Morgunblaðið - 18.04.1991, Page 57

Morgunblaðið - 18.04.1991, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRIL 1991 57 '100/. BOMULL ®Óseyri4, Auðbrekku 2, Skeifunni 13, J Akureyri Kópavogi Reykjavik Yelferð og valkostir eftir Rannveigu Guðmundsdóttur Islendingar kjósa flestir að þjóð- félag okkar teljist til velferðarsam- félaga. Þó er ekki víst að allir leggi sama skilning í hugtakið velferð eða séu sammála um hvernig velferðar- þjóðfélagið eigi að líta út. Almennt er að menn setji jafnaðarmerki á milli veiferðar og velmegunar. Hér er um mikla einföldun að ræða því vel má hugsa sér velmegun án vel- ferðar. Velmegun felst í lífskjörum, en þau geta verið misskipt. Velmeg- un getur líka afvegaleítt og skapað hættur ef ekki er að gáð. Velferðin ræðst aftur á móti af lífsgæðum, verðmætum sem hafa gildi í sjálfu sér og geta verið óháð efnislegum mælikvarða. Á meðal þeirra verð- mæta er siðferðisþrek til að gæta að hag þeirra sem skerta getu og möguleika hafa til að veija eigin rétt. Börn, unglingar, aldraðir, fatl- aðir, sjúkir og fátækir eru á meðal þeirra sem velferðarþjóðfélagið á að standa vörð um. Og það skiptir máli á hvern hátt það er gert. Alþýðuflokkurinn hefur á síðustu árum leitað svara við því hvernig megi efla velferðarkerfið þannig að það svari betur kalli nútímans og þjóni breytilegum þörfum fólksins. Það er ósköp auðvelt að slá um sig með kjörorðum um félagshyggju og aukna velferð ef ekki þarf að sýna fram á hvað þarf að gera, forgangsröðun verkefna og hvernig beri að framkvæma umbætur. kerfinu, sem við jafnaðarmenn biðj- um um að fá tækifæri til að fylgja til enda. Málefni ungmenna verða að fá pólitíska viðurkenningu með skipulögðum forvarnaraðgerðum. Unglingum stafar nú meiri ógn af vímugjöfum en nokkru sinni fyrr. Sá ógnvaldur hefur lagt hramm sinn á ófáar fjölskyldur og enginn fær séð fyrir hvert næsta fórnar- lamb verður. Stór verkefni blasa við í málefnum fatlaðra. Það mark- mið að fatlaðir fái notið eðlilegs lífs í samfélagi með öðrum gerist ekki nema þeim sé tryggð heimaþjónusta og önnur stuðningsþjónusta ásamt öruggu húsnæði. Nú liggja fyrir frumvarpsdrög að nýjum lögum um málefni fatlaðra sem njóta eindreg- ins stuðnings hagsmunasamtaka fatlaðra. Við Alþýðuflokksmenn biðjum um stuðning til að tryggja að þau verði að lögum. Eitt stærsta nýmæli þess frumvarps er að tekin eru af tvímæli um rétt geðsjúkra til að njóta þjónustukerfis fatlaðra. Jafnframt er gert ráð fyrir sérstöku átaki til stuðnings geðsjúkum með árlegu framlagi á íjárlögum næstu fimm árin til uppbyggingar þjón- ustu fyrir þá. Það er sorgleg stað- reynd að geðsjúkir hafa orðið horn- rekur í velferðarkerfinu og nú er svo komið að þeir skipta mörgum tugum sem eru heimilislausir sam- kvæmt nýjum niðurstöðum sér- stakrar athugunar sem félagsmála- ráðuneytið hefur látið gera á hús- næðismálum þeirra. Hér er um smánarblett á íslenska þjóðfélaginu að ræða. Verkefni í velferðarmálum Félagsþjónusta sveitarfélaga Hvarvetna blasa við verkefni á sviði velferðarmála. Uppvaxtarskil- yrði ungra barna þarf að bæta veru- lega með öflugu átaki í dagvistar- málum og ekki síður fjölþættum aðgerðum til að styrkja afkomu ungbarnafjölskyldna. Þar hefur grundvöllurinn að nokkru verið lagður með nýsköpun í húsnæðis- Á síðasta degi þingsins varð frumvarp um félagsþjónustu sveit- arfélaga að lögum. Þessi lög munu marka tímamót í sögu velferðar- mála á íslandi verði við þau staðið. Þetta eru rammalög sem kveða á um velferðarkerfi sveitarfélaganna, þjónustu þeirra við börn, unga og aldraða, skyldur þeirra í húsnæðis- „List að lifa“ á Hólmavík ÞAÐ ER list að lifa heitir vetrarverkefni Leikfélags Hólmavíkur að þessu sinni. Sýningin samanstendur af þremur gjörólíkum einþátt- ungum. Þeir eru Stað og stund eftir Peter Barnes, Náttgalabær eftir Agötu Christie og Þú ert í blóma lífsins, fíflið þitt eftir Davíð Þ. Jónsson. Einþáttungunum er öllum leik- stýrt af heimamönnum, þeim Arn- línu Óladóttur, Hrafnhildi Guð- björnsdóttur og Jóni Jónssyni. Alls taka 17 leikarar þátt í sýningunni, auk þess sem fjöldi fólks lagði hönd á plóginn. Sýningar verða sem hér segir: Föstudaginn 19. apríl er frumsýn- ing í Bragganum, Hólmavík, 2. sýn- ing sunnudaginn 21. apríl í Bragg- anum og lokasýning í Hólmavík verður þriðjudaginn 23. apríl. Föstudaginn 26. apríl er sýnt í Sævangi og miðvikudaginn 1. maí í Félagsheimilinu Drangsnesi. Sýn- ingarnar hefjast allar kl. 20.30. Einnig er fyrirhuguð ieikferð eina helgi í júní en ekki hefur verið ákveðið hvert verður farið. Loka- punkturinn aftan við Það er list að lifa verður síðan settur með sýningu norður í Árneshreppi síðar í sumar. Hótel Island: „Rokkað á himn- um“ fyrir fullu hósi HÓTEL ísland hefur nú sýnt „Rokkað á himnum“ fyrir fullu húsi frá því sýningar hófust í september síðastliðnum, en það eru yfir 35 sýningar. Sýningin er byggð á tíu gullaldarárum ameríska rokksins frá 1954-1964, og er kjarni hennar 70 lög, en inn á milli fléttast saga um sálina hans Jóns og Gullna hliðið. Flytjendur eru söngvararnir Björgvin Halldórsson, Sigrfður Beinteinsdóttir, Eyjólfur Kristjáns- son, Stefán Hilmarsson og Eva Ásrún Albatsdóttir, auk tólf manna „Eitt stærsta nýmæli þess frumvarps er að tekin eru af tvímæli um rétt geðsjúkra til að njóta þjónustukerfis fatlaðra. Jafnframt er gert ráð fyrir sérstöku átaki til stuðnings geð- sjúkum með árlegu framlagi á fjárlögum næstu fimm árin til uppbyggingar þjónustu fyrir þá.“ málum, _ atvinnumálum og fleiri þáttum. í reynd eru þetta einu lög- in sem sett hafa verið hér á landi sem fela í sér raunhæfa fjölskyldu- pólitík þar sem þau mæla fyrir um margháttaða þjónustu sem miðar arð því að styrkja fjölskylduna. Rammalög af þessu tagi hafa verið sett fyrir áratugum á hinum Norð- urlöndunum en þrátt fyrir nokkrar tilraunir sem spanna meir en áratug Rannveig Guðmundsdóttir hefur ekki tekist að ná þeim fram hér fyrr en nú. Gjarnan hefur verið litið svo á að félagsleg þjónusta sveitarfélaga væri neyðarúrræði og að það bæri vott um vesaldóm að eiga eríndi á félagsmálastofnun. Hin nýju lög eiga að leggja grund- völl að viðhorfsbreytingu í þessum efnum. Samkvæmt þeim er aflögð sú ölmusuhugsun sem fólst í gömlu framfærslulögunum en þess í stað boðið ný sýn um fjölþætta velferð- arþjónustu í því skyni að koma til móts við þarfir einstaklinga og fjöl- skyldna. Ástæða er til að vekja á því sérstaka athygli að sveitarfélög- um eru ætluð þesi verkefni en ekki ríkinu. Með því er lögð áhersla á velferðarþjónustu sem næst fólkinu þannig að auðveldara sé að taka mið annars vegar af staðbundnum aðstæðum og hins vegar þörfum einstaklingsins og fjölskyldunnar. Alþýðuflokkurinn biður um umboð til að standa vörð um þessi nýju lög sem fjölmörg hagsmunasamtök, faghópar, stéttarfélög og ýmis félög sem vinna að mannúðarmálum lögðu svo mikla áherslu á að hlytu brautargengi. Og það er athyglis- vert að andstaðan við þessi lög um féiagsþjónustu var hörðust frá Al- þýðubandalaginu, sem á hátíðar- stundum og fyrir kosningar er afar duglegut' við að gefa sjálfum sér einkunnina „forystuflokkur félags- hyggjunnar". Alþýðuflokkurinn hefur í stefnu sinni tvíþætt markmið: ábyrga efnahagsstjórn til þess að tryggja velmegun, sem er undirstaða vel- ferðar. Velferðarmarkmiðið er þannig höfuðatriðið í baráttu Al- þýðuflokksins. Höfundur skipar þriðja sæti & lista Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi. hljómsveitar með Stjórnina innbyrð- is og tólf dansara. Höfundar sýning- arinnar eru Björn G. Björnsson og Björgvin Halldórsson, og danshöf- undur er Helena Jónsdóttir. ■ GEÐHJÁLP heldur síðasta fyr- irlestur vetrarins í kvöld, fimmtu- dagskvöldið 18. apríl, kl. 20.30 á geðdeild Landspítalans í kennsl- ustofu á 3. hæð. Fyrirlesari er Margrét Bárðardóttir sálfræðing- ur og fjallar um geðklofa. rÍLBOV \Jt<0

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.