Morgunblaðið - 23.03.1991, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARZ 1991
Bretland:
Deilt um birtingu
niðurstaðna prófa
St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frimannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
YFIRKENNARAR í barnaskólum Englands og Wales leggjast gegn
því, að birtar verði heildarniðurstöður hvers skóla úr fyrirhuguðum
samræmdum prófum, sem lögð verða fyrir í fyrsta sinn í næsta
mánuði. Menntamálaráðherrann vill á hinn bóginn að niðurstöðum-
ar verði birtar.
Samkvæmt nýjum grunnskóla-
lögum á að halda samræmd próf
fyrir öll böm fjórum sinnum á ferli
þeirra í grunnskólanum: í fyrsta
sinni þegar þau eru 7, þá 11 ára,
síðan 14 ára og að lokum, þegar
þau eru 16 ára. Það er lagaleg
skylda að birta heildamiðurstöður
hvers skóla fyrir 11, 14 og 16 ára
böm. Ágreiningurinn stendur um
niðurstöðumar fyrir 7 ára bömin.
Eyrarsundsbrúin:
Tamivið-
gerð tefur
undirritun
samnings
Stokkhólmi. Frá Erik Lidén, frétta-
ritara Morgunblaðsins.
STJÓRNVÖLD í Dan-
mörku og Svíþjóð frestuðu
í gær undirritun samnings
vegna brúargerðar yfir
Eyrarsund vegna þess að
danski samgönguráðher-
rann, Kaj Ikast, átti knýj-
andi erindi við tannlækni
sinn, að því er embættis-
menn sögðu.
Ráðherrann mun undirrita
samninginn í dag, laugardag,
ásamt hinum sænska starfs-
bróður sínum, Georg Anders-
son. Áætlaður kostnaður við
brúargerðina, sem áætlað er
að verði lokið fyrir aldamót,
ef allt gengur vel, er 20-25
milljarðar sænskra _ króna
(200-250 milljarðar ÍSK) og
em það einkaaðilar sem fjár-
magna framkvæmdina.
Gjaldtaka af umferð um
brúna á svo að greiða niður
þetta risavaxna mannvirki.
Samtök yfirkennara hafa nú
samþykkt að félagsmenn sínir af-
hendi ekki yfirvöldum niðurstöður
úr þessum samræmdu prófum fyrir
7 ára börn. Þetta á bæði við um
bæjaryfirvöld á hveijum stað og
ráðuneytið.
Yfirkennararnir segja, að niður-
stöðurnar fyrir 7 ára börn séu
ómarktækar og geti gefið villandi
mynd af skólanum. Börnin hafi
ekki verið nema tvö ár í skólanum
og hafí mörg hver ekki lagað sig
að kröfum hans fyllilega.
Ráðherra menntamála þrýstir
hins vegar á um, að þessar niður-
stöður verði birtar. Hann segir þær
vera nauðsynlegar fyrir foreldra til
að vega og meta gæði skóla á sínu
svæði. Sama eigi við um sjö ára
böm og önnur.
Ekki er ljóst, hvemig fer með
niðurstöðumar úr þessum fyrstu
prófum.
Reuter
Stærsta grasker suðurhvels
Joe Kennedy, bóndi í Zimbabwe, reynir á meðfylgjandi mynd að
lyfta risagraskeri sínu, sem reyndist vera stærsta grasker á suður-
hveli jarðar í keppni sem haldin var í Harare í gær. Graskérið vó
160,1 kíló.
Hæstiréttur
Kanada:
Fóstur nýt-
ur ekki rétt-
inda sem
lögpersóna
Ottawa. Reuter.
HÆSTIRÉTTUR Kanada úr-
skurðaði á fímmtudag að ekki
væri unnt að líta á fóstur sem
lögpersónu samkvæmt hegning-
arlögum
Rétturinn vísaði frá áfrýjun á
sýknudómi undirréttar í Bresku
Kólumbíu, þar sem tvær ljósmæður
vom ákærðar fyrir glæpsamlega
vanrækslu sem ieitt hefði til dauða.
Ljósmæðurnar höfðu aðstoðað
við heimafæðingu andvana fædds
barns. Rétturinn úrskurðaði að ekki
væri unnt að dæma þær á þeim
forsendum að þær hefðu valdið
dauða.
Úrskurðurinn er talinn ósigur
fyrir andstæðinga fóstureyðinga,
þar sem vonast hafði verið til í
þeirra hópi að þama fengist for-
dæmi sem beita mætti í öðrum
málum. Samkvæmt áliti þeirra er
fóstrið sérstök vera með eigin lög-
réttindi.
Sverdlovsk, heimaborg Borís Jeltsíns:
Matvælaskortur rakinn til
andstöðu við Gorbatsiov
Moskvu, Washington. Reuter.
EMBÆTTISMENN í Sverdlovsk, heimaborg Borís Jeltsíns Rússlands-
forseta, sögðu í gær að alvarlegur matvælaskortur væri í borginni
en vísuðu hins vegar á bug fréttum um að óeirðir hefðu brotist út
vegna þessa. Rúslan Khasbúlatov, fulltrúi á rússneska þinginu, hafði
skýrt þinginu frá því að óeirðir hefðu brotist út í borginni eftir að
dregið hefði verið úr matvælaflutningum til hennar vegna mikillar
andstöðu á meðal borgarbúa við tillögu Míkhaíls Gorbatsjovs um
nýskipan Sovétríkjanna.
við verslanir og fólk hamstraði því
sem næst allar þær vörur sem væm
enn fáanlegar.
Dick Cheney, vamarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í gær
að búast mætti við áframhaldandi
efnahagsörðugleikum í Sovétríkj-
unum og auknar líkur væri á óeirð-
um í landinu þar sem Gorbatsjov
hefði tregðast við að koma á nauð-
synlegum umbótum. Hann kvaðst
myndu leggja til að hætt yrði við
fyrirhugaðan niðurskurð á útgjöld-
um Bandaríkjamanna til varnar-
mála ef Sovétforsetinn héldi áfram
á sömu braut.
„Öeirðir hafa brotist út í
Sverdlovsk vegna matvælaskorts,"
sagði Rúslan Khasbúlatov og bætti
við að matvælafiutningar til borgar-
innar frá fjórtán hémðum hefðu
verið stöðvaðir. Hann sagði ástæð-
una þá að aðeins 34% kjósenda í
Sverdiovsk hefðu stutt tiilögu Gorb-
atsjovs um nýtt ríkjasamband í
nýafstaðinni þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Larisa Rúdakova, ritstjóri frétta-
stofunnar Úralaktsept í Sverdlovsk,
kvaðst þó ekki hafa orðið vör við
neinar óeirðir og sagði að allt væri
með kyrrum kjömm í borginni. Al-
varlegur matvælaskortur væri í
borginni, langar biðraðir væru þar
Kúveitar hafa myrt
210 Palestínumenn
- segir Abu Sharif, aðstoðarmaður Arafats
Túnis. Reuter.
BASSAM Abu Sharif, háttsettur aðstoðarmaður Yassers Arafats,
leiðtoga Frelsissamtaka Palestínu (PLO), sakar Kúveita um að hafa
myrt 210 Palestínumenn og pyntað hundruð, þ.á m. börn. Mannréttin-
dasamtökin Middle East Watch, sem aðsetur hafa í New York, sök-
uðu Kúveita á fimmtudag um að hafa myrt 30-40 Palestínumenn
og fangelsað tvö hundruð.
Abu Sharif sagði að hinir látnu
hefðu ýmist verið pyntaðir til dauða,
skotnir af aftökusveitum eða
hengdir. Hann sagði að hlutar Mub-
arak-sjúkrahússins í Kúveitborg
væm notaðir til pyntinga og hinir
látnu væm grafnir í fjöldagröfum.
Sharif skoraði á George Bush
Bandaríkjaforseta að sjá til þess
að mannréttindi yrðu virt fyrir botni
Persaflóa og gagnrýndi Javier
Perez de Cuellar, framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna, fyrir
að láta málið afskiptalaust.
Starfsmenn mannréttindasam-
taka og sjónarvottar hafa staðfest
að síðan Kúveit var frelsað íhafí
tugir Palestínumanna, íraskra
borgara og Jórdana verið barðir,
pyntaðir og í sumum tilfellum
drepnir í hálfgerðum galdraofsókn-
um gegn gmnuðum samstarfs-
mönnum Iraka. Samtökin Middle
East Watch sögðu á fímmtudag að
kúveiski herinn og kúveiskir and-
spyrnumenn hefðu hefnt sín á Pal-
estínumönnum og fleiri þjóðum
undanfarnar vikur. Töldu samtökin
að 30-40 hefðu fallið í þessum of-
sóknum og tvö þúsund manns verið
fangelsaðir. Samtökin sögðu að
stjórnvöld í Kúveit vissu af þessu
athæfi en megnuðu ekki að hafa
stjóm á hermönnum og vopnuðum
ribböldum.
Sömu pyntingaraðferðir og
Irakar beittu
Andrew Whitley, framkvæmda-
stjóri Middle East Watch, sagði að
Palestínumenn hefðu verið pyntaðir
á lögreglustöðvum og einkaheimil-
um og þeir hefðu verið yfírheyrðir
í skólum og jafnvel í sjúkrahúsum.
Einnig hefði þeim verið haldið í ein-
angrun í herfangelsum. Whitley
fullyrti að bandarískir hermenn
hefðu verið viðstaddir barsmíðar í
fáeinum tilvikum og reynt að stöðva
pyntingamar í einu tilviki. Hann
sagði að sjónarvottar hefðu sagt frá
því að pyntingaaðferðimar væru
þær sömu og írakar hefðu beitt
gegn Kúveitum á meðan landið var
hemumið.
Whitley vakti ennfremur athygli
á því að kúveisk stjómvöld létu
borgara sína ganga fyrir þegar
matvælum og læknisþjónustu væri
úthlutað. Palestínumenn og ríkis-
fangslausir arabar, sem sumir
hveijir kæmu sem stríðsfangar frá
írak, væm látnir sitja á hakanum.
Hann sagði að vafalaust hefðu ein-
hveijir Palestínumenn aðstoðað
íraska hernámsliðið en það væri
ranglátt að láta alla Paiestínumenn
taka út refsingu af þeim sökum.
Bush Bandaríkjafor-
seti vinsæll í A-Evrópu
París. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjafor-
seti nýtur meira álits í mörgum
ríkja Austur-Evrópu en leiðtog-
ar viðkomandi landa. Eina und-
antekningin er Litháen þar sem
Vytautas Landsbergis forseti
er aðeins hærra metinn.
í alþjóðlegri könnun sem gerð
var fyrir franska blaðið Liberation
og ítalska blaðið La Repubblica
var fólk í Ungveijalandi, Tekkó-
slóvakíu, Póllandi, Sovétlýðveld-
inu Rússlandi og Litháen beðið
um að gefa nokkram leiðtogum
einkunn á kvarðanum 0-10.
Rússargáfu Bush 6,7 í einkunn
að meðaltali en Míkhaíl Gor-
batsjov Sovétforseti hlaut aðeins
3,8 hjá þeim. Borís Jeltín Rúss-
landsforseti var hærra skrifaður
en Gorbatsjov hjá Rússum því
hann hlaut einkunnina 5,5.
Bush var vinsælli en leiðtogar
Póllands, Ungveijalands og
Tékkóslóvakíu. Pólveijar gáfu
honum einkunina 7,4 en Lech
Walesa aðeins 5,3. Ungveijar
George Bush
gáfu Jozsef Antall aðeins einkun-
ina 4,8 en Bush 7,3. Minni var
munurinn í Tékkóslóvakíu þar
sem Bush fékk einkunnina 7,9 en
Vaclav Havel 7,4. í Litháen hafði
Landsbergis hins vegar vinning-
inn á Bush, hlaut 7,2 stig af 10
á móti 6,9.
Vextir lækka í Bretlandi
Lundúnum. Reuter.
BANKAVEXTIR voru lækkaðir í Bretlandi í gær í því augnamiði að
stemma stigu við efnahagssamdrættinum í landinu, sem þykir draga
úr líkunum á því að stjórn Ihaldsflokksins haldi velli í næstu kosningum.
Lækkunin nam þó aðeins hálfu
prósentustigi og olli það nokkrum
vonbrigðum á meðal fjármálamanna.
Stefna Johns Majors forsætisráð-
herra er að koma vöxtunum niður í
áföngum í samræmi við lækkun
verðbólgu. Síðar um daginn var birt
skýrsla sem sýnir að verðbólgan
rriinnkaði minna í síðasta mánuði en
vænst hafði verið. Verðbólgan
mældist um 8,9% í febrúar en var
9% í janúrar. Mest var var hún 11%
í fyrra.
Vextirnir voru lækkaðir í 12,5%
úr 13%.