, og margar drápsaðferðir
bannaðar eins og að svæla ref úr
grenjum og elta dýr uppi á vélkn-
únum ökutækjum.
Ráðherra sagði að um verulegar
breytingar væri að ræða á stjórn
hreindýramálefna og veiðar, eftirlit
og rannsóknir á stofninum teknar
nýjum og fastari tökum.
Leikmannastefna
þj óðkirkjunnar
BISKUP íslands boðar til leikmannastefnu þjóðkirkjunnar 1991 og
verður hún haldin í safnaðarheimili Dómkirkjunnar í Reykjavík 16.
og 17. mars.
Meðal efnis sem leikmannastefn-
an Qallar um eru ný lög um húsa-
friðun sem snerta varðveislu og
endurbætur á kirkjum. Þá verður
kynnt hugmynd um vinasöfnuði,
það er að segja samband íslenskra
safnaða við kristna söfnuði í þriðja
heiminum. Fjallað verður um rétt-
indi og skyldur starfsmanna safnað-
anna og um athvarf barna og ungl-
inga í safnaðarheimilum.
Á leikmannastefnu eiga sæti
tveir fulltrúar úr hveiju hinna sext-
án prófastdæma landsins ásamt
fulltrúum frá landssamtökum krist-
ilegra félaga. Leikmannastefnu lýk-
ur með messu í Dómkirkjunni á
sunnudag kl. 14.
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Hitoshi Mogi át, þefaði og grandskoðaði hrognin með honum á
myndinni er eftirlitsmaður frá sölumiðstöðinni.
Bolungarvík;
Tíu þús. lestum
af loðnu landað
^ Bolungarvík.
Á ÞESSARI lélegustu loðnuvertíð allra tíma hefur Ioðnuverk-
smiðja Einars Guðfinnssonar hf. á Bolungarvík tekið á móti um
10 þús lestum af loðnu til bræðslu. Hafin var hrognataka 27. febrú-
ar og má ætla að takist að ná um 150 lestum af hrognum. Loðnu-
skip Bolvíkinga, Júpiter, er nú að landa siðasta farmi sínum á
vertíðinni.
Að sögn Elíasar Jónatanssonar
verkfræðings hjá Einari Guðfinns-
syni hf. hefur hrognavinnslan
gengið ágætlega, ekki síst vegna
þess að á síðasta ári var farið í
jarðboranir til að ná í hreinan og
ómengaðan sjó til notkunar við
löndunarbúnaðinn og er vandamál
við sjótöku ekki lengur til staðar
hér.
Elías sagðist gera ráð fyrir að
loðnuverksmiðjan hefði nú hráefni
til 7 til 8 sólarhringa vinnslu, en
vinnu við hrognin lyki nú um helg-
ina.
Þessa dagana er staddur hér
fulltrúi frá japanska fyrirtækinu
Tokyo Maruichi Shoji Co. Ltd., sem
er einn stærsti loðnuhrognainn-
flytjandi í Japan, það fyrirtæki er
tilbúið að kaupa allt að 1.500 lest-
um af loðnuhrognum en hefur ein-
ungis náð um 500 lestum upp í
þann samning. Þessi loðnuhrota
hefur verið bolvísku atvinnulífí
kærkomin þó stutt hafi verið. Afli
línubáta hefur verið sæmilegur og
togskipið Heiðrún kom inn í síð-
ustu viku með um 120 lesta afla
eða því sem næst fullfermi, veru-
legur hluti aflans var ufsi.
Togskipið Dagrún hefur verið í
slipp þar sem gera þurfti lagfær-
ingar á skrúfu skipsins, en skipið
fór til veiða um sl. helgi. Smábáta-
eigendur eru þegar famir að hugsa
sér til hreyfings enda hefur hér
ríkt einmuna tíð, snjólaust í byggð
og blíðuveður dag eftir dag.
- Gunnar.
Willy’s-jeppinn, sem er í eigu
Þjóðminjasafnsins, og verður
meðal sýningargripanna hjá
Jöfri.
Jeppasýning;
50 ár síðan
jeppinn
leysti hest-
inn af hólmi
JÖFUR h/f heldur sýningpi að
Nýbýlavegi 2 um hclgina í tilefni
þess að „fimmtíu ár eru liðin síðan
jeppinn leysti hestinn af hólmi og
opnaði íslendingum nýjar víddir í
ferðamáta," eins og segir í frétta-
tilkynningu Jöfurs.
Syndir verða nýjustu árgerðir af
Jeep Cherokee og Jeep Wrangler,
ásamt gömlum Willy’s jeppum. „I
heiðurssæti á sýningunni verður
jeppi frá Þjóðminjasafni íslands, sem
áður var í eigu Kristjáns Eldjárns,“
segir í fréttatilkynningu.
Ef veður leyfir munu félagar úr
Fombílaklúbbi Reykjavíkur aka
fylktu liði nokkra hringi um Reykja-
vík og nágrenni. Lagt verður upp frá
sýningarsal Jöfurs, Nýbýlavegi 2
klukkan 13.30, en þar verður sýning-
in opin milli 13 og 17 laugardag og
sunnudag.
Sýning í dag kl. 13-17
HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, S-689900
HONDA
HondaAccord 1991 EX
Margfaldur verðlaunabíll,
fullbúinn öllum þægindum
á ótrúlega hagstæðu verði
Greiðsluskilmálar við allra hæfi,
t.d. 25% útborgun og mismunurinn
lánaður í allt að 36 mánuði
á bankakjörum. Við tökum góða,
notaða bíla upp í nýja
og lánum jafnvel mismuninn.
Verð frá aðeins kr. 1.360.000,- stgr.