Morgunblaðið - 23.03.1991, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ 'lAUGARDAGUR 23. MARZ 1991
33
Tertur um páska
og fermingar
Nú fara fermingar í hönd, og páskarnir eru árvissir eins og venjulega og í þetta skipti
óvenju snemma á ferðinni. Segja má að páskarnir séu aðalhátíð kristinna manna, þótt
þeir hafi horfið í skuggann af jólunum hin síðari ár meðal lúterskra. Páskar í kaþólskum
löndum eru enn sem fyrr miklu meiri hátíð en jólin. Fyrir 9 árum var ég á sólarströnd
um páska, og kom mér á óvart hversu mikil helgi var þar. Allt lokað og ferðamaðurinn gat lítið
farið og gert í marga daga, gat ekki einu sinni sleikt sólina, sem lét varla sjá sig á sólarströnd
þá helgidaga. í Malaga á Costa del Sol er dómkirkja, sem hefur fengið viðurnefnið „Sú einhenta",
af því að fé þraut áður en tókst að ljúka byggingu annars aðaltumsins. Hún á það sammerkt með
kirkjunni á Landakotshæð, sem blasir við mér út um gluggann, þegar ég skrifa þetta. Fé var líka
þrotið, er kom að turnspírunni. Nú vill víst enginn, hvorki í Malaga né Reykjavík að þessu verki
verði lokið, enda táknrænt fyrir starf kirkjunnar, því lýkur aldrei. Við höfum haft óvenjugóðan
og snjóléttan vetur í ár, raunar hálfgert páskaveður eins og var á Spáni í þessari ferð minni. Nú
hefur kólnað til muna og jafnvel snjóað víða, skíðamönnum til mikillar gleði, en von okkar er sú, að
hið árvissa páskahret fari hjá garði að þessu sinni.
Margar þjóðir eiga sér sérstakt
páskabrauð, og væri hægt að
koma með uppskriftir frá mörgum
löndum, en í þetta skipti er páska-
brauðunum sleppt, en boðið upp
á gómsætar tertur í staðinn. Þær
er hægt að nota bæði um páskana
og svo auðvitað í fermingarveisl-
urnar. Þegar ég fermdist, bjó
móðir mín til frábæra smjördeig-
stertu með sveskjum og eggjakr-
emi. Ég fékk aldrei uppskriftina
af tertunni hjá henni. Én ég bjó
til tertu eins og ég held að hún
hafi verið. Bragðið af tertu móður
minnar situr enn í munni og
fannst mér þessi terta mín ekki
alveg eins góð og hennar, sem
að öllum líkindum er bara vit-
Ieysa, þar sem hugljúfar bernsku-
minningar eru allra minninga
bestar.
Kaffi/möndlukaka
325 g möndlur
5 eggjarauður
2 tsk sykur
rifinn börkur af 'Mtilli sítrónu
7 eggjahvítur
100 g sykur
1. Hitið bakarofninn í 180° C,
blástursofn 160° C.
2. Malið möndlurnar fínt. Rífið
sítrónubörkinn.
3. Hrærið eggjarauður með
sítrónuberki og 2 tsk af sykri.
4. Setjið helming rifinna
mandlna út í með sleikju.
5. Þeytið eggjahvíturnar, setjið
sykurinn smám saman út í
og þeytið áfram þar til þetta
er orðið mjög stíft.
6. Setjið það sem eftir er af rifnu
möndlunum varlega út í.
7. Setjið það síðan saman við
eggjarauðuhræruna með
sleikju.
Smyijið springmót, u.þ.b. 24
sm í þvermál. Setjið deigið í
mótið, setjið í miðjan ofninn
og bakið í 35 mínútur.
Kælið örlítið, en losið þá
hringinn frá. Kælið alveg.
Kremið:
1 peli (2'A dl) mjólk
2 eggjarauður
100 g sykur
2 msk kartöflumjöl
150 g mjúkt smjör
4 kúfaðar tsk kaffiduft (Inst-
ant)
1 msk sjóðandi vatn
3 msk kaffi eða kakólíkjör (má
sleppa)
10. Þeytið eggjarauður með sykri
og kartöflumjöli.
11. Setjið kalt vatn í eldhúsvask-
inn.
12. Hitið mjólkina, hrærið eggja-
rauðuhræruna varlega út í
og hitið að suðu. Takið pott-
inn strax af hellunni, þegar
þetta þykknar og skellið ofan
í vatnið í eldhúsvaskinum.
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Hrærið í þar til mesti hitinn
er rokinn úr. Kælið síðan al-
veg.
13. Leysið kaffiduftið upp í heitu
vatni, kælið, en hrærið síðan
út í mjúkt smjörið. Bætið
líkjör í, ef þið notið hann.
14. Hrærið síðan smjörkremið
skeiðavís út í eggja-
rauðukremið og hrærið vel á
milli.
15. Kljúfið kökuna í þrennt, setjið
krem á milli og eitt lag ofan
á. Setjið kökuna í kæliskáp
og kælið.
Ofan á kökuna:
50 g suðusúkkulaði
100 g marsipan
'h dl flórsykur
lh tsk gulur ávaxtalitur
16. Setjið súkkulaðið í eitt hornið
á litlum plastpoka. Stingið
ofan í vel heitt vatn úr kran-
anum og látið súkkulaðið
bráðna.
17. Klippið örlítið gat á hornið
og sprautið súkkulaðinu í
munstur ofan á kökuna,
hringi ef þetta á að vera pá-
skaterta, en með nafni ferm-
ingarbarnsins og dagsetn-
ingu ef þetta á að vera ferm-
ingarterta.
18. Hnoðið marsipanið með flór-
sykri, setjið gulan ávaxtalit í
s/< hluta en grænan að 'A
hluta.
19. Fletjið gula marsipanið út
milli tveggja bökunarpappírs-
búta. Skerið síðan út blöð og
búið til eina páskalilju.
20. Fietjið hluta af græna
marsipaninu út og búið til
löng blöð úr því, en rúliið
mjóa lengju og notið sem legg
á blómið.
21. Leggið páskaliljuna á miðju
kökunnar ef þetta er páska-
terta, en ef þið skrifið nafn
fermingarbarnsins á kökuna,
leggið þá blómin við kantinn.
Athugið: Kökuna má frysta, þó
ekki marsipanblómið.
Smjördeígsterta með
sveskjum
300 gr smjördeig (butterdeig)
250 g steinlausar sveskjur
'h dl vatn
2 msk jarðarbeijasulta
1 'h dl mjólk
1 dl ijómi
3 eggjarauður
1 msk vanillusykur
1 msk kartöflumjöl
1 peli þeyttur ijórrii
1. Hitið bakarofninn í 190° C,
blástursofn í 170° C.
2. Geymið smjördeigið í kæli-
skáp. Fletjið síðan út, þannig
að þið fáið ferkantaðan bút,
25-39 sm í þvermál og mjóa
ræmu til að leggja með kant-
inum allt í kring. Setjið strax
í heitan ofninn og bakið í
12-15 mínútur. Kælið. Ef þið
getið ekki bakað þetta strax,
þarf að geyma deigið í kæli-
skáp.
3. Sjóðið sveskj.urnar með vatn-
inu í 20 mínútur. Hafið mjög
hægan hita, sveskjur eru
fljótar að brenna.
4. Takið sveskjurnar úr pottin-
um og setjið á disk. Meijið
með gaffli. Setjið síðan ra-
barabarasultu saman við.
Kælið.
5. Smyijið sveskjumaukinu
jafnt ofan á smjördeigsbotn-
inn.
6. Hrærið saman eggjarauður,
vanillusykur og kartöflumjöl.
7. Setjið kalt vatn í eldhúsvask-
inn.
8. Látið mjólkina og ijómann
sjóða, hellið þá örlitlu af heitri
blöndunni út í eggjarauðu-
hræruna, setjið síðan allt í
pottinn og látið hitna að suðu
eða þar til þetta þykknar.
9. Skellið pottinum strax ofan í
kalda vatnið í vaskinum og
hrærið í þar til mesti hitinn
er rokinn úr. Hellið köldu
kreminu yfir sveskjurnar á
kökunni.
10. Þeytið ijómann og sprautið í
þétt munstur ofan á kökuna.
Athugið: Kökuna má frysta
hvort sem er áður en ijómanum
er sprautað á hana eða full-
skreyttri með ijóma.
Vígsluafmæli Fella
o g Hólakirkju
Dalur hinna
blindu
í Lindarbæ
LEIKHÓPURINN Þíbylja frum-
sýnir leikritið Dalur hinna blindu
mánudaginn 25. mars nl. kl. 20.00
í Lindarbæ v/Lindargötu. Leik-
ritið er unnið uppúr smásögunni
Country of the Blind eftir H.G.
Wells í samvinnu leikhópsins og
leikstjórans Þórs Tulinius.
Leikritið segir frá feðgum sem
brotlenda flugvél sinni hátt uppí
Andesfjöllum langt fjarri manna-
byggðum. Þar finna þeir fyrir grös-
ugan dal, lokaðan frá hinni svoköll-
uðu siðmenningu. íbúar dalsins eru
allir blindir og eins og segir í þjóð-
sögunni: hafa verið í nokkrar aldir.
Leikritið greinir síðan frá samskipt-
um feðganna og hins blinda samfé-
lags þ.e.a.s.: Hinir sjáandi í heimi
hinna blindú.
Leikstjóri er Þór Tulinius. Leik-
myndahönnuður er Guðrún Sigríður
Haraldsdóttir og henni til aðstoðar
Ólöf Sigurðardóttir. Tónlist og leik-
hljóð samdi Hilmar Örn Hilmarsson,
lýsingu hannaði Egill Ingibergsson,
aðstoð við hreyfingar veitti Silvia
von Kospoth og Ásgerður Sigurðar-
dóttir blindrakennari gaf leikurum
góð ráð. Kristín Thors sá um förð-
un.
Eitt atriði úr leikritinu Dalur
hinna blindu.
Eftirtaldir leikarar taka þátt í
sjiningunni: Árni Pétur Guðjónsson,
Ása Hlín Svavarsdóttir, Helga
Braga Jónsdóttir, Inga Hildur Har-
aldsdóttir, Ingrid Jónsdóttir, Kjart-
an Bjargmundsson, Ólafur Guð-
mundsson, Rósa Guðný Þórsdóttir,
Stefán Jónsson og Stefán Sturla
Siguijónsson. Leikfélag Reykjavík-
ur sá hópnum fyrir æfinga- og sýn-
ingarhúsnæði.
Eins og áður sagði verður frum-
sýning mánudaginn 25. mars
kl.20.00, næstu sýningar verða
miðvikudagskvöldið 27. mars,
fimmtudagskvöldið 28. mars og
mánudagskvöldið 1. apríl.
Á pálmasunnudag verður
barnasamkoma að venju í Fella-
og Hólakirkju kl. 11.00.
Þá verður sérstök hátíðarguðs-
þjónusta kl. 14.00 í tilefni af
vígsludegi kirkjunnar, en nú eru
þijú ár liðin frá því kirkjan var
vígð á pálmasunnudag. Við guðs-
þjónustuna á sunnudaginn mun
kirkjukór Fella- og Hólakirkju
flytja Þýska messu D 872 eftir
Franz Schubert undir stjórn org-
anistans Guðnýjar M. Magnús-
dóttur. Þá munu nemendur Ragn-
heiðar Guðmundsdóttur í Söng-
skóla Reykjavíkur syngja bæði
einsöng og tvísöng. Þeir eru:
Kristín R. Sigurðardóttir, Svava
Á. Sigurðardóttir, Metta Helga-
dóttir, Sigurlaug Arnardóttir og
Bjarni Thor Kristinsson._
Sr. Guðmundur Karl Ágústsson
þjónar fyrir altari og sr. Hreinn
Hjartarson predikar. Eftir guðs-
þjónustuna verður kirkjugestum
boðið upp á veitingar í safnaðar-
heimili kirkjunnar.
íbúar í Fella- og Hólabrekku-
sókn eru hvattir til að koma í
kirkju sína á hátíðardegi og njota
þess sem þar fer fram.
(Fréttatilkyiming)
Jill Seifer og Hilmar Jensson.
■ DJASSTÓNLEIKAR verða
haldnir á Púlsinum í kvöld, laugar-
daginn 23. mars. Þar koma fram
Skúli Sverrisson, bassi, ásamt
trommuleikaranum úr Full Circle,
Dan Rieser, og Hilmari Jenssyni
gítarleikara sem er að ljúka
BM (BA)-gráðu frá Berklee, einnig s
kemur fram djasssöngkonan Jill
Seifer, sem hefur þegar útskrifast
með sömu gráðu og Skúli og Hilm-
ar frá Berklee, en Hilmar og Jill
eru hér í stuttri heimsókn og verða
þetta einu tónleikar þeirra hér á
landi að þessu sinni. Tónleikarnir
hefjast stundvíslega kl. 21.30 og
standa fram undir miðnætti en þá
tekur Hljómsveit Eddu Borg við.