Morgunblaðið - 23.03.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.03.1991, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/LESBOK STOFNAÐ 1913 69. tbl. 79. árg. LAUGARDAGUR 23. MARZ 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Deilan um framtíð Júgóslavíu; Leiðtogamir segjast bjartsýnni á sættir Belgrad. Reuter. NOKKRIR leiðtoga júgóslavnesku lýðveldanna sex sögðu í gær að spenna færi minnkandi í landinu og kváðust bjartsýnni en áður á að unnt yrði að jafna ágreining þeirra um framtíð júgóslav- neska ríkjasambandsins. Leiðtogarnir samþykktu á fimmtudag á fundi með forsætisráði Júgóslavíu, æðstu valdastofnun landsins, að efna til nokkurra funda á næstu vikum án þátttöku leiðtoga rikjasambandsins. Spennan í samskiptum lýðveld- anna hefur verið í hámarki á und- anförnum tveimur vikum; fjölda- mótmæli brutust út í stærsta lýð- veldinu, Serbíu, og forsætisráðið lamaðist um tíma vegna afsagna fjögurra af átta fulitrúum þess. „Ég er mun bjartsýnni en í Sovétríkin: Hálfáttræð- ur ungliði Moskvu. The Daily Telegraph. HNIGNUN ungliðahreyfingar sovéska kommúnistaflokks- ins, Komsomol, varð til þess að Sovétmaðurinn Valentín Gotlober sá sig knúinn til að ganga í hana. Það þætti ekki í frásögur færandi nema vegna þess að hann er orðinn hálfáttræður. „Hvaða foreldri yfirgæfí barn sitt á erfiðum tímum," útskýrði Gotlober, sem á að baki langan feril innan flokksins, á um- sóknareyðublaðinu. „Komsomol á nú í miklum erfiðleikum. Okk- ur hefur ekki tekist að höfða til nýrra kynslóða." Þrátt fyrir mik- inn áróður í skólum hafa færri en '40% fólks á aldrinum 14-28 fengist til að ganga í ungliða- hreyfínguna. Komsolmolskaja Pravda, málgagn hreyfingarinn- ar, segir að umsókn Gotlobers hafi verið samþykkt. síðustu viku vegna þess að nú eru loksins horfur á því að hægt verði að efna til skynsamlegra viðræðna um framtíð Júgóslavíu," sagði Stipe Mesic, fulltrúi Króatíu í forsætis- ráðinu. „Pólitíska spennan er nú í' rénun,“ sagði Alija Izetbegovic, for- seti lýðveldisins Bosniu-Herzegov- inu, og leiðtogar annarra lýðvelda tóku í sama streng. Ágreiningurinn er einkum milli leiðtoga Króatíu og Serbíu, stærstu lýðveldanna. Stjóm kommúnista í Serbíu aðhyllist öfluga miðstýringu en Serbar og Slóvenar, sem hafa horfið frá kommúnisma, vilja hins vegar að sjálfstjórn lýðveldanna verði aukm á kostnað stjórnarinnar í Belgrad. Reuter Skotárás á mótmælendur úr írösku sendiráði Hleypt var af byssum úr íraska sendiráðinu í Nýju Delhí á um 300 shíta í gær er þeir komu saman við bygginguna til að mótmæla hernaðaraðgerðum hersveita Saddams Husseins íraksforseta gegn upp- reisnarmönnum. Þrír menn særðust lítillega í skot- árásinni. Ekki var vitað hveijir árásarmennirnir voru og íraski sendiherrann fordæmdi athæfið. Óspektir höfðu brotist út á meðal mótmælendanna og brutu þeir meðal annars rúður í bifreiðum eins og sjá má á myndinni. Lýðveldisvörðuriim sagð- ur halda Bagdad í herkví Sameinuðu þjóðirnar heimila undanþágur frá viðskiptabanni Damaskus, Nikosíu, Washington, Sameinuðu þjóðunum. Reuter. UPPREISN ARMENN Kúrda virð- ast vera að ná á sitt vald æ stærri hluta af norðurhluta Iraks. Skýrði Richard Boucher, talsmaður bandariska utanríkisráðuneytis- ins, frá þessu í gær. Hann gat þó ekki staðfest að borgirnar Kirkuk og Mosul væru á valdi uppreisnar- manna. Barist væri í kringum síðarnefndu borgina. Boucher sagði einnig að stjórnin í Bagdad væri að flytja herlið frá suður- hluta landsins til norðurhlutans. I Bagdad hefði miklu liði verið Viðræður um evrópska efnahagssvæðið: Lokaáfanginn á eftir að reynast mikil torfæra - segir aðalsamningamaður EB Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. HORST Krenzler, yfirsamningamaður Evrópubandalagsins (EB), í við- ræðunum um evrópska efnahagssvæðið (EES) sagði í gær að lokaá- fangi þeirra myndi reynast mikil torfæra. Krenzler lét þessi orð falla eftir fund yfirsamninganefnda EB og Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA), sem lauk í Brussel í gær en með honum var bundinn endi á áttundu lotu viðræðnanna. Krenzler líkti samningaviðræðum EB og EFTA við ljallgöngu og kvað fjórðung leiðarinnar á tindinn enn vera eftir. „Lokaáfanginn á eftir að reynast þverhníptur,“ sagði Krenzl- er. Talsmenn bandalaganna beggja voru þó sammála um að hægt mið- aði í samkomulagsátt. Samkvæmt heimildum hér í Brussel ganga samningarnir um evr- ópska efnahagssvæðið treglega. Sagt er að það sé að renna upp fyr- ir samninganefndum EFTA-ríkjanna að samningurinn muni að öllu óbreyttu fela í sér að EFTA verði líkast hjáleigu innan efnahagssvæð- isins evrópska. Samningamenn EB hafa í þessari lotu lagt ríka áherslu á að varðveita fullan sjálfsákvörðun- arrétt bandalagsins og hafnað hug- myndum EFTÁ-ríkjanna um langan aðlögunartíma að reglum þeim sem eiga að gilda um EES. Samninga- menn Evrópubandalagsins telja óviðunandi að reglurnar taki gildi innan EB 1. janúar 1993 en ekki fyrr en 1995 eða 1996 innan EFTA. í raun sé ástæðulaust að ganga frá samningi fyrr en eftir fimm til sex ár þegar aðildarríki Fríverslunar- bandalagsins verði tilbúin til að láta hann taka gildi. Þess er krafist af hálfu EB að samningar sem tfyggja óhindraða umferð flutningabíla bandalagsins um Sviss og Austurríki liggi fyrir áður en gengið verður frá samning- unum um EES. Austurríkismenn hafa vísað á bug hugmyndum EB um að flutningamálin verði tekin inn í viðræðurnar en EB hyggst taka afstöðu til þessa á fundi samgöngu- ráðherra bandalagsins á þriðjudag í næstu viku. safnað saman en þar kæmi enn til átaka af og til. Uppreisnar- menn segja liðsmenn Lýðveldis- varðarins hafa sett Bagdad í herkví. Talsmaður hinnar íslömsku Daw’a-hreyfingar, sem aðsetur hef- ur í Damaskus, sagði hermennina hafa lokað höfuðborgina algjörlega af um tíma. Þetta hefði verið gert eftir að stjórnin fékk upplýsingar um að líkur væru á uppreisn innan hersins. Ekki væri vitað hveijir stæðu þar að baki. íranska útvarpið í Teheran sagði írösk stjórnvöld hafa lýst yfir neyðarástandi í Bagdad. Hópur leiðtoga stjórnarandstæð- inga, þar á meðal Jalal Talabani, leiðtogi Kúrda, hélt í gær frá Dam- askus áleiðis til norðurhluta íraks og hyggjast þeir stjórna þaðan bar- áttunni gegn Saddam Hussein, ír- aksforseta. Sögðu þeir uppreisnar- menn vera í þann mund að ná borg- inni Mosul. „Harðir bardagar eiga sér stað milli stjórnarhermanna og uppreisnarmanna í Mosul og þús- undir manna eru að búa sig undir að frelsa borgina," sagði einn stjórn- arandstæðinganna. Bandarískar orrustuþotur skutu í gær niður íraska herþotu af gerðinni SU-22 yfir borginni Kirkuk í norður- hluta íraks, sem kúrdískir uppreisn- armenn segja að sé á þeirra valdi. Þetta er önnur íraska herþotan sem Bandaríkjamenn skjóta niður síðan vopnahlé hófst. Nefnd á vegum öryggisráðs Sam- einuðu þjóðanna, sem hefur yfirum- sjón með viðskiptabanninu á írak, ákvað í gær að hægt yrði að veita ákveðnar undanþágur frá viðskipta- banninu til að unnt yrði að senda mat og aðrar nauðsynjavörur til ír- aks. Var þetta ákveðið í kjölfar skýrslu sem unnin var á vegum Sam- einuðu þjóðanna, eftir ferð aðstoðar- framkvæmdastjóra SÞ til ‘fraks. í skýrslunni er varað við því að al- gjört neyðarástand sé að skapast í landinu og hætta á hungursneyð og farsóttum. New York: Hvítumenn- irnir komnir í minnihluta New York. The Daily Telegraph. HVÍTU mennirnir eru orðnir að miunihlutahópi í New York-borg. Manntalsskýrsla fyrir árið 1990, sem gefin var út í gær, staðfestir þessi sögu- lcgu umskipti. Samkvæmt manntali árið 1980 voru 52,4% af 7.071.639 íbúum borgarinnar hvítir. í fyrra voru íbúarnir orðnir 7.322.564 og hvíta fólkið komið niður í 43,2%. Lýðfræðingar segja að ein af ástæðum þessarar þróunar sé að hvíta fólkið flytjist í ríkum mæli til útborganna, þar sem minna er um glæpi og skólar eru betri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.