Morgunblaðið - 18.04.1991, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.04.1991, Blaðsíða 36
86 MORGUNÖLAÐIÐ KIMMTUDAGUR 18. APRÍL' 1991 A L N G S K O S N N G A R ■I ■ • mm m u ■ • Aö neöan sest hvernig tylgi Hokka i skoöana- Fylgi flokka eftir aldri og kyni te&ffiEteíaasr m og kynja. Til samanburöar eru samsvarandi tolur úr skoðanakönnun, sem gerð var í mars. 60% 50- 40- 30- 20- 10- 18-24 25-341 k Skuggornir sýna hver stoð- on var í könnuninni í mars. Il HAJ-. Aðrir Könnun Félagsvísindastofnunar Háskólans: Mest hreyfing á ungnm kjós- endum og landsbyggðarfólki HÁTT í þriðjungur svarenda í stjórnmálakönnun, sem Félags- vísindastofnun Háskóla Islands hefur gert fyrir Morgunblaðið, segir að til greina hafi komið á siðustu fjórum vikum að kjósa annan flokk en þann, sem þeir nefna í könnuninni. í skýrslu Félagsvísindastofnunar um nið- urstöðurnar segir að saman- burður á könnuninni, sem gerð var 13.-15. apríl, og síðustu könnun, sem stofnunin gerði í lok marz, bendi til að mikil hreyfing sé enn á kjósendum. Þeir, sem svöruðu spurningum um hvaða flokk þeir myndu kjósa nú, voru spurðir áfram: „Hefur komið til greina á síðastliðnum fjórum vikum að þú kysir einhvern annan flokk? Þessari spurningu svöruðu 32,2% játandi. Þetta er algengara meðal yngri kjósenda en eldri. í aldurshópnum 18-24 ára svöruðu 37% játandi og 41,8% á aldrinum 25-34 ára. Einnig svör- uðu fleiri konur játandi en karlar, eða 34,3% á móti 30,3%. Þá eru landsbyggðarmenn lausari við sinn flokk en þéttbýlingar, 34,4% landsbyggðarmanna sögðu að til greina hefði komið að kjósa annan flokk, en rúmlega 30% íbúa á suð- vesturhominu. Fylgi Alþýðubandalags og Kvennalista ótryggt? Mikill munur er á lausung kjós- enda eftir stuðningi við flokka. Þannig má sjá að hlutfall þeirra, sem undanfarið hafa velt fyrir sér að kjósa aðra flokka, er hæst hjá Alþýðubandalagi, 46,2%, og Kvennalista, 53,4%, en þessir flokkar hafa einmitt verið að bæta við sig fylgi á síðustu vikum sam- kvæmt könnun Félagsvísinda- stofnunar. Að áliti stofnunarinnar kann þetta að benda til að núver- andi fylgi þessara flokka geti ver- ið mjög ótryggt. Kjósendur Sjálfstæðisflokksins eru fastastir fyrir, aðeins 20,1% þeirra hafa hugsað út í það undan- farið að kjósa einhvem annan flokk. Rétt um 35% kjósenda Al- þýðuflokks og Framsóknarflokks svöruðu því játandi að þeir hefðu velt því fyrir sér að kjósa aðra undanfarinn mánuð. ’’„Af þessum gögnum má draga þá ályktun, að stór hluti kjósenda er enn í síðustu viku fyrir kosning- ar að einhverju leyti óráðinn, og er því jafnlíklegt að fylgi flokka verði að breytast fram á síðasta dag. Kosningabaráttan mun því væntanlega skipta afar miklu máli,“ segir í skýrslu Félagsvísind- astofnunar. Þegar litið er á hvernig hvort kyn um sig kýs, kemur í ljós tals- verður munur eftir flokkum. Mest- ur munur er hjá Kvennalista, en 17,7% kvenna hyggjast kjósa flokkinn á móti 1,9% karla. Sjálf- stæðisflokkur hefur fylgi 47,7% karla en 33,3% kvenna. Alþýðu- bandalag ætla 16,8% karla að kjósa en 13,4% kvenna. Fylgi krata er nokkuð jafnt hjá báðum kynjum, 11,5% hjá körlum og 12,6% hjá konum. Sama má segja um Framsóknarflokkinn, hann ætla 18,9% karla að kjósa en 21,3% kvenna. Fylgistap Sjálfstæðisflokksins mest meðal ungra kjósenda Sé litið á fylgi flokkanna eftir aldurshópum og það borið saman við könnun Félagsvísindastofnun- ar frá í marz, kemur ýmislegt at- hyglisvert í ljós. Til dæmis hefur fylgi Framsóknarflokksins í yngsta aldurshópnum, 18-24 ára, dalað heldur, fer úr 24,5% í 18,3%. Alþýðubandalagið bætir hins veg- ar við sig í yngsta kjósendahópn- um, fer úr 8,5% í 20,6%. Þá vekur athygli að fylgistap Sjálfstæðis- flokksins frá síðustu könnun er nær eingöngu í yngstu aldurshóp- unum. I yngsta aldursflokknum, 18-24 ára,_fer flokkurinn úr 51,7% í 42,8%. í næstyngsta hópnum, 25-34 ára, fer það úr 57,1% og niður í 32,9%. KÖnnun Félagsvísindastofnunar var gerð dagana 13. til 15. apríl. Tekið var úr þjóðskrá slembiúrtak 1.500 manna á aldrinum 18 til 75 ára, af öllu landinu. Viðtöl voru tekin í síma og fengust alls svör frá 1.177 manns manns af þeim 1.500 sem komu í úrtakið. Það er 78,5% svarhlutfall. Nettósvörun, þegar frá hafa verið dregnir þeir sem eru nýlega látnir, erlendir rík- isborgarar og fólk sem dvelur er- lendis, er 80%. Fullnægjandi sam- ræmi er milli skiptingar úrtaksins og þjóðarinnar allrar eftir aldri, kyni og búsetu. Félagsvísinda- stofnun telur því að ætla megi að úrtakið endurspegli þjóðina, 18-75 ára, allvel. Skipt um skoðun... Spurt var: „Hefur komið lil greina ó síiSast- liönum fjórum vikum, aö þú kysir annan flokk en þann, sem þú nú styður?" Af heild- inni sögðust 32,2% það hafa komið til greina, en 67,8% kvóðust hvergi hafa hvikaÖ. k> öðru leyti var skiptíngin eins og hér sésty | j Karlar | Nei Konur 18-24 ára 25-34 ára 35-44 ára 45-59 ára 60-75 ára Reykjavík Reykjaneskjördæmi Landsbyggð Alþýðuflokkur Framsóknarflokkur Sjálfstæðisflokkur Alþýðubandalag Kvennalisti Annað 0 0 d © 0 > d d d d 3 3 Fjölmennt á fundi í Kópavogi UM 800 manns voru á fundi Davíðs Oddssonar, formanns Sjálfstæðsflokksins, í Kópa- vogi í gærkvöldi. Talsverður fjöldi fólks hlýddi á mál hans á göngtim skólans, auk þess sem margir urðu frá að hverfa. Morgunblaðið/Svprrir Alþýðuflokkurinn: Frambjóð- endur ríða til fundar Alþýðuflokkurinn heldur úti- fund á Lækjartorgi klukkan 16 á morgun, föstudag. Ávörp verða flutt og dreift bæklingum og rós- um. Hið óvenjulega við fundinn er það að frambjóðendurnir, með ráðherr- ana Jón Baldvin Hannibalsson og Jóhönnu Sigurðardóttur í broddi fylkingar, koma ríðandi á fundinn. Að sögn Guðlaugs Tryggva Karls- sonar hafa tilskilin leyfi fengist hjá lögreglunni. Hópreið verður frá Umferðarmiðstöðinni um Sóleyjar- götu að Lækjartorgi og verður Lúðr- asveit verkalýðsins rheð í íör.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.