Morgunblaðið - 23.03.1991, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARZ 1991
Sumarsólstöðu-
námskeið í júm
Píanóleikarinn Willem Brons og fagottleikarinn
Joep Terwey frá Hollandi verða leiðbeinendur
SUMARSÓLSTÖÐUR er heiti á tónlistarnámskeiði sem haldið verður
fyrir píanóleikara og fagott-leikara á ísafirði dagana 24.-30. júní nk.
en umsóknarfrestur rennur hins vegar út nú um mánaðamótin næstu.
Leiðbeinendur á þessu námskeiði verða úr hópi þekktustu og virtustu
tónlistarmanna Hollands, píanóleikarinn Willem Brons og fagott-leik-
arinn Joep Terwey.
Að námskeiði þessu stendur Tónlist-
arskólinn á ísafirði ásamt ýmsum
fyrrum nemendum leiðbeinendanna
tveggja hér á iandi. Námskeiðið er
alþjóðlegt og hefur bæklingur um
námskeiðið verið sendur til tónlistar-
skóla víða í Evrópu. Er gert ráð
fyrir þátttöku erlendra tónlistar-
manna í bland við innlenda.
Willem Brons er einn kunnasti
píanóleikari Hollendinga og hefur
haldið einleikstónleika víða um Evr-
ópu og víðar en auk þess leikið inn
á fjölmargar hljómplötur. Hann er
einn aðal píanókennarinn við Sweel-
inck Conservatorium í Amsterdam.
Brons hefur hlotið sérstakt lof fyrir
túlkun sína á Beethoven, Schubert
og Schumann. Willem Brons er
íslenskum tónlistarunnendum að
góðu kunnur, þar sem hann hefur
áður haldið námskeið hér á landi og
verið með tónleika. Margir Islend-
ingar hafa einnig numið hjá meistar-
anum í Amsterdam. Brons mun í
ferð sinni í þetta sinn halda hér
tvenna tónleika í nafni EPTA, evr-
ópusamtaka píanókennara — í
Reykjavík laugardaginn 22. júní og
á Isafirði mánudaginn 24. júní.
Joep Terwey hefur verið sólófag-
ottleikari Concertgebouw hljóm-
. sveitarinnar í Amsterdam frá árinu
1967. Hann hefur einnig tekið virk-
an þátt í flutningi kammertónlistar,
og leikið víða um heim bæði með
Hollensku blásarasveitinni sem hann
er einn af stofnendum að og með
Concertgebouw-hljómsveitinni.
Hann hefur auk þess leikið inn á
ljölda hljpmplatna. Terwey kennir
við Sweelinck Conservatorium í
Amsterdam og einnig Het Koninklij-
ke Conservatorium í den Haag.
Hann er eftirsóttur leiðbeinandi á
námskeiðum bæði fyrir einleikara
og kammertónlistariðkendur, að því
er kemur fram í frétt frá aðstand-
endum námskeiðsins.
Þátttöku skal tilkynna til Tónlist-
arskólans á ísafirði fyrir mánaða-
mótin næstu. Þátttökugjald er kr.
6000 og unnt er að fá gistingu vik-
una sem námskeiðið stendur fyrir
kr. 5000. Fiugleiðir styrkja nám-
skeiðshaldið með sérstöku afsláttar-
fargjaldi fyrir þátttakendur milli
Reykjavíkur og Isafjarðar.
011 Kfl 01 07fl L*RUS Þ’ VALDIMARSSON framkvæmðastjóRI
L \ IOU“tlw/U KRISTIN1MSIGURJÓNSSON,HRL.lögqilturfasteígnasali
Til sýnis og sölu eru að koma m.a. eigna:
Úrvalsíbúð - nýtt bílhýsi
3ja herb. á 2. haeð 89,9 fm nettó við Dalsel. Suðuríb. m. rúmg. sólsvöl-
um Ágæt sameign. Nýtt og vandað bílhýsi. Laus 1. júní nk.
Á vinsælum stað við Barðavog
Einbýlishús ein hæð 164,8 fm nettó. Bílskúr 23,3 fm nettó. Vel byggt
og vel með farið. 5 svefnherb. Tvær stofur, sólverönd. Ræktuð lóð -
skrúðgarður. Skipti mögul. á góðri 3ja-4ra herb. íb. m. bílskúr.
Glæsilegt raðhús við Hrauntungu
„Sigvaldahús" samt. 214 fm m. 5 herb. úrvals ib. á efri hæð. Neðri
hæðin getur verið sér einstaki.íb. Innbyggður góður bílskúr m. vinnu-
plássi. Eignin er öll eins og ný. Mikið útsýni.
Tvíbýlishús í smíðum
í grónu og vinsælu hverfi í Mosfellsbæ. Nánar tilt. tvær hæðir, hvor m.
5 herb. íb. 122 fm. Rúmg. bílskúr. Eignaskipti möguleg. Teikning á
skrifst.
Með sérinng., sér þvottah. og bílskúr
Stór og góð 6 herb. íb. í lyftuhúsi við Asparfell. Sérinng. af gangsvöl-
um. 4 rúmg. svefnherb., tvöf. stofa. Tvennar svalir. Bað og gesta
snyrt. Bílskúr. Mikið útsýni. Verð aðeins 8,5 millj.
Á góðu verði - laus strax
3ja herb. lítið niðurgr. íb. í kj. 78,6 fm nettó í tvíbýlishúsi í Vogunum,
Ný endurbyggð f Vesturborginni
2ja herb. íb. 55,7 fm nettó við Hringbraut. Sólsvalir. Mikil og góð
endurn. sameign. Stæði fylgir í nýju bilhýsi. Laus strax. *
Stórar og góðar kjallaraíb.
m.a. við: Miklubraut, Rauðalæk og Hverfisgötu. Vinsamlegast leitið
nánari upplýsinga.
• • •
Opðið ídag kl. 10-16.
Óvenu margirfjársterkir _____________________________
kaupendur. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Margskonar eignaskipti. mhbbbhhmbbb
ALMENNA
FASTFIGNASAltN
Þjóðsagnamyndir Ásgríms og af-
mælissýning í Listasafninu á Selfossi
Ein af myndum Ásgríms.
OPNUÐ verður laugardaginn 23.
mars í Listasafni Árnessýslu sýn-
ing á þjóðsagnamyndum Ásgríms
Jónssonar. Myndirnar eru léðar
af Listsafni íslands.
Ásgrímui' er fæddur í Rútsstaða-
Suðurkoti í Flóa þar sem íjallahring-
ur sá blasir við er hýsir svo marga
skessuna og forynjuna. Ásgrímur
valdi ekki þá leið að láta tröll sín og
konuna ungu, þolanda tröllskaparins,
vaxa fram gegnum landslagið og
samtvinnast því. Hann málaði annað-
hvort landslagsmyndir þar sem birta
og blæbrigði veðurs ráða ríkjum eða
þá tröllin holdi klædd þar sem heim-
ur sagnanna verður að raunveru-
leika, sem aðeins hefur yfir sér blæ
horfinna tíma.
Myndlistarfélag Ámessýslu er tíu
ára. Það var stofnað á Selfossi vorið
1981 og voru stofnfélagar 26. Félag-
ið heldur árlega Páskasýningu oftast
í Safnahúsinu. Námskeiðahald hefur
verið fastur liður í starfsemi þess.
Síðustu tvo vetur hefur Guðrún
Svava Svavarsdóttir kennt hjá félag-
inu. Áður hafa leiðbeint þær Elísabet
Harðardóttir ogHiidur Hákonardótt-
ir, Ólafur Th. Ólafsson og Sigríður
Svava. Félagið hefur einnig gegnum
árin efnt til skoðunarferða á söfn og
gallerí á höfuðborgarsvæðinu. Nú
eru féiagar 66 og formaður er Sig-
urlín Grímsdóttir.
Sýningarnar í Safnhúsinu við
Tryggvagötu 23 á Selfossi eru liður
í M-hátíð á Suðurlandi og eru því
haldnar að tilstuðlan menntamála-
ráðuneytis. Þær standa til 2. apríl
og er opið daglega frá kl. 14-18.
Myndir Asgríms hanga uppi í safninu
fram að 15. maí svo að skólanemend-
ur og aðrir hópar hafi tækifæri til
að njóta þeirra eftir umtali við safn-
vörð.
(Fréttatilkynning)
fikíg&Ö DuDáíl
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
í upphafi vitna ég til 566.
þáttar, en þar var fjallað um
nokkur orð sem koma kynnu í
staðinn fyrir þýsku umwelts-
freundlich, norsku miljövenlig
o.s.frv. Mörgum hefur misþókn-
ast orðið umhverfisvænn í
þessu sambandi. Hafa ýmsir leit-
að til mín um þetta og svo sem
farið í geitahús að leita ullar.
Þó hef ég munað eftir orðinu
umhverfishollur sem íslensk
málstöð hefur með semingi
mælt með, en jafnframt hvatt
aðra til að spreyta sig á nýyrða-
smíð sem hér mætti eiga við.
Nú hefur vinur minn Sverrir
Páll, sjá næstsíðasta þátt, sent
mér skemmtilegt bréf sem mér
þótti betur fengið en ófengið,
þar sem um þetta efni er fjallað.
Fer hér á eftir meginefni bréfs-
ins: _
„Ég nefndi við þig um daginn
að mér liði illa í hvert sinn sem
ég heyrði leiðindaorðið umhverf-
isvænn og hitt afbrigðið nátt-
úruvænn þykir mér engu skárra
um það sem á einni útlenskunni
er Jiallað umweltsfreundlich. ís-
lendingar hafa löngum átt til-
tölulega létt með að smíða sér
orð yfir flestallt sem tala þarf
um, einkum þó nafnorð (samt
er enn allt í vandræðum þegar
rætt er um myndbönd og menn
geta jafnvel lent í myndbands-
myndatökuvél þegar nefna þarf
„vídeókameru". Þá er orðið stutt
yfir í hjúkrunarframkvæmda-
stjórann eða Vaðlaheiðarvega-
vinnuverkfærageymsluskúrs-
lyklakippu, og jafnvel við-
smjörsviðartréð, sem kom úr
penna einhvers málhagasta Is-
lendings um aldir.) Það er hins
vegar eins og við eigum erfiðara
með að búa til orð af öðru tagi,
eins og sést á þessu óþarflega
stirðbusalega orði, umhverfis-
vænn, sem er raunar ekkert
annað en einföld orðabókarþýð-
ing. Mér þykir það bæði ljótt,
klaufalegt og leiðinlegt.
Ég hef í nokkra daga velt
þessu fyrir mér, hvað á að kalla
það efni, þær umbúðir og annað
sem fer ekki illa með náttúruna,
brotnar auðveldlega niður og
sameinast henni án þess að
valda langtímaspjöllum? Mig
langar til að segja þér frá nokkr-
,um þessum vangaveltum.
Fyrst kom mér í hug orðið
eðlisgóður. Það getur táknað
það sem er náttúrulegt, í eðli
sínu gott, þess vegna ekki
hættulegt eða skelfilegt náttúru
og umhverfi. Að vísu er orðið til
í málinu um þann mann sem er
brjóstgóður, raungóður, hjarta-
góður. Það þykir mér ekki gera
til í sjálfu sér því margræðni
orða hefur sjaldnast verið talin
íslensku máli til lasts. Hinsvegar
reyndi ég fleiri leiðir fyrir þá sem
þætti voðaverk að gefa þessu
orði nýja merkingu. Þá kom mér
í hug að smíða eitthvað sem
fæli í sér að vera góður við
landið sitt: landvænn, landholl-
ur, landgóður, landmildur,
landhægur. Satt að segja þótti
mér því lengur sem ég horfði á
þessi orð að þau myndu með
tímanum væmin og ef til vill
jafnvond og umhverfisvænn. Þá
leiddi ég hugann að því að hér
er varið að fást við efni sem
þarf að eyða á auðveldan hátt
án skemmda. Þá komu í hug orð
á borð við auðeyddur, auðtærð-
ur og auk þess slithægur, slit-
þægur, jafnvel svolítið fyndið
orð, rotþægur (það má auðveld-
lega misskilja viljandi svo að það
eigi við þann sem bíður þess ljúf-
lega að láta berja sig í hausinn,
en slíkt teldu sjálfsagt einhveijir
eftirlæti atorkusamra dyra-
varða! Er ekki annars til gaman-
saga um að hjálmur sé rotvarn-
arefni?)
Þessi síðustu fimm orð hafa
þau takmörk að tákna að auð-
velt sé að eyða, auðtærðar eða
slithægar umbúðir eru þær sem
eyðast auðveldlega. Hér segir
ekkert um náttúruna eða um-
hverfið eins og í þeim fjórum
sem á undan fóru. Landhollar
ölflöskur væru þær sem færu
ekki illa með umhverfið. Mér
þykir eftir á að hyggja skárra
að leggja áherslu á eyðinguna,
hún skiptir máli fyrir fegurðina,
ekki satt (ef hún heppnast).
Þegar ég lít á þessi orð finn
"ég einkum að þeim að þau eru
hálfflatneskjuleg og venjuleg
flest. Þess vegna geri ég eina
tilraun enn og hana tel ég einna
besta. Það er orðið auðfarga.
Þetta er óbeygjanlegt lýsingar-
582. þáttur
orð eins og auðtrúa eða and-
vana. Það hefur þann kost að
vera nýtt, býsna auðskilið og
þægilegt í meðförum þar sem
hvorki þarf að beygja það rétt
né vitlaust. Auk þess á það
prýðilegt andheiti, torfarga.
Hægt er að tala um auðfarga
mjólkurumbúðir og bleyjur
(sem ég hef alltaf með ufsiloni)
sem eru úr auðfarga efnum.
Svo má tala um torfagra efni
í rafhlöðum, og að versti galli
við rúllubaggana til sveita sé að
plastið sem baggarnir eru
vafðir í séu svo fjarskalega
torfarga.
Nú kann einhveijum að þykja
þessar tillögur mínar óþarflega
sérviskulegar. Þær hafa þó þann
kost að þær eru auðfarga. Ég
lít aðeins svo á að þær geti ver-
ið áfangi að því marki að finna
málinu nothæft orð yfir það sem
nú er kallað umhverfisvænt áður
en það verður torfarga. Betra
hefur ekki flögrað um hug minn,
að minnsta kosti ekki enn.“
★
Vera má að einhveijum þyki
lokatillögur bréfritara djarfleg-
ar, en ég bið ykkur að hugleiða
þær vandlega, áður en þið hafn-
ið þeim. Ég minni á atviksorð
eins og afturreka, alsnjóa,
klumsa, samráða, tvísaga og
örbjarga.
Hafi svo bréfritari enn sem
fyrr bestu þakkir mínar.
★
Salómon sunnan kvað (úr
ferðasögu):
Á bar sem við Brynjólfur sátum
var belgfullt af hortugum dátum
og langdrukknir rónar
og leiðindaskjónar
og meyjar í mannhundalátum.
★
Ingólfi Gunnarssyni á Akur-
eyri þykir ekki gott orðið gær-
nótt sem sjá mátti hér í blaðinú
fyrir skemmstu. Ég hef að þessu
leyti sama smekk. Nóttin fyrir
daginn í gær er á mínu máli
fyrrinótt, en ef ég tala um
síðustu nótt, segi ég gjarnan að
morgni dags „í nótt“, t.d. að ég
hafi sofið vel í nótt, en þegar
líður á daginn, segði ég trúlega
„í nótt sem leið“.