Morgunblaðið - 16.03.1991, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 16.03.1991, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARZ 1991 47 Ketill Vilhjálmsson, fyrrverandi bóndi í Meiritungu, Holtum, Rang- árvallasýslu, lést á Sjúkrahúsi Suð- urlands þann 7. mars sl. Ketill var fæddur í Meiritungu þann 15. febr- úar 1905. Hann var sonur hjónanna Vilhjálms Þorsteinssonar frá Beru- stöðum og Vigdísar Gísladóttur frá Kotvogi í Höfnum. Ketill var barn foreldra . sinna, úr stórum systkinahóp. Bömin voru 15, en til ára komust 11, fimm bræður og sex systur. Ketill var elstur bræðra sinna og lést síðastur þeirra. Ketill Vilhjálmsson kvæntist yndislegri konu, Þórhöllu Ólafs- dóttur, frá Götu í Holtahreppi, dótt- ur Ólafs Sigurðssonar bónda þar. Segja má að hjónaband þeirra Ket- ils og Þórhöilu hafi alla tíð verið á þann veg að þau _sáu vart sólina hvort fyrir öðru. Ástúð og gagn- kvæm tillitssemi einkenndi þeirra hjónaband. Þau kvæntust fullorðið fólk, þroskað fólk, sem þekkti lífíð og tilveruna. Þar var enginn vafi á ferðum, heldur traust og ást, sem entist meðan bæði lifðu. Ketill og Þórhalla eignuðust ekki börn saman, en þau eignuðust sól- argeisla í sambúð sinni, sem var Jona Steinunn Sveinsdóttir, systur- dóttir Þórhöllu. Þau tóku hana til fósturs mjög unga og eftir það varð hún þeim allt. Fósturdóttirin eignaðist sambýlismann, Gísla Magnússon, sem varð þeim Katli og Þórhöllu sem klettur í hafinu. Jona Steinunn og Gísli eiga eftir- talin börn: Þórhalla Guðrún fædd 1964, Ketill fæddur 1967, Sigríður Ólafía fædd 1968, Guðbjörg fædd 1972, Árbjörg Anna fædd 1973 og Guðríður fædd 1980. Öll hafa þessi börn verið þeim Katli og Þórhöllu sem sólargeislar hvern dag. Berustaðaættin er orðin fjöl- menn um Suðurland og víðar. Það sama má segja um Kotvogsættina. Ketill í Meiritungu var einn af þess- um meiðum og ævinlega sómi síns fólks. Ungir að árum fóru þeir Meiri- tungubræður til sjós, á vertíðar. Kapp þeirra og dugnaður var mik- ill og ekki veitti af, því fjölskyldan var stór. Ketill lét sig ekki eftir sitja. Á sumrin var hann vegaverk- stjóri hjá Erlendi á Hárlaugsstöðum við vegagerð og vann einnig mikið að stíflugerð við Þverá, þegar hún var að eyða gróðurlendi á stóru svæði. í Meiritungu voru jafnan 3 til 4 bændur og fjölskyldurnar f 31- mennar. Með öllu þessu fólki var einstakt bræðralag, tryggð og gagnkvæm hjálpsemi. Katli Vil- hjálmssyni var það mikils virði að svona bragur væri þarna ríkjandi. Þar sem fólk er þannig, að aðals- merki þess er hógværð, hjálpsemi og geðprýði, þar líður öllum vel. Eins og áður er sagt var oft mannmargt í austurbænum í Meiri- tungu. Sumardvalarbörnin voru oft mörg og það hefur skeð að þrír ættliðir dveldu þar, hver fram af öðrum. Þetta var engin tilviljun, því Ketill og Þórhalla voru einstak- ar barnagælur og höfðu einstak- lega gott lag á börnum og ungling- um. Það var eins og Katli væri það í blóð borið að vera leiðtogi ung- menna, í starfi og leik. Honum fannst sjálfsagt að hann gerði sjálf- ur verstu verkin, þá var svo auð- velt að fá aðra með sér til starfa. Þráinn Valdimarsson systurson- ur Ketils var uppalinn í Meirit- ungu. Þar dvaldi einnig mikið syst- ir Þráins, Ásdís. Gunnlaugur Gunn- arsson, bróðursonur Ketils, var einnig mikið á þessu heimili. Á þessari stundu þakkar allt þetta fólk Katli og öllum í Meiritungu, fyrir allar samverustundirnar fyrr og síðar. Það var svo með Ketil í Meiri- tungu að vinnan og það að eiga fyrir sig, var honum ekki allt. Hann var bókhneigður, las mikið þegar stundir gáfust til þess og hann keypti mikið af bókum. Það sagði mér bóksali, að fáir í Rangárþingi hafí keypt jafn mikið af bókum og Ketill. Nú er þessi síðasti móðurbróðir minn fallinn, kominn yfir móðuna miklu. Síðustu stundirnar hans hér í jarðlífinu voru honum erfiðar, hann var mikið veikur. Nú vitum við að Ketill er þar sem enginn er sár eða þreyttur. Við börn Guðrúnar, systur Ketils Vilhjálmssonar, makar okkar og afkomendur, þökkum honum og Meiritungufólkinu fýrir /a\lt sem þau voru okkur. Þá óskum við þess að góður Guð styrki og styðji nán- ustu ástvini Ketils Vilhjálmssonar, í sorg þeirra. Hörður Valdimarsson til að uppgötva þá alla. Á námsá- rum erlendis, í miklu gjaldeyrishal- læri, mátti búast við bréfi frá Fríðu og út úr því ultu nokkrir danskir tíukrónaseðlar með tilmælum um góða máltíð. Og mér verður ávallt hugstæð umhyggja Fríðu og Sigur- jóns þegar ég reyndi fyrir mér sem sjómaður í Eyjum á manndómsá- rum og var að stíga ölduna í fyrsta sinn. Þá var gott að eiga vísa um- hyggju og stuðning sem í foreldra- húsum væri. Blessuð sé minning Hólmfriðar Guðjónsdóttur. Ásgeir Sigurgestsson í dag verður kvödd frá Landa- kirkju í Vestmannaeyjum ástkær amma mín, Hólmfríður Guðjóns- dóttir, sem lést í Sjúkrahúsi Vest- mannaeyja 11. mars sl. Amma fæddist á Stokkseyri 2. nóvember 1906, og ólst þar upp. Seinna fluttist hún til Vestmanna- eyja og giftist afa mínum Siguijóni Ingvarssyni frá Klömbru. Þau eign- uðust fjögur börn; Ingvar, Krist- björgu, Ásu og Jóhönnu sem lést í desember sl. eftir erfiða sjúkdóms- legu. Amma var mikill dugnaðarfork- ur og vann lengst af í saltfiski. Einnig hafði hún í mörg ár kost- gangara og hefur mikill vinskapur haldist við marga þessa menn í gegnum árin. Alltaf var mjög gott að koma til ömmu og afa á Valló, ekki síst var alltaf svo gott að fá að sofa í hol- unni hjá þeim, þar sem þau sögðu mér skemmtilegar sögur og kenndu mér bænirnar. Afi lést árið 1986 á 91. aldurs- ári og þá stóð amma uppúr eins og klettur og huggaði okkur hin. Amma átti við mikið heilsuleysi að stríða síðustu árin, en var þó alltaf heima og hélt sitt heimili þó hún væri orðin 84 ára. Hún varð fyrir því óhappi að detta og lærbrotna í febrúar sl. og var þá send á sjúkrahúsið og átti ekki afturkvæmt þaðan þó hugur- inn stefndi ávallt heim. Með þessum fátæklegu orðum vil ég kveðja ástríka ömmu mína og þakka fyrir alla góðvildina í minn garð. Megi Guð vera með elsku ömmu minni. Ester Fríða Erfldrykkjur í hlýlegu og notalegu umliverfi Tökum að okkur að sjá uin erfidrykkjur, stórar og smáar, í nýuppgerðum og notalegum sal. Verð frá kr. 790,- Allar nánari upplýsingar fúslega veittar á Hótel Borg í sínia 91-11440. i’iau'.H jiini'i ii'vr. nui3!i: ..... ...^. ., ‘iii I ■ f.iirui i 'il'iil • i-i i ’.r r.y ri ._.ITiiod 811 BÚSTOFN HÆTTIR Nýir eigendur, T.S. húsgögn og hurðir, heldur nú út- sölu á lager Bústofns hf. til að rýma fyrir nýjum vörum. Sjaldan hefur gefist betra tækifæri til að eignast vönduð og falleg húsgögn í stofuna, eldhúsið, borðstofuna, svefnherbergið, anddyrið, garðskálann, sumarhúsið eða garðinn. Öll húsgögn á lægra verði en áður: Leðursófasett - Svefnsófar - Vegghillur og veggsamstæður - Borðstofusett - Stakir stólar og borð - Fataskápar - Kommóður - Skrifborð - Skrifborðsstólar - Reyrborð og hillur - Veggspeglar - Rimlagluggatjöld - Fatahengi og margt, margtfleira. Ath: 10% kynningarafsláttur á hurðum meðan á útsölunni stendur. ÚTSALA Opiö til kl. 19.00 Opið kl. 10-16 á föstudögum á laugardögum HÚSGÖGN HURÐIR SMIÐJUVEGI6, KOPAVOGI. SÍMAR 44544 OG 44117. J‘i! . ■•'■t.í.) i- ‘.'j.i i____________________,____________
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.