Morgunblaðið - 23.03.1991, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARZ 1991
39
Siguijón Hjörleifsson,
Dalvík - Minning
Fæddur 13. maí 1910
Dáinn 11. mars 1991
Og geiglausum huga ég held til móts
við haustið, sem allra bíður.
Og sefandi harmljóð hins helga fljóts
úr húminu til mín líður.
Eins veit ég og finn að það fylgir mér
um firð hinna bláu vega,
er hníg ég eitt síðkvöld að hjarta þér,
ó, haustfagra ættjörð míns trega.
(T.G.)
Laugardaginn 23. mars verður
til moldar borinn frá Dalvíkurkirkju
föðurbróðir minn, Siguijón Hjör-
leifsson, sem lést í Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri eftir langa og
harða baráttu við erfiðan sjúkdóm.
Baráttuna háði hann af mikilli
þrautseigju. Mig langar til að minn-
ast hans með örfáum orðum nú
þegar hann er lagður til hinstu
hvílu.
Siguijón fæddist á Knappsstöð-
um í Fljótum, sonur hjónanna Rósu
Jóhannsdóttur og Hjörleifs Jó-
hannssonar, sem alls eignuðust 14
börn, en nokkur þeirra dóu á unga
aldri. Þijú þeirra lifa bróður sinn.
Rósa og Hjörleifur fluttu frá
Knappstöðum að Gullbringu í
ar, skrifstofustjora.
Bankar og sparisjóðir eru al-
mennt opnir frá kl. 9:15 til 16 alla
virka daga og eins er algengt að
jafnframt sé opið til kl. 18 á
fimmtudögum eða föstudögum.
Þórarinn sagði að Sparisjóður
Kópavogs hefði hætt að hafa opið
til kl. 18 á fimmtudögum fyrir
tveimur árum, en hugmyndin um
að opna fyrr á morgnana hefði kom-
ið upp s.l. haust. Þetta hefði ekki
Svarfaðardal er Siguijón var 12 ára
gamall.
Lífsbaráttan var hörð á þessum
tímum, og því fór hann snemma
að vinna fyrir sér, og fyrstu árin
var hann í kaupavinnu í Svarfaðar-
dal. Um tíma stundaði hann einnig
sjóinn. Lögreglumaður á Dalvík var
hann til margra ára, en síðustu
starfsárin vann hann hjá Útgerðar-
félagi Dalvíkinga hf.
21. desember 1941 kvæntist
hann Sigurbjörgu Pálsdóttur, sem
ættuð var frá Bakkagerði í Borgar-
firði eystra. Þau bjuggu allan sinn
búskap á Dalvík að undanskildum
áranum 1952 til 1957 erþau bjuggu
að Sauðanesi í Dalvíkurhreppi, sem
þá var nyrsti bær hreppsins,
skammt sunnan Ólafsfjarðarmúla.
Eftirlifandi sonur þeirra er Valur
Hólm, vélfræðingur við Laxárvirkj-
un. Kona hans er Fjóla Stefánsdótt-
ir frá Akureyri, hótelstjóri á
Húsavík. Þau eiga tvær dætur;
Margréti Hólm en maður hennar
er Sigurður Böðvarsson frá Gaut-
löndum í Mývatnssveit og Svanhildi
Hólm. Barn Margrétar og Sigurðar
er Ragnhildur. Sigurbjörg lést 1.
verið gert áður og ákvörðunin hefði
síðan verið tekin í samráði við
starfsfólkið, sem ræður hvort það
tekur frí á öðram tíma fyrir að
byija fyrr eða fær greidda yfir-
vinnu.
Þórarinn sagði að þessi tilraun
yrði endurskoðuð í lok september
n.k. Hún lofaði góðu, en fyrst myndi
verulega reyna á hana í vikunni
eftir páska.
júní 1983 eftir margra ára sjúk-
dómsbaráttu. Allt fram til hinstu
stundar annaðist Siguijón konu
sína í veikindum hennar af slíkri
alúð og umhyggju, að okkur sem
til þekktu mun seint gleymast.
Siguijón naut mjög samskipta
við náttúruna, sérstaklega þau ár
sem hann bjó að Sauðanesi. Hann
var mikill dýravinur, og annaðist
skepnur sínar af kunnáttu og kost-
gæfni, sérstaklega þó hesta sína,
en hestamennskan veitti honum
margar ánægjustundirnar. í
bernsku var ég þeirrar gæfu aðnjót-
andi að dvelja þijú sumur á Sauða-
nesi hjá þeim hjónum og hef ég
alla tíð verið þakklát fyrir þann
tíma. Þar bast ég þeim hjónum
sterkum böndum sem aldrei rofn-
uðu.
Margar góðar minningar á ég frá
þessum tíma og minnist ég sérstak-
lega kyrrðarinnar og hinna björtu
sumarkvölda um hásláttinn þegar
allir lögðust, á eitt við að koma
heyinu í hlöðu. Ég minnist þessa
fallega manns taka rösklega til
hendi við hin ýmsu bústörf við að-
búnað og tæki sem nútímabóndinn
þekkir aðeins af afspurn.
Glettni og skemmtileg tilsvör
fékk ég oft frá honum sem annars
var fremur fámáll að eðlisfari, en
hæverska var honum í blóð borin.
Lífsgöngu góðs drengs er lokið,
Guð blessi minningu hans.
Ég votta aðstandendum mína
dýpstu samúð.
Sigurbjörg Gestsdóttir
Sparisjóður Kópavogs:
Breyttum opnun-
artíma vel tekið
SPARISJÓÐUR Kópavogs breytti opnunartímanum á 35 ára afmæl-
inu á miðvikudag, hefur opið frá klukkan 8:30 alla virka daga, og
hefur breytingunni verið vel tekið að sögn Þórarins Guðmundsson-
Salbjörg I. Jónatans-
dóttir - Minning
Fædd 10. ágúst 1914
Dáin 11. nóvember 1990
Mig langar að minnasý hennar
Salbjargar Ingibjargar Jonatans-
dóttur eða Boggu frænku, eins og
ég kallaði hana alltaf, með nokkrum
línum. •
Bogga frænka, besta frænka í
heimi, var mér alltaf mjög kær og
átti ég margar góðar stundir með
henni. Ég ogr systir mín fórum oft
með mömmu til hennar þegar við
vorum litlar og spiluðu þær mikið.
Á meðan þær voru að spila lánaði
Bogga okkur postulínsstytturnar
sínar til að leika okkur með og
fannst okkur hún sýna okkur mikið
traust með því. Alltaf var hún jafn
hissa á því að við skyldum ekki
bijóta neina styttu.
Bogga og mamma voru systur
og voru þær mjög samrýndar. Þær
hittust oft til að sþila eða fara í
bingó.
Syni mínum, honum Aðalbirni,
þótti mjög vænt um Boggu frænku.
Þegar hann var fjögurra ára, byij-
aði hann að tala um það að hann
og Bogga ætluðu að búa saman
þegar hann yrði stór og ætlaði hann
að smíða hjónarúm handa þeim svo
þau gætu verið hjón. Svo . mikið
þótti honum vænt um hana.
Sumarið 1989 fóru mamma og
Bogga ásamt börnum sínum, mök-
um þeirra og barnabörnum til
Hríseyjar til að heilsa upp á æsku-
stöðvar sínar og var ég og fjöl-
skylda mín þar á meðal. Þar
skemmtu sér allir hið besta og ekki
síst Bogga sem var eldhress að
vanda.
Okkur tók því mjög sárt að sjá
Boggu frænku svona mikið veika á
sjúkrahúsinu stuttu áður en hún
dó. En þá fór ég með börnin mín
þijú til hennar og gáfum við henni
mynd 'af henni og Aðalbirni dans-
andi gömlu dansana saman í Hrísey.
Þegar hún fékk myndina fylltust
augu hennar tárum.
Þegar við heimsóttum hana á
sjúkrahúsið í síðasta skiptið, var
eins og við vissum að þetta væri í
síðasta skipti sem við sæjum hana.
Aðalbjörn og Bogga horfðust í augu
og táraðust bæði. Við kysstum
Boggu frænku bless í síðasta sinn,
gengum fram ganginn og snerum
okkur við til að veifa henni.
Ég hugsa oft til Boggu frænku,
hún var góð kona, góður vinur, og
besta frænka í heimi. Henni mun
ég aldrei gleyma. Hvíli hún í friði.
Elsku Þórður, börn hinnar látnu,
barnabörn og aðrir aðstandendur,
ykkur votta ég mína dýpstu samúð.
Tilvera okkar er undarlegt ferðalag.
Við erum gestir og hótel okkar er jörðin.
Einir fara og aðrir koma 1 dag,
því alltaf bætast nýir hópar í skörðin.
Og til eru ýmsir, sem ferðalag þetta þrá,
en þó eru margir, sem ferðalaginu kvíða.
Og sumum liggur reiðinnar ósköp á,
en aðrir setj ast við hótelgluggann og bíða.
(Tómas Guðm.)
Linda Sig. Aðalbjörnsdóttir
Þ.ÞDRGRÍM5S0N&C0
001301100.
gólfflísar - kverklistar
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640
I
o>
5
VEGGFÓDUR-UM ALLT LANU
Nú er hægt að velja veggfóður frá
Veggfóðraranum um allt land. Sölu-
aðilar vítt og breitt um landið bjóða
viðskiptavinum sínum að skoða bók
með fjölda sýnishoma af veggfóðri.
í bókinni er valið veggfóður sem
hentar í allar vistarverur heimilisins.
Stofur, svefnherbergi, barna-
herbergi, borðstofur, ganga
- hvar sem hugurinn girnist.
Gefðu heimili þínu fallegt og hlýlegt
yfirbragð með veggfóðri.
VEGGFODRARINN
VERSLUN MEÐ GÓLF- OG VEGGEFNI
FÁKAFEN 9 • SKEIFUNNI • SÍMI: (91) - 687171
SfiLUABILAR
Dropinn sf • Keflavík
Málningarþjónustan hf • Akranesi
Málningarbúðm • Akranesi
Kaupfélag Borgfirðinga KB • Borgarnesi
Litabúðin • Ólafsvík
Versiunin Húsið • Stykkishólmi
Verslunin Hamrar • Grundarfirði
Dalakjör hf • Búðardal
Byggir hf • Patreksfirði
Pensillinn hf • ísafirði
Kaupfélag Steingrímsfjarðar KSÞ • Hólmavfk
Trésmiðjan Stígandi • Blönduósi
Kaupfélag Skagfirðinga KS • Sauðárkrók
Versiunin Hegri • Sauðárkrók
Kaupféiag Eyfirðinga KEA • Siglufirði
Verslunin íbúðin • Akureyri
Kaupfélag Eyfirðinga KEA • Akureyri
Kaupfélag Eyfirðinga KEA • Dalvik
Kaupfélag Þingeyinga KÞ • Húsavík
Kaupfélag Héraðsbúa • Egilsstöðum
Málningarverslun Guðmundar »Eskifirði
Kaupfélag Héraðsbúa • Reyðarfirði
Kaupfélagið Fram • Neskaupstað
Kaupfélag Vopnfirðinga • Vopnafirði
Kaupfélag A-Skaftfellinga KASK • Höfn, Hornafirði
Ástþór Guðmundsson • Höfn, Hornafirði
Kaupfélag Árnesinga KÁ • Vik
Reynisstaðir • Vestmannaeyjum
Kaupfélag Rangæinga • Hvolsvelli
Kaupfélag Árnesinga KÁ • Selfossi
S.G. Búðin* Selfossi
Verslunin Stoð • Þorlákshöfn