Morgunblaðið - 18.04.1991, Side 53

Morgunblaðið - 18.04.1991, Side 53
1 SíoáGÖlfeLÁÐÍÖ: FfíílMT?ííDÁG<Orii Í 8. ÁPRlíi Í991 53 Framsóknarflokk- urinn í Reykjavík eftír Karl Ormsson Hér áður fyrr var pólitík að mínu áliti bæði persónulegri og harðskeyttari. Það voru nokkrir aðilar sem skáru sig úr af eld- móði, og stundum óvenju miklu miskunnarleysi. Það voru til dæm- is Olafur Priðriksson, Jónas Jons- son og Einar Olgeirsson. Alltaf loðir það við Framsóknarflokkinn síðan það skammaryrði er hann fékk á sig (og með réttu) en það var „óvinur Reykjavíkur“ og ekki af ástæðulausu. Það var á gullald- arárum Framsóknarflokksins sem framsæknum sjálfstæðismönnum í Reykjavík datt það snjallræði í hug að byggja orkuver fyrir Reykjavíkurborg en þá var ekkert raftnagn til eldunar í höfuðborg- inni. Framsóknarmönnum þótti þetta mikið bruðl. Þeir héldu að húsmæður í Reykjavík væru ekki of góðar að elda við mó og kol frekar en húsmæður til sveita og það er það sem Framsóknarflokk- urinn getur aldrei þvegið af sér að hljóta þetta sæmdarheiti. Það einkennir þá þingmenn Framsókn- arflokksins, sem slysast hafa inn á þing hér í Reykjavík að þeir hafa aldrei látið sig nokkru máli skipta málefni Reykjavíkur, þeir telja alltaf að þeir þurfí að snúast gegn Reykjavíkurauðvaldinu sem þeir kalla svo, og eiga þar við Sjálf- stæðisflokkinn, þó vitað sé að Sjálfstæðisflokkurinn sækir fylgi sitt til allra stétta þjóðfélagins, og ekki síður til launþega (þ.e.a.s. til fjöldans). Nú tróna framsóknar- menn með Finn Ingólfsson efstan á lista sínum í Reykjavík, sem aflað hefur sér óvenjulega mikillar óvinsældar ekki síst hjá heilbrigð- isstéttunum. Það er merkilegt að þegar Framsóknarflokkurinn hefív ur kosið sér þingmann, og hann hefur ekki verið nógu þægur í taumi, samanber Guðmundur G. Þórarinsson, hafa þeir farið með hann eins og nagdýr fer með tré, sem nagar alltaf fyrst í rótina á trénu þar til það fellur. Nú er ekki ætlun mín að gera Guðmund G. Þórarinsson að einhveijum dýrðlingi, nema síður sé, en hann á sér marga fylgismenn, sem Finn Ingólfsson þarf ekki að láta sig dreyma um að fá atkvæði frá. Best er þó að vitna í uppgjör Guðmundar í tímaritinu Mannlíf 2. tölublaði 1991, þar sem hann gerir upp sakir við Framsóknar- flokkinn. Þar segir hann að Finnur Ingólfsson sé svo ómerkilegur að hann kjósi að þurfa aldrei að hafa við hann orðastað, enda hafí hann bitra reynslu af Finni er hann fals- aði kosningarnar í prófkjörinu í vetur. Kunningi minn sem er fram- sóknarmaður segir að af tvennu illu hafi Guðmundur G. verið skárri kostur, enda hafa þekktir með- nefndarmenn Finns Ingólfssonar í heilbrigðismálum lýst honum sem óheiðarlegum, sem ekki sé hægt að treysta, og verður erfitt fyrir Framsókn að fá mann kosinn í Reykjavík með Finn í efsta sæti, því Framsóknarflokkurinn í Reykjavík er klofínn (þó Guð- mundur G. hafi hætt við framboð sitt) og ekki máttu þeir nú við því. Á miðstjómarfundi framsókn- armanna núna rétt fyrir kosning- ar, sýndi Finnur að hann fer með lygi og blekkingar um landsfund sjálfstæðimanna, hann svíður sem aðra aðdáendur vinstri stjórnar- innar að Sjálfstæðisflokkurinn skuli ganga heill og óskiptur til kosninga. Hans ráð er að fara með blekkingar um klofning sem eng- Karl Ormsson „Það einkennir þá þing- menn Framsóknar- flokksins, sem slysast hafa inn á þing hér í Reykjavík að þeir hafa aldrei látið sig nokkru máli skipta málefni Reykjavíkur.“ inn fótur er fyrir. Finnur ætlar ekki að vera nein undantekning frá öðrum þingmönnum Fram- sóknar í Reykjavík að fá sæmdar- heitið „óvinur Reykjavíkur“. Það eru margir kjósendur sem hafa orðið að yfirgefa landsbyggðina fyrir atbeina vinstri stjórnar Stein- gríms Hermannssonar og eiga margir henni grátt að gjalda. Nú geta þessir kjósendur launað vinstri stjórninni í kjörklefanum í kosningunum sem framundan eru. Svo lengi sem framsóknarmenn bjóða fram menn eins og Finn Ingólfsson geta sjálfstæðismenn unað glaðir, aðrir flokkar eru allir í molum. En nú er að horfa fram á veginn. Þó vildi ég með örfáum skýringum sýna fólki hvemig Framsóknarflokkurinn vann, og vinnubrögð hans hafa ekkert breyst. Það er ekki ofmælt að Sjálfstæðisflokkurinn á að stefna að að ná hreinum meirihluta á Alþingi og það á að vera hægt, nú hafa kjósendur séð hvers konar skrípaleik vinstri stjórnin hefur leikið hér á Alþingi síðustu dagana nú þegar Alþingi var í tímahraki með að koma bráðnauðsynlegum málaflokkum í gegnum þingið, nú geta kjósendur séð hvernig þess- um herrum er treystandi fyrir landsstjórninni. Þeir rífast inn- byrðis sem pörupiltar og þvælast fyrir í öllum málum, svo ætla þess- ir herrar að framlengja líf vinstri stjórnarinnar eftir kosningar (ótrúleg bjartsýni). Samt er ekki úr vegi að vara kjósendur við and- varaleysi, þó Borgaraflokkurinn hverfi af þingi er tæknilegur mög- uleiki fyrir vinstristjómina að bæta Kvennalistanum við og stjórna þannig áfram. Kjósendur er örugglega farið að langa til að refsa vinstri stjórninni fyrir öll afglöp sín undanfarinna ára. Efl- um einn flokk til ábyrgðar á Al- þingi, eflum sterkan Sjálfstæðis- flokk. Höfundur er ruflækja vördur. FORELD sSpífííís ■ '.■■■■'• ■■' ''■'■■■ ÁKAfíOr,. ^^HHEmnLmv SjvXgum Á sjöunda starfsári okkar bjóðum við upp á fjölbreytta og vandaða dagskrá undir stjórn reyndra leiðbeinenda: Reiðnámskeið, íþróttir, leiki, sveitastörf, siglingar, sund, kvöldvökur o.fl. VERÐ: ✓ I tilefni þjóðarsáttar höldum við verðinu óbreyttu frá því í fyrra: 1 vika kr. 15.800, 2 vikur kr. 29.800. Staðfestingargjald fyrir 1 viku kr. 5.800, fyrir 2 vikur kr. 9.800. Systkinaafsláttur: 1 vika kr. 1.200, 2 vikur kr. 2.400. TÍMABIL: 2. júní - 8. júní, 1 vika 9. júní - 15. júní, 1 vika 16. júní - 22. júní, 1 vika 23. júní - 29. júní, 1-2 vikur 29. júní - 6. júlí, 1 vika 7. júlí - 13. júlí, 1 vika 14. júlí - 20. júlí, 1 vika 21. júlí - 27. júlí, l-2vikur 27. júlí - 2. ágúst, 1 vika 5. ágúst -11. ágúst, 1 vika 11. ágúst - 17. ágúst, 1 vika Innritun fer fram á skrifstofu SH Verktaka, Stapahrauni 4, Hafnarfirði. SÍMI 65 22 21 Samkort vrSA f Iflf RÍKISÚ7VARPIÐ KOSNINGAVAKA Fréttastofu Útvarpsins - á Rás 1 og Rás 2 - á stuttbylgju til sjómanna á hafi úti og til Islendinga erlendis Kosninganóttin: Rás 1 Kosningaútvarp hefst klukkan 21 á laugardagskvöld. Fréttir af talningu atkvæða. Landskunn tölvuspá Út- varpsins og Reiknistofnunar Háskólans. Viðbrögð frambjóðenda. Tónlist. Rás 2 Kosningafréttir á heilum og hálfum tíma aila nótt- ina. Sunnudagur: Hádegisfréttir Útvarps og kosningafréttaauki klukkan 13 á Rás 1. Heildarúrslit og úrslit í hverju kjördæmi. Forystumenn stjórnmálaflokkanna í hringborðsumræðu. Viðbrögð ótal frambjóðenda í gleði og sorg. Stuttbylgjusendingar um kosningahelgina: Til Evrópulonda Til Bandaríkjanna Kl. 21- 6 (kosninganótt) 11402 9334 9265 7734 3295 kHz 15770 13855 9265 7734 kHz Kl. 12-16 (sunnudngur) 11402 15790 kHz 13855 15770 kHz íslenskur tími er só sami og GMT. Hlustunarskilyrói geta verið misgóó af ýmsum óstæðum. Æskilegt er oó nota útvarpstæki með starfrænu vali (digital) og útiioftnet. P.S. Lótið ættingja erlendis vita um stuttbylgjusendingar RÚV! Ríkisútvarpið sendir út á stuttbylgju allan sólarhringinn á 3295, 6100 og 9265 kHz. _____________________;

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.