Morgunblaðið - 23.03.1991, Page 56
LAUGARDAGUR 23. MARZ 1991
VERÐ I LAUSASOLU 100 KR.
Skipherra
settur yfir
Sléttuhrepp
í fjóra daga
PÉTUR Kr. Hafstein, sýslumaður
ísfirðinga, hefur sett Ólaf Val
Sigurðsson, skipherra á varðskip-
inu Ægi, í embætti hreppstjóra í
Sléttuhreppi til fjögurra daga, frá
25. til 28. mars. Ólafi er ætlað að
annast utankjörfundaratkvæða-
greiðslu fyrir heimilisfólk í Horn-
bjargsvita.
Ekki hefur starfað hreppstjóri í
Sléttuhreppi í 35 ár en byggð lagð-
ist þar niður árið 1955. Ólafur Þ.
Jónsson, vitavörður í Hornbjargs-
-’«*fvita, og ráðskona hans munu því
geta komið um borð í varðskipið
Ægi og neytt atkvæðisréttar síns í
stað þess að þurfa að fara inn á
ísafjörð til að greiða atkvæði. Taldi
Pétur þetta hentugt og einfalt fyrir-
komulag sem ekki hefði þó verið
gripið til áður.
Morgunblaðið/PPJ
Kanadísk flugvél brotlenti á Reykjavíkurflugvelli
Tveggja hreyfla kanadísk flugvél brotlenti á Reykjavíkurflugvelli
síðdegis í gær þegar hjólabúnaður undir hægri væng brotnaði í lend-
ingu. Tveir menn voru um borð í vélinni en þá sakaði ekki. Flugvélin,
sem er af tegundinni Piper Twin Comanche, var í fetjuflugi og hafði
haldið frá Reykjavík fyrr um daginn á leið til Narssasuaq á Græn-
landi. Eftir þriggja tíma flug ákváðu flugmennirnir að snúa við til
Reykjavíkur vegna veðurs á Grænlandi. Vélin er ekki talin mikið
skemmd og er atvikið nú til rannsóknar hjá starfsmönnum loftferðaeft-
irlits og flugslysanefndar.
-.....<0-
vSí/ ' *
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Vélar í Laxá skemmdust
Tvær vélar í Laxárvirkjun skemmdust er krap í Laxá reif með sér
gijót sem fór í þær. Vélarnar framleiða hvor um sig 9 megawött, en
til staðar eru tvær aðrar vélar sem framleiða samtals 4,5 megaw-
ött. Landsvirkjunarmenn segja ástæðu þess að svona fari þá, að
ekki hafi fengist að hækka vatnsbólið, en það sé orðið mjög brýnt.
Hér má sjá krapatappann, sem myndast hefur við virkjunina.
Kjaradeila flugmanna og Flugleiða:
Verkfallsboðun flug-
nianna til Félagsdóms
RÍKISSÁTTASEMJARI sleit í gær þriðju tilraun sinni til að koma
á sáttaviðræðum á milli samninganefndar atvinnuflugmanna og
samninganefndar Flugleiða og VSÍ. Vinnuveitendur hafa ákveðið
að vísa boðuðu verkfalli flugmanna til Félagsdóms og krefjast úr-
skurðar um að það verði Iýst ólöglegt þar sem flugmenn vilji ekki
ræða við samninganefndina og hafi ekki enn lagt fram formlegar
kröfur. Geir Garðarsson, formaður FÍA, vísar því á bug og segir
að vinnuveitendur hefðu aldrei vísað málinu til ríkissáttasemjara ef
ekki hefði verið vegna krafna flugmanna.
Að sögn Þórarins V. Þórarinsson-
ar, framkvæmdastjóra VSÍ, hefur
sáttasemjari reynt að ganga á milli
manna til að koma á sáttaviðræðum
en fluginenn hafa neita að ræða
við samninganefndina á meðan full-
trúar VSÍ sitja í henni.
„Samningar nást ekki ef menn
neita að tala saman,“ sagði Þórar-
inn. „Við skoruðum á Félag
íslenskra atvinnuflugmanna i gær
að falla frá verkfallinu þar sem það
væri ólöglegt. Þeir hafa hafnað
þessu og sáttasemjari sleit viðræð-
um þegar fyrir lá að þeir höfnuðu
viðræðum. Því eigum við nú þann
kost einan að fara með málið fyrir
Félagsdóm til staðfestingar á að
Verðstríð stórmarkaðanna:
Verð á fjölda vara hef-
ur lækkað umtalsvert
► VERÐLAGSSTOFNUN hefur gert úttekt á áhrifum verðstríðs stór-
markaðanna á verð ýmissa algengra vara. Niðurstaðan er sú að
verð hefur lækkað umtalsvert á ýmsum vörum frá því í janúar, er
síðasta verðkönnun var gerð.
Verðlagsstofnun kannaði verð á
82 algengum vörum í Hagkaupum,
Miklagarði og Bónusi. Af þeim
fengust 76 í Hagkaupum og þar
af höfðu 36 lækkað í verði frá í
1 janúar, að meðaltali um tæplega
16%. Um mismikla lækkun er að
ræða, en dæmi eru um að vara
hafi lækkað um 34% í Hagkaupum.
í Miklagarði fékkst 81 af vöru-
tegundunum. Þar af höfðu sautján
lækkað í verði, um tæplega 14%
að meðaltali. Einstakar vörur lækk-
uðu um allt að 35%.
I Bónus lækkaði verðið minnst,
enda var það lægst fyrir. Bónus-
verzlanirnar áttu 45 af vörunum,
sem athugaðar voru. Af þeim höfðu
28 lækkað, um 5% að meðaltali.
Sú vara, sem lækkaði mest, var um
18% ódýrari en í janúar.
Könnun Verðlagsstofnunar náði
til pakkavara, dósavara, snyitivara,
hreinlætisvara og landbúnaðarvara.
Einhver verðlækkun hefur orðið í
öllum þessum flokkum. Af landbún-
aðarvörum hafa helzt kjúklingar
lækkað.
þetta sé ólöglegt verkfall,“ sagði
Þórarinn. Hann sagði aðspurður að
ekki hefði verið leitað til stjórnvalda
um að grípa inn í deiluna.
Að sögn Geirs Garðarssonár
munu flugmenn boða eins dags
verkföll vikulega á öllum Ieiðum
félagsins takist ekki samningar. „Ef
Félagsdómur dæmir þetta verkfall
af einhveijum ástæðum ólöglegt,
munum við bara boða nýtt á þann
hátt sem þeir viija," sagði Geir.
Á trúnaðarráðsfundi flugmanna
á fimmtudagskvöld var borið upp
hvort vilji væri fyrir að taka upp
viðræður við samninganefnd VSÍ
og að sögn Geirs var það eindregin
afstaða trúnaðarráðs að gera það
ekki.
Utborgun náJgast
helming kaupverðs
ÚTBORGUN sem hlutfall af
kaupverði fjölbýlishúsaíbúða í
Reykjavík var að meðaltali 54,4%
á þriðja ársfjórðungi 1990 og
hafði lækkað úr 76,8% á þriðja
ársfjórðungi 1989. Á sama tínia-
bili hafði hlutfall verðtryggðra
lána hækkað úr 16,9% kaupverðs
1989 í 44,4% 1990. Þetta kemur
fram í Markaðsfréttum, frétta-
bréfi Fasteignamats rikisins,
marshefti 1991.
Á árinu 1990 stöðvaðist raun-
lækkun íbúðaverðs, samkvæmt
þeim kaupsamningum sem athugun
FasÆignamatsins nær til. Milli
þriðja ársfjórðungs 1989 og 1990
lækkaði raunverð um 4,3%, en milli
annars ársfjórðungs 1989 og 1990
lækkaði raunverð um 8,6%. Sé ein-
ungis litið á verðþróunina 1990
hefur raunverð íbúða í fjölbýlishús-
um í Reykjavík hækkað um 1,73%
á fyrstu þremur ársljórðungum.
Með tilkomu húsbréfakerfis hef-
ur hlutfall verðtryggðra lána af
kaupverði vaxið stöðugt. Á þriðja
ársfjórðungi 1989 var það 16,9%.
Á fyrsta ársfjórðungi 1990 var það
24,1%, á öðrum ársfjórðungi 33,4%
og á þriðja ársfjórðungi 44,4%. í
Markaðsfréttum segir að nærri láti
að hlutur verðtryggingar hafi auk-
ist um 10% að jafnaði í hveijum
ársfjórðunganna.
Flóðljós í
Laugardal
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð
Reykjavíkur samþykkti á fundi
sínum í gær að leggja það til við
borgarráð að framkvæmdir við
Hóðljós á Laugardalsvelli yrðu
hafnar strax í sumar og lokið fyr-
ir haustið.
Einnig samþykkti íþrótta- og
tómstundaráð tillögu um að veita
samtals 93 milljónir króna til styrkt-
ar framkvæmdum á félagssvæðum
íþróttafélaganna í borginni, þar af
40 milljónir króna til byggingar
íþróttahúss Víkings, sem taka á í
notkun í haust.
Sjá nánar bls. 55.
9Æ/960
VOLVO
— fíifreiö sctn þú getur treyst!