Morgunblaðið - 21.04.1991, Blaðsíða 20
20 C
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 21. APRÍL 1991
Draumurinn rætist, aftur
Guðlaug Hanna Ragnars-
dóttir.
Kveðja
FYRIR rúmu ári lét Guð-
laug Hanna Ragnarsdótt-
ir áratuga draum rætast
og hasiaði sér völl i Dan-
mörku með breiðskífunni
Drommen. Sú plata vakti
athygli í dönskum tónlist-
arheimi og fyrir stuttu
tók Guðlaug upp aðra
breiðskífu sem kemur út
á næstunni.
Guðlaug Hanna semur
flest lög skífunnar
nýju, en Jóhann Helgason á
eitt lag. Hún semur einnig
flesta texta, en hefur einnig
samið lög við ljóð Davíðs
Stefánssonar, Hugrúnar og
Ingibjargar Sigurðardóttur,
sem hún syngur á íslensku.
Guðlaug Hanna segist án-
ægðari með útsetningar og
vinnu á plötunni nýju, en á
þeirri síðustu, og að tónlist-
in hafi þokast úr poppinu í
átt á þjóðlegri tónlist. Plat-
an heitir Hilsen til
hjemstavnen, kveðja til
æskustöðvanna, og eins og
áður sagði kemur hún út
innan skamms.
Guðlaug Hanna hefur
verið iðin við tónleikahald
ytra síðustu misseri og
fengið lof fyrir, en ekki er
ljóst hvort af tónleikum hér
á landi verði að sinni.
MIKILL BLÚSKAPPI
EKKI ber á öðru en að bandaríski gítarsnillingurinn
Steve Vai, sem hingað kom með Whitesnake í vetur,
hafi kunnað vel við sig, þvi í viðtali við bandariskt
gítarblað fyrir skemmstu segir hann að hann hafi
leikið best á tónleikum á árinu í Reykjavík.
Ekki nóg með það held-
ur segir hann þegar
hann er spurður að því
hver sé besta „óuppgötv-
aða“ gítarhetjan að það sé
piltur sem hann hafi séð
spila í Tveimur vinum; mik-
ill blúskappi. Það kvöld
sem Steve Vai og félagar
hans í Whitesnake litu inn
á Tvo vini, eftir teiti í L.A.
Café, léku þar Blúsmenn
Andreu og Guðmundur
Pétursson hélt á gítamum.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Guðmundur Pétursson
Besti „óuppgötvaði" gítarleik-
arinn.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Steve Val Bestur í Reykja-
vík
Enn Bandalög
DÆGURT
Til hvers safnplö
IST
SMÁSKÍFUR eru sungnar auglýsingar; auglýsingar
fyrir hljóinsveitir sem hyggjast liala inn á spila-
mennsku og selja mikið al' plötuni og auglýsingar
fyrir útgefendur, sem treysta á að sá sem hrífst af
lagi með hljómsveit sé líklegur til að kaupa með
honum breiðskífu. Hér á iandi er smáskífumarkaður
ekki til, en í hans stað kemur safnplatan.
eftir Arna
Motthiosson
Fyrsta safnplata sum-
arsins er væntanleg
um þessar mundir, þó ekki
sé enn kominn sumardag-
urinn fyrsti. Á plötunni,
sem
Steinar
hf. gefur
út undir
nafninu
Bandalög
3, verða
iög inn-
lendra og
erlendra
flytjenda í bland og þar á
meðal framlag íslendinga
til söngvakeppni evróskra
sjónvarpsstöðva.
Bandalög 3 er í röð safn-
platna sem Steinar hf. hef-
ur gefið út, en að þessu
sinni verða á plötunni fimm
erlend lög og ellefu íslensk.
Ekki verður frekar getið
um erlendu lögin, en þau
(slensku era með ýmsum
flytjendum; Draumur um
Nínu með Stefáni og Eyfa,
Þú, þú, þú og Ekki aftur
Alfreð með íslandsvinum,
Lengi lifi lífið með Sigrúnu
Evu og Jóhannesi Eiðssyni,
Syngjum okkur hás með
Galíleo, Skólalagið með
Plús og mínus, Moldrok(k)
með Pís of keik, Sumar og
sól með Upplyftingu og Ég
ætla heim með Páli Óskari
Hjálintýssyni. Einnig verða
á plötunni endurhljóðbl-
önduö og nokkuð breytt lög
með Bubba Morthens,
Sonnetta nr. 2, og Todmo-
bile, Pöddulagið nr. 2.
Kjartan hjá Steinum hf.
sagði að safnplötur eins og
Bandalög kæmu til vegna
þess að ekki væri grund-
völlur fyrir jþví að gefa út
smáskífur. A plötunni væru
íslenskar og erlendar sveit-
ir, sem sumar hveijar ættu
eftir að vinna sét' nógu
trausta stöðu á markaðn-
um til að hægt væri að
gefa út með þeim breið-
skífur. Dæmi um það væru
Pís of keik, Galíleó og ís-
landsvinir, og flytjendur
Draumur um Nínu Eyfi og Stefán.
eins og Sigrún Eva og Páll
Óskar Hjálmtýsson. Þetta
væri besta leiðin fyrir út-
gefendur að kynna sér
hvemig tónlist sveitanna
fellur í kramið hjá plötu-
kaupendum og ákveða
framhaldið eftir því.
Kjartan sagði og að
safnplötur væru einnig til-
valdar fyrir alveg óreyndar
sveitir og að Steinar hf.
Sumar og sól Upplyfting.
væri alltraf á höttunum
eftir nýstárlegum hljóm-
sveitum og tónlist til að
vinna með.
Næsta breiðskífa frá
Steinum hf. verður svo
önnur safnplata, Bandalög
4, þar sem á verða ráðsett-
ari hljómsveitir á við Sál-
ina, Todmobile, Rtö og
Nýdönsk, en einnig gæti
einhver af þeim sveitum
sem lög eiga á Bandalögum
3 fengið inni, en Bandalög
4 er hugsuð til að halda á
lofti nöfnum sveitanna fyr-
ir sumarið; bæði til að þær
fái meira að gera spilavert-
íðina og til að halda aðdá-
endum volgum þar til
breiðskífa kemur með
haustinu.
STAKKANÓVÍTINN
PHIL COLLINS
Vinsœlli en Bítlarnir? Jesus Jones.
HIPHOPROKK
NÝJASTA bylgjan breska
er dansrokkið svokallaða,
þar sem þéttur taktur og
hihopbútun ber uppi
rokkfrasa og popprödd-
un. Ein af björtustu von-
unum í þeirri deild er
breska sveitin Jesus Jon-
es, sem gerir sig klára í
að leggja undir sig heim-
inn.
Jesus Jones kom fram á
sjónarsviðið með laginu
Info Freako fyrir rúmum
tveimur árum. Það lag vakti
geysi hrifningu, en breið-
skífan sem á eftir fylgdi,
nánast Info Freako endur-
tekið með afbrigðum, vakti
vonbrigði. Sveitin var þó
ekki af baki dottin og eyddi
næstu mánuðum í lagasmíð-
ar og tónleikahald, en það
orð fer af sveitinni að hún
sé flestum sveitum fremnri
og villtari á sviði. Fyrir
stuttu kom svo frá Jesus
Jones breiðsktfan Doubt.
Á Doubt bregður fyrir
þáttum sem gerðu
títtnefnda smáskífu að einni
af bestu smáskífum ársins
1989, en einnig merki þess
að sveitarmenn vita hvert
þeir vilja og ætla að fara í
tónlist sinni. Talsmaður
sveitarinnar, söngvarinn og
lagasmiðurinn Mike Ed-
wards, segir að Jesus Jones
ætli sér að leggja heiminn
að fótum sér og breyta tón-
listasmekk almennings og
besta leiðin til að ná því
fram sé að Jesus Jones verði
vinsælli en Bítlamir. Ef
marka má viðtökur gagn-
rýnenda, sem gefa plötunni
yfírleitt fullt hús stiga, gæti
sveitin náð eitthvað áleiðis,
en annað er líkast undir
framtíðarverkum hennar
komið.
ÞVÍ hefur verið haldið
fram að Phil Collins sé
duglegasti poppari seinni
tíma, og víst er að vinnu-
álag það sem hann ræður
við er nóg til að ganga frá
hverjum manni. Þrátt fyr-
ir það er eins og hann
hafi alltaf tíma til að gera
hvaðeina fyrir aðra, ekki
síður en að setja saman
hverja poppperluna af
annarri.
Fyrir nokkru kom út með
Phil Collins tónleika-
skífan Serious Hits Live, þar
sem var að finna safn nokk-
urra helstu laga hans á tón-
leikum. Þær upptökur voru
gerðar á tónleikaferð Coll-
ins á síðasta át-i sem stóð í
níu mánuði, en á þeim tíma
lék sveitin á 127 tónleikum
um heim allan.
Þeir sem gerst þekkja af
samstarfsmönnum hans
segjast hafa gefist upp fyrir
Phil Collins í hóp helstu
lagasmiða poppsögunnar.
löngu á að reyna að fylgja
honum eftir. Gott dæmi um
þrekið er nefnt að árið 1982
hafi Collins gefið sér tíma
til að spila inn á breiðskífu
með Robert Plant, stýra
upptökum og útsetningum
á breiðskífu Önnu Fridu
Abbastúlku, leika með
Jethro Tull á tónleikum,
semja lög á og taka upp
aðra sólóskífu sína og kynna
þá skífu með tugum viðtala,
séð um smáskífuútgáfu á
lpgum af Abacab Genesis,
auk þess sem sveitin lék á
tónleikum og tók upp tólf-
tommu.
Iðni Collins skýrir nokkuð
af vinsældum lians, og á
síðustu árum hefur þessi
ópoppstjörnulegi maður
komist í hóp helstu laga-
smiða poppsögunnar og
sendir frá sér hvert metsölu-
lagið af öðru, eins og glöggt
má heyra á breiðskífunni
sem getið var í upphafi.