Morgunblaðið - 18.04.1991, Qupperneq 39
rpí’! n'!'!/• «i 'iKfA.iir/jiiniot/
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRIL 1991
ERLENT
Forsætisráðherra Póllands:
Irakar biðja um undan-
þágu frá viðskiptabanni
Reuter
Kúrdi leggur hvítvoðung í gröf í Isikveren-flóttamannabúðununi á
landamærum Tyrklands og Iraks. Myndin var tekin i gær, en á þess-
um slóðum hafa nokkur hundruð flóttamanna dáið daglega vegna
sjúkdóma, matarskorts og vosbúðar.
Umbótavilji og staðfesta
Sovétmanna ekki nægileg
London. Reuter.
SOVÉTMENN búa ekki yfir þeirri staðfestu, sem þarf til að koma
á nauðsynlegum umbótum í laudinu, efnal»ags- og stjórnarfarslegum.
Kemur þetta fram í ræðu, sem Jan Krzysztof Bielecki, forsætisráð-
herra Póllands, mun flytja í Konunglegu alþjóðastofnuninni í Lon-
don, en henni var dreift fyrirfram. Segist hann sjá fyrir sér ofurverð-
bólgu, mikil verkföll og hugsanlegt afturhvarf til einræðis í Sov-
étríkjunum.
KJOSUM EKKI
. YFIROKKUR
LIFLAUSA
SPYTUKARLA
var til íraks til að kanna ástandið
í landinu eftir stríðið sagði í áliti
að landið hefði verið sprengt aftur
á miðaldir og þyrfti á mikilli ut-
anaðkomandi aðstoð að halda ef
koma ætti í veg fyrir hungur og
aðrar hörmungar.
Meðal þess sem írakar segjast
bráðvanta á næstu fjórum mánuð-
um eru 240.000 tonn af hrísgijón-
um, sama magn sykurs, 80.000
tonn af matarolíu, 40.000 tonn af
kjöti, 40.000 tonn af þvottadufti
og 20.000 tonn af. sápu. Stjórn-
arerindrekar sögðu að litið yrði til
þess hvernig írakar brygðust við
tilraunum til hjálparstarfs í norð-
urhluta landsins þegar tekin yrði
afstaða til beiðninnar.
Háttsettur embættismaður SÞ
sagði að írakar hefðu út af fyrir
sig samþykkt að stofnsettar yrðu
flóttamannabúðir í nafni stofn-
unarinnar í írak en ákvörðun
bandamanna um að senda her-
sveitir til hjálparstarfa í norður-
hluta íraks kynni að gera það sam-
komulag að engu.
Bielecki segir, að Sovétmenn eigi
sér engar lýðræðislegar hefðir og
því muni þeim ganga verr en Pól-
verjunum að taka upp markaðsbú-
skap. „Saga þeirra segir frá ein-
ræði, ekki lýðræði, og þeir eru
margir, sem eiga allt sitt undir
óbreyttu ástandi," segir Bielecki.
Hann var í Moskvu í síðasta mán-
uði og kynnti sér þá tilraunir mið-
stýringarvaldsins þar til að koma á
jafnvægi milli framboðs og eftir-
spurnar. „Verðhækkanirnar munu
óhjákvæmilega leiða til launa-
krafna, mótmæla, verkfalla og loks
launahækkana. Þá mun gerast ann-
að af tvennu: Stjórnvöld munu
herða tökin og koma kannski á ein-
hveijum markaðsumbótum með
valdi eða við raunum sjá þróunina
tii raunverulegs lýðræðis fara af
stað.“
Bielecki segir, að Samstaða hafi
haft tíu ár til sannfæra Pólverja
um að til væri annar kostur en
kommúnismi en þessarar andlegu
uppfræðslu hafi Sovétmenn ekki
notíð. Segir hann, að pólska aðferð-
in, umbætur í áföngum, sé væn-
legri en sú sovéska, sem virðist
byggjast á þeim misskilningi, að
samfélagið geti tekið stakkaskipt-
FRJÁLSLYNDIR
Sameinuðu þjóðunum, Reuter.
ÍRAKAR hafa farið þess á leit
við Sameinuðu þjóðirnar (SÞ)
að fá að selja olíu fyrir um millj-
arð dollara (um 60 milljarða
ISK) á næstu fjórum mánuðum
til þess að geta keypt matvæli
og aðrar nauðsynjar sem þá
skortir tilfinnanlega í kjölfar
Persaflóastríðsins.
1 bréfi íraksstjómar til SÞ er
óskað eftir undanþágu frá við-
skiptabanninu er komi í veg fyrir
að daglegt líf geti færst í eðlilegt
horf. Sendinefnd frá SÞ sem send
slfólk
fyrirfólk
Bandaríkin:
Skýrsliu' benda til meiri
efnahagssamdráttar
dragast saman milli 1,5 og 2,0%
á árinu. Til samanburðar dróst
------» ♦■ ♦----
Sovéskur svarta-
markaður:
Út yfir gröf
og dauða
Moskvu. Reuter.
HINN alltumlykjandi svartimark-
aður í Sovétríkjunum hefur nú náð
út fyrir gröf og dauða. Svarta-
markaðsbraskarar í borginni
Abakan í Síberíu hafa komist að
raun um að dánarvottorð eru firna
ábatasöm verslunarvara, af því að
fólk sem sér um útför ástvina
sinna gengur fyrir um kaup á
sparifötum — handa liinum látna.
Föt eru þar torfengin vara.
„Þetta þarf ekki að undra nokk-
urn mann,“ segir dagblaðið Komso-
molskaja Pravda nýiega. „Eina
deild stórmarkaðarins í Abakan,
sem hefur herraföt á boðstólunum,
er- útfarardeildin."
Sovétborgarar eru vanir vöru-
skorti á öllum sviðum og hafa löng-
um sýnt ótrúlega útsjónarsemi og
klókindi til að ná í það sem þeir
hafa þarfnast. En að sögn Komso-
molskaya Pravda er þessi misnotk-
un á viðleitni borgaryfirvalda í
Abakan til að lina sorg fólks við
ástvinamissi komin út yfir öll vel-
sæmismörk.
„Það sem var vel meintur vel-
gjörningur borgaryfirvalda til að
tryggja að í það minnsta lík væru
sómasamlega klædd hefur snúist
upp í farsa,“ segir blaðið. „Hvenær
hefur svo sem verið nóg til fyrir
þá sem eru lifandi?“
Washington. Reuter.
SAMKVÆMT upplýsingum hins
opinbera í Bandaríkjunum hef-
ur samdráttur orðið í bygginga-
riðnaði og öðrum iðngreinum í
mars og bendir það til þess að
samdráttur í efnahagslífinu
verði meiri og vari lengur en
talið hefur verið, að sögn hag-
fræðinga.
Samkvæmt upplýsingum við-
skiptaráðuneytisins varð 9,3%
samdráttur í byggingum íbúðar-
húsnæðis í mars, en 17,2% aukn-
ing hafði orðið í þeirri atvinnu-
grein í febrúar.
Þá skýrði bandaríski seðlabank-
inn frá því í gær, að samanlögð
heildarframleiðsla verksmiðja,
náma og almenningsfyrirtækja,
hefði dregist saman um 0,3% í
mars.
Er það sjötti mánuðurinn í röð
sem samdráttur á sér stað á þess-
um sviðum efnahagslífsins.
Ennfremur birtu samtök verk-
smiðjueigenda í gær upplýsingar
um iðnaðarframleiðslu fyrstu þijá
mánuði ársins en samkvæmt þeim
varð samdráttur á þeim tíma 3,0%
á ársgrundvelli.
Höfðu hagfræðingar reiknað
með að iðnaðarframleiðslan myndi