Morgunblaðið - 23.03.1991, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 23.03.1991, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARZ 1991 45 Ágústssyni, fyn-v. skólastjóra á Fáskrúðsfirði, en hann lést fyrir fáeinum árum. Þau áttu tvo syni, Atla Karl, er bjó hjá móður sinni og Sigurð Inga kvæntur Margréti Þór og eiga þau tvo syni. Eftir að Páll lést fluttist Bebba aftur til Patreksijarðar ásamt son- um sínum og hóf hún kennslu við grunnskólann þar/Kom nú enn vel í ljós hversu mikil hæfileikakona hún frænka mín var. Hún gaf sig af lífi og sál í kennarastarfið, sem henni þótti afar skemmtilegt, enda var hún með eindæmum barngóð. Eg sakna Bebbu frænku mikið. Ég sendi Atla Kalla, Sigga, Margi-éti og sonum þeirra innilegar samúðar- kveðjur með von um að ljúfar minn- ingar um góða móður græði fljót- lega sár þeirra. Heba Ingvarsdóttir Á einum stað stendur skrifað: Allt hefur sinn tíma, að lifa hefur sinn tíma, að deyja hefur sinn tíma. En fyrir okkur mennina er lítt skiij- anlegt, þegar fólk sem hefur marg- þættu hlutverki að gegna hverfur skyndilega og fyrii-varalaust af jarðvistarsviðinu. Heba A. Ólafsson, móðursystir mín og vinur, varð bráðkvödd á heimili sínu að kvöldi 13. mars sl. Hún hafði kennt lasleika, sem að- eins var talin flensa. Heba var fædd á Patreksfirði 7. september 1928, dóttir hjónanna Aðalsteins P. Ólafssonar og Stef- aníu Erlendsdóttur. Systkini hennar voru Erla Kristín, Bolli, Sjöfn, Sif, Hera og Pétur. Þau eru öll á lífi nema Sjöfn, sem lést 1989, langt um aldur fram. Heba giftist Páli Ágústssyni, kennara frá Bíldudal, 8. janúar 1952. Páll var góðmenni, líflegur og framtakssamur bæði í starfi og leik. Páll lést 25. ágúst 1986, þá skólastjóri á Fáskrúðsfirði, en þang- að fluttu þau hjónin frá Patreks- firði 1982. Áður bjuggu þau á Bíldudal, síðar í Reykjavík, þá um langt árabil á Patreksfirði. Eftir að Páll lést flutti Heba aftur til Pat- reksíjat'ðar og gerðist kennari og kenndi börnum í tveimur yngstu árgöngunum. Starfið átti hug henn- ar allan og börnin unnu henni mjög og var hún þeim mikill félagi. Heba og Páll áttu tvo syni, Sig- urð Inga og Atla Karl, sem báðir búa á Patreksfirði. Atli Karl og móðir hans héldu heimili saman eftir að Páll féll frá. Kona Sigurðar heitir Margrét Þór og eiga þau tvo syni, Pál Agúst og Magnús Tindra. Þá hafa dætur Margrétar verið hjá þeim, Ingibjörg og Dómhildur. Þá á Sigurður dóttur, sem heitir Heba. Heba var alla tíð lífleg, athafna- söm og naut tilverunnar. Það var engin lognmolla þar sem hún fór og ekkert mannlegt var henni óvið- komandi. Hún var mikil félagsmála- manneskja og væri langt mál að segja frá þeim þætti lífs hennar og verður látið nægja að nefna hér störf hennar fyrir Slysavarnadeild- ina Unni, Sjálfstæðisfélagið Skjöld, Málfreyjudeildina Brellur og svo var hún virkur félagi í bridsfélagi stað- arins og spilaði einu sinni í viku með félaginu. Heba og Páll voru mjög samhent hjón og fannst öllum, sem til þekktu, að nefna þyrfti þau bæði ef á annað þeirra var minnst. Þau voru bæði miklir barnavinir og löð- uðust öll börn að þeim. Telst varla ofmæit þó sagt sé að öll börn elsk- uðu þau, sem kynntust þeim. Um árabil sáu Heba og Páll um rekstur Hótels Flókalundar fyrir Gest hf. og muna margir eftir þeim, sem góðum gestgjöfum á þeim fagra stað. Þau voru þar einmitt þjóðhátíðarárið 1974 og var Páll framkvæmdastjóri hátíðarinnar sem haldin var á Vestijörðum, í Vatnsfirði, og þótti takast sérlega veh í mínum huga er lífshlaup þeirra hjóna svo margþætt og merkilegt að skrifa mætti væna bók um þau, en hér verður látið staðar numið og þeim þökkuð ómetanleg og upp- byggjandi kynni. Að lokum vil ég og fjölskylda mín votta systkinum Hebu samúð og sérstaklega bræðrunum Sigurði Inga og Atla Karli, konu Sigurðar, Margréti Þór, og barnabörnum. Stefán Skarphéðinsson í dag er til moldar borin elskuleg vinkona og virkur félagi í Slysa- varnadeildinni Unni á Patreksfirði. Skyndilegt lát Hebu sannar okkur hvað skammt er oft milli blíðu og éls. Fyrir réttum mánuði þegar deildin hélt aðalfund sinn var Heba full af áhuga eins og jafnan er slysavarnamál áttu í hlut. Félagar deildarinnar glöddust yfir því að hún hafði ákveðið að ganga til liðs við stjórnina eftir nokkurt hlé. Hryggar í huga kveðjum við að ieið- arlokum okkar góða félaga og vin- konu með ljóðlínum Valdemars Briem. Kom huggari mig hugga þú kom hönd og bind um sárin kom dögg og svala sálu nú kom sól og þerra tárin kom hjartans heilsulind kom heilög fyrirmynd kom ljós og lýstu mér kom líf er ævin þver kom eilífð bak við árin. Megi algóður Guð styrkja ijöl- skyldu og vini í sorg þeirra. Slysavarnadeildin Unnur, Patreksfirði. Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson Tvær Hvanneyrarpíur nefndu þær sig þessar tvær og tóku lagið ásamt fleirum. Nemendur Bændaskólans mínnast 1100 ára búsetu á Hvanneyri Hvanneyri. ** t FORMÁLA að Egils sögu segir að það hafi verið árið 891 að Grímur liáleiski kom til íslands og nam land milli Andakílsár og Grímsár í Borgarfirði. Þess var m.a. minnst á hinni s.k. Marshátíð, þar sem nem- endur Bændaskólans á Hvanneyri bjóða íbúum nærliggjandi hreppa í samkomuhúsið að Brún í Bæjarsveit. Þetta var í 17. skipti sem nemend- ur Bændaskólans halda hátíð með þessu nafni. Dagskráin var greini- lega forvitnileg, því húsfyllir var. Nær allt efni var frumsamið af heim- amönnum og flutt af þeim með að- stoð kennara. Viðamesta atriðið var kynning á sögu Borgarfjarðar og þá fyrst og fremst Andakílshrepps. Lesinn var söguþráður í samantekt Magnúsar Óskarssonar kennara og leikin atriði á milli, sem Bjarni Stefánsson kenn- ari samdi,- Leiknu atriðin voru um landnámsmennina Grím og Ingimund gamla, vinnumenn Hróðólfs biskups í Bæ, deilur um veiðirétt í Andakílsá á 15. öld, vinnuhjú Barónsins á Hvít- árvöllum og úr skólasamkomu í Bændaskólanum í árdaga skólans. Þarna kom fram mikill fróðleikur um byggðina frá upphafi landnáms. Tvennt er vert að minnast á. Á árun- um 1905 til 1918 störfuðu 3 fram- haldsskólar samtímis í hreppnum, þ.e. bændaskóli, mjólkurskóli og al- þýðuskóli og mun það vart hafa fund- ist á þessum tíma annars staðar á landinu í dreifbýlishreppi. Á sam'- komu í Þingnesi, sem haldin var á gamlársdag þjóðhátíðarárið 1874 var dreginn fáni að húni, hannaður af Andrési Fjeldsted. Þessi fáni er nú geymdur á Þjóðminjasafninu, þar sem hann er að líkindum fyrsti fáni íslendinga. Nemendur létu gera eft- irmynd af honum í borðfánastærð og afhenti formaður Nemendaskól- ans Hvanneyrar, Fanney Ólöf Lárus- dóttir, Magnúsi B. Jónssyni, oddvita Andakilshrepps, hann í tilefni dags- ins. Dagskráin var að öðru leyti mjög íjölbreytt, hún hófst á látbragðsleik, sungnar voru gamanvísur af ýmsum hópum, m.a. söng kvennakór um nokkra skólabræður sína, sem höfðu fyrr um veturinn látið snoðklippa sig. Þessir sömu snöruðu sér um hæl á sviðið og reyndu að réttlæta í söng sínum gjörðir sínar og sýna fram á, að þeir væru nú miklu mýkri að stijúka en áður. Mestu kátínu vakti einleikur Guð- mundu S. Guðmundsdóttur'í heima- sömdum einþáttungi og aðalhlutverk Jósefs H. Gunnlaugssonar í „Lín- unni“ sem sló sjónvarpsþættinum kunna við. Bjarni Stefánsson kenn- ari samdi leikþátt úr skólalífinu, er hann nefndi Síldin. Blandaður kór söng nokkur létt lög, Bjarni Guð- mundsson kennari æfði kórinn og lék undir ásamt Eyþóri Inga Jónssyni. Hátíðinni lauk með dansleik. Nem- endur þökkuðu séi’staklega kennur- unum Jóhönnu Pálmadóttur ag Bjarna Stefánssyni fyrir frábæra hjálp við undirbúning og uppsetningu hátíðarinnar og leystu þau út með gjöfum. Undirtektir áhorfenda voru mjög góðar og eiga aðstandendur hátíðarinnar þakkir skildar. - D.J. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför EYSTEINS EINARSSONAR fyrrv. vegaverkstjóra frá Brú. Sérstakar kveðjur til starfsfólks Ljósheima, Selfossi. Aðstandendur. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGIMUNDUR GUÐMUNDSSON, Hringbraut 1, Hafnarfirði, lést í Landspítalanum 21. mars. Edda Collins, William A. Collins, Gunnar Ingimundarson, Kristin Bjarkan, Ásmundur Ingimundarson, Jenný Sigurgeirsdóttir, Grétar K. Ingimundarson, Karen Brynjólfsdóttir, Stefania Ingimundardóttir, Ármann Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KÁRI JÓNSSON fyrrverandi stöðvarstjóri Pósts og síma, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju miðvikudaginn 27. mars kl. 14.00. Eva Snæbjarnardóttir, Óli Björn Kárason, Margrét Sveinsdóttir, Guðjón Andri Kárason, Ingibjörg Guðjónsdóttir, Eva Björk Óladóttir. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, SUNNA STEFÁNSDÓTTIR, Gnoðarvogi 18, lést á heimili sínu fimmtudaginn 14. mars sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kári Eiriksson, Karólína Eiríksdóttir, Þorsteinn Hannesson, Tinna Þorsteinsdóttir. — ■: J BJOÐUM MIKIÐ URVAL yORLAUKA OG FRÆA AF YMSUM GERÐUM OG Á GÓÐU VERÐI LÍTIÐ VIÐ OG KYNNIÐ YKKUR ÚRVALIÐ OG MÖGULEIKANA HJÁ FAGMÖNNUM. REYNSLA - RÁÐGJÖF - ÞJÓNUSTA SOLUFELAG GARÐYRKJUMANNA SMIOJUVEGI 5. 200 KÓPAVOGUR, SÍMI 43211 fl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.