Morgunblaðið - 23.03.1991, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 23.03.1991, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 23. MARZ 1991 Iþróttir helgarinnar Körfuknattleikur Grindavík og Njarðvík leika i úrslitakeppn- inni um íslandsmeistaratitilinn í körfuknatt- leik ! Grindavtk kl. 16.00 í dag. Á morgun leika KR og ÍBK, í sömu keppni, í Laugar- dalshöll kl. 20.00. Grindavík og Keflavik leika í Grindavík í 1. deild kvenna kl. 14.00 í dag. Valur og Víkveiji leika til úrslita um sæti i úrvalsdeildinni að Hliðarenda í dag kl. 16.30. Handknattleikur Völsungur og HK leika i efri hluta 2. deilar á Húsavík í dag kl. 14.00. Ekkert verður leikið í 1. deild karla fyrr en eftir páska, 5. apríl. Badminton Vormót TBR í badminton 1991 fer fram í TBR húsinu um helgina. Keppt verður í einliða, tvíliða og tvenndarleik. Keppt er með forgjöf. Þeir sem tapa fyrsta leik fara í aukaflokk. Keppnin hefst í dag kl. 15.30 og verður framhaldið kl. 10.00 á sunnudag. > Glíma Grunnskólamót GLÍ verður haldið í dag í Hafnargili við Eyjafjörð. Mótið hefst kl. 14.00 og rétt til þátttöku hafa llir grunn- skólanemar landsins. Keppt er í 14 flokkum. Samtímis fer fram keppni í fullorðins- flokkum Meistaramóts Islands - Lands- flokkaglímunni. Allir helstu glimukappar landsins mæta til leiks. Á suniiudag fer fram síðari hluti Lands- flokkaglímunnar og verður þá keppt í 4 aldursflokkum kvenna og 5 aldursflokkum karla. Mótið hefst kl. 10.00. Skíði Unglingameistaramót íslands á skíðum fer fram í Hlíðarfjalli við Akureyri um helg- ina og lýkur á mánudag. Rúmlega 200 keppendur eru skráðir til leiks. Blak Laugardagur Bíkarkeppnin, karlaflokkur: "E^Hagaskóli Þróttur 2 - HK......kl. 17.00 1. deild kvenna: Nesk. Þróttur-Völsungur......kl. 14.00 Sunnudagur Bikarkeppnin, karlafokkur: Ak. KA-ÞrótturR..............kl. 19.30 Bikarkeppnin, kvennaflokkur: Ak. KA-Vikingur..............kl. 20.45 íþróttir fatlaðra íslandsmeistaramót íþróttasambands fatlaðra í borðtennis, boccia, bogflmi, lyft- ingum og sundi fer fram um helgina. Mótið hófst f gærkvöldi með keppni í boccia og sundi og verður framhaldið í dag og á morgun. Keppni í boccia og lyftingum fer __ -Jram í iþróttahúsinu Seltjamamesi, í borð- tennis í TBR-húsinu, í sundi í Sunhöll Reykjavíkur og bogfimi í íþróttahúsi ÍFR í Hátúni. Golf í fyrravetur fór í fyrsta sinn fram stórt púttmót innanhúss og var Kringlan valin sem mótsstaður, enda er þar víðáttumikið gólfrými. Þetta mót þótti takast með af- brigðum vel og tóku 204 keppendur þátt. Nú hefur verið ákveðið að endurtaka Kringlumótið og fer það fram á sunnudag- inn. Ræst__verður út frá kl. 9 til 18. Keila í Öskjuhlíð Laugardagur: Opna meistaramót KFR.........kl. 20.00 Sunnudagur: íslandsmótið í parakeppni....kl. 11.30 íslandsmótið í tvímenningi......19:15 HANDBOLTI HANDKNATTLEIKUR LANDSLIÐIÐ Þrír nýliðar í landsliðs- hóp Þorberas ÞORBEGUR Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari í handknatt- leik, hefur valið 16 manna hóp fyrir leikina gegn Litháen í næstu viku. Þrír nýliðar eru í hópnum; markverðirnir, Magn- ús Árnason, Haukum og Sigm- ar Þröstur Oskarsson, IBV og Gústaf Bjarnason, línumaður frá Selfossi. Þorbergnr sagði í samtali við Morgunblaðið að þessi hópur kæmi í sjálfum sér ekki á óvart. „Magnús hefur varið jafnbestur markvarða í deidarkeppninni í vetur og Sigmar Þröstur hefur sýnt það með frammistöðu sinni eftir áramót að hann vill vera með. Línumaður- inn Gústaf Bjarnason hefur staðið sig vel og viljum við láta hann finna hvernig er að vera í landsliðinu. Við höfum einnig áhuga á að kynn- ast honum,“ sagði Þorbergur. Hann sagði að ákveðið hafi verið að gefa Geir Sveinssyni frí og Skúli Gunn- steinsson, sem kom einnig til greina sem línumaður, er meiddur. Lið er annars skipað eftirtöldum leikmönnum: Markverðir: Guðmundur Hrafnkelsson, FH Sigmai' Þröstur Óskarsson, ÍBV Magnús Árnason, Haukum Aðrir leikmenn: Jakob Sigurðsson, Val Konráð Olavson, KR Einar Sigurðsson, Selfossi Júlíus Jónasson, París Asnieres Sigurður Bjarnason, Stjömunni Magnús Arnason. Patrekur Jóhannesson, Stjörnunni Jón Kristjánsson, Val Stefán Kristjánsson, FH Óskar Ármannsson, FH Valdimar Grímsson, Val Bjarki Sigurðsson, Víkingi Birgir Sigurðsson, Víkingi Gústaf Bjarnason, Selfossi Þorbergur sagði að ekki væri alveg ákveðið hvort Júlíus Jónasson gæti leikið með þar sem enn hafi ekki fengist grænt ljós frá félagi hans. En verið er að vinna í málinu. KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNIN Ekkert allt of ánægðir - sagði fulltrúi Marseille, sem dróst gegn Spartak MARSEILLE mætir sovésku meisturunum Spartak frá Mosvku og Bayern Múnchen dróst gegn júgóslavneska meistaraliðinu Rauðu Stjörn- unni, í undanúrslitum Evrópu- keppni meistaraliða. Dregið var í gær. Marseille sló út Evrópmeistara síðustu tveggja ára, AC Mílanó. Franskt félag hefur aldrei náð að sigra í Evrópukeppninni, en möguleikarnir hafa líklega aldrei verið meiri en nú. „Við erum ekk- ert allt of ánægðir með dráttinn og að þurfa að fara til Sovétríkjanna. Það má alls ekki vanmeta sovéska Evrópukeppnin Dregið var i undanúrslit Evrópukeppninnar í knattspymu í gær. Evrópukeppni meistaraliða Bayem Múnchen (Þýskalandi) - Rauða stjaman (Júgóslavíu) , Spartak Moskva (Sovétríkjunum) - Marseille (Frakklandi) Evróukeppni bikarhafa Legia Varsjá (Póllandi) - Man. United (Englandi) Barcelona (Spáni) - Juventus (Ítalíu) Evrópukeppni fclagsliða Bröndby (Danmörku) - AS Roma (jtalíu) Sporting (Portúgal) - Inter Milan (ítalfu) ■Það lið sem talið er upp á undan fær heimateik fyrst. Fyrri leikirnir fara fram 10. aprfl og siðari leikirnir 24. apríl. liðið, eftir að það sló út Real Madrid,“ sagði Jean-Louis Levrault, einn fulltrúa Marseille við dráttinn Aldrei neitað að tala við fjölmiðla - segir Eyjólfur Bragason, þjálfari Stjörnunnar Eyjólfur Bragason, þjálfari Stjörn- unnar, vildi koma því á framfæri vegna ummæla Guðjóns E. Friðriks- sonar, formanns handknattleiksdeild- ar Stjörnunnar, í Morgunblaðinu í gær, að það gæti enginn bannað sér að tala við blaðamenn. „Það er mál- frelsi á íslandi og ég hef aldrei neitað að tala við fjölmiðla eftir leiki. Ég vissi ekki af þessari uppákomu. Það getur vel verið að Guðjón hafi meinað blaða- manni Morgunblaðsins að fara inní búningsklefann, en hann hefur ekki leyfi til að banna mér að tala við fjöl- miðla. Guðjón hefur sagt þetta í fljót- færni eftir leikinn,“ sagði Eyjólfur. Blaðamaður Morgunblaðsins ætlaði að ná tali að þjálfaranum og fá skýr- ingar á þessu stóra tapi Stjörnunnar gegn ÍBV í fyrrakvöld, en fékk ekki. Guðjón Friðriksson meinaði honum það og sagði; „Ég, sem formaður handknattleiksdeildar, banna Eyjólfi að tala við fjölmiðla.“ ALHEIMSKRAFTUR Opnunartilboó Mánaóarkort kr. 3.500,- Innifalió: Eróbikk, „body work“, leikfimi, gufa og nuddpottar. 10 Ijóstímar á kr. 2.500,- Stórglæsileg stöó Komið, skoðið og þiggið veitingar. ALHEIMSKRAFTUR, Engihjalla 8, sími 46900. i gær. Manchester United mætir pólska liðinu Legia frá Varsjá í keppni bik- arhafa. Englendingarnir voru heppnir með dráttinn og ánægðir, því í undanúrslitunum eigast einnig við stórliðin Juventus og Barcelona. Kenneth Marett, fulltrúi Man. Utd. við dráttinn sagði: „þetta gæti vitað á gott. Við spiluðum við pólskt lið, Gornik, 1968 áður en við urðum Evrópumeistarar.“ Morten Olsen, þjálfara Bröndby, varð að ósk sinni. Lið hans dróst gegn AS Roma. Sporting Lissabon og Inter Mílan mætist í hinum und- anúrslitunum, og liðið sem hefur betur úr þeirri viðureign fær fyrri úrslitaleik keppninnar á heimavelli 8. maí. UEFÁ keppnin er sú eina þar sem eru tveir úrslitaleikir. Sigmar Þröstur Óskarsson. Landslið Litháen er væntanlegt til landsins á mánudag. Fyrri leikur- inn verður á þriðjudagskvöld kl. 20 og sá síðari á miðvikudagskvöld á sama tíma. Báðir leikirnir fara fram í Laugardalshöll. Iþrmr FOLK ■ MARTIN Hayes er á leiðinni frá Celtic, níu mánuðum eftir að hann ■ kom frá Arsenal fyrir 650.000 pund. Hann hefur aðeins þrisvar verið í byrjunarliðinu í vetur og er kominn á sölulistann. ■ RUSSELL Osman er kominn á sölulistann hjá Southampton. Hann er 32 ára. Talið er líklegt að hann fari til fyrrum félaga síns í vöm Ipswich, Terry Butchers, sem nú er stjóri og leikmaður hjá Coventry. ■ ALEX Ferguson , stjóri Man. Utd., hefur staðfest að hann ætli að bjóða Bryan Robson, fyrirliða liðsins, sem orðinn er 34 ára, nýjan tveggja ára samning. Ferguson hefur þar með kveðið niður sögu- sagnir þess efnis að hann ætli að losa sig við Robson eftir þetta keppnistímabil. ■ GRAEME Souness, stjóri Ran- gers, hefur sektað leikmennina þijá, sem reknir voru af velli gegn Celtic um helgina, um 2.000 pund hvern. Það voru þeir Terry Hurlock, Mark Walters og Mark Hately. Talið er að þetta jafngildi vikulaunum hvers um sig. fl SKOSKA knattspyrnusam- bandið hefur úrskurðað Hurlock, Walters og Peter Grant, leikmann Celtic, sem einnig var rekinn út af, í fjögurra leikja bann. Hately fékk hins vegar eins leiks bann. ■ RONNIE Whelan, leikmaður Liverpool, sem fótbrotnaði í bikar- leiknum gegn Everton fyrir skömmu, fór á fyrstu æfingu sína í fyrradag, en varð að hætta fljótt vegna verkja. Hann vonaðist þó til, í samtali við Morgunblaðið, að geta spilað með þriðja liði félagsins um næstu helgi. KORFUBOLTI / 1. DEILD KVENNA ÍS og Haukar jöfn fyrir síðustu umférð Lið ÍS og Hauka eru efst og jöfn fyrir síðustu umferð 1. deildar kvenna í körfuknattleik. Liðin mættust í fyrrakvöld og_ sigruðu Haukastúlkurnar 42:39. í síðustu umferðinni mætir ÍS liði ÍR og Haukar leika gegn Keflvíkingum. Ef liðin vinna bæði standa Stúdínur upp Islandsmeistarar, þar sem þær hafa staðið sig betur í innbyrðis viðureignum liðanna í vetur. íþróttahúsið við Strandgötu, miðvikudaginn 21. mars. 1. deild kvenna. Stig Ilauka: Eva Havlek 12, Guðbjörg Norðfjörð 7, Hafdís Hafberg 6, Anna Guð- mundsdóttir 6, Sigrún Skarphéðinsdóttir 5, Svana Guðjónsdóttir 2, Sóley Indriðadótt- ir 2, Sólveig Pálsdóttir 2. Stig ÍS: Vanda Sigurgeirsdóttir 12, Díanna Gunnarsdóttir 12, Vigdís Þórisdóttir 7, Hafdís Helgadóttir 4, Kristin Sigurðardóttir 2, Kolbrún Leifsdóttir 2. Eva Havlek var best í liði Hauka. Díanna Gunnarsdóttir var spræk hjá ÍS og þá barð- ist Vigdís Þórisdóttir vel. ÍR-KR 66:58 Seljaskóli, 1. deild kvenna í körfuknattleik, miðvikudaginn 19. mars 1991. Stig ÍR: Linda Stefánsdóttir 16, Hrönn Harðardóttir 14, Ingibjörg Magnúsdóttir 10, Valdís Rögnvaldsdóttir 8, Fríða Torfa- dóttir 6, Dagbjört Leifsdóttir 4, Guðrún Árnadóttir 4, Vala Úlfljótsdóttir 2, Hiidi- gunnur Hilmarsdóttir 2. Stig KR: Helga Ámadóttir 21, JónínaKrist- insdóttir 15, Anna Gunnarsdóttir 13, Kol- brún Ivarsdóttir 5 og Guðrún Gestsdóttir 4. Vanda S.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.