Morgunblaðið - 16.03.1991, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 16.03.1991, Blaðsíða 36
36__________________________________MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARZ 1991 Akæra í Avöxtunarmálinu: Arsreikningur markleysa, blekk- ingum beitt til að afla viðskipta í ÁKÆRUSKJALI því sem gefið út á hendur Pétri Björnssyni, Ár- manni Reynissyni, Reyni Ragnarssyni og Hrafni Bachmann vegna þeirra mála sem kennd hafa verið við Ávöxtun eru þeir Ármann og Pétur ákærðir samkvæmt aimennum hegningarlögum fyrir fjársvik, fjár- drátt, skjalafals, bókhaldsbrot, skilasvik og umboðssvik samkvæmt al- mennum hegningarlögum, auk brota á lögum um sparisjóði, viðskipta- banka, verðbréfamiðlun, hlutafélög, bókhald, verðlag samkeppnishöml- ur og óréttmæta viðskiptahætti. Reynir Ragnarsson, löggiltur endur- skoðandi, er ákærður fyrir rangfærslu skjala og brot í opinberri sýsl- an, samkvæmt almennum hegningarlögum og fyrir brot á lögum um löggilta endurskoðendur og hlutafélög. Hrafn Bachmann er í einum kafla ákærður ásamt Pétri og Reyni fyrir fjársvik. Þau brot er tilgreind eru í hinum níu köflum ákærunnar varða hundr- uð milljón króna hagsmuni. Meðal annars telur ákæruvaldið að árs- reikningur Ávöxtunar sf og verð- bréfasjóðs Ávöxtunar hf fyrir árið 1987 hafí verið markleysa ein, til . þess fallin að villa um fyrir bankaeft- irliti Seðlabanka, viðskigtamönnum og almenningi. Pétur og Ármann eru taldir hafa lokkað almenning til við- skipta við fyrirtæki sín með villandi auglýsingum þar sem gefin hafí ver- ið loforð um háa ávöxtun sem ekki vhafi stuðst við viðhlítandi útreikn- inga. Þá er tiltekinn fjöldi dæma þar sem Ármann og Pétur hafi hagnýtt sér og fyrirtækjum sínum fé verð- bréfasjóða Ávöxtunar, auk þess sem þeir stundað ólögmæta innlánastarf- semi með ávöxtunarsamningum. Loforð um háa ávöxtun studdust ekki við nákvæma útreikninga í ákæru ríkissaksóknarara er Ár- manni Reynissyni og Pétri Bjöms- syni meðal annars gefið að sök að hafa lokkað almenning með blekk- ingum til viðskipta við fyrirtæki sín, Ávöxtun sf, Verðbréfasjóð Ávöxtun- ar hf og Rekstrarsjóð Avöxtunar hf, með auglýsingum í Morgunblaðinu á árinu 1987 og til 1. september 1988. Þar hafí ávöxtun ávöxtunar- bréfa hafí verið kynnt með heilu eða broti úr prósenti og gengi þeirra með fjórum aukastöfum. Þrátt fyrir að viðskiptamenn hafí mátt ætla af þessu að bak við gengistöflumar lægju nákvæmir og traustir útreikn- ingar hafí hinir ákærðu engin viðhlít- andi gögn haft til að auglýsa og birta slíka útreikninga. Pétri og Ármanni er ásamt Reyni Ragnarssyni löggiltum endurskoð- anda gefíð að sök að hafa rangfært reikningsskil Ávöxtunar sf árið 1987 þannig að ársreikningur félagsins hafí þá verið markleysa ein og til þess fallinn að villa um fyrir Banka- eftirliti Seðlabanka íslands, viðskipt- amönnum félagsins og almenningi um efnahag og rekstrarafkomu Ávöxtunar. Þetta hafí verið gert með því að að ofmeta eignir félagsins þannig að verðmæti þeirra var bók- fært 139,2 milljónir króna en að áliti skiptastjóra var verðmæti þeirra áætlað 35 milljónir króna. Nefnd eru í ákæranni dæmi um ofmat eigna upp á 65,9 milljónir og einnig um ofmat tekna í rekstrarreikningi upp á 26,7 milljónir króna. Endurskoð- andanum er gefið að sök að hafa sjálfur rangfært til tekna ug einga ákveðna liði og að hafa að aflokinni endurskoðun áritað ársreikning árs- ins 1987 fullri og fyrirvaralausri endurskoðunaráritun, án þess að hafa tekið óháða afstöðu eða aflað sér sjálfstæðra upplýsinga um verð- mæti krafna. Eignir og tekjur ofmetnar í ársreikningum Pétri og Ármanni ásamt Reyni Ragnarssyni löggiltum endurskoð- anda er gefíð að sök að hafa í sam- einingu staðið að gerð viljandi árs- reiknings Verðbréfasjóðs Ávöxtunar hf fyriri árið 1987 með því að of- meta stórlega kröfueign og leyna skuldastöðu Péturs og Ármanns og aðila þeim tengdra og nákominna við hlutafélagið. Heildareignir sjóðs- ins í efnahagsreikningi hafí verið taldar um 253 milljónir króna en að áliti skilanefndar sjóðsins hafi því sem næst 40% þess, rúmar 100 millj- ónir króna, verið í óinnheimtanlegum kröfum. Ekki hafí verið gætt lögboð- inna eða viðurkenndra reikkings- skilaaðferða og reikningsskil sjóðs- ins hafí verið til þess fallin að villa um fyrir Bankaeftirliti Seðlabank- ans, viðskiptamönnum sjóðsins og almenningi um efnahag hans og afkomu. Illa tryggðar kröfur Ýmsar stærstu kröfur félagsins hafi lítt eða ekki verið tryggðar ásamt því að skuldarar hafi verið í veikri fjárhagsstöðu enda brátt gjaldþrota en engu að síður hafi verðmæti krafnanna ekki veirð met- ið einstaklingsbundið en talið nægi- legd; að leggja til hiiðar til afskrifta allt of lágar fjárhæðir. Þa hafi endur- skoðandinn áritað ársreikninginn fyrir árið 1987 án nokkurs fyrirvara varðandi tekju- og gjaldauppgjör og án óháðrar afstöðu á verðmæti kröfueignarinnar. 81,5 milljón með ólöglegum ávöxtunarsamningum Þeim Pétri Björnssyni og Ármanni Reynissyni er gefið að sök að hafa samfellt frá stofnun Ávöxtunar 1983 og til 16. september 1986, en þann dag varð Pétur löggiltur verðbréfa- miðlari, aflað Ávöxtun fjár með því að taka við frá almenningi fé til ávöxtunar og geymsiu samkvæmt svokölluðum ávöxtunarsamningum andstætt ákvæðum laga um spari- sjóði og viðskiptabanka. í lok ársins 1983 hafí þetta fé numið tæplega 6,8 milljónum en í september 1986 ekki minna en 55 milljónum króna. Þá er þeim gefið að sök að hafa eftir að Pétur varð verðbréfamiðlari og Ármann þannig háður skyldum verðbréfamiðlara rekið starfsemi Ávöxtunar sf í óbreyttu formi og hafí frá 16. september 1986 þar til í ágúst 1988 gert 201 ávöxtunar- samning að fjárhæað rúmar 49 millj- ónir króna, þar af 35 samninga við nýja viðskiptamenn að fjárhæð rúm- ar 18,5 milljónir króna. Þessu fé hafí þeir tekið við sem verðbréfamiðlarar og hafí verið skylt að halda því ásamt kröfum sem kaupa átti fyrir hvern einstakan við- skiptamann sérgreindum á hans nafni, samkvæmt lögum um verð- bréfamiðlum. Hins vegar hafí allt féð verið haft í einum sjóði.í árslok hafí innlög samkvæmt ólöglegum ávöxtunarsamningum numið með vöxtum og verðbótum um 81,5 millj- ónum króna. 52,7 milljóna ótryggð skuld Armanns og Péturs við verðbréfasjóðina í ákæranni er rakið í sjö liðum hvernig Pétur og Ármann hafí í ávinningsskyni sem einkaeigendur og forstöðumenn Ávöxtunar sf, sem annast hafi rekstur Verðbréfasjóðs og Rekstrarsjóðs Ávöxtunar frá upp- hafi og til loka, notað verulegan hluta af fjármunum sjóðanna í þágu fyrirtækja sem þeir áttu að hluta eða öllu leyti í andstöðu við lög um verðbréfamiðlun, yfírlýst .markmið sjóðanna og samþykktir stjórna þeirra. Þannig hafí þeim sem keypt hafí hlutdeildarbréf í sjóðunum verið valdið fjártjóni eða veralegri hættu á slíku tjóni. Hinn 7. september 1988, er starfsemi sjóðanna var slit- ið, hafí skuld Ávöxtunar við Verð- bréfasjóðinn á opnum viðskipta- reikningi án nokkurrar veðtrygging- ar numið 52,7 milljónum króna. Að auki era tilgreind dæmi 10 dæmi, sem alls varða um 34 milljónir króna, þar sem veralegum hluta fjármuna sjóðanna hafí verið varið í þágu fyr- irtækja tvímenninganna; Hjartar Níelsen hf, Hughönnunar hf, Kjöt- miðstöðvarinnar hf, Ávöxtunar sf og Ragnarsbakarís í Keflavík. Ávöxtun keypti viðskiptavíxla í vanskilum af fyrirtæki Péturs Þá er Pétur ákærður sérstaklega fyrir að hafa hagnýtt sér og fyrir- tækjum sem hann átti að hluta eða öllu leyti, íslenskum Matvælum h/f, Isleið hf og versluninni Karakter, rúmlega 17,1 milljón króna úr verð- bréfasjóðum Ávöxtunar. Hann hafí meðal annars látið sjóðina kaupa viðskiptavíxla og hafí látið bóka við- skiptavíxla ísleiðar sem vora í van- skilum á viðskiptareikning hjá sjóðn- um. Pétur Bjömsson og Ármann Reynisson era ákærðir fyrir að hafa tekið undir sig 1.200 þúsund króna söluandvirði hlutafélagsins Hug- hönnunar, sem þeir áttu að 62 hundraðshlutum og höfðu prókúra fyrir, og ráðstafað í eigin þarfír enda þótt þeim hljóti að hafa verið Ijóst Hæstiréttur: Héraðsdómur um gildi breyttr- ar lánskjaravísitölu staðfestur HÉR FER á eftir dómur Hæstaréttar frá 11. mars í máli Árna Árna- sonar gegn Samvinnusjóði Islands og til réttargæslu viðskiptaráð- herra og Seðlabanka íslands en þar var tekist á um gildi breytinga ^*sem gerðar voru á grunni lánskjaravísitölu gagnvart eldri fjárskuld- bindingum. Mál þetta dæma hæstaréttardóm- aramir Guðrún Erlendsdóttir, Har- aldur Henrysson, Hrafn Bragason og Þór Vilhjálmsson og Gunnar M. Guðmundsson settur dómari. Áfrýjandi skaut máli þessu til Hæstaréttar 5. febrúar 1990, en hinn 26. janúar hafði hann fengið áfrýjunarleyfí frá dómsmálaráð- herra skv. 2. mgr. 13. gr. laga nr. 75/1973 um Hæstarétt íslands. Dómkröfur hans era, að stefndi verði dæmdur til að greiða honum 931,23 krónur með 21,6% ársvöxtum frá 17. febrúar 1989 tii 28 s.m., en með dráttarvöxtum skv. 10. gr. sbr. 14. gr. og 12. gr. vaxtalaga nr. 25/1987 frá þeim degi til greiðsludags. Þá krefst áfrýjandi málskostnaðar fyrir báðum dómum. Hann gerir ekki kröfur á hendur réttargæslustefndu. Stefndi, Samvinnusjóður Islands hf., krefst staðfestingar héraðsdóms og málskostnaðar fyrir Hæstarétti. Báðir réttargæslustefndu krefjast málskostnaðar fyrir Hæstarétti. Hér fyrir dómi byggði áfrýjandi á sömu málsástæðum og lagarökum og í héraði en áherslur vora þó, að því er ætla verður, nokkuð breyttar. Fyrir Hæstarétti var því haldið fram af hálfu áfrýjanda í fyrsta lagi, að reglugerð nr. 18/1989 um lán- skjaravísitölu til verðtryggingar sparifjár og lánsfjár sem viðskipta- ráðherra setti, sé ógild vegna vald- þurrðar. Er bent á, að 2. mgr. 39. gr. laga nr. 13/1979 um stjórn efna- hagsmála o.fl. segir: „Seðlabankinn skal birta vísitölur, sem heimilt er að miða verðrryggingu sparifjár og lánsfjár við, ásamt vaxtakjörum." Ennfremur var bent á 1. mgr. 36. gr. sömu laga í þessu sambandi, en í því ákvæði segir: „Seðlabanki íslands skal hafa umsjón með framkvæmd ákvæða þessa kafla. Hann veitir heimildir til verðtryggingar, nema hún sé heimi- luð sérstaklega í lögum.“ Eins og í héraðsdómi greinir var við hinn umdeilda útreikning hjá stefnda Samvinnusjóði Islands hf. farið éftir reglum í auglýsingu nr. 19/1989 um grundvöll lánskjaravísi- tölu til verðtryggingar sparifjár og lánsfjár. Þessi auglýsing var gefín út af Seðlabankanum, en staðfest af viðskiptaráðuneytinu. Fyrsta málsgrein auglýsingarinnar er þann- ig: „Með heimild í 39. gr. laga nr. 13 frá 10. apríl 1979 um stjóm efna- hagsmála o.fl., svo og í reglugerð viðskiptaráðuneytisins nr. 18/1989, um lánskjaravísitölu til verðtrygg- ingar sparifjár og lánsfjár hefur Seðlabanki íslands ákveðið að grandvöllur lánskjaravísitölunnar sbr. auglýsingu bankans frá 26. ágúst 1983, verði frá og með 1. jan- úar 1989 að 'h hluta vísitala fram- færslukostnaðar skv. lögum nr. 5 frá 22. mars 1984, að 'h hluta vísitala byggingarkostnaðar skv. lögum nr. 42 frá 30. mars 1987 og að 'h hluta launavísitala, sem Hagstofa íslands reiknar og birtir mánaðarlega, sbr. lög nr. 63/1985, þar til sett hafa verið sérstök lög um launavísitölu." Ákvörðun sú, sem birt var með auglýsingu nr. 19/1989 var tekin af Seðlabankanum og uppfyllti laga- kröfur um slíkar ákvarðanir. Eru ekki efni til að fjalla í þessu máli um valdmörk bankans og annarra stjórnvalda eða reglugerð nr.18/1989. Verða kröfur áfrýjanda ekki teknar til greina á þeim grund- velli, að viðskiptaráðherra hafi bros- tið vald til að setja reglugerð nr. 18/1989. Þá eru kröfur áfrýjanda á því reistar að bein viðmiðun lánskjara- vísitölu við laun sé óheimil eftir 7. kafla laga nr. 13/1979. í 34. gr. laga nr. 13/1979, en hún er í 7. kafla þeirra, segir: „Stefna skal að því að verðtryggja sparifé landsmanna og almannasjóða. I því skyni er heimilt, eins og nánar grein- ir í þessum kafla, að mynda spari- að taka fjárins mundi leiða tii gjald- þrots Hughönnunar. Tilkynntu um innborgun 11,1 milljóna hlutafjár sem aldrei var greitt í apríl 1988 tilkynntu Pétur og Ármann til hlutafélagaskrár um stofnun hlutafélagsins Brauðgerðar Suðurnesja í Keflavík. Hlutafé væri 11,1 milljón krona og allt greitt. Á grandvelli tilkynningarinnar og meðfylgjandi gagna var félagið skrásett sem hlutafélag. Síðar kom í ljós að ekkert hlutafé hafði verið innborgað. Fyrir þetta era Pétur opg Ármann saksóttir þar sem þeir hafi unnið til refsingar fyrir brot á hluta- félagalögum. Seldu kaupleigutæki Ásamt Pétri Björnssyni og Ár- manni Reynissyni er Hrafn Bac- hmann, sem sat með þeim í stjórn Kjötmiðstöðvarinnar hf, ákærður fyrir fjársvik við sölu muna Veitinga- mannsins, sem var deild í Kjötmið- stöðinni og var selt 29. mars 1988. Hluti kaupsamnings var áhaldalisti yfír seld tæki. Meðal þess er þar greinir era munir sem Kjötmiðstöðin hafði fengið samkvæmt kaupleigu- kjöram frá Glitni hf, samtals að verðmæti rúmar 2,5 milljónir króna. Þeim er gefíð að sök að hafa leynt kaupendur því að Kjörmiðstöðin hafði ekki eignarrétt á þessum mun- um og með því bakað þeim verulegt tjón. Faldi málverkin Loks er Ármanni Reynissyni ákærður fyrir skilasvik með því að hafa fjarlægt af heimili sínu þann 5. september 1988, þegar honum hafi ekki getað dulist yfirvofandi ' gjaldþrot sitt, 37 myndir sem metn- ar eru á 1,5 - 1,75 milljónir króna. Hann hafí komið myndunum í geymslu og leynt þeim uns bústjóri þrotabús hans hafí í desember 1988 fengið vitneskju um myndimar. Þetta hafí hann gert í því skyni að skjóta þeim undan búsmeðferð þann- ig að kröfuhöfum hans nýttist ekki verðmæti þeirra. Myndirnar era tald- ar upp í ákæru og þar er meðal annars að fínna myndir eftir Gunnar Öm, Hafstein Austmann, Þorbjörgu Höskuldsdóttur, Karólínu Lárusdótt- ur, Valtý Pétursson, Karl Kvaran, Ágúst Petersen, Jóhannes Jóhannes- son, Kristján Davíðsson og Þorvald Skúlason. Ákæravaldið krefst þess að allir hinir ákærðu verði dæmdir til refs- ingar, að Reynir Ragnarsson verði sviptur leyfí til löggildingar endur- skoðunarstarfa og að Pétur Björns- son verði sviptur leyfí til verðbréfa- miðlunar auk greiðslu sakarkostnað- ar og skaðabóta komi slíkar kröfur fram í málinu. fjárreikninga og stofna til lánsvið- skipta í íslenskum krónum eða öðr- um verðmæli með ákvæðum þess efnis, að greiðslur, þar með taldir vextir, skuli breytast í hlutfalli við verðvísitölu eða gengi erlends gjald- eyris, sbr. 39. gr.“ I 2. mgr. 36. gr. sömu laga seg- ir: „Reglur um verðtryggingu skulu einkum við það miðaðar að tryggja allt sparifé, sem bundið er til þriggja mánaða eða lengur, gegn verðrýrnun af völdum verðhækkana." Við skýringu á þessum laga- ákvæðum ber að hafa í huga, að löggjafinn felur með þessu stjórn- völdum að ákveða hvernig verð- tryggingu er fyrir komið og að orðin „verðvísitala" og „verðtiygging" verða ekki skýrð svo að þau banni að vísitala launa sé hluti lánskjara- vísitölu. Verða kröfur áfrýjanda því ekki teknar til greina á grandvelli þessa atriðis. / í þriðja lagi hefur áfrýjandi haldið því fram, að launavísitala sú, sem notast var við þegar gerðir voru útreikningar á grandvelli auglýs- ingar nr. 19/1989, hafí ekki verið opinber skráð vísitala svo sem þurft hafi að vera eftir 4. tölulið a i 1. mgr. 39. gr. laga nr. 13/1979. Eins og í héraðsdómi segir var vísitala launa samkvæmt lögum nr. 63/1985 um greiðslujöfnun fast- eignaveðlána til einstaklinga reiknuð og birt af Hagstofu íslands og verð- ur krafa áfrýjanda ekki tekin til greina á grundvelli þessarar málsá- stæðu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.