Morgunblaðið - 18.04.1991, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ .FIMMXUDAGUK. 18. APRÍL. l,9ftl
m
+
Eiginmaður minn,
JÓNAS B. SIGURBERGSSON
frá Svinafelli,
Hólabraut 16,
Höfn, Hornafirði,
lést í Landspítalanum 16. apríl. Jarðarförin auglýst síðar.
Auður Lóa Magnúsdóttir.
t
Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
LILJU ODDSDÓTTUR,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
sem lést þann 10. þ.m., verður gerð frá Bústaðakirkju föstudag-
inn 19. apríl kl. 13.30.
Hrafnhildur Sveinsdóttir, Hjördís Ragnarsdóttir,
Valur Ragnarsson, Örn Ragnarsson,
Brynja Ragnarsdóttir, Oddur Ragnarsson,
Ragnar Ragnarsson, Hrafn Ragnarsson,
Ingibjörg Ragnarsdóttir,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför mannsins míns, föður, tengdaföður og afa,
RAGNARS KRISTINNS BJARNASONAR,
Höfðavegi 46,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Sjúkrahúss Vestmanna-
eyja.
Pálína Jónsdóttir,
Þórunn Ragnarsdóttir, Matthías Magnússon,
Sigríður Ragnarsdóttir, Jón Oddsson
og barnabörn.
t
Móðlr okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HREFNA JÓNSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Lundi,
andaðist í sjúkrahúsinu á Selfossi þann 11. apríl sl.
Jarðsett verður frá Árbæjarkirkju 19. apríl kl. 14.00.
Alda Ólafsdóttir, Sigurður Karlsson,
Baldur Ólafsson, Sigríður Pálsdóttir,
Bragi Ólafsson,
Jón Ólafsson, Lind Ebbadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐLAUGUR GUÐMUNDSSON
útgerðarmaður,
Mýrarholti 14,
Ólafsvfk,
sem lést 12. apríl, verður jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju laugar-
daginn 20. apríl kl. 14.00.
Ingibjörg Steinþórsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við þeimv sem
sýndu okkur vinsemd og hlýhug við
andlát og útför bróður okkar,
ALFREÐS INGA JÓNSSONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og for-
stöðukonu Dvalarheimilis aldraðra í
Vestmannaeyjum. Einnig forstöðu-
manns sjúkrahússins og starfsfólks og
vina hans í Fiskiðjunni í Eyjum.
Systkini hins látna.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐMUNDA EIRNÝ SIGURJÓNSDÓTTIR (Gúnda),
Gránufélagsgötu 53,
Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 19. apríl
kl. 13.30.
Þeir, sem vilja minnast hennar, láti hjúkrunarheimilið Hlíð njóta
þess.
Þórey Stefánsdóttir,
Rafn Stefánsson.
tengdasynir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Tryggvi Sæmunds-
son - Kveðjuorð
Fæddur 12. maí 1923
Dáinn 17. mars 1991
Nokkur fátækleg kveðjuorð til
vinar míns, sem látinn er aðeins
67 ára eftir erfið veikindi í stuttan
tíma.
Hann kom frá Hjalteyri ungur
maður til Akureyrar til að reyna
að komast í iðnnám, eins og flestir
ungir menn á þeim árum. Úr for-
eidrahúsum fékk hann í arf heiðar-
leika og drengskap, sem öllu máli
skiptir í lífinu. Ekki íþyngdi honum
farangurinn, sem var aleigan í lítilli
tösku. Ekki var auðvelt á þessum
árum að komast á samning. Þurftu
menn að taka það sem í boði var
og það síður en svo glæsilegt hvað
kjörin snerti.
Við Tryggvi vorum á svipuðu
róli og tókst okkur báðum að kom-
ast á samning. Valdi hann múrverk-
ið, og vann hann við það æ síðan.
Fylgdumst við að í gegnum námsár-
in og næstu ár og hnýttust þá þau
vináttubönd, sem aldrei hafa slitnað
síðan.
Vinnudagurinn var langur eða
frá kl. 7 að morgni til 4 á daginn
og vera svo mættur í skólann kl. 5
svo ekki var mikill tími til bókn-
áms. En allt gekk þetta upp.
í þá daga stóðu nú ekki gljáandi
glæsikerrur nemenda fyrir utan
Iðnskólann eins og í dag; í mesta
lagi nokkur reiðhjól, sem vart báru
þess merki tii hvers þau væru ætl-
uð. Oft vorum við búnir að hlæja
að því er við þurftum að setja spil
í skóna, sem oft voru orðnir lúnir,
til að hlífa sokkunum. Síðar varð
hann virtur, duglegur og eftirsóttur
byggingameistari, og bera þær
byggingar þess glöggt vitni er hann
stjórnaði.
Stærsta gæfusporið steig hann
er hann gekk að eiga eftirlifandi
eiginkonu sína, Svanfríði Guð-
mundsdóttur, hina mætu og elsku-
legu konu, nágrannakonu mína til
fjölda ára á Fjólugötunni. Eignuð-
ust þau þijú börn, sem öll eru vel
gift og hafa reist sér falleg heimili.
Þeirra fallega og smekklega
heimili stóð öllum vinum og kunn-
ingjum ætíð opið enda óvenju-
skemmliieg bæði tvö og með af-
brigðum góð heim að sækja. Alltaf
var slegið á létta strengi, enda var
alltaf stutt í grínið hjá húsbóndan-
um og björtu hliðarnar sá hann allt-
af.
Golfið átti hug hans allan um
árabil, enda liðtækur í þeim leik og
fylla hillur og veggir á heimilinu
verðlaunagripi hans. Ófáir voru
þeir hringir er við lékum saman í
golfinu og gekk á ýmsu. Nú hefur
hann leikið sinn síðasta hring.
Margar ferðir fórum við saman um
okkar fallega land og ein slík var
í undirbúningi, en sú ferð verður
ekki farin, einnig ferðuðumst við
saman utanlands og lékum golf á
erlendri grundu og úr öllum þessum
ferðum eigum við hjónin yndislegar
minningar sem ekki gleymast.
Við hugsum til eiginkonunnar
hans, barna og annarra ástvina og
biðjum góðan Guð að gefa þeim
styrk í sorginni.
Lát opnast himins hlið
þá burt ég fer
mitt andlát vertu við
og veit mér frið hjá þér
þá aup ekkert sjá,
og eyru heyra’ ei meir
og tunga mæla’ ei má
þá mitt þú andvarp heyr.
(Davíð Stefánsson)
Benedikt Hermannsson
Orð
milli vina
gerir daginn góðan.
Það gleymist ei
en býr í þjarta þér
sem lítið fræi
Það lifir
og verður að blómi,
Og löngu seinna
góðan ávöxt ber.
(Gunnar Dal)
Þannig var Tryggvi, dagurinn
varð blessunarlega góður ef maður
hitti hann.
Og nú er hann horfinn, aldrei
framar sjáum við kímna brosið
hans, né heyrum hnyttnar athuga-
t
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
JAKOBS INDRIÐASONAR,
Norðurgarði 7,
Keflavík.
Sérstakar þakkir fá Karlakór Keflavíkur og kvennaklúbbur kórsins.
Ingibjörg Ingimundardóttir,
Sigríður Gróa Jakobsdóttir,
Ingunn Jakobsdóttir, Guðmundur P. Ólafsson,
Kristinn Jakobsson,
Elín J. Jakobsdóttir,
Ingimundur Jakobsson,
Helga Jakobsdóttir, Ólafur I. Jónsson
og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GESTUR SÓLBJARTSSON
frá Hrappsey,
verður jarðsunginn-frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 20. apríl
kl. 14.00.
Fyrir hönd ættingja,
Bergsveinn Gestsson.
t
Móðursystir mín og frænka okkar,
KATRÍN KRISTLEIFSDÓTTIR,
Stóra-Kroppi,
verður jarðsungin fró Reykholtskirkju föstudaginn 19. april
kl. 16.00.
Þeir, sem vilja minnast hennar, vinsamlegast láti Dvalarheimili
aldraðra, Borgarnesi, njóta þess.
Andrés Jóhannesson og fjölskylda.
semdir hans, því kímnigáfu hafði,
hann í ríkum mæli. Græskulaus
spaugsyrði hans komu öllum í gott
skap, enda ekki sögð til þess að
valda sársauka. Tryggvi var hlýr
maður og góðviljaður og vildi leysa
vandamál allra ef hægt var.
Þau hjón Fríða og Tryggvi voru
vinir okkar og félagar til margra
ára. Óútreiknanleg eru þau tildrög
í mannlífinu, sem láta fundum
manna bera saman og sem verða
undirstaðan að sambúð og samferð
hm lífsleiðina. Götur manna á jörð-
inni liggja hver í sína átt og við
vitum oft á-tíðum ekki hvert stefnir,
vitum jafnvel ekki hver verður næt-
urstaðurinn að kvöldi hvers dags.
Og þegar við í hópi samferðamanna
hittum einhvern þann fyrir, er okk-
ur öðrum fremur geðjast að, viljum
við sem lengst ganga götuna við
hlið hans. Við gleðjumst saman á
góða veginum í góða veðrinu og
við grátum og stríðum saman í
vonda veðrinu um torfærurnar,
Þetta verður til þess að færa sam-
ferðamennina saman, skapa inn-
byrðis tryggð og vináttu, sem
grundvallast á hugtökunum sam-
vera og samferð. Og þegar slík
tryggð og vinátta hefur varað lang-
an tíma vonum við vissulega að hún
fái haldist sem lengst. í því sam-
bandi láist okkur stundum að taka
með í reikninginn að „eitt sinn skal
hver deyja“. Það eitt er öruggt, eins
og hitt er jafn óútreiknanlegt hvar,
hvernig eða hvenær kallið kemur.
Við íjögur sem þetta skrifum eig-
um margar glaðar og ljúfar minn-
ingar frá ferðalögum og skemmti-
kvöldum hvert hjá öðru eða víðsveg-
ar út um sveitir lands, og margar
dásamlegar ferðir suður í Evrópu.
Síðasta ferðin okkar til Benidorm
glitrar í minningunni og páskaferð-
in okkar var hálft í hvoru ákveðin,
Við söknum hans Tryggva vinar
okkar og höfum satt að segja ekki
áttað okkur á að hann sé ekki leng-
ur í okkar hópi. Þetta var svo snöggt
og erfitt. Hann andaðist í Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri þann
17. mars, fyrir aldur fram, eða
tæplega 68 ára gamall. Þetta kom
okkur mjög svo á óvart. Við kvödd-
um hann í fullu fjöri þann 27. febr-
úar að morgni, við sundlaugina hér
í bæ, eftir hinn næstum daglega
sundsprett. Hver hélt heim til sín
án þess að nokkurn grunaði hvað
í vændum var, en tveimur dögum
seinna var hann lagður inn á sjúkra-
hús fársjúkur. Þar barðist hann
með hjálp hinna færustu lækna við
þann sjúkdóm sem örðugt reynist
oft að sigra. Og nú er hann, þessi
ljúfi og ætíð hressi og skemmtilegi
drengur, horfinn okkur a.m.k. í
bráð.
Elsku Fríða, reyndu að horfa með
rósemi til dauðans, líta á hann sem
fagurt haust, því alltaf vorar á ný.
Góður Guð gefi þér og þínum styrk
til að þola þessa djúpu sorg.
Blessuð sé minning Tryggva.
TVIegi hann eiga góða heimkomu.
Þú
sem ferð
ferð aldrei allur.
Hveiju sinni
skilur þú eitthvað eftir.
Hluta’af þér - í mér.
(Þú; Sverrir Páll Erlendsson)
Halla og Jóhann Gunnar,
Gunna og Lilli,