Morgunblaðið - 16.03.1991, Blaðsíða 57
t'iG f SítAM .91 flUOACIHAOUAJ GKiAJHUUOÍIÓM
MÖRGUNBLAÐIÐ LAUGARDÁGURTÍ. MARZ 1991
Karate er íþrótt
Til Velvakanda.
Hinn 13. mars sl. skrifar M.B.B.
í Velvakanda og lætur móðan
mása.
Venjulega eru greinar, sem
skrifaðar eru undir dulnefni, ekki
svara verðar. Sá, sem ekki þorir
að koma fram undir fullu nafni,
hlýtur að skammast sín fyrir skoð-
anir sínar.
En vegna þess hve mikils mis-
skilnings og rangtúlkana gætir í
grein M.B.B. þá skal hér leitast
við að svara nokkrum spurningum
sem M.B.B. setur fram.
Fyrsta spurningin sem M.B.B.
kemur _með er hvort karate sé
íþrótt. Iþrótt er að okkar mati
notkun líkama og hugar í keppni
hvers konar. Keppni í karate skipt-
ist í tvennt, annars vegar kata og
hins vegar kumite. Kata er staðlað
form á hreyfingum, þar sem einn
einstaklingur sýnir fyrirfram
ákveðnar hreyfingar. Allar Kata
byrja á varnartækni. Enda er eng-
in fyrsta sókn og engin fórnarlömb
í karate. Kumite er viðureign þar
sem tveir keppendur reyna að
koma stigum á andstæðinginn
með höndum eða fótum, stig eru
skoruð með því að komast gegnum
vörn andstæðingsins án þess að
snerta hann. Tilgangurinn er ekki
sá að gera andstæðinginn óvígan,
frekar en keppnismenn í skylming-
um stinga hvor annan á hol. Varð-
andi hið fræga öskur í karate, er
það notað á tvennan hátt. Annars
vegar til að fá kraft og hinsvegar
til að hræða andstæðinginn til að
komast hjá handalögmálum.
Þessir hringdu ...
Ógleymanleg kvöldstund
Kona hringdi:
„Ég vil þakka ungum leikurm
í Talíu, sem er ieikfélag Mennta-
skólans við Sund, fyrir ógleyman-
lega kvöldstund sl. sunnudag.
Leikritið þeirra, Þréttándakvöid
eftir Shakespeare, var alveg stór-
skemmtilegt hjá þeim. Leikunm
var góður og leikmyndin falleg.
Ég vil hvetja leikritaunnendur til
að sjá skólaleikritin hjá mennta-
skólunum. Það er yfirleitt mikil
leikgleði hjá þessu unga fólki og
þessa dagana eru í gangi margar
í félögunum er ekki krökkum
eða öðrum kennt að bregðast við
aðsúg eða ofbeldi með villimanns-
legum slagsmálaaðferðum heldur
er þeim kennt það hátterni er
spornar einmitt gegn slíku. Höfum
við heldur aldrei orðið varir við
að talsmenn karate-íþróttarinnar
eða aðrir forsvarsmenn telji karate
lausnarorð fyrir örvæntingarfulla
foreldra.
Næsta spurning M.B.B. er hvort
karate sé kennsla í sjálfsvörn.
Svarið við þessari spurningu er
einfaldlega já. Karate er m.a. sjálf-
svarnarlist.
Leiðir karate til árásar- og of-
beldisverka? Nei, forsvarsmenn
karatefélaganna hafa það eftir
mörgum foreldrum, sem eiga böm
sem hafa átt í vandræðum að
framkoma batni eftir að börnin
byija að stunda karate. í karate
kynnast börnin hve auðvelt er í
raun að slasast og því verða þau
varkárari en ella. I karate er lögð
áhersla á að sýna félögum sínum
svo og foreldnim virðingu. Einnig
að leysa deilumál sín á milli, án
ofbeldis og forðast ofbeldisaðstæð-
ur. Það er því reynsla margra for-
eldra að börn þeirra sýni betri
framkomu eftir að hafa stundað
karate. Enda heyrir það til algjörr-
ar undantekningar að krakkar er
stunda karate lendi í handalögmál-
um.
M.B.B. virðist gera því skóna
að eitthvert samsæri sé um það
að karate sé kallað íþrótt, hann
vænir Japani m.a. um að hafa
stuðlað að þessu, með lævíslegum
leiksýningar hjá menntaskólum
sem fólk ætti ekki að láta fara
fram hjá sér.“
Kettlingur
Grábröndóttur fimm mánaða
ómerktur kettlingur hvarf frá
heimili sínu í Breiðholti sl. þriðju-
dag. Vinsamlegast hringið í síma
71346 ef hann hefur einhvers
staðar komið fram.
Gleraugu
Gullspangargleraugu með einu
gleri töpuðust sl. sunnudag, senni-
lega við Klambratún. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma 22575
eftir kl. 18 eða koma þeim til lög-
reglunnar.
. Kettlingur
Fallegan gulflekkóttan kettling
vantar gott heimili hið fyrsta.
Hann er vel vaninn. Upplýsingar
í síma 19151.
markaðsaðferðum. Þessar að-
dróttanir M.B.B. teljum við ekki
svaraverðar.
Það er afskaplega leiðinlegt að
lesa niðurrifsgreinar eins og grein
M.B.B. óneitanlega er, á sama
tíma og hundruð barna og ungl-
inga æfa af kappi jafn gefandi og
ánægjulega íþrótt og karate er.
Slys í karate eru hreint ótrúlega
sjaldgæf og verða þá helst á mót-
um. A mótinu sem M.B.B. vitnar
til voru um 180 keppendur. Á því
móti urðu engin slys fyrir utan
nokkrar skrámur. Slíkt er sjald-
gæft jafnvel í „rólegustu" íþrótta-
greinum.
Að lokum skorum við á M.B.B.
að koma út úr myrkviðum nafn-
leysis og bjóðum hann/hana vel-
kominn (na) á ókeypis námskeið
hjá hvaða karatefélagi sem er. Þar
getur hann/hún kynnst þessari
göfugu íþrótt, sem er allt í senn:
list, sjálfsvörn, líkamsrækt og
íþrótt.
F.h. Karatesambands íslands
Karl Gauti Hjaltason formað-
ur
innkaupastjórar
SÓL-
GLERAUGU
Ótrúlegt úrval
af dömu-, herra-,
unglinga- og
barnasólgleraugum.
Einnig skíðasólgleraugu.
Frábært verð
HOLLENSKA
VERSLUNARFÉLAGID
Borgartúni 18
Simi G1 88 99 Fax 62 63 55
Rýmingarsalci á baðinnrétf ingum
Góður afsláttur.
og á morgunfrá kl. 14-16
Vidskiptaliugbúnaðurinn vinsæli, sem gerður
er ffyrir MS-DOS, OS/2, UNIX, AIX og
netkerfi. Nýft gluggakerfi.
♦ Fjárhagsbókhald,
skuldunautarog lánardrottnar.
♦ Sölu- og birgðakerfi.
♦ Launakerfi.
♦ Pantanakerfi, tollkerfi og
verðútreikningur.
♦ Verkbókhald og tilboðskerfi.
♦ Framleiðslukerfi og
framleiðslustýring.
♦ Bifreiðakerfi.
♦ Útflutningskerfi.
♦ Strikamerkjakerfi.
Samhæfð kerfi, sem notandinn
A á auðvelt með að læra á.
r\ KERFISÞRÓUN HF.
W SKEIFUNNt 17, 10B REYKJAVlK
SÍMAR 688055/687466
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
á laugardögum íveturfrá kl. 10-12.
Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum.
Allir borgarbúar velkomnir.
Laugardaginn 16. mars verða til viðtals Páll Gíslason, 1. varaforseti borgarstjórnar, formaður
stjórnar veitustofnana, formaður bygginganefndar aldraðra, og Katrín Gunnarsdóttir, í heilbrigðis-
nefnd, íþrótta- og tómstundaráði, ferðamálanefnd.
V Kd %,gp Kd Kd' Kd' Kd} Kd' W W V:
\ ' tí 'ilV'’
. .4 í í í
Erfisdrykkjur, afmælisveislur,
brúðkaup, fermingarveislur
ættarmót og önnux mannamót
Upplýsingar gefnar í síma 22322.
FLUGLEIÐIR
HÓTEL LOFTLEIÐIR
- þegar veislan liggur í loftinu
v ........................-)