Morgunblaðið - 03.05.1991, Side 26
2S
AtOKGtítffeLAÖffi ’ 50 STUDÁGÍIR ■ 3 ’■' MÁUl Ö91
Hátíðahöldin 1. maí:
Talið er að rúmlega 5 þúsund manns hafi komið saman í miðborginni 1.
degi launafólks.
Morgunblaðið/KGA
maí á alþjóðiegum baráttu-
Fjölmenni safnaðist
saman í miðborginni
RUMLEGA fimm þúsund manns komu saman í miðborg Reykjavík-
ur við hátíðahöld í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi launafólks
1. maí, en að þeim stóðu Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í
Reykjavík, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og Iðnnemasam-
band Islands.
Hátíðahöldin hófust með kröfu-
göngu, sem lagði af stað frá
Hlemmi kl. 14, en gengið var nið-
ur Laugaveginn að Lækjartorgi
með Lúðrasveit verkalýðsins og
Lúðrasveitina Svan í broddi fylk-
ingar. Að göngunni lokinni var
haldinn útifundur á Lækjartorgi,
en einnig gengust Samtök kvenna
á vinnumarkaði fyrir útifundi á
Hallærisplaninu. Ræðumenn á
Lækjartorgi voru Ögmundur Jón-
asson, formaður BSRB, og Sig-
urður Rúnar Magnússon, hafnar-
verkamaður, en fundarstjóri var
Elín Sigurðardóttir, formaður Iðn-
nemasambands Islands. Á Hallæ-
risplaninu fluttu ávörp þær Ásdís
Steingrímsdóttir, meinatæknir,
Elna Katrín Jónsdóttir, kennari,
og Stefanía Þorgrímsdóttir, borg-
arstarfsmaður, en fundarstjóri
þar var Bjarnfríður Leósdóttir.
Auk ræðuhalda voru skemmtiat-
riði bæði á Hallærisplaninu og
Lækjartorgi, en þar söng meðal
annars Bubbi Morthens nokkur
lög.
Kröfuganga gekk frá Hlemmi niður á Lælyartorg, og sést hún
hér koma niður Bankastræti.
Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, í ræðustól á útifundinum
á Lækjartorgi.
Frá útifundinum á Lækjartorgi.
Lára Maack skip-
uð yfirlæknir
réttargeðdeildar
GUÐMUNDUR Bjarnason, fráfarandi heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra, hefur skipað Láru Höllu Maack, yfirlækni nýstofnaðrar
réttargeðdeildar ráðuneytisins frá og með 1. maí nk. Ráðherra vill
að kannaðir verði möguleikar á rekstri slíkrar deildar í.tengslum
við geðdeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Á yfirstandandi ári er gert ráð
fyrir 22 milljón kr. framlagi til
þessa verkefnis. Einnig hefur feng-
ist heimild til kaupa á húsnæði til
nota sem heimili fyrir geðsjúka af-
brotamenn.
Hlutverk réttargeðdeildar er að
vista þá sem dæmdir eru ósakhæfir
og verður ekki refsað samkvæmt
ákvæðum almennra hegningarlaga
en vegna réttaröryggis eru dæmdir
til að sæta ótímabundinni vistun á
viðeigandi hæli.
í öðru lagi er deildinni ætlað að
annast geðlæknisþjónustu í fang-
elsum landsins við fanga sem taldir
eru sakhæfir og hafa verið dæmdir
til fangelsisvistar en eru geðveikir
eða eiga við geðræn vandamál að
stríða.
Þá er það hlutverk réttargeð-
deildar að framkvæma geðrann-
Lára Maack
sóknir á þeim sem gert hefur verið
að sæta geðrannsókn vegna rann-
sókna mála og að annast geðrann-
sóknir eða geðskoðun, t.d. vegna
mats á því hvort láta eigi viðkom-
andi afplána refsingu utan fang-
elsa.
Magnús Pétursson.
Fjármálaráðuneytið:
Magnús Pétursson skip-
aður ráðuneytisstjóri
FORSETI íslands hefur skipað Magnús Pétursson ráðuneytisstjóra
fjármálaráðuneytisins frá 1. maí 1991 samkvæmt tillögu Ólafs Ragn-
ars Grímssonar, fráfarandi fjármálaráðherra.
Með breytingu á lögum um
Stjórnarráð íslands var fjárlaga-
og hagsýslustofnun sameinuð fjár-
málaráðuneytinu og staða ráðu-
neytisstjóra þá auglýst laus til um-
sóknar. Umsækjendur um stöðuna
voru tveir: Magnús Pétursson settur
ráðuneytisstjóri og Indriði H. Þor-
láksson, sem gegnt hefur starfi
varafulltrúa Norðurlanda í stjórn
Alþjóðagjaldseyrissjóðsins.
Magnús Pétursson er fæddur 26.
maí 1947 og er hagfræðingur að
mennt. Hann gegndi stöðu hag-
sýslustjóra á árunum 1981-1988
og starfaði síðan erlendis þar til í
ársbyijun 1990 er hann kom aftur
til fyrri starfa. Jafnframt því að
gegna stöðu hagsýslustjóra var
Magnús settur ráðuneytisstjóri í
fjármálaráðuneytinu i febrúar
1990;.........................—
Aðalritari Aðventista:
Anægjulegar breyt-
ingar orðið hér á landi
BERT B. Beach, aðalritari heims-
samtaka Sjöunda dags aðvent-
ista, var staddur hér á landi í
síðustu viku. Hann var á leið frá
Englandi til aðalstöðvanna í
Bandarikjunum þar sem hann
var viðstaddur innsetningu erk-
ibiskupsins af Kantaraborg í
embætti.
Beach hefur margsinnis komið
til íslands enda var hann með aðset-
ur í Bretlandi um margra ára skeið
og sá þá um menntunarmál Aðvent-
ista í V-Evrópu og Afríku. Hin
síðari ár hefur hann starfað á aðal-
skrifstofu kirkjunnar í Bandaríkjun-
um og séð um almenningstengsl,
mannréttindi og trúfrelsi. Hann
veitir forstöðu þeirri deild Aðvent-
ista sem annast opinber tengsl við
stjórnvöid í hveiju landi og samband
þeirra við önnur kirkjuleg samfélög.
Beach kom síðast til landsins
fyrir ellefu árum og hann sagði að
breytingarnar væru mjög ánægju-
legar, gróður væri mun meiri og
mikið hefði verið byggt síðan 1980.
Á meðan hann dvaldi hér hitti
hann forseta íslands, frú Vigdísi
Finnbogadóttur, herra Sigurbjöm
Einarsson, biskup, fulltrúa
Reykjavíkurborgar auk þess sem
hann heilsaði upp á nemendur og
kennara í Hlíðadalsskóla, sem Að-
ventistar reka.
Hann sagði að Aðventistar í
heiminum væru um 5 milljónir en
útbreiðslan væri hröð og líklega
yrðu þeir rúmlega 5 milljónir, í
Afríku einni, árið 2000. Hér á landi
eru Aðventistar um 600 talsins.
Morgunblaðið/Sverrir
Dr. Bert B. Beach.
■ Á PÚLSINUM föstudaginn 3.
maí og laugardaginn 4. maí leikur
hljómsveitin Deep Jimi and The
Zep Creams í fyrsta sinn í
Reykjavík. Eins og nafngift hljóm-
sveitarinnar gefur til kynna sérhæf-
ir hljómsveitin sig í tónlist hljóm-
sveita eins og Deep Purple, Led
Zeppelin, Cream og Jimi Hendrix,
auk þess að klæðast samkvæmt
ríkjandi tísku þess tímabils þegar
nefndar hljómsveitir stóðu á há-
punkti frægðarferils síns. Hljóm-
sveitina skipa: Júlíus Freyr Guð-
mundsson, trommur, Þór Sigurðs-
son, gítar, Björn Árnason, bassi,
Baldur Þórir Guðmundsson,
hammondorgel, og Sigurður Ey-
berg sér! úm sönginn.