Morgunblaðið - 23.03.1991, Side 44

Morgunblaðið - 23.03.1991, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARZ 1991 t Systir mín, ANNA RÓSA EYJÓLFSDÓTTIR, Hvoli, Mýrdal, lést á heimili sínu 21. mars. Fyrir hönd vandamanna, Sigurður Eyjólfsson. t Móðir okkar, RANNVEIG VILHJÁLMSDÓTTIR, Stekkjargötu 31, Hnífsdal, lést í sjúkrahúsi Bolungarvíkur fimmutdaginn 21. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Börnin. t Konan mín, móðir og mágkona okkar, ELSE BJÖRNSSON, Vestbirk, Allé 19, 2770 Kastrup, andaðist 20. mars sl. Guðmundur Kr. Björnsson, Björn Olaf Björnsson, Bjarni Björnsson, Sveinn Björnsson. t Maðurinn minn, ÓLAFUR ÞORSTEINSSON, andaðist 22. mars á öldrunardeild Landspítalans. Guðbjörg Einarsdóttir. Móðir mín, t SVEINBJÖRG BJARNADÓTTIR, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu mánudaginn 25. mars kl. 13.30. Svava Torfadóttir. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN BENEDIKTSSON rafvirkjameistari, Háaleitisbraut 24, lést í Landspítalanum 21. mars. Ólöf Kr. ísfeld, Rafn Kristjánsson, Hrafnhildur Þorgrímsdóttir, Margrét Kristjánsdóttir, John Duncombe, og barnabörn. Eiginmaður minn, SIGURÐUR TÓMAS SIGURÐSSON, Álfaskeiði 64, Hafnarfirði, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi laugardaginn 16. mars sl., verður jarðs- unginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 25. mars. Fyrir hönd vandamanna, Erfidryldifur í hlýlcgu og notalegu umln crfi Tökum að okkur að sjá um erfidrykkjur, stórar og smáar, í nýuppgerðum og notalegum sal. Verð frá kr. 790,- Allar nánari upplýsingar fúslcga vciltar áHótel Borgísíma 91-11440. Minnhig': Heba A. Ólafs- son, Patreksfirði Fædd 7. september 1928 Dáin 13. mars 1991 Fljótt skipast veður í lofti. Svip- legt fráfall Hebu A. Ólafsson gerði ekki bpð á undan sér. Hún andaðist að kvöldi miðvikudagsins 13. mars á heimili sínu á Patreksfirði. Hún hafði ekki kennt sérstaks lasleika, utan þess að fá flensu í byijun vik- unnar og leitaði hún þá læknis á miðvikudaginn og hélt hún þá kyrru fyrir heima á heimili sínu og sonar síns, en á tíunda tímanum var hún öll, hennar lífsþætti var Iokið. Okkur félögum hennar í Bridsfé- lagi Patreksfjarðar sem vorum með henni sl. föstudag, laugardag og sunnudag, í sveitakeppni félagsins, óraði ekki fyrir að það yrðu okkar síðustu samfundir með henni. En svona er lífið. Þegar kallið kemur, kaupir sér enginn frí. Heba A. Ólafsson var fædd hér á Patreksfirði 7. september 1928. Foreldrar hennar voru hjónin Stef- anía Erlendsdóttir og Aðalsteinn P. Ólafsson og ólst hún upp á mynd- arheimili þeirra í Valhöll hér á staðnum. Við hjónin minntumst hennar sem ungrar stúlku, þegar við kom- um hingað á Patreksfjörð, þótt kynni okkar hafi með árunum orðið víðtækari og meiri allt til síðasta dags. Arið 1952 þann 8. janúar giftist Heba manni sínum Páli Ágústssyni fyrrverandi skólastjóra, ættuðum frá Bíldudal og bjuggu þau þar til ársins 1954 er þau fluttu til Reykja- víkur, þar sem Páll gerðist lögreglu- maður og fékkst við verslunarstörf. Þáttaskil urðu hjá þeim hjónum 1965, er þau flytja hingað vestur á Patreksfjörð og Páll gerðist kennari hér við grunnskólann. Hér á Pat- reksfirði var þeim hjónum tekið vel, enda áttu þau sterkan frænd- garð og góða vini hér. Patreksfirð- ingar eiga ljúfar minningar um samveru við þessi hjón, þau voru hugljúf og elskuleg við allt sitt sarn- ferðafólk, þau 17 ár sem þau bjuggu hér. Árið 1982 flytja þau hjón til Fáskrúðsijarðar, en þar gerðist Páll skólastjóri grunnskólans, og gegndi því starfi þar til hann lést þann 25. ágúst 1986. Lát Páls var mikið áfall fyrir Hebu, enda var það snöggt að, þar sem hann féll örendur niður á golf- vellinum á Fáskrúðsfirði. Það sama ár flytur Heba til Patreksfjarðar og gerðist kennari og gegndi því starfi til hinstu stundar. Heba var virt og elskuð af nemendum sínum, var hún þeim mikil stoð og stytta í leik og námi. Heba var mikil félagsvera. Ung að árum tók hún mikinn þátt í fé- lagsstörfum íþróttafólks, og var góð handknattleikskona. Hún tók einnig þátt í starfi slysavarnadeildarinnar hér á Patreksfirði og annars staðar þar sem hún var búsett. Einnig vann hún merkt starf hér á sínum tíma ásamt konu minni á byijunar- árum félagsheimilis Patreksfjarðar, þegar þær tóku að sér um tveggja ára tímabil að sjá um allan veitinga- rekstur þar, án launa og vörðu öll- um ágóða af því til kaupa á áhöld- um og borðbúnaði fyrir 300 manps. Þeim tókst að fá marga aðra með sér í þetta stóra átak. Þau Páll og Heba voru félagar í Bridsfélagi Patreksfjarðar þann tíma sem þau bjuggu hér og Heba eftir að hún futti aftur hingað. Hún var góður félagi í okkar samtökum og um hana eigum við ljúfar minn- ingar. Heba og Páll áttu tvo kjörsyni, þeir eru Sigurður Ingi, kennari hér á Patreksfirði, og Atli Karl, verka- maður, en þau mæðginin héldu heimili saman eftir andlát Páls. Sig- urður Ingi býr með Margréti Þór og eiga þau tvo syni, Pál Ágúst og Magnús Tindra. Sonum sínum var Heba mikil og umhyggjusöm móðir og svo má segja að umhyggju henn- ar á barnabörnum sínum þeim Páli Ágústi og Magnúsi Tindra og dætr- um Margrétar Þór, þeim Ingibjörgu og Dómhildi og dóttur Sigurðar, Hebu. Fyrir mér rifjast upp, að síðustu samfundir okkar hjóna og þeirra Páls og Hebu sameiginlega, voru með þeim hætti að nokkrir félagar í Bridsfélagi Tálknafjarðar og Bridsfélagi Patreksfjarðar komu saman við spil þann 14. ágúst 1986. Þann 8.-10. þessa mánaðar komum við saman í Bridsfélagi Patreks- íjarðar með Hebu, það voru okkar síðustu samfundir. Fyrir þessa sam- fundi erum við þakklát og í minn- ingunni um löng og góð kynni fær- um við látinni samferðavinkonu þakkir fyrir liðna tíð. Sonum Hebu, þeim Sigurði Inga og Atla Karli, vottum við hjónin okkar dýpstu samúð og erum full- viss um að með barnabörnum Hebu fylgir guðleg blessun. Við kveðjum hina látnu með virð- ingu. Ágúst H. Pétursson Kveðja frá samstarfsfólki við Grunnskóla Patreksíjarðar Svo skyndilega hefur skarð verið höggvið í okkar fámenna hóp. Hún t Eiginmaður minn, HALLDÓR PÉTURSSON, Hólmgarði 2a, Keflavík, lést á heimili sínu 22. mars. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Júlíusdóttir. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengafaðir, afi og langafi, BJÖRN ÓLASON, Selaklöpp, Hrísey, sem lést í Fjórðungssjúkrahúsinu, Akureyri, 18. mars sl., verður jarðsunginn frá Hríseyjarkirkju þriðjudaginn 26. mars kl. 14.00. Sigfríður Jónsdóttir, Óli Björnsson, Vera Sigurðardóttir, Jónheiður Björnsdóttir, Sigmar Jörgenson, Pálína Björnsdóttir, Valtýr Sigurbjarnason, Óskar Frtmannsson, barnabörn og barnabarnabörn. Heba er horfin okkur, því er erfitt að trúa. Hjá okkur er stór hópur lítilla barna sem á líka erfitt með að skilja og trúa því að kennarinn þeirra, sem þau elskuðu og dáðu, verði ekki lengur með þeim. Það er sár reynsla að missa bekkjar- kennara sinn í byijun skólagöngu. Heba A. Olafsson var fædd á Patreksfirði 7. september 1928 og ólst hér upp. Mikil ábyrgð var lögð á hennar herðar er hún fjórtán ára gömul missti móður sína og hún tók að sér að hugsa um yngri systkini sín. Til mennta fór hún sem ung stúlka bæði í Kvennaskólann í Reykjavík og Húsmæðraskólann á Akureyri. Hinn 8. janúar 1952 giftist hún Páli Ágústssyni kennara frá Bíldu- dal. Var hjónaband þeirra alla tíð einstaklega ástúðlegt. Þau tóku að sér tvo kjörsyni, Sigurð Inga kenn- ara hér við skólann og Atla Karl verkamann á Patreksfirði. Árið 1966 hóf Páll störf við Grunnskóla Patreksfjarðar og kenndi þar til ársins 1982. Á þeim árum stjórnuðu þau hjónin í mörg sumur Hótel Flókalundi. Páll var ráðinn skólastjóri við Grunnskólann á Fáskrúðsfirði. Þar bjuggu þau í fjögur ár og þá hóf Heba kennslu. Árið 1986 lést Páll og Heba flutti aftur hingað til Pat- reksfjarðat'. Hún var ráðin við grunnskólann í byijendakennsluna og hefur sinnt henni síðan. Hún var sérstaklega hæf til þeirra starfa, gerði strangar kröfur en var þó svo góð og kærleiksrík við börnin. Allt sem hún taldi til góðs fyrir hina ungu nemendur sína var hún fljót áð tileinka sér. Hún var vinur vina sinna hún Heba með sína góðu greind, heiðar- leika og léttu lund. Hún var virkur félagi í Slysavarnadeildinni ■ Unni og í Málfreyjudeildinni Brellum þar til síðasta haust en þá byrjaði hún í starfsleikninámi kennara og í enskunámi nú um áramót. Það er erfitt að sætta sig við að þessi góða kona sé ekki lengur hjá okkur. En missir sona hennar, tengdadóttur og barnabarna er þó mestur. Við vottum þeim, systkin- um hennar og öðrum ættingjum samúð okkar. Erna M. Sveinbjarnardóttir Er ég frétti lát móðursystur minnar og nöfnu, Hebu A. Olafs- son, átti ég erfitt með að trúa þeirri frétt. Eg vissi ekki annað en Heba væri vel frísk og gengi daglega til vinnu sinnar, en hún var kennari við grunnskólann á Patreksfirði. Þegar ég lít yfir farinn veg hrannast ljúfar minningar upp um Bebbu frænku mína, en svo kölluð- um við systkinin hana ávallt. Bebba frænka var sérlega glæsileg kona á velli og öll framkoma hennar var með þeim hætti að aðdáun vakti allra, sem umgengust hana. Um margra ára skeið var hún hótel- stýra í Flókalundi í Vatnsfirði. Af meðfæddri smekkvísi og stjórnsemi kom hún þessu sumarhóteli í röð fremstu og virtustu gististaða landsins. Munu sjálfsagt margir minnast hennar frá þeim tíma. Bebba frænka var gift Páli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.