Morgunblaðið - 18.04.1991, Blaðsíða 31
valdið fer eftir fjölmenni ríkja. í
Evrópusamstarfi verðum við ávallt
útkjálki enda þótt lega landsins til
samskipta við Norður-Ameríku og
Austur-Asíu sé afar góð. Athafna-
svæði okkar íslendinga getur verið
norðurhvel jarðar. Við búum um
3.000 km frá landfræðilegum mið-
punkti þess, norðurpólnum. Frá
Keflavíkurflugvelli, einum besta
flugvelli heims, getum við án milli-
lendingar flogið hvert sem er á
norðurhvelinu. Þegar flogið er yfir
Sovétríkin eru innan við 8.000 km
tii Pekings og um 9.000 til Tókýó
en langfleygustu flugvélar fljúga
yfir 12.000 km. Á norðurhvelinu
búa 95% mannkynsins og þar er
álíka mikill meirihluti efnahags-
legra umsvifa og menningarstarf-
semi heimsins. Sjálfstæði okkar er
best tryggt með ákveðnu jafnvægi
í samskiptum við stórveldi norður-
hvelsins og með lagni getum við
gert land okkar að einhvers konar
miðpunkti á norðurhvelinu í stað
þess að vera útkjálki Evrópu. Að
sjálfsögðu eigum við að vera órög
að opna hagkerfi okkar gagnvart
hagkerfum annarra þjóða, gagnvart
heiminum öllum frekar en Evrópu
einni. Það sama gildir um menning-
arsamskipti, því íslensk menning
er fijó og sterk og eflist við alþjóð-
leg samskipti. Hins vegar getur ein-
hæfni í menningarsamskiptum orð-
ið okkur hættuleg. Reynsla sögunn-
ar segir að Evrópa hafi tilhneigingu
til að útrýma menningu smáþjóða,
sbr. Hjaltlendinga.
Við kjósum nú um afstöðu til
Evrópska samfélagsins
Það eru ekki nema fjögur og
hálft ár síðan Gorbatsjov og Reagan
voru að funda hér á landi og lagður
var grunnur að þeirri grundvallar-
breytingu sem orðið hefur á heimin-
um. Þá var ísland miðpunktur
heimsins. Margt mun gerast á
næstu ijórum árum. Miklu skipti
rmeð hvaða hugarfari haldið verður
á utanríkismálum íslands og hvevn-
ig spilað verður úr því sem ég vil
halda fram að séu góð spil. Ef vel
verður spilað og af framsýni getum
við tryggt sjálfstæði okkar og vel-
ferð um langa framtíð. Ef skamm-
sýnin ræður getum við tapað miklu
fyrir lítið. Þetta hlýtur að vera lang-
stærsta málið nú þegar ákveðið
verður hveijir eigi að hafa völdin
þessi örlagaríku ár. Stundarmálin
falla í skuggann. Þegar allt er talið
hafa margir flokkar lýst afdráttar-
lausri andstöðu við aðild að EB.
En allir eru þessir flokkar máttlitlir
samanborið við Framsóknarflokk-
inn. Það er því algjörlega rökrétt
að þeir sem sjá fram á veginn og
vilja umfram allt viðhalda fullveldi
og sjálfstæði íslands kjósi Fram-
sóknarflokkinn á laugardaginn
kemur.
Höfundurer
aðstoðarframkvæmdastjóri
Byggðastofnunar.
■ ÁRBÆJARSAFN verður opið
á'milli kl. 13-17 laugardaginn 20.
apríl í tilefni af Listahátíð æskunn-
ar í Reykjavík. Sýnd verða leik-
föng frá ýmsum tímum í Prófess-
orshúsinu og gefst krökkum kostur
á að vinna leikfangaverkefni undir
umsjón safnkennara. Einnig mun
Sigfús Halldórsson kynna Reykja-
víkurmyndir Jóns Helgasonar
biskups, en nýverið kom út á vegum
safnsins og íslandsmynda sf. bók
með myndum Jóns af gamla mið-
bænum í Reykjavík. Þá verður veit-
ingahúsið Dillonshús opið og verða
þar seldar kaffiveitingar. Aðgangur
að safninu er ókeypis og eru allir
velkomnir.
■ ÁKVEÐIÐ hefur verið að
skautasvellið í Laugardal verði
lokað frá og með 22. apríl nk. Síð-
asti opnunardagur verður sunnu-
daginn 21. apríl. Svellið verður opið
16., 17., 18. og 19. apríl frá kl.
17.00-22.00 og kl. 13.00-18.00 20.
og 21. apríl. Gert er ráð fyrir að
svellið verði opnað aftur 1. október
nk.
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGHfi j 8. APRÍL 1991
0*1
■ TONLEIKAR með Bubba
Morthens verða í kvöld, fímmtu-
dagskvöldið 18. apríl, á skemmti-
staðnum Tveir vinir og annar í
fríi. Bubbi er nýkominn úr tónleika-
för um Norðurlönd og eru þetta
hans fyrstu tónleikar eftir þessa
ferð. Bubbi mun vígja nýtt hljóð-
kerfi sem sett hefur verið upp á
Tveimur vinum. Föstudagskvöld
skemmtir Rokkabillyband
Reykjavíkur. Þessi bráðhressa
sveit rokks, sveiflu og rokkabillis
er skipuð þeim Tómasi Tómas-
syni, Hafsteini Guðmundssyni og
Sigfúsi Ottarssyni. Laugardags-
kvöld verður kosningavaka Kvenn-
alistans á Tveimur vinum. Það þar
ekki að taka það fram að allir eru
velkomnir.
■ KOLAPORTSMARKAÐVR-
INNer nú einnig opinn á sunnudög-
um og er þá með nokkru öðru sniði
en tíðkast hefur á laugardögum.
Boðið er upp á skemmtun fyrir alla
fjölskylduna með tívolíbásum og
ýmsum skemmtilegum uppákomum
en megináhersla er þó eftir sem
áður lögð á markaðshlutverk Kola-
portsins. Á tívolíbásum má t.d.
finna þijá skotbakka fyrir alla ald-
urshópa, með loftrifflum, pílum og
boltum, lukkuhjól, happaendur,
húkk og ýmislegt fleira. Hægt er
að vinna til veglegra verðlauna. á
þessum leikjabásum en allir þátt-
takendur fá einhver verðlaun.
Kolaportið er opið á sunnudögum
kl. 11-17 en opnunartími á laugar-
dögum er óbreyttur, kl. 10-16. Selj-
endur geta valið um að vera hvorn
daginn sem er eða báða dagana og
þurfa þá ekki að taka saman pjönk-
ur sínar milli daga.
Urvals
veislumáltíð fyrir alia
fjölskylduna
Barbecuekjúklingur og barbecuesvínaríf
með frönskum kartöflum og salati,
er ótrúlega ijúffeng máltíð.
Barbecuesteiking er sérstök tegund matreiðsiu þar sem steikurnar eru léttreyktar
við hikkoríuvið, pensiaðarmeð barbecuesósu og gióðarsteiktaryfír opnum eidi.
Árangurinn er máltíð, sem þú gleymir ekki.
liafír þú aldrei bragðað barbecuekjúkling og svínarif, þá er tími til kominn.
Pú setur bara á þig smekk og ert um leið tilbúin/n að snæða
ótrúlega Ijúffenga og sérstaka máltíð.
Hjá Aski Suðurlandsbraut 14, getur þú líka tekið matinn með þér heim
og haldið þar veisiu.
Veitingahúsið Askur, Suðurlandsbraut 4 Œ 38550 og Veitingahúsið Askur, Suðurlandsbraut 14 2? 681344