Morgunblaðið - 23.03.1991, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 23.03.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARZ 1991 17 Er hornsteinn- inn að molna? eftirHögna Óskarsson íslenskl þjóðfélag hefur þróast mjög hratt úr dreifbýlu bænda- og fiskimannaþjóðfélagi í borgarsam- félag, þar sem stór hluti þegnanna hefur lífsviðurværi sitt af ópersónu- legum þjónustustörfum. Hefur þró- unin orðið hraðari hér en víðast annars staðar á Vesturlöndum, enda vöxtur efnalegrar velmegunar undanfarna hálfa öld með ólíkind- um. Fórnarkostnaður hefur óhjá- kvæmilega verið hár. Gildismat þegnanna hefur gjörbreyst, og ýms- ir grunnþættir þjóðfélagsgerðarinn- ar hafa raskast. Óhætt er að segja, að hinn félags- legi fórnarkostnaður hafi orðið mestur þegar kemur að fjölskyld- unni. Kjarnafjölskyldan hefur minnkað verulega vegna færri barna. Stuðningur við barnafjöl- skylduna kemur nú aðeins örsjaldan frá stórfjölskyldu eða nágrönnum, og vinnudagur utan heimilis, bæði feðra og mæðra, er lengri en nokkru sinni áður. Eftirfarandi atriði segja nokkuð harkalega sögu, en þau eru byggð á íslenskum rannsóknum og eru unnin úr bæklingi, Mannvemd í velferðarþjóðfélagi, útgefnum af landlæknisembættinu. í þeim bækl- ingi er að fínna niðurstöður fjölda íslenskra rannsókna á fjölskyldu- högum og þroskahorfum barna á íslandi. * 20% íslenskra barna á hveijum tíma búa ekki með báðum kynfor- eldrum, meiri hluti vegna skilnaðar foreldra. Erlendar rannsóknir hafa sýnt, að skilnaðarbörn eiga gjaman erfíðara uppdráttar en böm úr ósundruðum fjölskyldum. * Árið 1985 voru fjórðungur barnafjölskyldna einstæðir foreldr- ar. Stærra hlutfall einstæðra for- eldra en annarra er í láglauna- flokki. Búa þeir oft við ótryggt húsnæði. * Smábarnafeður vinna að jafn- aði einum vikudegi lengur en aðrir karlmenn. Atvinnuþátttaka kvenna hefur fjórfaldast (85% nú) sl. 30 ár. 75% smábamamæðra vinna ut- an heimilis, og um 40% fulla vinnu. Og meðaltekjur einstæðra mæðra hér, í samanburði við meðaltekjur karla, em lægri en sams konar hlut- fall í nágrannalöndunum. * Opinberar greiðslur sem hlut- fall af þjóðartekjum til fjölskyldna og barna er lægra hér en á öðrum Norðurlöndum. Sama má segja um greiðslu fyrir dagvistunaraðstöðu og tómstundaheimili. * Samverustundum barna og foreldra hefur fækkað. í könnun frá 1983 kemur fram að fjórðungur barna undir 8 ára aldri, og 64% barna 7-12 ára, eru meira og minna sjálfala á daginn. Og allt að fjórð- ungur daglegrar neyslu barna og unglinga kemur frá söluskálum. Já, það ætti að vera ljóst af þessu, hverju þarf til að kosta til að halda þjóðfélagsgerðinni gang- andi. En hvað skyldi þetta svo hafa í för með sér fyrir börnin? * Léleg geðheilsa barna og ungl- inga tengist oft slæmri hjúskapar- stöðu foreldra. Þau böm eiga einn- ig oft í erfiðleikum í námi. * Ungmenni, sem hafa búið við ósamræmi í uppeldi, slæma geð- heilsu, gengið illa í skóla/og eða komið frá sundruðum fjölskyldum, eru miklu líklegri til að Ienda á sakaskrá oftar en einu sinni, en þau VZterkurog k_/ hagkvæmur auglýsingamidill! ungmenni, sem hafa haft betri að- búnað. Stofnanavistanir eru einnig algengari hjá þeim. * Misnotkun áfengis er miklu algengari hjá feðrum barna, sem einungis höfðu lokið unglingaprófi, en hjá feðrum barna, sem luku framhaldsnámi. Og er hér fátt eitt talið. Fjölskyldan er hornsteinn þjóðfé- lagsins er sagt á góðum stundum. Myndin, sem dregin er upp hér að ofan, sýnir hornsteininn i bágborn- ara ástandi en hollt er. Myndin er að sjálfsögðu einfölduð, og alls ekki algild. Hún sýnir okkur hins vegar, „Hún sýnir okkur hins vegar, að bágborin fé- lagsleg aðstaða barna- fjölskyldna, af ýmsum orsökum, er líklegri en ekki til að leiða til vandamála í andlegri, líkamlegri og félags- legri heilsu þessara barna seinna meir.“ að bágborin félagsleg aðstaða barnafjölskyldna, af ýmsum orsök- um, er líklegri en ekki til að leiða til vandamála í andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu þessara barna seinna meir. Það heilsutjón getur orðið dýrkeypt, ekki aðeins í formi aúkinna útgjalda til heiibrigðis-, Högni Óskarsson félags- og dómsmála, heldur einnig í fonni alvarlegrar röskunar og þjáningar fyrir einstaklinginn og aðstandendur hans. Læknafélag Reykjavíkur og landlæknisembættið hafa því ákveðið að gangast fyrir almennum fræðslufundi um mál af þessum toga í Háskólabíói í dag, laugardag- inn 23. þ.m., kl. 13. Dagskrá hefur verið kynnt í fjölmiðlum. Þingflokk- arnir munu eiga fulltrúa í pallborðs- umræðum eftir erindaflutning. Þar mun umræðan beinast að möguleg- um úrræðum til að beina þróuninni í þá átt að styrkja megi hornstein- inn. Er þess að vænta, að þingflokk- arnir muni kynna stefnur og fram- kvæmdir í þessum efnum. Heimild: Heilbrigðisskýrslur 1988, fylgi- rit nr. 2, eftir Olaf Ólafsson landlækni. Ilöfundur crgeðlæknir og formaður Læknafélags Reykjavíkur. ÞJOÐLEIKHUSIÐ... ...musteri íslenskrar leiklistar, hefur nú verið endurbyggt að stórum hluta. Síðastliðið fimmtudagskvöld fögnuðu íslendingar endurbættu Þjóðleikhúsi - og um leið betra leikhúsi, þrátt fyrir lítið breytt svipmót. * Hundruð manna hafa lagt hönd á plóginn við þessar viðamiklu framkvæmdir. Um leið og við óskum þjóðinni ánægjulegra stunda í Þjóðleikhúsinu þökkum við starfsmönnum leikhússins þolinmæðina og verkamönnum, iðnaðarmönnum, hönnuðum, ráðgjöfum og öðrum sem þátt tóku í verkinu framúrskarandi ötult starf. Þjóðleikhúsið er tekið til starfa á ný! MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.