Morgunblaðið - 18.04.1991, Page 69

Morgunblaðið - 18.04.1991, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ FlMMTUDAGUIl 18. APHÍL1,99T Kveðjuorð: Margrét Jónatans- dóttir Líndal Sviplegt fráfall Margrétar Jón atansdóttur Líndal kom mér sem öðrum á óvart. Þorgeir sonur henn- ar hringdi til mín síðla dags 12. mars sl. og sagði mér að hún hefði orðið bráðkvödd daginn áður, þar sem þau hjón voru á skíðaferð í Bláfjöllum. Margrét fæddist á Holtastöðum í Langadal í Húnavatnssýslu 2. september 1917. Foreldrar hennar voru þau Guðríður Sigurðardóttir Líndal, frá Lækjarmóti í Víðidal, og Jónatan J. Líndal bóndi og hreppstjóri á Holtastöðum. Heimilið á Holtastöðujn^var þekkt myndar- og menningarheimili. Þaðan átti Margrét sínar bernskuminningar, sem þó voru tregablandnar, því um fermingaraldur missti hún móður sfna, en það varð henni sár harm- ur. Þegar slíkt ber að á viðkvæm- asta skeiði ævinnar, fer vart hjá því að eftir standi ör, sem seint eða ekki hverfa. Margrét stundaði nám við Kvennaskólann á Blönduósi og síðar við Verslunarskólann í Reykjavík. Að námi loknu stundaði hún ýmis störf í Reykjavík, en lengst mun hún hafa starfað hjá Landsímanum. Arið 1944 giftist Margrét Bergi Vigfússyni, kennara frá Geirlandi á Síðu, en frá þeim tíma hófust kynni okkar Margrétar. Bergur bytjaði að kenna við Flensborgaskólann haustið 1943, og það sama haust settist ég í þann skóla. Allt frá fyrstu kynnum mínum af Bergi Vigfússyni hefi ég notið traustrar vináttu hans, og síðar einnig Mar- grétar eftir að þau höfðu stofnað sitt eigið heimili. Þar var ég næstum heimagangur öll skólaárin, og alltaf jafn velkominn. Gestrisni og hjálp- Rebekka Guðmunds- dóttir - Minning Fædd 30. júlí 1908 Dáin 26. mars 1991 Ég kynntist Rebekku haustið 1977 þegar ég fór að vinna á elli- heimilinu Ási í Hveragerði. Reb- ekka var þá nýkomin þangað vist- kona. Hún vakti strax athygli mína og fann ég að þessi kona átti eitthvað bágt og var að mörgu leyti eitthvað öðruvísi en hinar gömlu konurnar sem ég kynntist þarna. Hún fór strax að biðja mig að hugsa hlýtt til sín og biðja fyr- ir sér, því hún væri svo einmana, ég játti því að svo miklu leyti sem ég gæti. Rebekka var mjög sér- stæður persónuleiki, hún var greind kona og létt í lund gat hún verið ef eitthvað skemmtilegt bar á góma. Við ræddum ýmislegt í gamni og kannski í alvöru stund- um en vorum ekki alltaf á sama máli um hlutina og læt ég ósagt hvor hafði meira á réttu að standa. Við ræddum ýmis mál hins dag- lega lífs, t.d. ástamálin og trúmál- in. Hún var trúuð kona og hafði mikla samúð með fólkinu sínu ef hún frétti af veikindum hjá því. Mér fannst hún alltaf hafa mikið samband við frændfólk sitt í Reykjavík og fyrir austan fjatl. Hún fór allflesta daga niður á Hótel Ljósbrá og fékk að hringja í fólkið sitt. Einnig las Rebekka mikið dagblöðin og stytti hún sér mikið stundir við það, oft sagði hún mér ýmislegt sem hún sá í blöðum og þótti fréttnæmt. Oft talaði Rebekka við mig í síma t.d. ef ég var í fríi frá vinn- unni og þá voru venjulega fyrstu orðin „ég hringdi nú bara til að vita hvort þú værir tórandi" og svaraði ég jafnan í sama tón. Ég vann á þessu heimili í 11 ár. Eftir að ég hætti að vinna þar fór ég þangað svona á 3 mánaða fresti til að heimsækja Rebekku og aðr- ar kunningjakonur mínar sem þar eru og alltaf fagnaði hún mér inni- lega. Nú í vetur kom ég sjaldnar en heyrði stöku sinnum í Rebekku í síma og seinast nú i janúarmán- uði, þá fannst mér liggja vel á henni og slógum við uppá gríni eins og vant er. Hún sagði þá við mig „þú kemur nú öðru hvoru hingað á meðan ég tóri“ og ég játti því og einkennilegt var það að sama daginn og ég sá dánartil- kynninguna í blöðunum var ég búin að hugsa mér að fara að heimsækja hana og mætti ekki draga það lengur. Alltaf hlakkaði Rebekku til jól- anna. Hún fór allflest árin til skyldfólks síns í Reykjavík á að- fangadag og dvaldi hjá því yfir jólin en síðustu tvenn eða þrenn jól treysti hún sér ekki suður og fannst henni það mikill missir, en sætti sig orðið við það. Þegar hún kom austur eftir jóla- hátíðarnar sagði hún mér ævin- lega hvað hún hefði fengið gott að borða og drekka hjá fólkinu sínu sem hún kom til, og eins lang- Kristín G. Kolbems- dóttir - Kveðjuorð Fædd 4. apríl 1909 Dáin 22. mars 1991 Okkur langar til að minnast elskulegrar ömmu okkar í örfáum orðum. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsi ísafjarðar að morgni föstu- dagsins 22. mars síðastliðins. Okk- ur er efst í huga að þakka henni allar þær góðu stundir sem við átt- um með henni og allt það góða sem hún gerði fyrir okkur. Amma var mjög elskuleg kona, hún vildi ávallt allt fyrir alla gera en gat þó verið ákveðin að sama skapi og hafði fastmótaðar skoðanir sem við lærð- um að virða. Heimsóknirnar til ömmu voru alltaf mjög skemmtilegar, hún kenndi okkur að spila á spil og leggja kapla og á þeim stundum var ekkert kynslóðabil. Hún sá til þess að enginn fór frá henni með tóman maga og það fyrsta sem hún gerði þegar maður kom var að draga fram sælgætisskálina sem var mjög vinsæl meðal okkar barn- anna. Sárt er til þess að hugsa að fá aldrei að sjá ömmu aftur, en minn- ingin um hana mun þó alltaf búa í hjörtum okkar. En það er gott að vita af því að hún er í góðum hönd- um hjá Guði, þar sem hún og Sigur- jón afi eru sameinuð á ný. Með eftirfarandi ljóðlínum Davíðs Stefánssonar kveðjum við ömmu okkar. Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð. Þú vaktir yfir velferð barna þinna. Þú vildir rækta þeirra ættarjörð. Frá æsku varst þú gædd þeim góða anda, sem gefur þjóðum ást til sinna landa og eykur þeirra afl og trú. semi var þeim hjónum eðlislæg og naut ég í ríkum mæli. Því á ég margar hugljúfar minningar' frá heimili þeirra. Margrét hafði hlotið ættlæga listagáfu að erfðum. Hún unni fögr- um listum, og hygg ég að þar hafi þau hjón verið samstíga. Margrét hafði sem unglingur lært á hljóð- færi hjá móður sinni, og eftir lát aði hana alltaf að vita hvað ég hefði haft í matinn þennan og hinn daginn á mínu heimili. Já, svona ræddum við hlutina í gamni og alvöru. Mér fannst Rebekka aldrei vera gömul eða gamaldags í tali, hún var ungleg í andliti og lagleg, velvaxin og vildi líta vel út um hárið og var snyrtileg en þó nýtin og sparsöm. Rebekka átti ekki marga vitni utan síns skyldfóþks en hún var vinur vina sinna. Ég vissi að hún átti eina gamla og góða vinkonu í Reykjavík og bað hún mig alltaf fyrir jólin að kaupa eins falleg kort og ég fyndi til að skrifa á það fyrir sig, það vildi nú svo til að ég þekkti skyldfólk og systkin þessarar konu því hún var ættuð úr Grímsnesinu. Rebekka talaði oft um það hvað útsýnið væri fallegt út um kvist- gluggann á herberginu hennar og hvergi vildi hún annarsstaðar vera í Á_si en einmitt í þessu herbergi. Ég heldað henni hafi bara liðið vel eftir sem hægt var, að minnsta kosti sagðist hún helst vilja deyja þama. Nú er Rebekka blessunin dáin og komin til guðs. Útför hennar fór fram frá Fossvogskirkju 5. þessa mánaðar í blíðu og björtu veðri svo að sólskinið fyllti kirkjuna. Ég fylgdi henni til grafar því mér fannst hún eiga það inni hjá mér, svo oft var hún búin að fylgja mér niður á Hótel Ljósbrá þar sem ég tók bílinn heim að loknum vinnu- degi. Ég þakka Rebekku fyrir hlýhug allan og traust til mín þessi ár sem við þekktumst og bið henni allrar blessunar. Hvíli hún í friði. K.K. En það er eðli mjúkra móðurhanda að miðla gjöfum - eins og þú. Blessuð sé minning ömmu og afa. Jóhanna, Hannes Már, Kristln og Sigurlaug/ hennar auðnaðist henni að auka við kunnáttu síná á því sviði. Síðast en ekki síst var það myndlistin sem Margrét heillaðist af, og hygg ég að hún hafi náð býsna langt í þeirri listgrein. Hún stundaði myndlist- arnám hér heima og einnig erlend- is. Þau hjón ferðuðust víða um lönd m.a. til að skoða listasöfn. En Margrét hampaði ekki verkum sínum, það var ekki hennar háttur. Hún var einlægur náttúruunnandi, og í því sem flestu voru þau hjón samstíga. Mér segir svo hugur um, að það hafi ekki verið Margréti mótfallið að enda sína ævigöngu úti í náttúrunni. Ég hef oft rifjað upp í huganum, ferð sem ég fór með þeim hjónum fyrir næstum 46 árum, frá Geysi í Haukadal vestan Langjökuls um Kaldadal til Borgarfjarðar. Við höfðum náttstað við Hlöðufell, en töpuðum þaðan tveimur hestum. Tók það okkur Berg mikinn hluta dags að finna þá, en á meðan gætti Magrét hestanna sem vísir voru. Þar sem leitin tók lengri tíma en við hugðum í fyrstu, tókum við að verða áhyggjufullir vegna Margrét- ar þegar líða tók á daginn, en það reyndist þó óþarfi. Þegar við loks, síðla kvölds, komum með týndu hestana, kom Margrét brosandi á móti okkur með gamanyrði á vör. Það hafði ekki raskað ró hennar þó hún ætti í nokkrum erfiðleikum með að gæta hestanna. Slíkt var æðruleysi hennar og rósemi, sem ég hygg að hafi einkennt skaphöfn hennar öðru fremur. Jafnan þegar ég hef átt leið' um Langadal, hef ég hugsað til Mar- grétar er farið er fram hjá Holta- stöðum. Þar steig hún sín fyrstu spor, og þar átti hún sínar gleði- stundir, en einnig sorgir. Vafalítið hefur tiyggð hennar við hið vina- lega æskuumhverfi, glætt ást henn- ar á náttúru landsins. Þar er fjallið að bæjarbaki og Blanda bugðast við túnfótinn, oft lygn og hljóðlát, en stundum beljandi stórfljót eða bólgin við skör. Eg hef óskað þess að fundum okkar Margrétar og Bergs hefði borið oftar saman, en því miður hafa atvikin hagað því á annan veg hin síðari ár. Við Þórunn vottum Bergi og fjöl- skyldu hans innilega samúð okkar. Það er mannbætandi að hafa kynnst konu sem Margréti Líndal. Fyrir það er ég þakklátur. Magnús Kolbeinsson + Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GÍSLI ÓLAFSSON bakarameistari, Dalbraut 21, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, föstudaginn 19. apríl kl. 13.30. Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á að láta líknarstofnanir njóta þess. Kristín Einarsdóttir, Anna Gisladóttir, Einar Ó. Gíslason, Friðgerður Samúelsdóttir, Erlingur Gíslason, Brynja Benediktsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn og faðir okkar, SVEINIM SIGURÐSSON tæknifræðíngur, Stuðlaseli 18, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 19. apríl kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeir, sem vildu minnast hans, vinsamlegast láti Slysavarnafélag íslands og björgunarsveitina Ingólf njóta þess. Margrét Björk Andrésdóttir, Ólöf Adda Sveinsdóttir, Sigurður Rúnar Sveinsson, Bjarki Már Sveinsson. + Faðir okkar, tengdafaðir og afi, HERMANN SIGURÐSSON, Þórsbergi, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 19. apríl kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið. Ragnheiður Hermannsdóttir, Böðvar Hermannsson, Þórunn Hermannsdóttir, Lovísa Hermannsdóttir, Haraldur Hermannsson, Herdís Hermannsdóttir, Jóhanna Sveinsdóttir, Runólfur Skaftason,' Gunnlaugur Óskarsson, Sigríður Jóhannsdóttir, Jóhann Gunnarsson og barnabörn. + Þökkum innilega öllum, sem sýndu okk- ur samúð og vinarhug við andlát bróður okkar, fósturbróður og mágs, MEYVANTS RÖGNVALDSSONAR, Lindargötu 18, Siglufirði. Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki Sjúkrahúss Siglufjarðar, enn- fremur skólasystkinum úr árgangi ’33. Jóhann Rögnvaldsson, Erna Rósmundsdóttir, Aðalheiður Rögnvaldsdóttir, Gottskálk Rögnvaldsson, Unnur Jónsdóttir, Aðalbjörn Rögnvaldsson, Guðbjörg Jóhannsdóttir, Bjarni Árnason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.