Morgunblaðið - 18.04.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.04.1991, Blaðsíða 4
3 4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1991 VEÐUR Viðgerð á Strákagöngum: Tilboð langt yfir kostnaðaráætlun LÆGSTA tilboð í viðgerð á Strákagöngum er 18,4 milljónir kr. yfir kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar. Istak á lægsta tilboð, 65,3 milljón- ir kr., en kostnaðaráætlun er 46,9 milljónir og er munurinn því 39,2%. Utboðið var lokað, fimm tilboð bárust og var það hæsta 82,7 milljón- ir kr. Borgarráð: Svartblettum fækkað BORGARRAÐ hefur samþykkt aðgerðir er fækka svartblettum og áhættustöðum í umferðinni. Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna breytinganna verði um 13 milljónir króna. í tillögum umferðamefndar, er gert ráð fyrir að grindverk verði sett í miðeyju á Snorrabraut frá Laugavegi að Flókagötu og að á Sæbraut verði vegi út í Laugarnes lokað yfir miðeyju. Ennfremur, að girðing verði lagfærð á Grensásvegi frá Miklubraut að Skeifunni. Við gatnamót Egilsgötu og Snorrabrautar verði komið á stöðv- unarskyldu og að auki við gatna- mót Langholtsvegar og Álfheima, Grensásvegar og Sogavegar, Grensásvegar og Ármúla, Háaleitis- brautar og Lágmúla og Hraunbæjar og Bæjarbrautar. Á gatnamótum Hverfisgötu og Vatnsstígs verða upphleyptar ak- reinapílur í götunni og settar upp akreinatöflur er vísa ökumönnum veginn. Sömu aðgerðir verða við um gatnamót Hverfísgötu og Frakkastígs. Útkeyrsla frá Nesti við Vestur- landsveg verður þrengd og akrein þrengd við miðeyju við Grensásveg og Heiðargerði auk þess sem þar verður stöðvunarskylda. Umferðarljós á Sæbraut við Langholtsveg og Skeiðarvog verða samstillt og akrein fyrir vinstri beygju á gatnamótum Sæbrautar og Skeiðarvogs verður lengd um 50 metra. Á gatnamótum Óðins- götu, Spítalastígs og Þórsjgötu verð- ur sett á biðskylda við Oðinsgötu. Ránmorðið í Bankastræti: Pilturinn úrskurð- aður í gæslu áfram Gæsluvarðhald yfir 17 ára pilti, sem varð ungum manni að bana í bakgarði við Bankastræti aðfaranótt 3. mars sl., hefur ver- ið framlengt til 29. maí næstkom- andi. Samkvæmt upplýsingum Rannsóknarlögreglu rikisins verða gögn málsins send rikis- saksóknara í lok þessa mánaðar. Pilturinn var handtekinn, ásamt 15 ára stúlku, tæpum hálfum mán- uði eftir að maðurinn fannst látinn. Hann játaði að hafa veitt manninum áverka með hnúajárni og rænt veski hans. Pilturinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 17. apríl og hon: um gert að sæta geðrannsókn. í gær féllst sakadómur á kröfu RLR um framlengingu varðhaldsins til 29. maí. Stúlkan var úrskurðuð í umsjá barnaverndarnefndar. Sá úrskurður er enn í gildi. Rannsóknarlögreglan bíður enn gagna í málinu, m.a. niðurstöðu geðrannsóknar. Búist er við að málið verði sent ríkissaksóknara til umfjöllunar í lok þessa mánaðar. Leiðrétting LEIÐINLEG málvilla var í fyri sögn á baksíðu Morgunblaðsins gær. Þar stóð: „Ljáði tvívegis mí á ...“ en átti að sjálfsögðu að ver Léði tvívegis máls á... Lesendur eru beðnir velvirðing á þessu. Jónas Snæbjörnsson umdæmis- verkfræðingur Vegagerðarinnar á Norðurlandi vestra segir að vissu- lega séu vonbrigði með það hvað tilboðin reyndust há. Taldi hann það skýrast af því að verkið væri óvenj- ulegt og erfítt að skilgreina aðstæð- ur nákvæmlega. Því hefðu verktak- arnir væntanlega viljað hafa vaðið fyrir neðan sig við tilboðsgerðina. Sagði Jónas að verkið yrði unnið síðari hluta sumars og bjóst við að gengið yrði að tilboði ístaks. Verkið felst í því að bijóta upp gömlu niðurföllin í Strákagöngum og leggja nýja frárennslislögn en sú gamla er ónýt. Gólfíð verður malbikað upp á nýtt. Göngin eru ýmist klædd með bárujámsbogum eða öryggisneti og verður sú klæðn- ing rifín og veggirnir sprautu- steyptir. Þá verður sett vatns- og frostvamarklæðning þar sem vatn lekur inn í göngin. Verkið á að hefjast eftir 15. ágúst og á að taka í mesta lagi átta vik- ur. í útboðinu er gert ráð fyrir því að göngin verði opnuð fyrir umferð tvisvar á sólarhring, 7-8 á morgn- ana og 19.30-20.30 á kvöldin. Vegagerðin óskaði eftir að fá einn- ig tilboð í verkið miðað við að einn- ig yrði opnað fyrir umferð kl. 12.30- 13.30. í tilboði lægstbjóðanda kost- ar það 1,9 milljón kr. aukalega. VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tima hiti veður Akureyri 8 léttskýjað Reykjavík 6 mistur Bergen Helsinki Kaupmannahöfn Narssarssuaq Nuuk Osló Stokkhólmur Þórshöfn hálfskýjað snjóél háifskýjað alskýjað skýjað skýjað komsnjór rlgning Algarve Amsterdam Barcelona Berlfn Chicago Feneyjar Frankfurt Glasgow Hamborg Las Palmas London LosAngeles Lúxemborg Madrfd Malaga Mallorca Montreal NewYork Orlando París Róm Vín Washington Winnipeg 15 6 15 7 7 8 7 7 8 12 8 16 15 18 4 13 8 13 4 15 2 skúr haglél á síð.klst. rykmistur úrk.ígrennd léttskýjað rlgning vantar skýjað skýjað vantar haglél á síð.klst. skýjað haglél á sfð.klst. léttskýjað rigning skýjað þoka skúrásfð.klst. vantar skýjað rigning alskýjað léttskýjað hálfskýjað Jón Baldvin Hannibalsson, Davíð Oddsson, Steingrímur Hermannsson, Kristín Einarsdóttir og Svavar Gestsson taka við merki HSI, gullhnettinum, úr hendi Þorbergs Aðalsteinssonar, landsliðsþjálfara. Forystumenn stj órnmálaflokk- anna sameinast um gullboltann Handknattleikssamband ís- lands mun um helgina hefja sölu á gullboltanum, merki HSÍ. Sala merkisins markar upphaf að Io- kaundirbúningi HSÍ fyrir heims- meistarakeppnina í handknatt- leik sem fram fer hér á landi árið 1995. Forystumönnum stjórnmála- flokkanna voru í gær afhent fyrstu merkin. HM 1995 verður haldið hér í lok næsta kjörtímabils eða innan fjögurra ára. Sala merkisins fer fram nú um kosningahelgina og þá sérstaklega á kjördag og er beiðni handboltamanna um stuðning við HM-undirbúninginn. íþróttafólk í nánast hveiju sveit- arfélagi landsins mun sjá um sölu merkisins og skipulögð hefur verið sala gullboltans við kjörstaði. Þá verður gengið í hús víðast hvar og merkið einnig selt á mannamótum. Markmið HSI er að selja 50 þúsund merki. Gullboltinn kostar 400 krón- ur og fá söluaðilar 25 prósent í sölulaun. Skuldastaða HSÍ hefur verið slæm og var um síðustu áramót tæpar 40 milljónir króna. Að sögn Jóns Hjaltalíns Magnússonar, for- manns HSÍ, hefur 25 milljónum króna verið skuldbreytt í fjögurra ára bankalán, sem greiðist upp með auglýsingasamningum sem þegar hafa verið gerðir. „Við reiknum með að verða komin niður á núllið árið 1993 og síðan verði hagnaður eftir það,“ sagði Jón. I/EÐURHORFUR I DAG, 18. APRIL YFIRLIT: Um 400 km austnorðaustur af Langanesi er 1012 mb lægð á hreyfingu suðaustur. Fyrir sunnan landið er víðáttumikil 1040 mb hæð og 1038 mb hæð yfir Grænlandi. SPÁ: Hæg norðlæg átt víðast hvar og léttskýjað eða skýjað með köflum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Fremur hæg vestlæg átt. Skýjað og dálítil súld vestanlands en þurrt og víða léttskýjað um austanvert landið. Hiti 1 til 6 stig. TAKN: Heiðskírt Léttskyjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / r r r r Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma # * * -J O Hitastig: 10 gráður á Celsius ý Skúrir V E1 — Þoka = Þokumóða 5, ’ Súld OO Mistur —L Skafrenningur Þrumuveður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.