Morgunblaðið - 23.03.1991, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 23.03.1991, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARZ 1991 TMReg. U.S. Pat Off.—all rightareaarvad ® 1991 Lo» Aogelas Timea Syodicate HÖGNI HREKKVÍSI Fer Fram- sókn sömu leið og samvinnu- stefnan? Til Velvakanda. Fyrir nokkrum árum voru menn að ræða sín á milli hver myndi vera hugsjónagrundvöllur Framsóknar- flokksins. Einn orðaði það svo að hugsjónin væri fólgin í því að versla við KRON, en ekki hjá Silla og Valda, burtséð frá hvorum varan væri betri eða ódýrari. Þótt hér sé um nokkra einföldun að ræða verð- ur hinu þó ekki móti mælt, að svo- nefnd samvinnustefna hefur verið eina sjáanlega réttlætingin á stjórn- málatilvist framsóknar. En getur heill stjórnmálaflokkur réttlætt til- veru sína á því að menn skuli frek- ar versla í einni búð en annarri. Vegna hruns kommúnismans og annarra stórviðburða í álfunni hefur verið hljótt um annað hrun, sem er reyndar ekki eins stórbrotið og einskorðað við íslenskar aðstæður, en það er hrun samvinnustefnunnar á Islandi. Samvinnustefnan var upphaflega lofleg hugsjón, en varð fljótt pólit- ískri spillingu að bráð. Hún þreifst lengi vel og blómgaðist í skjóli þess að kommissrar framsóknar í bönk- um og sjóðum töldu það sitt höfuð- hlutverk að ívilna SÍS á kostnað annarra verslunarfyrirtækja og -forma, en spillingin étur börnin sín. Kaldhæðni örlaganna er sú að fyrirgreislugræðgi SÍS varð bana- biti þess. Þegar SÍS þurfti að fara að greiða eðlilega vexti af lánum sínum sprakk blaðran. Fyrirtæki þess þoldu ekki eðlilega samkeppni og urðu gjaldþrota hvert af öðru. Og nú hefur samvinnufyrirtækjun- um verið breytt í ósköp venjuleg hlutafélög og engin samvinnustefna fyrirfínnst lengur. Bágur var hugsjónagrundvöllur framsóknar fyrir, en nú er hann en^nn' Barri HEILRÆÐI Foreldrar: Látið börnin bera endurskinsmerki. Notkun þeirra tryggir öryggi barnanna í umferðinni. Kennarar: Brýnið fyrir börnunum að fara varlega í umferðinni og gefíð þeim góð ráð í þeim efnum. Vegfarendur: Hverf fótmál í umferðinni krefst um- hugsunar og aðgæslu. Ökumenn: Ljósker bifreiðanna verða að vera hrein og ljósin rétt stillt til þess að ljósmagnið nýtist sem best við aksturinn. Rétt notkun stefnuljósa auðveldar alla umferð. Yíkveiji skrifar Norður á Akureyri er verið að huga að því að setja upp sér- stakt nám í stjórnun gæðamála við háskólann þar. Athygli stjórnenda hefur í auknum mæli beinst að gæðum og þeim vaxtarmöguleikum sem felast í aukinni stjórnun þeirra. Víkveiji heyrði í vikunni nokkra sérfræðinga um gæðamál bera saman bækur sínar á námsstefnu og þar mátti heyra það viðhorf, að á tiltölulega skömmum tíma mætti leysa efnahagsvanda íslendinga, með því einu að taka upp gæða- stjórnun í atvinnulífi og opinberum rekstri. Þetta þótti Víkverja merki- ieg fullyrðing og lagði því betur við hlustir. xxx Megináherslan í gæðastjórnun er á stjórnunarlega uppbygg- ingu fyrirtækja, breyttar venjur og samskipti, en ekki á tækni og véla- kaup eins og algengt er. í þessu felst að mennta og þálfa þarf bæði stjórnendur og starfsmenn í vinnu- brögðum gæðastjórnunar; að læra að þekkja og greina vandamálin, leita úrlausna og hrinda þeim í framkvæmd. Nokkur fyrirtæki eru þegar komin nokkuð áleiðis í slíkri gæðastjórnun, m.a. er unnið merki- legt brautryðjendastarf hjá Útgerð- arfélagi Akureyringa, sem þegar hefur skilað fyrirtækinu umtals- verðum ávinningi. xxx Gæðastjómun hefur mikla þýð- ingu fyrir fyrirtækin í landinu, en það sem gerir gæða- stjómun sérstaklega , áhugaverða fyrir íslendinga er smæð okkar. Erlendir sérfræðingar á þessu sviði fullyrða, að lítið þjóðfélag eins og okkar sé í sterkri stöðu, ef leiðtog- um okkar tækist sameiginlega að sveigja þjóðfélagið í heild inn á braut gæðastjórnunar. Hingað til hafa stjórnmálaleiðtogar okkar stýrt frá degi til dags, án þess að hafa fyrir augum ákveðna framtíð- arsýn. Ef þeir hins vegar sæju þá möguleika sem okkur bjóðast í krafti smæðar, þá yrðu hér alger umskipti. Þetta er einfalt verk en þó erfitt og krefst mikillar þolin- mæði. Stjórnun gæða felur í sér algjör umskipti á viðhorfum okkar til starfsemi fyrirtækja og til vinnu almennt. Á áðurnefndri námsstefnu fullyrtu menn bókstaflega að sú hugmynd, að atvinnurekstur væri fyrst og fremst til að græða á hon- um peninga, hefði leitt menn á Vesturlöndum til afdrifaríkra mis- taka, sem fælust fyrst og fremst í þeim forgangi sem skammtíma- hagnaður hefur. Bentu menn á andstæða hugsun Japana hvað þetta varðar og ótrúlegan árangur þeirra. xxx Til þess að íslendingar nái upp framleiðni, m.a. með stjórnun gæðamála, þarf að verða hugar- farsbreyting meðal íslenskra stjóm- enda. A síðustu árum hafa reyndar komist til áhrifa vel menntaðir menn með meiri þekkingu og vænt- anlega færri fordóma. Hins vegar hefur Víkveiji marg rekið sig á það, að ótrúlega margir fram- kvæmdastjórar fyrirtækja vita alls ekki hvert hlutverk þeirra er. Sér- staklega er þetta vandamálT litlum iðnfyrirtækjum, þar sem eigendur líta á það sem illa nauðsyn að stjóma og jafnvel fínnst þeim það tímasóun að halda bókhaldinu í lagi. í fyrirtækjunum verður öll verð- mætasköpun þjóðfélagsins til. Þar er grunnurinn lagður að afkomu okkar allra og því hlýtur það að vera mikilvægt, að stjórnendur séu hæfir til að fást við verkefni sín.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.